Morgunblaðið - 01.06.2001, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 9
TVÍTUGUR maður var í fyrradag
dæmdur í árs fangelsi vegna inn-
brota og þjófnaðar, brots gegn
vopnalögum og fyrir að hafa þýfi
undir höndum. Með brotunum rauf
hann skilyrði reynslulausnar sem
honum var veitt en hann átti þá
ólokið 210 dögum af afplánun refs-
ingar.
Afbrotin sem maðurinn var
ákærður fyrir voru framin frá 4.
mars til 12. apríl sl. Ákæran var í
11 liðum en maðurinn var sýkn-
aður af þremur ákæruatriðum. Í
dómi Héraðsdóms Reykjaness er
ákæra sýslumannsins í Kópavogi
nokkuð gagnrýnd fyrir óná-
kvæmni.
Í dóminum kemur fram að mað-
urinn hóf neyslu áfengis um ferm-
ingaraldur og var háður fíkniefn-
um 16 ára gamall. Meðal fíkniefna
sem hann kýs helst séu e-töflur og
amfetamín. Að mati sérfræðings
hefur geðheilbrigðissaga hans ein-
kennst af ofvirkni og athyglis-
bresti frá barnæsku, auk þess sem
vímuefnaneyslan, þunglyndi, kvíði
og alvarlegar hegðunartruflanir
hafi markað líf hans.
Maðurinn lauk 6 mánaða vímu-
efnameðferð í febrúar sl. en þegar
hann var handtekinn nokkrum
dögum síðar var hann undir mikl-
um vímuefnaáhrifum eftir neyslu
e-taflna og áfengis.
Jónas Jóhannsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
Dæmdur
fyrir fjölda
afbrota
FÓLK Í FRÉTTUM
LÖGREGLAN í Reykjavík fór ekki
fram á gæsluvarðhaldsvist yfir þeim
fjórum mönnum sem voru handtekn-
ir vegna rannsóknar á hnífstungu-
árás við Grettisgötu á mánudags-
kvöld. Tveir mannanna sitja þó í
fangelsi en þeir hafa hafið afplánun á
eldri dómum. Hnífurinn sem maður-
inn var stunginn með fannst á þriðju-
dagsmorgun skammt frá árásar-
staðnum. Líðan mannsins mun vera
eftir atvikum góð.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var maðurinn stunginn eftir
að upp kom ágreiningur vegna auðg-
unarbrots.
Ekki farið fram
á gæsluvarð-
hald vegna
hnífstungu
LÖGREGLAN í Borgarnesi hand-
tók fjóra menn vegna innbrots í sum-
arbústað í Hvítársíðu aðfaranótt
þriðjudags. Innbrotið var tilkynnt
lögreglu um kvöldið. Mennirnir voru
handteknir um nóttina en þeir
dvöldu í sumarbústað skammt frá.
Einn þeirra játaði á sig innbrotið og
vísaði lögreglunni á þýfið sem var að
mestu leyti óskemmt. Mönnunum
var öllum sleppt að loknum yfir-
heyrslum.
Brotist inn í
sumarbústað í
Hvítársíðu
GRUNUR leikur á að kveikt hafi
verið í byggingarefni við áhaldahús
Mosfellsbæjar í fyrradag. Þegar
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
kom á vettvang um klukkan sex log-
aði þar talsverður eldur. Slökkvi-
starfi lauk um klukkan átta en
slökkviliðið var aftur kvatt á vett-
vang síðdegis en þá logaði enn í
glæðum.
Eldur við
áhaldahús
Mosfellsbæjar
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Sportlegur fatnaður
Ferðadress,
léttar yfirhafnir,
bermúdabuxur,
bolir og skyrtur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Í brúðkaupið,
útskriftina
Glæsilegur fatnaður
Opið laugardag frá kl. 10—16
Lagersala á Bíldshöfða 14
Opið alla föstudaga milli kl. 16 og 19,
laugardaga milli kl. 12 og 16.
www.sokkar.is oroblu@.sokkar.is
Skór frá kr. 750
Hverfisgötu 6,
101 Reykjavík,
s. 562 2862
ÍTALSKUR
SUMARFATNAÐUR
Hörskokkar frá 2.990
Gallaskokkar frá 2.990
Silkiskokkar frá 3.990
Kvartbuxur frá 3.990
stærðir 36-46
Laugavegi 54 - s. 552 5201
Kringlunni — sími 568 1822
Hlífðarföt
vind- og vatnsheld
Jakki og buxur. Stærðir 110-170 sm.
Litur: Dökkblár. Verð kr. 4.500.
Kr. 450
Röndóttu
sumarbústaðatöskurnar
komnar
Skólavörðustíg 7