Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 34
MENNTUN
34 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Nýbýlavegi 12,
sími 554 4433
Vor- og sumarvörunar komnar
Jakkar frá kr. 3.900
Buxur frá kr. 1.690
Pils frá kr. 1.900
Mikið úrval af kjólum
MENNINGARTENGDferðaþjónusta er kjöriná Hólum, því þekkt sagastaðarins spannar þús-
und ár, enda standa nemendur á
ferðamannabraut Hólaskóla reglu-
lega fyrir viðburðum með vísun í sög-
una; draugakvöldverði, dorgveiði,
reiðtúrum. Hrossabraut skólans er
vissulega á heimaslóðum í Skagafirði
og á Hólum er helsta rannsóknarstöð
landsins í fiskeldi og hefur höfuð
rannsókna- og þróunarverkefni fisk-
eldisbrautarinnar verið um kynbæt-
ur á eldisbleikju.
Undanfarin ár hefur Hólaskóli
skapað sér sér stöðu sem háskóla-
stofnun og eru iðulega nokkrir nem-
endur á Hólum að vinna að meistara-
eða doktorsverkefnum sem tengjast
ferðamennsku, fiskeldi eða hrossa-
rækt. Einnig hafa verið gerðir samn-
ingar við Háskólann á Akureyri og
Háskóla Íslands um að meta tiltekið
nám til þrjátíu eininga á ákveðnum
brautum. Rannsóknir á Hólum eru
margar unnar í samstarfi við atvinnu-
lífið, innnlenda háskóla og erlendar
stofnanir. Nemendur úr öðrum skól-
um fara einnig til Hóla til að stunda
rannsóknir sínar.
Fiskur, hross og ferðalög
Blaðamaður flaug á Sauðárkrók 3.
apríl síðastliðinn og fór heim til Hóla
til að ræða við forsvarsmenn og nem-
endur um skólann og brautirnar
þrjár, en búast má við að Hólaskóli
muni eflast verulega á þessari öld.
Ferðamál, fiskeldi og hrossarækt og
reiðmennska eru svið sem spáð er
bjartri framtíð. „Nemendur fá mjög
sterka fagmenntun hérna,“ segir
Skúli Skúlason skólameistari Hóla-
skóla og nefnir sem dæmi að eftir eitt
ár á hrossabraut útskrifist nemendur
með hestafræði eða sem leiðbeinend-
ur í ferðaþjónustu. Eftir tvö ár fá þeir
„diplóma“ í búnaðarfræðum og fá
inngöngu í félag tamningamanna.
Eftir þriðja árið (5 mánuðir) útskrif-
ast nemendur sem þjálfarar og reið-
kennarar og er það nám metið sem 15
einingar í háskóla. Hólaskóli er op-
inber miðstöð kennslu og rannsókna í
hrossarækt og reiðmennsku. Skólinn
rekur hrossaræktarbú sem nýtist í
kennslu og rannsóknastarfi.
„Á ferðamálabrautinni er áherslan
á dreifbýlið, menninguna og náttúr-
una. Markmið námsins er að veita
fólki sem hefur áhuga á störfum inn-
an ferðaþjónustugeirans víðtæka og
hagnýta menntun,“ segir Skúli „og að
þeir sem útskrifist sem búfræðingar
af ferðamálabraut fái landvarðarrétt-
indi.“
Fiskeldisbraut Hólaskóla býður
svo upp á sérhæft nám í eldi fiska og
sjávarlífvera, samhliða vatnavist-
fræði og nýtingu vatna. Deildin er
miðstöð bleikjurannsókna og kyn-
bóta og á í formlegu samstarfi við
fjölda háskóla hérlendis og erlendis á
sviði kennslu og rannsókna. (sjá:
www.holar.is).
Gildi sögu og
menningar á Hólum
Hólaskóli á sér vissulega sögu því
árið 1106 stofnaði Jón Ögmundsson
biskup þar latínuskóla og sagan síðan
hefur verið atburðarík. „Á tímum
Jóns Arasonar biskups er talið að hér
hafi búið allt að 400 manns,“ segir
Skúli og til að æra ekki óstöðugan
nefnir hann aðeins Guðbrand Þor-
láksson til sögunnar og að hér hafi
Arngrímur lærði og Hallgrímur Pét-
ursson numið. Í Hóladómkirkju sýnir
hann svo prentverkið Guðbrandsbi-
blíu og les á hógværan legstein hans:
„Guðbrandur Þorláksson, syndari
Jesú Krists. Á herrans ári 1627, 20.
júlí.“
Hver blettur á Hólum er merktur
sögu og á næstu árum mun það verða
enn augljósara en nú er, því fornleifa-
rannsóknir hefjast þar í sumar. En
hvaða máli skiptir þessi saga? Er
ekki alveg jafngott eða jafnvel betra
að læra þetta allt í einhverjum há-
skóla í einhverri stórborg? Svarið er
ef til vill að einhverju leyti ósegjan-
legt og þó!
Byggðafræði og
þverfagleg hugsun
Hólaskóli ætlar að hasla sér völl í
byggðafræðum, en hann byggist nú
þegar á sjálfbærri þróun og virkri
byggðastefnu. Einnig á þeirri hug-
myndafræði að atvinnulíf og mannlíf
eigi að reisa á forsendum svæða,
þannig að unnið sé með það sem er
þekkt og hið nýja þróað út frá því.
Byggðafræði er grein sem Árni
Daníel Júlíusson sagnfræðingur hef-
ur verið að undirbúa á ferðamanna-
braut, og þar má finna hluta af
svarinu. Byggðafræði (Rural Stud-
ies) er um hinar dreifðu byggðir og
rannsóknir á þeim. „Menningar-
tengdir þættir byggðafræðinnar eiga
vel heima hér á Hólum,“ skrifar Árni
Daníel um það, „hér hefur löngum
verið auðugt og fjölbreytt menning-
arlíf, og héðan var kirkjunni á Norð-
urlandi stjórnað í 700 ár. Miðlun á
fortíðinni stendur framarlega í
Skagafriði og nágrenni, en stefnt er
að því að byggja á því forskoti.“
Skúli er einnig sannfærður um
þetta. Fyrir utan starfsfólkið er
menningin og sagan aðalstyrkleiki
Hólaskóla. Hólar eru samfélag þar
sem gengið er til móts við framtíðina
með djúpri virðingu fyrir fortíðinni.
Einnig með ígrunduðum hugmynd-
um um hvernig framtíðin geti orðið,
eins og t.d. áherslur í ferðamennsku
sýna. „Byggðamál, umhverfismál og
þverfagleg hugsun eru aðal skólans,“
segir Skúli, og að brautirnar þrjár
hafi allar þróast sem rannsóknar-
brautir. Alþjóðleg tengsl skólans
hafa einnig eflst undanfarin ár og
hafa t.d. verið nemenda- og starfs-
mannaskipti við Guelph-háskólann í
Kanada, þar hann tók doktorspróf.
„Þrír kennarar hafa farið héðan og
numið við Guelph, t.d. fór matráðs-
konan í hótelskólann þar,“ segir
Skúli.
Lífsgæðin og
sambandið við aðra
Skúli segir að Hólaskóli laði til sín
gott starfsfólk, núna séu t.d. 5 kenn-
arar með doktorspróf og 7 með mast-
erspróf. Þessi þróun mun halda
áfram því skólinn er að feta sig áfram
á háskólastigi og vilji einnig sinna
nemendum sem vinni að masters- eða
doktorsgráðum. „Hæft starfsfólk hér
skilar sér til samfélagsins í heild, það
hefur margfeldisáhrif,“ segir Skúli,
og vissulega sé það tæknin sem geri
fólki kleift að stunda fræðistörf í fá-
mennri menningu.
Hann segir að möguleg lífsgæði á
Hólum heilli starfsmenn Hólaskóla.
„Hér er góð aðstaða til kennslu og
rannsókna, hér er góður leikskóli og
grunnskóli og ögrandi verkefni
vegna tækninnar,“ segir Skúli sem
jafnframt er staðarhaldari. Hann
segir 60-70 íbúa vera hér með lög-
heimili og með nemendum búi rúm-
lega 100 á Hólum. Styrkleiki skólans
felst einnig í stuðningi frá sveitar-
félaginu og samstarfi við það, og öðr-
um stofnunum á Hólum eins og
Vígslubiskup Hólastiftis og er þar
jafnframt sóknarprestur Hóla- og
Viðvíkurprestakalls. Norðurlands-
deild Veiðimálastofnunar er á Hól-
um, Embætti dýralæknis í hrossa-
sjúkdómum, Héraðssetur Land-
græðslunnar og Fiskeldisstöðin
Hólalax.
Enn eitt sambandið við aðra felist í
því að reglulega stundi gestafræði-
menn eigin rannsóknir á Hólum.
Það væsir ekki um nemendur í
Hólaskóla; Skólahúsið rúmar
kennslustofur, skrifstofur, tölvuver,
bókasafn, matsal og eldhús. Nem-
endagarðar eru fyrir um 50 manns,
aðgangur er að íþróttasal og sund-
laug og loks kyrrðinni í landslaginu.
Ef tekið er tillit til viljans til að stuðla
að áframhaldandi velgengni á Hóla-
skóla er ekki ólíkt að þar myndist
sterkt háskólaþorp á næstu árum.
Aðstoðarskólarstjóri Hólaskóla er
Valgeir Bjarnason. Deildarstjórar
eru Helgi Thorarensen á fiskeldis-
braut, Víkingur Gunnarsson á
hrossabraut og Guðrún Þóra Gunn-
arsdóttir á ferðamálabraut. Viðtal við
Guðrúnu er birt hér í annarri grein,
en viðtal við Helga og Víking í seinni
grein um Hólaskóla síðar í apríl.
Hólaskóli I/ Skúli Skúlason, skólameistari í Hólaskóla, býst við að starfsemin á Hólum verði æ meira á háskóla-
stigi. Hann segir skólann njóta mikils stuðnings atvinnulífs, stofnana og heimabyggðar. Gunnar Hersveinn brá
sér heim til Hóla og fræddist um starfið af nemendum og kennurum, m.a. um alþjóðlegt samstarf.
Vaxandi
háskólanám
á Hólum
Morgunblaðið/Gunnar Hersveinn
Hrossabrautin er mikið aðdráttarafl í Hólaskóla en hægt er að nema þar í 5 annir.
Hólaskóli á fornar rætur sem falla vel að menningartengdri hugsun.
Víkingur, Guðrún Þóra, Skúli og Helgi á Hólum í Hjaltadal.
Ferðaþjónusta í dreifbýli er
kjarninn á ferðabraut
Nemendur fá mjög sterka
fagmenntun á brautunum
HÓLASKÓLI, Hólum í
Hjaltadal, er menntastofnun
undir landbúnaðarráðuneyti. Í
lögum um búnaðarfræðslu (nr.
57/1999) er lögð sérstök
áhersla á rannsókna- og þró-
unarstarf. Lögin heimila Hóla-
skóla að vera með kennslu á
háskólastigi. Nú þegar er
námið að hluta metið sem þátt-
ur af B.S. námi í háskólum
hérlendis; HÍ, HA og Landbún-
aðarháskólanum á Hvanneyri.
Hólaskóli er miðstöð land-
búnaðarráðuneytis á sviði fisk-
eldis og vatnalíffræði, hrossa-
ræktar og hestamennsku og
ferðamála í dreifbýli.
Stúdentar í öðrum háskól-
um geta unnið lokaverkefni
sín undir leiðsögn starfsmanna
Hólaskóla.
Heimasíðan Hólaskóla er
www.holar.is. Heimilisfangið
er Hólar í Hjaltadal. 551 Sauð-
árkrókur.
Hólaskóli