Morgunblaðið - 10.04.2001, Qupperneq 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
UMFANGSMESTU fjöldarannsókn
sem gerð hefur verið í heiminum á
tengslum melatóníns, efnisins sem
stjórnar syfju manna, og skammdeg-
isþunglyndis var hrundið af stað á
Vestfjörðum kl. 8 í gærmorgun. Í
þrjá daga munu 70 vestfirskir karlar
og konur á öllum aldri taka þátt í
viðamikilli rannsókn á vegum vís-
indamanna við Háskóla Íslands og
vestfirskra lækna sem miðar að því
að rannsaka orsakir þessa sjúkdóms
sem hrjáir um 11% þjóðarinnar, eða
um 30 þúsund Íslendinga.
Jóhann Axelsson, fyrrverandi pró-
fessor, er stjórnandi rannsóknarinn-
ar, en hún er framhald rannsóknar
sem Ragnhildur Káradóttir vann
undir stjórn hans og vakti mikla at-
hygli. Þá voru tekin sýni úr munn-
vatni um 30 Sunnlendinga og kom í
ljós marktækur munur á melatónín-
framleiðslu, eftir því hvort fólk þjáð-
ist af skammdegisþunglyndi eða
ekki. Að sögn Jóhanns kann sú stað-
reynd, verði hún staðfest í viðameiri
rannsókn með stærra úrtaki, að
varpa nýju ljósi á sjúkdóminn og
hafa áhrif á hugsanlega meðferð við
honum, s.s. lyfjagjöf.
Sýnatakan fer þannig fram að 70
íbúum á Vestfjörðum hafa verið af-
hent um 900 tilraunaglös, sem í fara
svo munnvatnssýni viðkomandi. 35
þeirra sem taka þátt í rannsókninni
hafa fundið fyrir einkennum skamm-
degisþunglyndis, en hinir 35 hafa
engin slík einkenni. Tekin eru sýni
fimm sinnum á sólarhring og mun
greining hefjast strax eftir páska.
„Það er afar mikilvægt að almenn-
ingur sé tilbúinn að taka þátt í slíkri
rannsókn og stuðla að framförum í
læknavísindum, ekki síst þeir sem al-
heilbrigðir eru,“ segir Jóhann um
hlut Vestfirðinga í rannsókninni.
Auk þeirra Jóhanns og Ragnhild-
ar kemur Steinunn Einarsdóttir
meinatæknir að rannsókninni, auk
lækna í Ísafjarðarbæ, Bolungarvík,
Patreksfirði og Hólmavík. Niður-
staðna er að vænta í sumar en í
fyrsta sinn fer greining og full-
vinnsla fram hér á landi.
Tengsl melatóníns og skammdegisþunglyndis
Munnvatnssýni tekin
úr 70 Vestfirðingum
HANN var ábúðarmikill viðgerðarmaðurinn á einni af
gömlu brúnum yfir Elliðaárnar í Reykjavík. Brýr voru
fyrst byggðar yfir Elliðaárnar árið 1883 og voru þær
tvær talsins, eystri og vestri. Árið 1920 voru nýjar ein-
breiðar brýr byggðar og standa þær brýr enn, lítið
breyttar. Önnur þessara brúa er við hús Stangaveiði-
félagsins en hin innar í dalnum og er nú verið að veita
henni andlitslyftingu, ásamt annarri steinsteyptri brú.
Morgunblaðið/Ásdís
Andlitslyfting í Elliðaárdalnum
SAMKVÆMT heimildum Morg-
unblaðsins má gera ráð fyrir að
breytingar verði á ríkisstjórninni
á næstunni, jafnvel á ríkisráðs-
fundi á laugardag. Búast má við
að Ingibjörg Pálmadóttir, heil-
brigðis- og tryggingaráðherra,
láti af embætti en hún hefur óskað
eftir því um skeið. Ekki er end-
anlega ákveðið hver tekur við af
Ingibjörgu Pálmadóttur. Rætt er
um þingmennina Jón Kristjáns-
son, Hjálmar Árnason, Kristin H.
Gunnarsson og Jónínu Bjartmarz.
Talið er líklegast að Jón Krist-
jánsson verði fyrir valinu.
Breytingar á
ríkisstjórn?
Erfitt að losa togarann
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Togarinn Baldur Árni hefur verið fastur í ísnum í nokkra daga.
SIGFÚS Jóhannsson, yfirvélstjóri á
Baldri Árna RE, telur að skipið losni
ekki úr ísnum skammt frá Bay Ro-
berts á Nýfundnalandi fyrr en eftir
tvo til þrjá sólarhringa en það hefur
verið fast síðan fyrir helgi
„Staðan er ekkert sérstaklega
góð,“ segir Sigfús sem átti að fara frá
Halifax til Íslands í gærkvöldi ásamt
11 öðrum úr áhöfninni. Þeir fóru frá
borði á sunnudag og um borð í ísbrjót
sem flutti þá til lands en fyrir helgi
gengu nokkrir skipverjar á ísnum frá
skipi til lands. „Ísbrjóturinn hefur
verið tvo til þrjá sólarhringa að reyna
að koma olíuskipi inn í höfnina en það
hefur ekkert gengið. Samt fer hann
sjálfur það sem hann vill en ég held að
þetta taki tvo til þrjá sólarhringa til
viðbótar hvað okkar skip varðar.“
Þrír menn eru enn um borð, Barði
Ingibergsson skipstjóri, Jón Smári
Valdimarsson vélstjóri og Árni Svav-
arsson kokkur. Sigfús segir að
ástandið um borð í skipinu hafi verið
orðið slæmt. „Það var allt frosið hjá
okkur og við því orðnir vatnslausir.“
Sigfús er aldursforsetinn í áhöfn-
inni, tæplega sjötugur, og þekkir um-
hverfið vel, var t.d. á veiðum við Ný-
fundnaland 1957. „Ég held að ekki sé
nein hætta á ferðum,“ segir hann.
„Skipið er lengst inni í firði, aðeins
hálf önnur míla í land. Árið 1957 var
ég á gömlu togurunum við Nýfundna-
land og þá lentum við oft í miklu meiri
ís en þetta. Þetta er miklu minna og
nú hafa menn möguleika á að komast
í land.“
PÁLMI Haraldsson, framkvæmda-
stjóri Sölufélags garðyrkjumanna,
segir að heildsöluálagning á græn-
meti hafi lækkað um 40% á síðustu
10 árum. Hann segir í samtali við
Morgunblaðið að grænmetisfram-
leiðendur og dreifingarfyrirtæki
þeirra séu beitt miklum órétti í úr-
skurði Samkeppnisstofnunar um
grænmetismarkaðinn.
Pálmi sagði að Sölufélag garð-
yrkjumanna hefði á síðustu árum
leitað allra leiða til að hagræða og
bæta þjónustu við framleiðendur og
verslanir.
„Það hefur orðið mikil hagræðing
hjá okkur. Þegar ég kom að Sölu-
félagi garðyrkjumanna 1991 var um-
sýsluþóknun félagsins 26%. Ég
breytti henni strax í 21%. Síðan hef-
ur hún ekki lækkað í prósentum tal-
ið, en þjónusta við framleiðendur
hefur verið aukin. Við sjáum núna
um allar umbúðir og flutning. Þjón-
ustugjöld félagsins við framleiðend-
ur hafa því í reynd lækkað um 40% á
síðustu 10 árum. Þetta er með því
allra lægsta sem þekkist í nágranna-
löndum okkar. Það er öruggt að það
er hvergi hægt að finna neitt sam-
bærilegt dæmi innan landbúnaðar-
ins um jafnmikla lækkun á þjónustu-
gjöldum.“
Pálmi sagði að Sölufélagið hefði
hagnast um rúmar 50 milljónir árið
1999, en hagnaður hefði dregist sam-
an um meira en helming á síðasta
ári. Hann sagði að hagur framleið-
enda hefði batnað á síðasta áratug,
en versnað á síðustu tveimur árum.
Pálmi vísar því á bug að heildsölu-
fyrirtækin hafi haft með sér samráð
um verð. Þau ættu hins vegar mikil
viðskipti innbyrðis. Ástæðan væri
m.a. sú að þau þyrftu að tryggja við-
skiptavinum sínum stöðugt framboð
á öllum tegundum grænmetis og
ávaxta.
Pálmi sagðist vera mjög óánægð-
ur með það mat Samkeppnisstofn-
unar að það bryti í bága við lög að
framleiðendur reyndu að stilla fram-
leiðsluna að eftirspurninni og
tryggja þannig sem besta nýtingu
framleiðsluþáttanna. Hann sagði að
hafa yrði í huga að garðyrkjubændur
væru um 200 og heildsölufyrirtækin
væru í þeirri stöðu að þurfa að eiga
viðskipti við tvo aðila á smásölu-
markaði sem réðu 93% markaðarins.
Það hlytu allir að sjá að þetta væri
ójafn leikur þar sem annars vegar
væru garðyrkjubú sem veltu að með-
altali 10–20 milljónum og verslunar-
keðjur sem veltu 20–30 milljörðum.
Vísar á bug gagnrýni á SFG
Álagningin hefur
lækkað um 40%
Samkeppnisstofnun/10
FORSETI Frakklands, Jacques
Chirac, lýsti þeirri skoðun sinni í við-
ræðum við Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra að hann sæi ekki að önnur
ríki ættu til þess meiri kröfu en Ísland
að fá sæti í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna. Í samtali við Morgunblaðið
sagði Davíð Oddsson Frakklandsfor-
seta hafa vitað um umsókn Íslendinga
um sæti í öryggisráðinu árið 2008.
Önnur ríki en Ísland
eiga ekki meiri kröfu
Jacques Chirac um sæti í öryggisráðinu
Chirac telur/39