Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 49
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 49
Á SEINNI árum hafa Bretar lagt
ríka áherslu á að bjóða út opinbera
þjónustu og hafa ríki og sveitarfélög
samið við einkaaðila og félagasamtök
um framkvæmd einstakra þátta þjón-
ustunnar. Skipulagt eftirlit hefur síð-
an verið með hinni opinberu þjón-
ustu. Áhrifa stefnu Breta gætir nú
víða í Evrópu.
Á síðasta ári gafst mér tækifæri til
að kynna mér starfsaðferðir stofnun-
ar sem nefnd er Joint Reviews og sér
um úttektir á félagsþjónustu sveitar-
félaga í Englandi og Wales. Eitt meg-
inmarkmiðið með úttektum Joint Re-
views er að kanna hvort þjónustan
mæti þörfum íbúanna og hvort hún
geti þróast og orðið betri. Þjónustan
er skoðuð út frá hinum ýmsu sjón-
arhornum þar með töldum viðmiðum
löggjafans, greiningar- og úrvinnslu-
aðferðum félagsráðgjafar ásamt að-
ferðum rekstrar- og gæðastjórnunar.
Reynt er að skoða hvort sveitarfélag
starfar í samræmi við gildandi lög og
reglugerðir og hvort það setur sér
reglur um framkvæmd einstakra
þátta starfseminnar. Við útboð og
samninga er gerð krafa um að sú
stofnun sem tekur að sér verk fyrir
sveitarfélag sýni fram á virkt innra
eftirlit. Sveitarfélaginu skal vera
kunnugt um hvaða eftirlitsaðgerðir
eru viðhafðar hjá þeim sem samið
hefur verið við, hvert sé inntak
áhættumats í þeim verkþáttum þar
sem það á við, hvernig samskiptum
við aðrar stofnanir sé háttað og
hvernig sé farið með upplýsingar. Þá
er gerð sú krafa að sveitarfélag fylg-
ist með því hvort hið innra eftirlit
stofnana sé virkt og leiði af sér að-
gerðir til þess að bæta rekstur og
auka gæði þjónustunnar. Þessi krafa
á jafnt við um einkareknar stofnanir
sem og sveitarfélögin sjálf.
Forsendur góðrar
félagsþjónustu
Ein meginniðurstaða mín eftir
dvölina hjá Joint Reviews er sú að
það séu nokkrir samverkandi þættir
sem einkum skili íbúum sveitarfélaga
í Englandi og Wales árangursríkri og
góðri félagsþjónustu. Í fyrsta lagi
hefur farið fram mikil vinna við smíði
laga og reglugerða til stuðnings
félagsþjónustunni. Í öðru lagi hefur
orðið hugarfarsbreyting um mikil-
vægi gæða þjónustunnar og mögu-
leika til frekari þróunar og breytinga.
Í þriðja lagi er krafist innra og ytra
eftirlits með allri þjónustunni sem
eykur og tryggir gæði hennar.
Hér á landi hafa bæði ríki og sveit-
arfélög á undanförnum árum samið
við ýmsa aðila um rekstur einstakra
þátta félagsþjónustu.
Hefur það í vissum til-
vikum þótt hagkvæm-
ara. Hefur þá verið sam-
ið við einstaklinga eða
félagasamtök um til-
tekna verkþætti. Þannig
hefur verið samið við
hagsmunasamtök fatl-
aðra, sveitaheimili og
önnur einkaheimili,
akstursfyrirtæki, dag-
mæður og fyrirtæki sem
bjóða upp á matvæla- og
veitingaþjónustu svo
eitthvað sé nefnt. Skýr
fyrirmæli um eftirlit
eins og hér að framan er
lýst hefur að mínu mati skort um
félagsþjónustu sveitarfélaga.
Nýtt frumvarp
Hinn 8. mars sl. birtist frétt í
Morgunblaðinu sem fjallar í meginat-
riðum um að stefnubreyting í afstöðu
Öryrkjabandalagsins til „frumvarps
um flutning á félagsþjónustu frá ríki
til sveitarfélaga“ komi félagsmála-
ráðherra Páli Péturssyni á óvart og
vísar hann samkvæmt fréttinni til
þess að óskin um flutninginn hafi í
upphafi komið frá hagsmunasamtök-
um fatlaðra. Í umræddri frétt kemur
einnig fram að ekki verði veittur
lengri frestur til gildistöku en til árs-
byrjunar 2003. Loks kemur fram í
fyrirsögn fréttarinnar og haft eftir
ráðherranum að til greina komi að
ríkið reki áfram málaflokkinn.
Frumvarpið um félagsþjónustu
sveitarfélaga er viðamikið og er þar
meðal annars gert ráð fyrir flutningi
málefna fatlaðra til sveitarfélaga.
Mikil vinna liggur að baki frumvarp-
inu og felur það í sér ýmis ákvæði um
nútímaleg vinnubrögð. Gert er ráð
fyrir að einn aðili beri ábyrgð á
félagsþjónustunni og geti á grund-
velli heildarsýnar og í samráði við
einstaklinginn metið og veitt þjón-
ustuna. Slíkar starfsaðferðir hljóta að
teljast til bóta sé þeim fylgt eftir.
Með yfirflutningi
málaflokksins væri,
svo dæmi sé tekið,
komið í veg fyrir að
einstaklingur þurfi að
sækja liðveislu til
félagsþjónustu sveitar-
félags en frekari lið-
veislu til svæðisskrif-
stofu um málefni
fatlaðra sem er ríkis-
stofnun.
Annað dæmi um nú-
tímaleg vinnubrögð
sem fram kemur í
frumvarpinu er X. kafli
þess sem fjallar um
þjónustusamninga.
Þar kemur fram að þjónustusamn-
ingar sem sveitarfélag gerir skuli
kveða á um hver þjónustan skuli vera,
gæði hennar, magn, greiðslur frá
sveitarfélagi, greiðslur þjónustuþega,
samningstíma, uppsagnarákvæði,
eftirlit með samningnum og meðferð
ágreiningsmála. Ég tel þarna um
mikilvægt framfaraspor að ræða ekki
síst ákvæðið um eftirlit með samn-
ingnum. Loks má benda á mikilvægi
4. mgr. 7. gr. frumvarpsins sem kveð-
ur á um að ráðuneytið leggi mat á
hvort markmiðum laganna hafi verið
náð í einstaka sveitarfélögum og ef
upp á vanti sé þeim gert að koma með
tillögur sem annaðhvort fela í sér að
sameinast öðru sveitarfélagi um
félagsþjónustu eða að gera tillögur
um hvernig verði úr bætt á annan
hátt. Ég tel breytta hugmyndafræði
sem getur af sér góða grunnlöggjöf
og virkt eftirlit vera meginforsendu
gæða í félagsþjónustu. Hvort sem
verður af flutningi málefna fatlaðra
frá ríki til sveitarfélaga eða ekki tel
ég mikilvægt að hin nútímalegu
vinnubrögð sem frumvarpið hefur að
geyma og ég hef minnst á hér að
framan nái fram að ganga.
Það vill stundum gleymast að
félagsleg staða aldraðra, fatlaðra,
barna og unglinga varðar okkur öll og
er hluti af daglegu lífi fjölskyldunnar.
Stuðningur við einn úr fjölskyldu er
stuðningur við hana alla og þegar á
heildina er litið er stuðningur við sér-
hvern einstakling stuðningur við allt
samfélagið. Ákvæði um eftirlit og eft-
irfylgni ráðuneytisins með félags-
þjónustu er mikilvæg trygging fyrir
íbúa sveitarfélaga því öflug og vel
rekin félagsþjónusta er að mínu mati
forsenda búsetu hvar sem er á land-
inu.
Staða félags-
þjónustu sveit-
arfélaga
Félagsþjónusta
Félagsleg staða aldr-
aðra, fatlaðra, barna
og unglinga, segir
Marta G. Bergmann,
varðar okkur öll.
Höfundur er félagsráðgjafi.
Marta Bergmann Draumavél
heimilanna!
Vegleg brúðargjöf!
Ísaumuð svunta
með nöfnum og
brúðkaupsdegi fylgir!
5 gerðir - margir litir
Borgartúni 20 - sími 562 2901 og 562 2900
60 ára frábær reynsla.