Morgunblaðið - 01.06.2001, Síða 12
FRÉTTIR
12 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Heilbrigðisnefnd samþykkti 5. apríl
sl. að þeim fyrirtækjum sem yrðu
uppvís að því að brjóta grein 8. 1. í
tóbaksvarnarlögum þrisvar sinnum
yrði bannað að selja tóbak í þrjá mán-
uði og að þeim yrði gert að skila áætl-
un um hvernig þau ætli að koma í veg
fyrir slík brot í framtíðinni. Jafnframt
var samþykkt að nefndin gæti fram-
lengt bannið skili viðkomandi ekki
fullnægjandi áætlun. Ágreiningur
hefur risið um þessa samþykkt nefnd-
arinnar og framkvæmd hennar og
hafa m.a. Skeljungur hf. og Samtök
atvinnulífsins lýst efasemdum varð-
andi hana.
Borgarlögmaður telur að sölubann
á tilteknum varningi á sölustað falli
undir þau þvingunarúrræði sem heil-
brigðisnefnd, sem stjórnvaldi, sé
heimilt að beina að uppfylltum ýms-
um skilyrðum. Almenn ákvörðun
nefndarinnar um sölubann geti þó
ekki haft annað gildi en sem stefnu-
mörkun í málaflokkinum, en eftir sem
áður þurfi að taka fyrir og ákveða
þvingunarúrræði. 26. grein laga nr. 7/
1998 heimili takmörkun á starfsemi
og því geti heilbrigðisnefnd ákveðið í
máli brotlegs söluaðila að beita slík-
um þvingunarúrræðum.
Tekið er þó fram að það samrýmist
ekki stjórnsýslulögum að beita þving-
unarúrræðum einungis á grundvelli
kannana starfsmanna Íþrótta- og
tómstundaráðs á sölustöðum tóbaks
og kvörtunar í kjölfar þeirra. Sjálf-
stæð rannsókn stjórnvalds í hverju
einstöku máli sé eftir sem áður nauð-
synleg.
Nefndin hefur ekki staðið fyrir
sjálfstæðri rannsókn
„Af fyrirliggjandi gögnum verður
ekki sérð að heilbrigðisnefnd hafi
staðið fyrir sjálfstæðri rannsókn á
meintum brotum og hefur nefndin því
ekki uppfyllt rannsóknarskyldu sína
samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga,“
segir í umsögn borgarlögmanns.
Þá kemst borgarlögmaður að þeirri
niðurstöðu að ekki verði séð af gögn-
um málsins að veittur hafi verið and-
mælaréttur áður en viðkomandi sölu-
aðilar voru áminntir.
Bendir borgarlögmaður einnig á að
fram komi í bréfi Skeljungs hf. til
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
(HER) að fyrirtækinu hafi verið neit-
að um afrit af kvörtunum varðandi
ætluð brot þess á tóbaksvarnalögum.
„Þegar kvörtun eða kæra er grund-
völlur máls er slíkt skjal tvímælalaust
meðal mikilvægustu gagna stjórn-
sýslumáls og verður því að telja að
verði HER ekki við beiðni um aðgang
sé um brot á stjórnsýslulögum að
ræða, sem m.a. kann að valda því að
ákvörðun sem tekin er í viðkomandi
máli kunni að reynast ógildanleg.“
Heilbrigðisnefnd fjallaði um um-
sögn borgarlögmanns á fundi sínum í
gær og verður umræðu um hana fram
haldið á fundi nefndarinnar í dag, skv.
upplýsingum sem fengust hjá Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur.
Umsögn borgarlögmanns um þvingunarúrræði heilbrigðisnefndar
Ákvæðum stjórnsýslulaga
ekki fylgt að öllu leyti
EMBÆTTI borgarlögmanns kemst að þeirri niðurstöðu í umsögn
vegna ágreinings um þvingunarúrræði heilbrigðisnefndar Reykja-
víkur vegna brota á reglum um sölu tóbaks, að ekkert sé því til fyr-
irstöðu að nefndin grípi til þvingunarúrræða á grundvelli laga en
nefndin hafi ekki vald til að beita refsingum eða refsikenndum við-
urlögum. Heilbrigðisnefnd beri að fara að reglum stjórnsýslulaga í
störfum sínum og að mati borgarlögmanns hefur nefndin ekki fylgt
ákvæðum stjórnsýslulaga að öllu leyti í þessu máli varðandi rann-
sóknarreglu stjórnsýslulaga og andmælarétt.
FYRSTA skóflustungan við nýja
viðbyggingu Ártúnsskóla var tekin
í gær, þegar haldin var hátíð í skól-
anum vegna skólaslita. Í nýju bygg-
ingunni verða tvær heimastofur,
fjórar sérkennslustofur fyrir list-
og verkgreinar, raungreinar og
tónlist og rými fyrir skóladagvist.
Viðbyggingin á að tengja saman
skólabyggingar sem fyrir eru með
tengigöngum við suðausturhorn
skólahússins og við inngang í
íþróttahúsið. Samhliða þessum
framkvæmdum verður eldra hús-
næði skólans breytt og skólalóðin
stækkuð um 2.400 fermetra til suð-
urs. Áætlaður kostnaður við fram-
kvæmdirnar er um 130 milljónir
króna og eru verklok áætluð fyrir
skólabyrjun árið 2002.
Fyrsta skóflu-
stungan að
stækkun
Ártúnsskóla
Morgunblaðið/Golli
Sigrún Magnúsdóttir, formaður fræðsluráðs Reykjavíkurborgar, tók fyrstu skóflustunguna að viðbyggingu Ár-
túnsskóla og naut þar aðstoðar nemenda skólans.
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur
fjallar um málið á fundi sínum í dag
ÁRSFUNDUR Alþýðusambands
Íslands samþykkti að hrinda í
framkvæmd sameiginlegum flutn-
ingi á starfsemi ASÍ og Menning-
ar- og fræðslusambands alþýðu á
einn stað, „helst á sama gólfflöt“,
eins og segir í samþykktinni. Er
þetta gert í því skyni að efla sam-
stöðu og samvinnu milli skrifstofu
ASÍ og MFA og auðvelda samnýt-
ingu rekstrar- og þjónustuþátta
sem unnir eru á skrifstofum
beggja m.a. hvað varðar upplýs-
ingatækni, útgáfumál og kynning-
arstarfsemi.
Jafnframt verður hafinn undir-
búningur að sameiningu rekstrar-
og þjónustuþátta sem unnir eru
bæði á skrifstofu ASÍ og MFA.
Ársfundir færðir til hausts
Ársfundarfulltrúar samþykktu
einnig tillögu um að færa ársfundi
sambandsins frá vori til hausts og
halda þá fyrir lok októbermánaðar.
Á síðari degi ársfundarins var
einnig samþykkt tillaga um að
framlengja umboð kjörnefndar,
sem kjörin var í upphafi ársfund-
arins, til næsta ársfundar árið
2002. Kom fram í máli fundar-
manna að þetta væri gert svo und-
irbúa mætti uppstillingu til mið-
stjórnar og annarra trúnaðarstarfa
fyrir ársfundi og reyna að koma í
veg fyrir að fundirnir snúist upp í
átök um skipan í embætti eins og
raunin varð á ársfundinum sem
stóð frá mánudegi til þriðjudags.
Samþykkt að flytja
starfsemi ASÍ og MFA
STJÓRN Félags íslenskra náttúru-
fræðinga skoðar nú þann möguleika
að hefja undirbúning að verkfalli,
samkvæmt áskorunum sem stjórn-
inni hafa borist frá félagsfundum
þorra félagsmanna. Þá hafa náttúru-
fræðingar ákveðið að leggja niður
störf nk. þriðjudag, 5. júní, og halda
félagsfund um stöðu mála í kjara-
deilu FÍN og ríkisins og íhuga að-
gerðir, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá félaginu.
Samningar FÍN við ríkið hafa ver-
ið lausir í 7 mánuði og virðist lausn
ekki í sjónmáli þrátt fyrir að haldnir
hafi verið hátt á þriðja tug funda.
Þrúður G. Haraldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri FÍN, segir það mikið
bera á milli aðila að varla sé ástæða
til að halda fundi. „Hlutirnir eru
hreinlega þannig að þeir eru að bjóða
okkur kjaraskerðingu upp á 6,5% .“
Í fréttatilkynningu FÍN kemur
fram að í síðustu kjarasamningum
hafi verið tekið upp nýtt gegnsætt
launakerfi að frumkvæði ríkisins
sem leyst hafi af hólmi svokallað
„holræsakerfi“ sem samanstóð af
taxtalaunum og viðbótarlaunum í
formi yfirvinnutíma sem engar regl-
ur hafi gilt um. Nú vilji ríkið hins
vegar ekki tryggja FÍN þann sveigj-
anleika í launatöflu sem nauðsynleg-
ur sé til að gegnsæi núverandi launa-
kerfis haldist. „Það er því boðið upp á
að taka upp holræsakerfi að nýju.
Slíkt kerfi við launaákvörðun kemur
sýnu verst við ellilífeyrisþega sem
einungis njóta tengingu lífeyris við
taxtabundin laun.“
Hjá ríkinu starfa um 570 náttúru-
fræðingar sem eru félagsmenn í FÍN
og er Hafrannsóknastofnun stærsti
vinnustaðurinn.
Náttúrufræðingar
leggja niður vinnu
NÝTT sendiráð Íslands í Vín
í Austurríki var opnað form-
lega í vikunni og þar var
margt góðra gesta. Meðal
þeirra var Páll Pampichler
Pálsson, fyrrverandi stjórn-
andi Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands, sem hér er á tali við
sendiherrann í Austurríki,
Þórð Ægi Óskarsson (t.h.).
Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra var viðstaddur
opnunina ásamt eiginkonu
sinni, Sigurjónu Sigurðar-
dóttur, og í ávarpi sínu
minntist hann á Pál í hópi
þeirra Austurríkismanna sem
hefðu auðgað íslenskt listalíf
í gegnum tíðina, auk dr.
Franz Mixa og dr. Victors
Urbanic.
Nýtt sendiráð Íslands í Vín í Austurríki
Góðir gestir við opnunina
Ljósmynd/Birgit Guðjónsdóttir
FLUGKLÚBBUR Mosfellsbæjar
mun standa fyrir flugdegi á Tungu-
bökkum í Mosfellsbæ á laugardag í
tilefni af 20 ára afmæli klúbbsins,
sem stofnaður var 29. maí 1981. Til
þess að fagna þeim áfanga hefur ver-
ið boðað til afmælishátíðar að hætti
flugdaga fyrri tíma á flugvellinum á
Tungubökkum.
Dagskráin stendur frá klukkan 13
til 17 og þar má líta alls kyns loftför,
allt frá litlum flugmódelum upp í
þyrlur, auk svifdreka, flugvéla og
fallhlífastökks. Dagskránni lýkur
síðan með lendingakeppni.
Flugklúbbur Mosfellsbæjar er sá
stærsti sinnar tegundar á Íslandi
með 108 meðlimi og eru yfir 20 flug-
vélar innan vébanda klúbbsins. Stór
hluti meðlima hefur atvinnu af flugi
og í klúbbnum eru jafnframt flestir
listflugmenn landsins og stór hluti
þeirra sem smíða flugvélar.
Flugdagur í
Mosfellsbæ
DÓMUR Héraðsdóms Reykjavíkur
yfir manni sem sakfelldur var fyrir
að aka án ökuréttar var mildaður í
Hæstarétti í gær. Manninum var
gert að sæta þriggja mánaða fang-
elsi en héraðsdómur hafði áður
dæmt hann til sex mánaða fangels-
isvistar.
Frá árinu 1994 hefur maðurinn
átján sinnum hlotið refsidóm þar af
þrettán sinnum vegna aksturs án
ökuréttinda. Í tíu tilvikum hafði
maðurinn einnig gerst sekur um
önnur umferðarlagabrot. Með tilliti
til sakarferils mannsins þótti Hæsta-
rétti refsing hans hæfilega ákveðin
fangelsi í þrjá mánuði.
Fangelsi
fyrir akst-
ur án öku-
réttinda