Morgunblaðið - 10.04.2001, Side 65
BRÉF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 65
ÉG er einn þeirra sem las með at-
hygli grein Ingimars Baldvinssonar
framkvæmdastjóra í Morgunblaðinu
þann 10. mars sl. þar sem hann
spurði í fyrirsögn: „Til hvers eru
kaup á slökkvibílum sveitarfélaga
boðin út?“ Í greininni lýsir Ingimar
því, sem margir þekkja sem stunda
viðskipti, að hagstæðustu tilboðum
er ekki tekið í opinberum útboðum.
Ingimar lýsir því hvernig 5 manna
nefnd á vegum Brunabótafélags Ís-
lands, sem meta átti tilboð í slökkvi-
bíla, reyndist ekki starfi sínu vaxin,
tók tilboði sem í vantaði búnað upp á
6 milljónir króna – kynnti það sem
lægsta tilboðið og lét í veðri vaka að
samanburður hefði farið fram á inn-
sendum tilboðum. Ingimar telur hins
vegar að nefndin hafi verið búin að
ákveða frá hverjum tilboði skyldi
tekið áður en þau bárust og því hafi
fjöldi manns, sem lagði á sig vinnu og
fyrirhöfn, verið hafður að fíflum. Frá
því þessi grein birtist hef ég, eins og
sjálfsagt fleiri skattgreiðendur, verið
að bíða eftir svari frá umræddri
nefnd. En ekkert hefur bólað á því.
Er þetta ef til vill gamla sagan um
hina „ómissandi“ íslensku spillingu
þar sem gert er út um málin í heita
pottinum eða klúbbnum þar sem
mestu máli skiptir að halda „óvið-
komandi“ utan við þannig að klíkan
sitji að kjötkötlunum? Ef til vill erum
við ekki lengra komin frá bananalýð-
veldinu en svo að það þyki sjálfsagt
sport að hlunnfara skattgreiðendur
(fíflin) og ekki þurfi meira til fyrir
spillta nefnd en að þegja bara nógu
lengi í trausti þess að málið gleymist.
Eftir stendur fullyrðing Ingimars
Baldvinssonar að hagkvæmasti
slökkvibíllinn í útboðinu hafi verið sá
sem kostaði 11 milljónir í tilboðinu
en um 17 milljónir þegar hann var af-
hentur. Tilboðið í sama bíl en betur
búinn fyrir 14,5 milljónir hafi hins
vegar ekki verið jafnhagstætt.
Er það ef til vill dónaskapur að
spyrja hverjir sátu í þessari 5 manna
nefnd sem eignarhaldsfélagið
Brunabótafélag Íslands og Samtök
sveitarfélaga settu á laggirnar til að
yfirfara og meta tilboðin í slökkvibíl-
ana?
LEÓ M. JÓNSSON,
Nesvegi 13, Höfnum.
Venjuleg
íslensk
spilling?
Frá Leó M. Jónssyni:
Herraskór
ódýrir og góðir
2.000
Svartir og grænir
st. 36-46
4.500
Svartir st. 41-46
3.000
Svartir st. 40-46
KRINGLAN
sími 568 6062
Pizza 67
Akureyri
Pizza 67 leitar eftir ábyrgum aðila sem nú
þegar er í veitingarekstri og eða hefur áhuga
á að hefja rekstur Pizza 67 á Akureyri.
Sérleyfiskerfi Pizza 67 felst meðal annars í
sameiginlegum innkaupum og
markaðssetningu ásamt ýmsu öðru er
viðkemur sölu veitinga.
Áhugasamir aðilar hafi samband við Georg
Georgiou í síma 520 6767 eða 891 8667.
2 fyrir 1 í vorsól
2 fyrir 1:
Fer›askr i fs to fan SÓL hf . • Grensásvegi 22 • Sími 5450 900 • Fax 5450 919
Sól b‡›ur nú örfá vi›bótarsæti í lengri vorfer›ir eldri borgara til K‡pur og
Portúgals á hreint ótrúlegum kjörum.
Glæsilegir gistista›ir og spennandi dagskrá allan tímann me›
skemmtanastjórum Silfurklúbbsins.
Portúgal 29. apríl (26 dagar). Ver› 58.050 kr.
á mann í tvíb‡li.
K‡pur 30. apríl (28 dagar). Ver› 57.850 kr.
á mann í tvíb‡li.
Innifali› í ver›i er flug, gisting, fer›ir til og frá
flugvelli erlendis, íslensk fararstjórn og allir skattar.
Frá nemendasýningu í Borgarleikhúsinu
Allir aldurshópar frá 4 ára.
Innritun í síma 553 8360
frá kl. 16-18
VORNÁMSKEIÐ HEFST 18. APRÍL NK.
Ég hef hætt störfum á Læknastöð Vest-
urbæjar, Melhaga 20-22, Reykjavík.
Anna M. Helgadóttir, fæðinga- og
kvensjúkdómalæknir.
Hulda Hjartardóttir, fæðinga- og kven-
sjúkdómalæknir, hefur tekið við starf-
seminni.
annan hvern miðvikudag