Morgunblaðið - 01.06.2001, Side 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Við vilja biðja um loyvi til at lata doríu fylgja hvörjum skipi. Við taka alt við í land.
Fræðsluefni til forvarna
Skrefi
á undan
Bindindissamtökin áÍslandi í samvinnuvið Foreldrafélag
misþroska barna og Geð-
rækt eru nú að gefa út for-
varnarefni sem nefnist
Skrefi á undan og er ætlað
foreldrum barna í ákveðn-
um áhættuhópum á að
ánetjast áfengi og vímu-
efnum. Útgáfan er styrkt
af áfengis- og vímuvarna-
ráði og góðgerðafélagið
Stoð og styrkur hefur gef-
ið út geisladisk sem heitir
Ljúft og létt, sem mikið er
á af gömlum, íslenskum
dægurlögum og verið er að
selja í símasölu til styrktar
þessu málefni nú. Elín El-
ísabet Jóhannsdóttir hefur
ritstýrt og tekið saman
Skrefi á undan.
„Ég hef unnið efnið í nánu sam-
starfi við marga af okkar bestu
sérfræðingum í málefnum barna
með ákveðnar raskanir, svo sem
eins og ofvirkni, misþroska, kvíða-
raskanir og þunglyndi, en þetta
eru allt börn sem eru í aukinni
hættu á að ánetjast áfengi og
vímuefnum.“
– Hvers konar efni er þetta sem
þú hefur valið?
„Þarna eru greinar um ýmsa
áhættuþætti og hvers vegna
ákveðnar raskanir eru áhættu-
þáttur. Þarna eru líka mörg hald-
góð ráð fyrir foreldra, leikskóla-
kennara og kennara sem gagnast í
uppeldi barna frá smábarnsaldri
og upp öll unglingsárin. Það er
talið að hægt sé að finna áhættu-
börnin býsna snemma.“
– Hvernig má gera það?
„Við höfum öll okkar skapgerð
þótt segja megi að fólk skiptist að
þessu leyti í þrjá meginflokka.
Það eru börn með erfitt skap, við-
kvæm og kvíðagjörn börn og svo
dagfarsprúð börn sem auðvelt er
að koma á reglu í sambandi við
svefn og næringu. Sem dæmi má
nefna að sum börn eru mjög krefj-
andi strax frá upphafi. Eru mjög
viðkvæm og gera meiri kröfur á
uppalendur sína en önnur börn.
Eigi maður svoleiðis barn er gott
að hafa það á bak við eyrað að það
þurfi að vinna á annan hátt með
það en hin börnin. Lítið barn sem
er mjög kröfuhart á athygli og
umönnun, sefur lítið og virðist
ætla að taka völdin á heimilinu
gæti verið ofvirkt og þá þarf að
vera vakandi fyrir ýmsum þáttum
svo barnið og foreldrarnir lendi
ekki vandræðum síðar meir. Við-
kvæm börn, sem eru viðkvæm fyr-
ir breytingum, og stundum fælin
og feimin, gætu á síðari stigum
þróað með sér kvíðaröskun eða
þunglyndi sem setti þau þá í um-
ræddan áhættuhóp.“
– Hvað er til ráða?
„Fyrst og fremst þarf að
styrkja sjálfsmynd
barnanna, finna sterku
hliðarnar. Stundum
myndast vítahringur í
uppeldinu sem þarf að
rjúfa og foreldrar eru
oft mjög gjarnir á að
kenna sjálfum sér um
hvernig komið er fyrir
barninu. En það er ekki
svo, barnið fæddist svona og þeim
hefur verið falið það vandasama
verkefni að ala upp þetta barn.
Barnið þarf skýran ramma til að
finna til öryggis svo eitthvað sé
nefnt.“
– Hvernig á að dreifa þessu
efni, Skrefi á undan?
„Eirð, fræðslu- og ráðgjafar-
þjónusta um uppeldi og geðheilsu
barna og unglinga hefur í mörg ár
haldið námskeið fyrir foreldra
barna með ofvirkni. Við ætlum að
gefa Eirð talsvert upplag af Skrefi
á undan sem þeir geta gefið þeim
foreldrum sem koma á námskeið
og þeir þá notað efnið sem upp-
flettirit til upprifjunar á því sem
þeir hafa lært á námskeiðinu.
Einnig mun Foreldrafélag mis-
þroska barna fá efnið í hendur til
dreifingar til sinna félagsmanna.
Hluti af efninu fer inn á Geðrækt-
arvefinn og það er í skoðun hvort
einnig eigi að dreifa efninu til
Félagsþjónustunnar. Efnið verð-
ur boðið til sölu til grunnskólanna
og leikskólanna í landinu með
haustinu.“
– Hvers vegna var farið út í
þessa útgáfu?
„Það var vegna þess að áfengis-
og vímuvarnaráð hafði á sínum
tíma sett af stað margar litlar
nefndir úr ýmsum hópum þjóð-
félagsins, nefna má nefndir frá
heilbrigðisþjónustunni, skólunum,
ýmiskonar tómstundastarfsemi
og þarna var líka unglinganefnd
sem ég var fengin til að halda utan
um. Allar þessar nefndir hittust á
fundi og báru saman bækur sínar.
Það mátti lesa á milli línanna að
við værum með ákveðna þekkta
áhættuhópa sem lítið hafði verið
sinnt. Í þeim hópum voru m.a.
þessir einstaklingar sem rætt var
um áðan. Út frá þessari vinnu
kviknaði þessi hugmynd og hún
fékk góðan hljóm-
grunn. Efnið er unnið
þannig að sérfræðing-
ar hafa komið í viðtöl
eða lagt til efni. Það
sem er nýtt við þetta að
þarna er allt efnið á ís-
lensku en meðferðar-
aðilar hafa hingað til
haft lítið annað en
ljóstrit úr erlendu efni til að dreifa
frítt til foreldra.“
– Er fyrirhugað framhald á
svona útgáfu?
„Það hefur ekki verið rætt um
það að gagni ennþá. Hins vegar er
samstarf á milli bindindissamtak-
anna og Götusmiðjunnar þar sem
unnið er með foreldrum þeirra
sem þangað hafa leitað. Skrefi á
undan er ætlað að byrgja brunn-
inn áður en barnið dettur ofan í, ef
svo má segja.
Elín Elísabet Jóhannsdóttir
Elín Elísabet Jóhannsdóttir
fæddist í Reykjavík 1964. Hún
lauk stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
1984 og kennaraprófi 1990 frá
Kennaraháskóla Íslands. Í vetur
hefur hún stundað nám við Há-
skóla Íslands í hagnýtri fjöl-
miðlun. Hún hefur starfað við
námsefnisgerð í mörg ár en er
nú ritstjóri Æskunnar og ung-
lingablaðsins Smells. Maður El-
ínar er Kristmundur Krist-
mundsson vélfræðingur og eiga
þau samtals 4 börn.
Hef unnið efn-
ið í nánu sam-
starfi við
marga okkar
bestu sér-
fræðinga