Morgunblaðið - 10.04.2001, Síða 47
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 47
ATVINNA með
stuðningi (Ams) er
fyrir þá sem þurfa
stuðning á almennum
vinnumarkaði. Kynn-
ing á þessari aðferð til
hagsbóta fyrir fólk
með fötlun hefur auk-
ist á undanförnum
misserum samfara
aukinni notkun henn-
ar. Full ástæða þykir
að efla þessa kynn-
ingu þannig að sem
flestir geti notið góðs
af vinnubrögðunum
og hagnýtt sér þá
þjónustu sem stendur
til boða, m.a. hjá Svæð-
isskrifstofu málefna fatlaðra á
Reykjanesi.
Við ætlum hér í stuttu máli að
fjalla um um hvað felst í Ams, hvern-
ig aðferðin hefur þróast og síðast en
ekki síst hvaða árangri hún hefur
skilað.
Atvinna með stuðningi;
lykilatriði
Þátttaka og þjálfun á almennum
vinnumarkaði.
Launuð vinna.
Einstaklingsmiðuð úrræði.
Stuðningur svo lengi sem þörf er
á.
Söguleg þróun
Atvinna með stuðningi eins og hún
er á Íslandi í dag á rætur sínar að
rekja til vinnubragða sem voru þró-
uð í Bandaríkjunum á 8. áratug síð-
ustu aldar. Má í því sambandi nefna
brautryðjendastarf hins merka
fræðimanns og frumkvöðuls Marc
Gold sem lést 1982 en samstarfs-
menn hans og fleiri héldu áfram að
þróa og útbreiða
aðferð til að auka þátttöku fólks
með fötlun á almennum vinnumark-
aði með viðeigandi stuðningi.
Margar Evrópuþjóðir tóku á ní-
unda áratugnum að hagnýta sér að-
ferðir Ams. Samtökin EUSE
(European Union of Supported
Employment) voru stofnuð 1993.
Þessi samtök eru samstarfsvett-
vangur margra Evrópuþjóða. Dag-
ana 28.3.–30.3. sl. var 5. Evrópuráð-
stefnan haldin í Edinborg.
Ráðstefnan hafði yfirskriftina:
„Support for all“ eða „Stuðningur
fyrir alla“.
Yfirskriftin speglaði þróunina í
þessum málum því eitt af markmið-
um Ams hefur verið að auka skilning
á möguleikum fatlaðra á almennum
vinnumarkaði og að sem flestir fatl-
aðir, sem þess óska og þurfa, eigi
kost á að njóta góðs af þessari að-
ferð. Þátttakendur á ráðstefnunni
voru um 600 talsins (11 frá Íslandi)
frá 35 löndum Á ráðstefnunni kom
fram að áhugi og tiltrú á árangri
Ams fer vaxandi í Evrópu og víðar í
heiminum. Fólk með mismunandi
fötlun hefur allar forsendur til að
vera jafngóðir starfskraftar á al-
mennum vinnumarkaði eins og aðrir
ef það fær réttan stuðning.
Rúmur áratugur er liðinn síðan Ís-
lendingar tóku að hagnýta sér þessa
aðferð. Það var Svæðisskrifstofa
málefna fatlaðra á Reykjanesi sem
reið á vaðið. Árangur aðferðarinnar
lét ekki á sér standa og margir fatl-
aðir einstaklingar fengu vinnu og
stuðning við sitt hæfi á almennum
vinnumarkaði. Sérstaklega tókst vel
til í Kópavogi þar sem Svæðisskrif-
stofan var í öflugu samstarfi við bæj-
arskrifstofur Kópavogs og að öllum
öðrum ólöstuðum hefur Hrafn Sæ-
mundsson, fyrrv. atvinnumála-
fulltrúi, rutt brautina öðrum fremur
fyrir fatlaða á leið út á almennan
vinnumarkað hérlendis.
Ams hefur reyndar verið hluti af
þjónustukeðju í málefnum fatlaðra á
Reykjanesi lengur en áratug, þó
nafnið og þessi ákveðna aðferða-
fræði hafi ekki verið með nákvæm-
lega sama hætti og nú. Stefnumótun
Svæðisskrifstofu í atvinnumálum
var birt á árinu 1989 og þar voru lyk-
ilorðin fjölbreytni og samræming.
Þjónustukeðju í atvinnumálum var
ætlað að mæta mismunandi og
breytilegum þörfum og óskum fólks
með fötlun og voru tilboðin sérsniðin
að þörfum hvers og eins m.a. á hæf-
ingarstöðvum og almennum vinnu-
markaði með stuðningi.
Starfsþjálfunar-staðurinn Örvi
sem stofnaður var 1984 hefur gegnt
lykilhlutverki í þjónustukeðjunni
m.a. með starfsþjálfun og starfspróf-
un sem leggur grunninn að þátttöku
fólks með fötlun á almennum vinnu-
markaði.
Eftirfylgd út á almennan vinnu-
markað og viðeigandi stuðningur
þar, var hluti af störfum fagmennt-
aðra starfsráðgjafa Örva sem kom-
ust í nána snertingu við undirstöðu
atvinnuvegi þjóðarinnar m.a. með
því að standa í aðgerð í frystihúsum
og flaka þorsk og í leiðinni þjálfa
fatlað starfsfólk í þeirri vinnu.
Atvinna með stuðningi hefur skil-
að góðum árangri á Reykjanesi. 1994
heimsóttu Svæðisskrifstofuna sér-
fræðingar í Ams frá Noregi sem
þekktu mjög vel til þessara vinnu-
bragða og notkunar þeirra í Norður-
Ameríku og Vestur-Evrópu. Það var
álit þessara sérfræðinga að árang-
urinn á Reykjanesi væri á heims-
mælikvarða.
Í desember 2000 voru 118 þjón-
ustunotendur Svæðisskrifstofu
Reykjaness á almennum vinnumark-
aði og voru þar af 63 einstaklingar í
atvinnu með stuðningi.
Atvinnu með stuðningi hefur mátt
finna víða um land. Þessi vinnubrögð
hafa tíðkast á Akureyri um árabil og
undanfarin tvö ár hafa Svæðisskrif-
stofa Reykjavíkur og Styrktarfélag
vangefinna staðið að öflugu átaks-
verkefni í þessum málum.
Atvinna með stuðningi
– skref fyrir skref
Einstaklingsmat Það er nauðsyn-
legt að vita á hvaða sviðum færni og
áhugi einstaklingsins liggur svo
hægt sé að finna hentugt starf .
Hentugur vinnustaður fundinn
Starfsmaður Ams leitar að hentugu
fyrirtæki sem er tilbúið til sam-
starfs.
Kynning
Einstaklingurinn fer í starfskynn-
ingu á vinnustaðinn, rætt er við
stjórnendur og væntanlegt sam-
starfsfólk.
Undirbúningur og skipulag starfs
Gerð er nánari úttekt á starfinu og
aðstæðum á vinnustað. Fundinn er
tengill/samstarfsmaður sem getur
verið viðkomandi til halds og trausts.
Starfsumsókn Farið í gegnum um-
sóknarferlið.
Þjálfunaráætlun Áætlunin miðar
að því að einstaklingurinn nái tökum
á starfinu
Starfsþjálfun Starfsmaður Ams
sér um aðlögun viðkomandi að
vinnustaðnum og þjálfun í verkefn-
um.
Ráðning Gengið er frá ráðningu
með möguleika á örorkuvinnusamn-
ingi, þar sem Tryggingastofnun rík-
isins tekur þátt í launagreiðslum.
Eftirfylgd Starfsmaður Ams fer
reglulega í heimsókn á vinnustaðinn.
Ætíð er hægt að hafa samband við
starfsmann Ams ef eitthvað þarf úr-
lausnar við og fá ráðgjöf og stuðning.
Það hefur sýnt sig samkvæmt er-
lendum rannsóknum að ýmsar já-
kvæðar breytingar hafa átt sér stað
á vinnustöðum þar sem þessi aðferð
hefur verið notuð. Þar má t.d. nefna
að afköst annarra starfsmanna hafa
aukist, veikindaforföll hafa minnkað,
aukin samheldni aukist og liðsheildin
styrkst. Jafnframt hefur ímynd
vinnustaðarins orðið jákvæðari í
augum almennings og viðskiptavina
þess. Svæðisskrifstofa Reykjaness
hefur átt gott samstarf við fjölmörg
fyrirtæki, sem vonandi eiga eftir að
verða mun fleiri.
Atvinna með stuðningi – meira en
áratugar reynsla á Reykjanesi
Ævar H.
Kolbeinsson
Ams
Í desember 2000 voru
118 þjónustunotendur
Svæðisskrifstofu
Reykjaness á almenn-
um vinnumarkaði, segja
Ingibjörg M. Ísaks-
dóttir og Ævar H.
Kolbeinsson, og voru
þar af 63 einstaklingar í
atvinnu með stuðningi.
Ingibjörg M. er forstöðuþroskaþjálfi
og Ævar H. er deildarfélagsfræð-
ingur hjá Svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra á Reykjanesi.
Ingibjörg M.
Ísaksdóttir