Morgunblaðið - 10.04.2001, Síða 45
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 45
MIG langar til að
bæta svolitlu í um-
ræðuna sem fram hef-
ur farið í fjölmiðlum
undanfarið um starf-
semi námskeiðahald-
arans Paul Welch hér
á landi.
Ég hef fylgst með
störfum hans úr fjar-
lægð í u.þ.b. tvö ár, að-
allega í gegnum góða
vinkonu mína sem var
í ársþjálfun hjá hon-
um. Seinna hóf ég
nánari athugun á
starfsemi hans, með
því að ræða við tæpan
tug manna og kvenna sem höfðu öll
verið undir handleiðslu hans.
Ólöf Sverrisdóttir skrifaði grein
sem birtist á þessum síðum 24.
mars síðastliðinn. Í greininni kom
m.a. fram að hún taldi umfjöllun
um Paul hafa verið of neikvæða og
múgsefjun á ferð. Hún minnist líka
á kærleiksríka og jákvæða reynslu
sína undir leiðsögn Welch.
Ég hef sjálfur ekki farið á nám-
skeið hjá Paul Welch og get því að
sjálfsögðu ekki rengt persónulega
reynslu Ólafar, sumir þeirra fyrr-
verandi skjólstæðinga Welch sem
ég ræddi við höfðu líka orðið fyrir
einhverskonar andlegum upplifun-
um að einhverju marki á námskeið-
unum. Sumir telja aðferðafræði
hans henta sér.
Til að geta talist sannur andlegur
leiðbeinandi, að mínu áliti, er ekki
nóg að geta hrist uppí eða stuðað
fólk til að það hljóti upplifanir sem
hversdagurinn hefur almennt ekki
upp á að bjóða. Þar
þarf meira til en vök-
ur, áreiti og niðurlæg-
ingarferli (allt notað á
námskeiðum Welch
samkvæmt mínum
heimildum). Sannur
leiðbeinandi verður
ekki bara að geta vak-
ið fólk til meðvitundar,
hann verður líka að
geta stutt það áfram á
þroskabraut þess svo
vel sé. Og ekki bara
nokkra, heldur alla
sem hann skýtur
skjólshúsi yfir. Að
mínu áliti virðist Paul
Welch ekki vera í nægilega góðu
jafnvægi til að standa undir þessum
kröfum, og þetta eru ekki ósann-
gjarnar kröfur miðað við það sem
hann segist vera fær um.
Samkvæmt Welch felst vinna
hans að miklum hluta í því að hann
sé í sambandi við eigið „æðra sjálf“
og geti því einn náð sambandi við
„æðra sjálf“ þeirra sem hans leið-
sögn hljóta. Þetta lætur ósköp vel í
eyrum en ef maður rýnir í afrakst-
ur vinnu hans hér á landi klingja
falsnótur. Þrjár manneskjur (alla-
vega) hafa þurft að leita til geð-
lækna eftir meðferð hjá Welch! Að
fólkið hafi verið veikt fyrir og að
meðferðin sé ekki fyrir alla er þá
viðkvæðið hjá Welch eins og fram
kom í viðtali DV við hann í lok
ágúst í fyrra. Þrátt fyrir þessar
staðhæfingar hans er ekki varað
við því í kynningarbæklingi fyrir
námskeiðin að þau séu ekki fyrir
alla, og hvar er æðra sjálfs-læsið til
að fyrirbyggja svo voveiflegar af-
leiðingar? Aðalatriðið er því ekki
það að sumum finnist þeir hafa
himin höndum tekið í aðferðum
Welch. Spurningin er: er hægt að
sætta sig við þessi hrikalegu „af-
föll“ hjá manni sem kallar sig
heilara, beintengdan sínu, mínu og
þínu „æðra sjálfi“? Markaðssetn-
ingu (eins og allir auglýsingasál-
fræðingar geta staðfest) má líta á
sem kurteisara orð yfir heilaþvott.
Samkvæmt mínum upplýsingum
hagnýtir Paul Welch sér flestar
leiðir til heilaþvottar eftir skil-
greiningum sem settar eru fram á
síðunni www.factnet.org (fyrir
áhugasama).
Paul Welch leggur áherslu á að
fólk sem til hans leitar hafi lifað í
blindni, í heljargreipum markaðs-
samfélagsins og efnishyggjunnar
og að hann sé kominn til að vísa
þeim veginn í átt að hamingju. Með
öðrum orðum er hann að selja ham-
ingju, og hann notar til þess hefð-
bundna markaðssetningu. Hann
sýnir fram á eða býr til þörf og
býður lausn; s.s. hefðbundin mark-
aðssetning – sprottin frá sömu
markaðshyggju og hann býðst til
að bjarga fólki frá gegn óhóflegu
gjaldi.
Þessi nálgun hans hefur fært
honum digra sjóði þann tíma sem
hann hefur starfað hér á landi. Erf-
itt er að henda nákvæmar reiður á
upphæðum, en til viðmiðunar kost-
ar 5–6 daga námskeið 9.500 kr. á
dag, einkatími með Welch kostar
um 5000 kr. og ársþjálfun 420.000
kr. (tölur fengnar úr greininni „Guð
er ókeypis“ í desemberblaði Nýs
lífs).
Welch sótti um landvistarleyfi
hér á landi og er það áhugavert að í
umsókninni kom hvergi fram að
hann væri með nokkra starfsemi
hér á landi. Kannski lítur hann ekki
svo á sjálfur, öllum sem námskeið
hans sækja er gert að greiða í doll-
urum – kvittanalaust! (kannski í
brúnum bréfpoka?) Ljóst er sam-
kvæmt þessum upplýsingum að
hinar og þessar stofnanir í landinu
ættu að hafa áhuga á að kynna sér
veru Paul Welch hérlendis til hlítar
og kannski er slík upplýsingaöflun
þegar farin í gang. Að lokum má
benda á að sennilega eiga mun
fleiri en þeir sem ég talaði við um
sárt að binda eftir að hafa komist í
kast við Paul Welch. Þrátt fyrir yf-
irlýst markmið hans læðist að
manni sá grunur að í raun sé hann
hér til að svala drottnunargirnd
sinni og hafa fé af leitandi sálum.
Leiðbeinandi eða loddari?
Bergsteinn Jónsson
Námskeiðahald
Að mínu áliti virðist
Paul Welch ekki vera
í nægilega góðu
jafnvægi, segir
Bergsteinn Jónsson,
til að standa undir
þessum kröfum.
Höfundur er nemi í mannfræði
við HÍ.
Vornámskeið í Gáska,
Bolholti 6—8
Háls- og herðaleikfimi
Þriðjudaginn 17. apríl hefst vornámskeið í háls-
og herðaleikfimi. Áhersla er lögð á rétta líkams-
stöðu, styrkjandi og liðkandi æfingar og teygjur
fyrir allan líkamann. Lokaðir tímar, persónuleg
og fagleg kennsla. Engin læti, engin hopp. Þátt-
takendur fá að auki æfingaáætlun í tækjasal.
Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum
milli kl. 12.05 og 12.55. Kennari verður Gígja
Þórðardóttir, sjúkraþjálfari. Námskeiðið stend-
ur til 31. maí.
Bakleikfimi Hörpu — fyrir byrjendur
Bakleikfimi fyrir byrjendur hefst 17. apríl og
stendur til 31. maí. Kennt þriðjudaga og
fimmtudaga frá kl. 16.15 til 17.15. Lögð er
megináhersla á líkamsstöðu og beitingu og
að byggja upp þá vöðva sem skipta máli fyrir
bakið. Þetta er músíkleikfimi með dans-
ívafi þar sem lagður er grunnur að betri sam-
hæfingu, líkamsvitund og styrk með tai, chi,
afro, samba, salsa, merengue og mambo auk
gólfæfinga. Aðgangur í tækjasal Gáska meðan
á námskeiði stendur. Kennari verður Harpa
Helgadóttir, sjúkraþjálfari, BS, MTc
(sérfræðingur í meðferð á hrygg og útlimum).
Innritun í síma 568 9009.
TIL SÖLU
Til sölu — Suðurlandssól
Höfum fengið í sölu eina öflugustu sólbaðs-
stofu á Suðurlandi. Stofan er staðsett í mjög
góðu leiguhúsnæði, miðsvæðis á Selfossi.
Stofan er vel tækjum búin, m.a. 4 Avant Garde
550 líkamslaga ljósabekkir, gufubað, trimm-
form og leirvafningar, heitur pottur o.fl. 80 fm
nýlega innréttuð líkamsræktaraðstaða án
tækja.
Upplýsingar um verð og greiðslukjör á skrif-
stofu okkar.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Mál-
flutningsskrifstofunnar, Austurvegi 6, Selfossi.
Sími 482 2299.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Ársfundur
Eftirlaunasjóður fyrrum starfsmanna
Útvegsbanka Íslands
boðar til ársfundar fimmtudaginn 26. apríl 2001
kl. 17.15 á Grand Hótel, Sigtúni, 4. hæð í Háteigi.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar, kosning stjórnar og önnur
hefðbundin ársfundarmál.
Stjórnin.
Aðalfundur
Samvinnufélagsins Hreyfils verður haldinn
í félagsheimili Hreyfils þriðjudaginn 24. apríl
2001 kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Athugað lögmæti fundarins.
2. Skýrsla félagsstjórnar.
3. Reikningar ársins 2000.
4. Kosning í stjórn o.fl.
5. Önnur mál.
Stjórnin.
KENNSLA
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga
Námskeið í reykbindindi
í náttúruparadís!
Námskeið í reykbindindi verður haldið í Mý-
vatnssveit dagana 30. apríl til 5. maí nk.
Um er að ræða 5 daga námskeið með áherslu
á heilbrigðan lífsstíl, s.s. líkamsþjálfun, gott
mataræði og slökun undir stjórn sérþjálfaðra
hjúkrunarfræðinga, Ráðgjafar í reykbindindi.
Sjúkraþjálfarar, læknir og næringarfræðingur
eru leiðbeinendur ásamt hjúkrunarfræðingun-
um.
Mjög vel búinn tækjasalur og aðstaða til lík-
amsræktar. Þátttakendur gista í Hótel Reynihlíð
í 5 nætur, það er 4ra stjörnu hótel með öllum
þeim þægindum sem því fylgja. Fallegt um-
hverfi hleður þig náttúruorku og styrkir þig í
þessu lífsnauðsynlega verkefni.
Verð er 45 þúsund, (samsvarandi 116 sígarettu-
pökkum), innifalið gisting, fullt fæði, aðgangur
að líkamsræktaraðstöðu, sundlaug, ráðgjöf
og þjónusta.
Upplýsingar og skráning í síma 800 6030.
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA
■ www.nudd.is
FÉLAGSLÍF I.O.O.F.Rb.1 1504108-M.A.*
Hamar 6001041019 I P.f.
FJÖLNIR 6001041019 I
AD KFUK, Holtavegi 28
Fundur í kvöld kl. 20.00.
Biblíulestur í umsjón sr. Irmu
Sjafnar Óskarsdóttur.
Allar konur velkomnar.
Komið með Útivist um pásk-
ana: Goðaland - Básar 14.—
16. apríl og fleiri skemmtilegar
páskaferðir.
Sjá heimasíðu: www.utivist.is
og textavarp bls. 616. Bókanir og
nánari upplýsingar á skrifstof-
unni á Hallveigarstíg 1, sími
561 4330.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Brandtex fatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
Njálsgötu 86,
s. 552 0978
Vöggusængur,
vöggusett,
barnafatnaður
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
Pipar og salt kvarnir,
mikið úrval