Morgunblaðið - 10.04.2001, Qupperneq 61
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 61
AGE FITNESS
Áhrifaríkur kraftur ólífutrjáa - Yngri húð á
8 dögum.
Kynning í dag og á
morgun.
Kynnum m.a. Age Fitness, nýtt
krem sem eykur teygjanleika
húðarinnar og verndar hana gegn
utanaðkomandi áreiti. Age Fitness
inniheldur hreint efni unnið úr
laufblöðum ólífutrjáa.
Áferðin og ilmurinn er frábær.
Líttu við og fáðu ráðgjöf
og sýnishorn.Laugavegi 23, 511 4533
TALSVERT var að gera í umferð-
armálum um helgina. Rúmur tug-
ur ökumanna var stöðvaður vegna
gruns um ölvun við akstur og 30
vegna hraðaksturs. Í allt voru 115
verkefni sem tengdust umferðar-
málum. Sem dæmi um þau verk-
efni sem lögreglumenn sinntu um
helgina voru kærur vegna aksturs
án þess að sýna nægjanlegt tillit,
akstur utan vega, brot á skyldum
við umferðaróhapp, ökutæki lagt
þannig að það skapar hættu, röng
notkun ljósa, akstur bifreiðar án
ökuréttinda, óhæfilega gengið frá
farmi á ökutæki og of margir far-
þegar í ökutæki.
Tveir piltar voru handteknir á
veitingastað í miðbænum með
ætluð fíkniefni.
Brotist var inn í bifreið síðdegis
á föstudag við Háskólann og það-
an stolið geislaspilara og hljóm-
diskum. Brotist var inn í geymslu
í Breiðholti og þaðan stolið DVD-
spilara. Farið var inn í nýbygg-
ingu í Efstaleiti og þaðan stolið
verkfærum.
Á föstudag var tilkynnt um að
felgum og hjólbörðum hefði verið
stolið undan bifreið á Flugvallar-
vegi. Einnig voru unnar skemmd-
ir á bifreiðinni.
Karlmaður var handtekinn á
laugardagsmorgun vegna inn-
brotstilraunar en hann hafði brot-
ið rúðu í húsi við Grettisgötu.
Brotist var inn í húsnæði í
Skeifunni og stolið þaðan fjórum
fartölvum og tveimur skjávörp-
um. Brotist var inn í aðra verslun í
Skeifunni en óvíst er hverju var
stolið.
Skammvinn þjónusta létt-
klæddra kvenna
Tilkynnt var um innbrot í
heimahús í Breiðholti á sunnu-
dagskvöld þar sem stolið var tals-
verðum verðmætum. Aðfaranótt
mánudags var par handtekið af
lögreglu í Hafnarfirði sem talið er
tengjast málinu.
Sjö ára piltur slasaðist er hann
féll tæpa 3 metra af handriði á
stiga. Hann var fluttur á slysa-
deild.
Tveir karlmenn komu á mið-
borgarstöð lögreglu og kvörtuðu
undan þjónustu og framkomu sem
þeim var sýnd á einum veitinga-
staða miðbæjarins. Mennirnir
höfðu greitt ákveðna upphæð og
töldu sig þá eiga kröfu til kampa-
víns og léttklæddra kvenna. Þótti
þeim þjónustan standa stutt og
lögðu fram kvörtun þess efnis við
starfsfólk. Við kvörtun þeirra
urðu litlar undirtekir og þeim
kastað á dyr.
Úr dagbók lögreglunnar
Annir í um-
ferðarmálum
6.–8. apríl
ÞEGAR sumarbæklingur Sam-
vinnuferða-Landsýnar kom út í
febrúar sl. var ákveðið að allur
ágóði að svonefndu lukkuhjóli
færi í að styðja við krabbameins-
sjúk börn og aðstandendur þeirra.
Hér sést Lilja Hilmarsdóttir,
kynningarstjóri Samvinnuferða-
Landsýnar, afhenda Þorsteini
Ólafssyni peningaupphæð þá sem
safnaðist við að fólk freistaði gæf-
unnar í lukkuhjólinu.
Núna um páskana er krabba-
meinssjúkum börnum og fjöl-
skyldum þeirra boðið á afar sann-
gjörnu verði í samvinnu
ferðaskrifstofunnar Samvinnu-
ferða-Landsýnar, flugfélagsins
Atlanta og styrktarsjóðs krabba-
meinssjúkra barna í fimm daga
ferð til Dublin. Þetta er sann-
kölluð fjölskylduferð þar sem
margt verður til gamans gert og
verður þetta mikil upplyfting fyr-
ir börnin Farið verður 12. apríl, á
skírdag, og komið heim 16. apríl.
Morgunblaðið/Golli
Gáfu ágóða
af lukkuhjólaleik
EKIÐ var á bifreiðina ST-501, sem er
Subaru-fólksbifreið, rauð að lit, laug-
ardaginn 7. apríl sl. Atvikið átti sér
stað um kl. 16.30 á Mímisvegi v/Ás-
mundarsafn. Sá sem þar var að verki
ók í burtu. Vitni að atvikinu, svo og
tjónvaldur, eru beðin um að hafa
samband við lögregluna í Reykjavík.
Ekið á bifreið við Landspítalann
Sunnudaginn 8. apríl 2001 var ekið
á bifreiðina RZ-798, sem er Hyundai
Elantra-fólksbifreið, rauð að lit. At-
vikið átti sér stað á milli kl. 15.30 og 23
á bifreiðastæði við geðdeild Landspít-
alans. Sá sem þar var að verki ók í
burtu. Vitni að atvikinu, svo og tjón-
valdur, eru beðin um að hafa samband
við lögregluna í Reykjavík.
Ekið á kyrrstæðan Toyota-jeppa
Á gatnamótum Meðalholts og Há-
teigsvegar var ekið á vinstri hlið bif-
reiðarinnar RH-972, sem er grænn
Toyota-jeppi, þar sem hún stóð kyrr
og mannlaus. Sá sem það gerði fór
hins vegar af vettvangi án þess að til-
kynna það til lögreglu eða hlutaðeig-
anda. Átti þetta sér stað frá því rétt
fyrir miðnætti þann 8. april sl. til kl. 8
að morgni þann 9. sl. Þeir sem ein-
hverjar upplýsingar geta gefið eru
beðnir að snúa sér til lögreglunnar í
Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum
PÁSKADAGSKRÁIN við Mývatn
hefst í ár með því að boðið er upp á
vélsleða-, skíðagöngu- og göngu-
ferðir með leiðsögn á skírdag. Enn
fremur verður í fjórða sinn tónlist-
arhátíðsem hefur yfirskriftina Mús-
ík í Mývatnssveit og verða tónleikar
í Reynihlíðarkirkju og í samkomu-
húsinu Skjólbrekku.
Á föstudaginn langa verður geng-
in píslarganga umhverfis Mývatn og
hefst gangan við Hótel Reynihlíð
klukkan níu um morguninn. Gengið
er rangsælis umhverfis vatnið.
Gangan er 36 km og er bíll með í för
til að geyma aukaföt, nesti og annan
búnað. Hver þátttakandi gengur
þessa göngu á eigin forsendum,
engar tímamælingar eða skráningar
eru framkvæmdar, þátttakendur
geta hafið gönguna og lokið henni
að vild, segir í fréttatilkynningu.
Á laugardag og páskadag er boð-
ið upp á vélsleðaferðir og fjalla-
jeppaferðir frá Hótel Reynihlíð um
nágrenni Mývatnssveitar. Hægt er
að leigja sleða eða fá far með fjalla-
jeppa. Mönnum er jafnframt frjálst
að koma með sín eigin tæki og slást
í för gegn gjaldi. Sömu daga er líka
boðið upp á fjölbreyttar skíða-
göngu- og gönguferðir um Mývatns-
sveit frá Hótel Reynihlíð. Gamli
bærinn verður opinn alla páskahelg-
ina og sértilboð verður í mat og
drykk. Í Hótel Reynihlíð er sér-
tilboð á gistingu í tilefni páskahátíð-
arinnar, leikin ljúf tónlist við kvöld-
verðarborðið og mikil hátíðar-
stemmning.
Útivistardagskrá
í Mývatnssveit um páskana