Morgunblaðið - 10.04.2001, Side 58
MINNINGAR
58 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Þorbjörg Möllerfæddist í Reykja-
vík 21. nóvember
1947. Hún andaðist á
Landspítalanum 2.
apríl síðastliðinn.
Móðir hennar er Dó-
rothea M. Óskars-
dóttir, f. 22. apríl
1926, og faðir henn-
ar var Jón Ólafur
Möller, f. 20. júní
1911, d. 24. septem-
ber 1965. Bróðir
hennar er Jón Ólaf-
ur Möller, f. 11. maí
1963, kona hans er
Laure Möller, f. 18. október 1970.
Hinn 21. september 1967 gift-
ist Þorbjörg Magnúsi Marteins-
syni, f. 13. júlí 1937. Dætur
þeirra eru: 1) Sonja,
f. 8. október 1971,
gift Robert Sharp, f.
9. júlí 1962. Sonur
þeirra er Damien
Magnús, f. 12. júní
2000. 2) Helga, f. 20.
febrúar 1978.
Að loknu gagn-
fræðaprófi fór Þor-
björg til Englands
og lærði snyrtifræði
og vann hún lengst
af við störf tengd
snyrtifræði en síð-
ast starfaði hún í
sendiráði Banda-
ríkjanna í Reykjavík
Útför Þorbjargar fer fram frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Fyrstu minningarnar um Þor-
björgu frænku mína eru úr barna-
afmælum í fjölskyldunni og frá
heimili afa okkar og ömmu á Fjólu-
götu þar sem oft var gestkvæmt.
Hún var yngst af okkur frænkunum
og mér er minnisstætt hvað hún var
hæglát, prúð og brosmild.
Í okkar fjölskyldu er algengt að
fólk leiti út í heim og var Þorbjörg
ein þeirra.
Sextán ára, að loknu gagnfræða-
prófi, fór Þorbjörg til London. Þar
vann hún sem „au pair“, fór í ensku-
skóla og lærði síðan snyrtifræði hjá
fyrirtækinu Innoxa, sem faðir henn-
ar var umboðsmaður fyrir á Íslandi.
Í Englandi kynntist hún Sally,
stúlku frá Natal í Suður-Afríku, sem
bauð Þorbjörgu og Ásu vinkonu
hennar í brúðkaup sitt. Ferðuðust
þær með lest til Spánar og þaðan
með skipi til Egyptalands, því síð-
asta sem fór um Súezskurðinn í Sex
daga stríðinu, áður en hann lokaðist
og komust til Kaíró. Tókst þeim að
lokum að fá far með flugvél til Suð-
ur-Afríku.
Á aðaljárnbrautarstöðinni í Jó-
hannesarborg hitti hún Magnús,
sem síðar varð eiginmaður hennar
en vinur hans hafði beðið hann að
fara þangað að taka á móti stúlk-
unum. Magnús hreifst af dugnaði
Þorbjargar þegar hún ferðaðist með
sporvagni um alla borgina í leit að
vinnu, sem henni tókst fljótlega að
fá, og varð þeim vel til vina.
Magnús hafði lært vélfræði og
tæknifræði í Þýskalandi og vann hjá
verktakafyrirtæki, sem hafði gert
samning um byggingu verksmiðju í
Zambíu og fór Magnús til starfa þar.
Hafði fyrirtækið yfir einkaþotum að
ráða og kom Magnús því þannig fyr-
ir að ein þeirra var send eftir Þor-
björgu og giftu þau sig hjá sýslu-
manni í borginni Kitwe. Í Zambíu
vann Þorbjörg hjá heildverslun, sem
seldi öll helstu evrópsku snyrtivöru-
merkin. Þar sem annars staðar
ávann hún sér traust, var sett í
ábyrgðarstöðu og ferðaðist mikið á
vegum fyrirtækisins, fór m.a. oft til
London. Sem dæmi um hugrekki
hennar má nefna að hún ók ein um
allt koparbeltið.
Þegar byggingu verksmiðjunnar í
Zambíu var lokið fluttust þau til Sal-
isbury (Harare) í Ródesíu (sem nú
heitir Zimbabwe), en þar hafði
Magnúsi boðist samningur við Uni-
lever Ltd., en síðar fór hann til
starfa hjá South African Brewery
þar sem hann vann við stjórnun í ell-
efu ár. Þetta var á dögum stjórnar
Ians Smiths og kynntist Þorbjörg
honum persónulega. Í Salisbury
eignuðust þau dæturnar Sonju og
Helgu. Minnist Sonja þess hve dug-
leg mamma hennar var að sauma fal-
leg föt á þær systurnr. Einnig hefur
Sonja sagt mér að hún hafi í raun
aldrei verið viss um hvort móðir
hennar reiddist óþekktinni í henni,
því að hún ávítaði hana alltaf bros-
andi. Á þessum tíma vann Þorbjörg
hálfan daginn í snyrtivörudeildinni í
stærstu verslunni í Salisbury og sá
þar um stjórnun og öll innkaup.
En að því kom að hugurinn leitaði
til Íslands. Stjórnmálaástandið í
Ródesíu var orðið ótryggt og árið
1980 fluttust þau heim.
Í raun var það ekki fyrr en þá sem
ég kynntist Þorbjörgu sem fullorð-
inni konu.
Það hlýtur að hafa kostað mikið
átak að fara úr sólinni og hlýjunni í
Ródesíu og hingað heim, enda held
ég að Tobba, eins og hún var jafnan
kölluð, hafi saknað góða veðursins í
Afríku, einkum í norðannepjunni.
Ekki var laust við að hún yrði
dreymin á svip þegar hún minntist
heimkynna sinna í Afríku, enda
höfðu þau lifað viðburðaríku og
skemmtilegu lífi þar. Höfðu þau far-
ið ófáar ferðir inn í frumskóginn og
létu ekki aftra sér þótt tvisvar væru
þau næstum lent í gini ljóns.
Eftir komuna til Íslands tók Þor-
björg til við að búa fjölskyldunni
heimili. Ekki var hægt annað en dást
að dugnaði hennar, útsjónarsemi og
smekkvísi. Auk þess var hún gestris-
in svo af bar og leið öllum vel í návist
hennar, enda var hún vinmörg.
Eftir um átta ára dvöl hér á landi
fluttist fjölskyldan til Afríku á ný.
Þar var Sonja búsett, hafði stundað
þar nám, og vildi vera þar. Settust
þau fyrst að í Pietermaritzburg, en
þar var loftslag líkt og í Ródesíu. Þar
ráku þau fyrirtæki á tveimur stöð-
um, sem sá um framköllun og
rammagerð. Síðan fluttust þau til
Jóhannesarborgar og ráku þar
heildverslun með heilsuvörur. Leist
Magnúsi ekki á blikuna þegar vo-
veiflegir atburðir fóru að gerast í ná-
grenni við þau og vildi hverfa aftur
til Íslands með fjöskylduna, en
Sonja ákvað að vera um kyrrt.
Í enn eitt skipti setti Tobba saman
heimili og ekki var smekkvísinni eða
notalegheitunum ábótavant frekar
en fyrri daginn. Magnús setti á fót
eigið fyrirtæki og þau voru búin að
koma sér vel fyrir.
Fyrir um fimm og hálfu ári veikt-
ist Þorbjörg af illvígum sjúkdómi.
Þegar hann tók sig upp aftur ákvað
hún að gera eitthvað skemmtilegt á
hverjum degi. Náði hún meira að
segja að ferðast heilmikið á þessum
tíma. Fór m.a. með Magnúsi til
Rómar og tvisvar til Höfðaborgar að
heimsækja Sonju, sem býr þar með
eiginmanni og yndislegum, litlum
dreng, sem var stolt og gleði ömmu
sinnar. Einnig býr þar Jón bróðir
hennar ásamt eiginkonu sinni
Laure.
Þorbjörg naut þess að hlýða á tón-
list og sótti alls konar tónlistarvið-
burði. Þegar hún var ung fór hún á
Bítlatónleika í London og einu sinni
flugu þær Sonja frá Höfðaborg til
Jóhannesarborgar til að hlýða á ten-
órana þrjá.
Um helgar fóru þau Magnús oft-
ast í sumarbústaðinn sinn, en þar
naut hún kyrrðarinnar og heilnæms
sveitaloftsins.
Þorbjörg hélt bjartsýninni, ljúf-
mennskunni og glæsilegu útliti til
hins síðasta og þannig mun minn-
ingin um hana lifa.
Við Ingimundur og fjölskylda okk-
ar vottum Magnúsi, Sonju, Helgu,
Dóru, Jóni og öðrum aðstandendum
dýpstu samúð. Guð veiti þeim styrk.
Sigríður Arnbjarnardóttir.
Elsku Tobba. Það er ótrúlegt að
það sé komið að þessari stundu.
Hetjulegri baráttu þinni er lokið en
eftir sitjum við með tómarúm í lífi
okkar. Við erum svo þakklát fyrir að
hafa fengið það tækifæri í lífinu að fá
að kynnast þér. Eftir standa minn-
ingar um góðar samverustundir og
skemmtileg samskipti. Fjölskyldan
var þér lífið allt og sá maður aug-
ljóslega alla þá ást og umhyggju sem
þú barst til hennar. Vonandi verðum
við þess heiðurs aðnjótandi að hitta
þig aftur á öðrum stað þegar fram
líða stundir. Okkur þykir vænt um
þig.
Elsku besti Magnús, Helga,
Sonja, Rob, Damien og Loppa, megi
guð og allar góðar vættir styrkja
ykkur í sorginni.
Ykkar vinir
Hildur og Sigurður Rúnar.
Enn einu sinni er rofið skarð og
vanmáttur okkar mannanna kemur í
ljós gagnvart æðri máttarvöldum.
Við stöldrum ósjálfrátt við og hug-
leiðum tilgang lífsins, en stöndum
uppi með enn fleiri spurningar en án
svars en við lögðum af stað með.
Hvað er það sem veldur að Tobba,
þessi yndislega kona sem var full af
glaðværð, góðvild gagnvart öllu og
öllum og bjó að auki yfir hreint ótrú-
legu sálarþreki, skuli hafa þurft að
ganga í gegnum þau erfiðu veikindi
sem hrifu hana burt?
ÞORBJÖRG
MÖLLER
Sími 562 0200
ErfisdrykkjurLegsteinar
Vönduð íslensk framleiðsla
Fáið sendan myndalista
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
MOSAIK
✝
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
4
* 72*0F/F44 $5:
+8- ) 8
" 7 8
3
.
/ $3/ #
#- / $3,' ( #" (
/ $3 (
$
' ' / $3,'
' ' /1 8 ,'
0' /1 4 /1
1 0*002
1
".
% 9
9
*1
!
0
" 88
" 35
+8- ) 8
" &
1*%
GG# G#
- # 7' ,'
83 - # " ,'
1 - # 0' !"#$ ,'
0' - ,'
-1 , - ,'
4
8
44
!2
) ( -'-'
,
"
5
0
G ,'
,' ,' 7' - #
& ,' # 4 +* +, ,'
0' ,' ,' & -#
0' ! ,' # "-1 $ ,'
,' G ,' # . $ >) ,'
3 ,' ,'
' 3 ,' ,' *- . #
)"-1 ,' # $ *- ,'
"1 #$ $ "1
!
.2
,
,
8-':H
" 0 8
1 .
0
, $ ,' $' #
$ & $ ,' & - * #
/ $3$ # I #
,'
$ # G 7# ,'
) $ ,'
" "1 #$" " "1
! 8
J
;
.4
;2
* 8
. ,
"5 : / 8
+
- ,'
-' $ , K ,' * $ 0'#
$ K ,'
0' K # $ / ,'
' / $ K K ,' 0 8#"*-1 #
#$" "1