Morgunblaðið - 10.04.2001, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 10.04.2001, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. RANNSÓKNARNEFNDflugslysa var sett á lagg-irnar árið 1996 sem sjálf-stæð stjórnsýslustofnun og starfar sjálfstætt og óháð stjórn- völdum, öðrum rannsóknaraðilum, ákæruvaldi og dómstólum. Um leið var lagt niður rannsóknarhlutverk flugmálastjórnar sem rannsakað hafði flugslys, flugatvik og flugum- ferðaratvik frá árinu 1945, ásamt óháðri flugslysanefnd sem skipuð var árið 1968 og vann sjálfstætt að rannsóknum alvarlegra slysa í sam- vinnu við flugmálastjórn. Tilurð nefndarinnar má rekja til tilmæla Alþjóðaflugmálastofnunar- innar frá árinu 1993 um að rann- sóknaraðilar yrðu ekki lengur hluti af flugmálastjórn viðkomandi landa heldur óháðar einingar. Árið 1994 setti Evrópusambandið fram til- skipun um að þetta skyldi gert í síð- asta lagi í nóvember 1994 og í kjöl- far þess voru sett ný lög um rannsókn flugslysa á Alþingi vorið 1996. Samkvæmt þeim var síðan rannsóknarnefnd flugslysa stofnuð sem óháður rannsóknaraðili. Samkvæmt lögum ber nefndinni að rannsaka öll flugslys og flugat- vik sem verða í borgaralegu flugi á íslensku yfirráðasvæði, auk þess að rannsaka flugumferðaratvik sem verða á íslenska flugstjórnarsvæð- inu. Á síðasta ári rannsakaði nefnd- in t.d. tvö slík atvik, annað við Fær- eyjar og hitt við Grænland. Í rannsóknarnefnd flugslysa sitja fimm menn. Formaður nefndarinn- ar er Skúli Jón Sigurðarson, rann- sóknarstjóri flugslysa, en aðrir nefndarmenn eru Þorsteinn Þor- steinsson, flugvélaverkfræðingur og vararannsóknarstjóri flugslysa, Kristján Guðjónsson, lögfræðingur og framkvæmdastjóri hjá Trygg- ingastofnun ríkisins, Steinar Stein- arsson, flugstjóri hjá Flugleiðum hf., og Sveinn Björnsson, flugmað- ur og framkvæmdastjóri Flugþjón- ustunnar ehf. Þormóður Þormóðs- son, sem lokið hefur BS-námi í flugrekstrar- og tæknistjórnun og er jafnframt flugvélvirki og flug- maður, var ráðinn 1. febrúar sl. til að taka við starfi formanns nefnd- arinnar í byrjun næsta árs þegar Skúli Jón lætur af störfum vegna starfsaldurs og af heilsufarsástæð- um. Tveir menn eru fastráðnir starfsmenn nefndarinnar, þeir Skúli Jón Sigurðarson og Þorsteinn Þorsteinsson, en aðrir nefndar- menn eru skipaðir til fjögurra ára í senn. Að sögn Skúla Jóns Sigurðarson- ar, formanns nefndarinnar, tekur nefndin á hverju ári fyrir fjölda mála. Á síðasta ári voru tekin fyrir 96 mál sem nefndin skrásetti, auk fjölmargra sem ekki voru skráð, þ.e. flugslys, flugatvik og flugum- ferðaratvik. Af þessum 96 málum afgreiddi nefndin 43 þeirra með rannsókn eða á annan formlegan hátt, m.a. með formlegum skýrslum. Tilgangur rannsókna ekki að skipta sök eða ábyrgð Samkvæmt lögum miðar starf rannsóknarnefndar flugslysa ein- göngu að því að auka öryggi í flugi og koma í veg fyrir að flugslys end- urtaki sig. Ólíkt opinberum lög- reglurannsóknum er tilgangurinn með skýrslu rannsóknarnefndar ekki sá að skipta sök eða ábyrgð á slysum. Í 1. grein laga um rannsókn flugslysa segir að flugslysarann- sóknir eigi að miða að því eingöngu að koma í veg fyrir að flugslys end- urtaki sig og að rannsókn á meintri refsiverðri háttsemi í tengslum við flugslys sé óháð rannsókn flug- slysa. Þá er rannsóknarnefnd flug- slysa ætlað að gera tillögur um úr- bætur í flugöryggismálum eftir því sem rannsókn á orsökum flugslysa gefur tilefni til. Skúli Jón segir að rannsókn nefndarinnar sé framkvæmd í öll- um meginatriðum samkvæmt for- skrift Alþjóðaflugmálastofnunar- innar, ICAO, sem gefur út svokallaða skjalauka við alþjóða- flugsáttmálann. Þar fjallar t.d. skjalauki 1 um það hvernig gefa eigi út flugskírteini, skjalauki 2 fjallar um flugreglur o.s.frv. Skjalauki númer 13 fjallar um það hvernig rannsaka eigi flugslys, flugatvik og flugumferðaratvik samkvæmt al- þjóðlegum stöðlum og vinnureglum og fer nefndin eftir þeim reglum og leiðbeiningum sem þar koma fram. Annar fastráðinna starfsmanna nefndarinnar er ætíð á bakvakt og í viðbragðsstöðu ef slys verða. Sam- kvæmt lögum hvílir sú skylda á herðum flugmanna og starfsmanna flugmálastjórnar að gera nefndinni aðvart um leið og atburðir verða. Sé um alvarlegt slys að ræða mætir starfsmaður nefndarinnar þegar á vettvang og starfar þá með lögreglu að vettvangsrannsókn þegar björg- un er lokið. Um leið fer af stað gagnasöfnun og hefur nefndin heimild til þess að leita eftir aðstoð innlendra og erlendra aðila, sem hún gerir að talsverðu leyti eftir því sem þurfa þykir, að sögn Skúla Jóns. Gagnasöfnunin getur orðið mjög tímafrekt ferli þar sem nefndin þarf að bíða vikum og mánuðum saman eftir skýrslum aðila, bæði innan- lands og utan. „Rannsókn okkar heldur auðvitað áfram allan tímann en henni lýkur ekki formlega fyrr en öll kurl eru komin til grafar, þ. á m. umsögn tilgreindra aðila máls hverju sinni.“ Sem dæmi um rannsókn sem ekki er ennþá lokið nefnir flugatvik í desember þegar vél Flugfélags Íslands len alvarlegri ísingu í flugi til ar. Í því máli er nefndin bíða eftir skýrslu Veðurs um atvikið og getur því e rannsókninni, þótt fjórir séu liðnir frá atvikinu. Eftir að rannsókn hef nefndarmenn eins oft sa þurfa þykir til þess að dr mynd af framgangi rannsó ar. Þá heldur nefndin fund sem ástæða er til með aði og starfsmönnum flugmál er kynnt staða mála á þeim sem nefndarmenn telja h að gera. Vinna við frum lokaskýrslu nefndarinnar leið og gögn fara að bera skýrslunnar er staðlað sa fyrirmælum ICAO. Þegar liggja fyrir eru þau send um til umsagnar og tekur þ an oft breytingum samkv um ábendingum og upp sem berast eftir að drög sk ar hafa verið kynnt. „Ég man aldrei eftir þ höfum skrifað skýrslu sem ur tekið breytingum. Brey ar eru auðvitað gerðar ti hafa það sem réttara re Starf rannsóknarnefndar flugslysa miðar eingö Tilgangur rannsókna e ekki að finna sökudólga Rannsóknarnefnd flugslysa vinnur s kvæmt skýrum alþjóðlegum reglum sem markmið rannsókna er að fækka slysum og gera tillögur um úrbætur í öryggismálum. Eiríkur P. Jörundss kynnti sér markmið og starfshætti ne arinnar, sem starfað hefur sem sjálfs stjórnsýslustofnun frá árinu 1996 Morgunblaðið Skúli Jón Sigurðarson, formaður rannsóknarnefndar flugsl Þormóður Þormóðsson sem tekur við af honum í upphafi næs Morgunblaðið/Árn DÝRKEYPT VIÐSKIPTABANN UMHVERFISMAT Á VERSLUNARMIÐSTÖÐVUM Þrátt fyrir að verslunarmiðstöðv-ar hafi afar víðtæk áhrif á um-hverfi sitt gera íslensk lög ekki ráð fyrir að fram fari mat á umhverf- isáhrifum þeirra áður en hafist er handa við framkvæmdir. Afleiðingin er sú að verslunareigendur og sveit- arstjórnir taka ákvarðanir um slíkar stórframkvæmdir í sínum bæ án tillits til fjölmargra umhverfisþátta sem hafa jafnvel afdrifarík áhrif á þróun annarra sveitarfélaga til framtíðar, án þess að þau fái nokkru um það ráðið. Í grein sem birtist hér í blaðinu á sunnudag segir Hrafn Hallgrímsson, deildarstjóri skipulags- og landnýt- ingardeildar í umhverfisráðuneytinu, að ljóst sé Kringlan hafi haft töluverð áhrif á verslun í miðbænum á sínum tíma og að „augljóslega eigi eftir að koma upp stórfelld vandamál […] við Smáralind í Kópavogi“. Sigurður Ein- arsson arkitekt, sem á sæti í sam- starfsnefnd um svæðisskipulag á höf- uðborgarsvæðinu, tekur í sama streng í viðtali við Morgunblaðið og segir að ákvörðun um byggingu Smáralindar hafi legið fyrir þegar farið var að skoða svæðisskipulag fyrir höfuð- borgarsvæðið og ómögulegt hafi verið að líta framhjá því. „Verslunarmið- stöðin hefur auðvitað mjög mikil áhrif á öll byggingaráform svæðisskipu- lagsins og þýðir í raun að þarna verð- ur svæðiskjarni sem nær yfir allt höf- uðborgarsvæðið,“ segir hann. Fram kemur að hann efast um að ráðist hefði verið í þessar framkvæmdir á þessum stað ef ekki hefði verið búið að taka ákvörðunina þegar vinna við svæðisskipulagið hófst. Sem dæmi um bein áhrif fram- kvæmdanna í Smáralind á næsta ná- grenni má nefna að rætt er um að grafa göng undir Kópavogshálsinn og yfir á Kringlumýrarbraut og breikka Reykjanesbraut frá Mjódd að Hafn- arfirði til að anna umferðarþunga. Staðreyndir á borð við þessar vekja óneitanlega ýmsar spurningar er varða sambýli margra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, enda sætir það nokkurri furðu að hægt sé að taka ein- hliða ákvörðun í einu sveitarfélagi sem nágrannasveitarfélögin verða svo að laga sig að eftir bestu getu. Slíkt getur tæpast talist skynsamlegt verk- lag með tilliti til framtíðarskipulags höfuðborgarsvæðisins. Raunar hefur Morgunblaðið margsinnis lýst þeirri skoðun, að sameina eigi sveitarfélög á þessu svæði þannig að þau verði ekki fleiri en tvö, sem mundi einfalda mjög ákvarðanir í skipulagsmálum. Í Danmörku hafa verið sett lög þess efnis að verslun sem er stærri en þrjú þúsund fermetrar verði að fara í um- hverfismat. Í því samhengi er fer- metrafjöldi Kringlunnar og Smára- lindar afar sláandi en þær verslunarmiðstöðvar eru hvor um sig um 63 þúsund fermetrar. Í mati sínu á umhverfisáhrifum líta Danir til þátta á borð við aukna bílaumferð, mengun af hennar völdum, aðgengi fyrir fót- gangandi fólk og ekki síst til áhrifa verslunarkjarnans á nærliggjandi hverfisverslun eða aðra verslunar- kjarna sem oft eru mjög neikvæð. Ljóst er að þjónusta við neytendur minnkar til muna þegar smærri versl- un leggur upp laupana og fara þarf langar leiðir til að versla. Slíkt hefur aukinn kostnað í för með sér fyrir heimilin og bitnar ekki síst á þeim sem kjósa að draga úr bílnotkun eða hafa hreinlega ekki aðgang að einkabílum. Þessi atriði eru öll mjög mikilvæg þegar hugað er að heildarskipulagi byggðar og þróunar hennar, ekki síst með tilliti til vistvænni lífsstíls og fjöl- breytni í verslun og þjónustu. Full ástæða virðist því til að hér á landi verði farið að dæmi þeirra grannþjóða okkar sem standa fram- arlega í skipulagsmálum og miðað við að verslunarmiðstöðvar verði að sæta ítarlegu umhverfismati í framtíðinni. Á þessu ári eru tíu ár liðin frá því aðsett var viðskiptabann á hendur Írökum. Þvingunum þessum er ætlað að beygja Saddam Hussein, leiðtoga landsins, til hlýðni og yrði ekki sýtt þótt hann hrektist frá völdum. Bannið hefur hins vegar síður en svo haft til- ætluð áhrif og væri nær að segja að hlaðið hafi verið undir leiðtogann, sem hefur setið við völd í tvo áratugi. Banninu hafa fylgt ómældar þjáning- ar fyrir almenning í Írak á meðan leið- togi þeirra situr sem fastast og makar krókinn. Saddam Hussein er samviskulaus og grimmur leiðtogi. Það breytist ekki þótt efnahagsþvingununum verði af- létt. Það er hins vegar ljóst að ekki verður haldið áfram lengur á þeirri braut, sem nú er fylgt. Fyrir tveimur árum var talið að ein milljón manna hefði látið lífið vegna viðskiptabanns- ins, helmingurinn börn, og hefur sú tala hækkað síðan. Efnahagslíf lands- ins er í molum, millistéttin að verða að engu og samgöngum og öðrum innvið- um landsins hefur farið svo aftur að því hefur verið haldið fram að þeir þættir verði ekki lagfærðir. Talið er að það muni kosta um 50 milljarða Bandaríkjadollara að færa Íraka aft- ur á það stig sem þeir voru fyrir Persaflóastríðið 1991. Írakar sitja á næststærstu olíulind- um, sem vitað er um í heiminum. Í þessum heimshluta eru tveir þriðju hlutar olíubirgða heimsins og eru bæði Írakar og Íranar andsnúnir Vesturlöndum. Það er því mikið í húfi. Dr. Magnús Þ. Bernharðsson, að- stoðarprófessor í Miðausturlanda- fræðum við Hofstra-háskólann í New York, skrifar um ástandið í Írak í Morgunblaðið á sunnudag og segir þar að „í stað þess að einblína á Sadd- am Hussein ætti stefna Vesturlanda gagnvart Írak að miðast að því að ráða bót á ófremdarástandinu og þeim hörmungum, sem eiga sér stað í land- inu“. Eftir tíu ár ætti að vera fullreynt að viðskiptaþvinganir koma Saddam Hussein ekki frá völdum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.