Morgunblaðið - 01.06.2001, Síða 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
DÓTTIR Auðar, Hrafnhildur Thor-
oddsen, var 16 ára þegar hún lenti í
alvarlegu bílslysi fyrir 12 árum sem
varð til þess að hún slasaðist alvar-
lega á mænu og hefur að mestu verið
bundin við hjólastóð síðan. „Þegar
hún var búin að átta sig á því hvað
hún var illa farin langaði hana ekki
til að lifa lengur,“ segir Auður sem
er hjúkrunarfræðingur og hefur
starfað í 30 ár á skurðdeild Land-
spítala – háskólasjúkrahúss. „Ég
varð að gera eitthvað til að hjálpa
henni og lofaði að ég myndi leita að
endamörkum veraldar að lækningu
því að það hlyti að vera hægt að gera
eitthvað fyrir hana.“ Auður hafði
samband við fjölda sérfræðinga og
loks fimm árum eftir slysið hitti hún
kínverskan skurðlækni, Zhang Sha-
ocheng, sem hafði mikla reynslu í
taugaskurðlækningum. Hann sam-
þykkti að skera Hrafnhildi upp þótt
hann teldi að of langur tími væri lið-
inn frá slysinu.
Hefur víða komið að
luktum dyrum
Eftir tvær aðgerðir gat Hrafn-
hildur hreyft fæturna nokkuð, sem
höfðu verið lamaðir í sex ár. Í kjöl-
farið reyndi Auður að láta aðra
lækna og samtök mænuskaddaðra
um allan heim vita af þessum skurð-
lækni í þeirri von að hægt yrði að
hjálpa öðrum sem væru að leita að
lækningu. Enginn virtist þó hafa
áhuga á að heyra hvað hún hafði að
segja. Auður var búin að reyna í
mörg ár þegar hún loks sendi tillögu
til WHO, Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
arinnar, um að skipulagður yrði
vinnufundur lækna og annarra sem
hafa náð góðum árangri með mænu-
skaddaða sjúklinga, þar sem hún
taldi nauðsynlegt að upplýsingum
yrði safnað á einn stað þar sem al-
gengt væri að sérfræðingar vissu
ekki hver af öðrum. WHO sam-
þykkti þetta og að lokum var ákveð-
ið að Auður myndi sjá um skipulagn-
ingu fundarins og afla til hans fjár
en WHO myndi fylgja málþinginu
eftir. Tvö ár eru síðan þetta var og
hefur Auður unnið hörðum höndum í
frítíma sínum við að undirbúa mál-
þingið. „Ég trúi ekki að þetta sé loks
orðið að veruleika,“ segir Auður
brosandi.
26 sérfræðingar víðs vegar að úr
heiminum halda fyrirlestur á mál-
þinginu. „Það sem er sérstakt við
þetta málþing er að þarna verður
ekki eingöngu fjallað um hefðbundn-
ar lækningaaðferðir. Ég hef reynt að
velja fyrirlesara á sem breiðustum
grundvelli til að sýna fulltrúum al-
þjóðastofnana sem þarna verða að
það er verið að gera ýmislegt. En
allir sem hingað koma eru hámennt-
aðir og hafa náð miklum árangri
með mænuskaddaða sjúklinga á ein-
hverju sviði.“
Í lok þingsins verða pallborðsum-
ræður þar sem fulltrúar frá Evrópu-
ráðinu, WHO og Heilbrigðisstofnun
Bandaríkjanna sitja. „Markmiðið er
að kynna fyrir þeim hversu fjöl-
breyttar rannsóknir eru stundaðar
um allan heim en þetta svið lækn-
inga þarf að fá pólitíska aðstoð,“ seg-
ir Auður. „Það verður að láta vís-
indamennina fá peninga og aðstöðu
til rannsókna til að ná árangri á
þessu sviði því þetta spannar svo
mörg svið lækninga og það þarf ein-
hvern til að halda utan um allar
rannsóknirnar.“
Auður segir að WHO muni stofna
gagnabanka um mænuskaða í kjöl-
far málþingsins sem verði öllum op-
inn. Allir sérfræðingar og læknar
muni geta sent þangað upplýsingar
en Auður segir að læknar frá Aust-
urlöndum eigi t.d. mjög erfitt með að
fá birtar greinar eftir sig í virtum
vísindatímaritum á Vesturlöndum.
Gagnabankinn mun einnig nýtast
þeim sem eru í upplýsingaleit því
þar verður hægt að leggja inn fyr-
irspurnir. Auður segir að þannig
geti sjúklingar og aðstandendur
þeirra sparað dýrmætan tíma, vinnu
og fyrirhöfn en miklu máli skiptir að
sjúklingur komist sem fyrst undir
læknishendur.
Taugar fluttar til og
rafmagni dælt í vöðvana
Hrafnhildur fór ekki í aðgerð fyrr
en sex árum eftir slysið. Aðgerðin
sem kínverski skurðlæknirinn gerði
hafði aldrei áður verið framkvæmd á
Vesturlöndum þegar Shaocheng
kom hingað til lands til að gera að-
gerðina á Hrafnhildi. Aðgerðin
byggist á því að úttaugar eru fluttar
fram hjá mænuskaðanum og látnar
vaxa niður í fætur en taugarnar vaxa
um 1 mm á dag. Shaocheng flytur
fyrirlestur á ráðstefnunni sem og
ítalskur læknir, Giorgio Brunelli,
sem hefur tekið skyntaugar úr hönd-
um og flutt þær í lær- og rassvöðva.
Hrafnhildur hefur einnig tvisvar
sinnum farið til Moskvu í rafmagns-
meðferð hjá rússneska lækninum
Anatoly Vitenson sem flytur sömu-
leiðis fyrirlestur á málþinginu. Þá er
rafmagni dælt í vöðvana þannig að
fæturnir sveiflast til og frá en á eftir
verða vöðvarnir styrkari. Meðal
annarra fyrirlesara má nefna Harry
S. Goldsmith, prófessor við Nevada-
háskóla, sem mun fjalla um ígræðslu
garnahengja í mænu en garnahengj-
ur halda görnunum á sínum stað.
Einnig mun Jack Edwards, verk-
fræðingur sem hefur hannað spelkur
sem senda rafboð í vöðvana þegar
fólk gengur sem koma í staðinn fyrir
taugaboð frá heila, segja frá rann-
sóknum sínum. Þá verður fjallað um
nálastungur, leysigeislastungur og
ígræðslu stofnfruma, fósturfruma og
hákarlafruma í mænu, svo dæmi séu
tekin.
Málþingið, sem fer fram í utanrík-
isráðuneytinu, er lokað almenningi
en læknar geta hlýtt á erindin.
Íslenskur hjúkrunarfræðingur hefur frumkvæði að alþjóðlegu málþingi mænusérfræðinga á Íslandi
„Trúi ekki að
þetta sé loks
orðið að
veruleika“
Morgunblaðið/Sverrir
Auður Guðjónsdóttir og nokkrir frummælendanna hittust við lokaundirbúning á heimili hennar í gær.
Í dag hefst alþjóðlegt málþing á vegum
WHO og íslenskra heilbrigðisyfirvalda um
mænuskaða þar sem sérfræðingar víðs
vegar að úr heiminum munu bera
saman bækur sínar en þeir eiga allir mjög
ólíkan bakgrunn.
TÆPLEGA þrítugur Dani, Martin
Sörensen, sem búsettur hefur verið
hér á landi í hálft ár, braut og brák-
aði fimm hryggjarliði og má teljast
heppinn að hafa ekki lamast þegar
hann brotlenti á Hellisheiði um síð-
ustu helgi nokkurs konar sviffall-
hlíf, eða „paraglider“ eins og loftfar-
ið nefnist á frummálinu, en það
hefur ekki hlotið viðurkennt ís-
lenskt heiti. Ekki var um svifdreka
að ræða eins og kom fram í frétt
Morgunblaðsins af atburðinum sl.
þriðjudag, en þær upplýsingar
fengust frá lögreglunni. Í samtali
við Morgunblaðið vonaðist Martin
til að geta náð sér af meiðslunum á
næstu þremur mánuðum og þá ætl-
ar hann að svífa á ný.
Martin var við íþróttaiðkun sína á
Skarðsmýrarfjalli ásamt félaga sín-
um, Ingþóri Guðmundssyni, sem
varð vitni að því, þegar Martin skall
niður utan í hlíð Stóra-Reykjafells á
Hellisheiðinni.
„Það var rosalegt að sjá þetta.
Hann var í beygju þegar hann
missti skyndilega hæð og skall
harkalega í hlíðina á miklum hraða.
Ekki er neinum sviptivindum um að
kenna að svona fór, heldur líklega
bara mannleg mistök. Í raun er það
kraftaverk að hann skyldi ekki hafa
slasast meira, því eftir að hann lenti
skoppaði hann upp í um sjö metra
hæð og niður aftur,“ sagði Ingþór.
Hann gat ekki leynt undrun sinni
á því, að Martin hefði verið sendur
heim af Landspítalanum í Fossvogi
rúmum 40 tímum eftir slysið, svona
margbrotinn. Hvort það hefði verið
sökum verkfalls hjúkrunarfræðinga
eða ekki hefði sjúkralegan þótt
heldur stutt.“
Hættuminna en svifdrekaflug
Loftfarið er ekki algengt og að
sögn Ingþórs stunda um 15-20
manns þessa íþrótt hér á landi.
Íþróttin á sér einungis tíu ára sögu í
heiminum, en vinsældir hennar hafa
farið vaxandi. Ingþór sagði þessa
fallhlíf einnig hættuminni en svif-
dreka og slys væru fátíð. „Paraglid-
er“ væri mun stærri en hefðbundin
fallhlíf og væri t.d. opin áður en
hlaupið væri niður fjallshlíðar þar
sem loftuppstreymi væri til staðar.
„Mér urðu á mistök í fluginu nið-
ur af fjallinu og fólk má alls ekki fá
þá hugmynd að þetta sé hættuleg
íþrótt. Hún er það alls ekki,“ sagði
Martin Sörensen, sem vildi koma á
framfæri þakklæti til þeirra sem
komu honum til bjargar og hlúðu að
honum. Tæpir þrír tímar liðu frá því
að slysið varð þar til Martin var
kominn undir læknishendur í
Reykjavík með aðstoð lögreglu- og
sjúkraliðs frá Selfossi.
Tæplega þrítugur Dani í sviffallhlíf brotlenti á Hellisheiði
Margbrotinn á hrygg en
ætlar í loftið á nýjan leik
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Martin Sörensen liggur rúmfastur á heimili sínu með bakið spelkað og
sér til aðstoðar hefur hann fengið verkfæri sem kemur sér vel þegar
beita á fjarstýringunni á sjónvarpið, helstu dægrastyttinguna.
LÖGREGLAN í Reykjavík og
starfsmenn skattrannsóknarstjóra
ríkisins gerðu húsleit í húsnæði
nektardansstaðarins Bóhem við
Grensásveg í Reykjavík síðdegis á
miðvikudag. Forráðamenn staðar-
ins voru yfirheyrðir fram undir
kvöld en rannsókn mun vera á
frumstigi.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var lagt hald á bókhald
staðarins og önnur rekstrargögn.
Húsleitin var m.a. gerð vegna
ásakana frá nektardansmeyjum um
að þar væri stundað vændi og hvatt
væri til þess af rekstaraðilum
Bóhem.
Sögðust hafa verið hvattar til
þess að stunda vændi
Í síðustu viku kærðu fjórar eist-
neskar nektardansmeyjar forráða-
menn staðarins fyrir að hvetja þær
óbeint til þess að stunda vændi til
að drýgja tekjur sínar.
Í Morgunblaðinu á þriðjudag var
greint frá því að Marie Fisker,
dönsk nektardansmey sem starfaði
á Bóhem í mars, segir að þegar hún
var við störf þar í mars hafi fjöldi
vændiskvenna unnið þar. Þetta kom
fram í viðtali við Marie sem birtist í
netútgáfu danska Extra-blaðsins.
Lögreglan
leggur hald
á bókhald
Bóhem