Morgunblaðið - 01.06.2001, Síða 15

Morgunblaðið - 01.06.2001, Síða 15
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 15 Höldur ehf. notaðir bílar Til sölu MMC Pajero 2,8 DT 5.d skr. 7/99 ek. 72 km. ssk interc. 33“ breyttur áhv. kr. 1.675 þús. til 72 mán. Verð 2.790 þús. símar 461 3020 og 895 2525 Aðalfundur Skógræktarfélags Eyfirðinga verður haldinn fimmtudaginn 7. júní nk. í Vaðlaskógi. Stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga. Farið verður frá Gróðrarstöðinni í Kjarna kl. 20 með rútu. Fundurinn mun að nokkru leyti fara fram utandyra og eru fundarmenn beðnir að vera klæddir til útivistar. Gert er ráð fyrir að fundinum ljúki um kl. 23. Dagskrá er samkvæmt lögum félagsins. HEILDARSKULDIR íþróttafélaganna á Akur- eyri námu 220 milljónum króna um síðustu áramót en þar af námu skuldir KA, Þórs og Golfklúbbs Akureyrar, GA, um 210 milljónum króna. Heildarskuldir KA um síðustu áramót námu rúmum 123 milljónum króna, skuldir Þórs námu rúmum 57 milljónum og GA rúmum 30 milljónum króna. Þetta kemur fram í greinargerð starfshóps um skuldir íþróttafélaganna á Akureyri. Heild- arskuldir íþróttafélaganna í bænum voru rúmar 171 milljón króna, samkvæmt ársreikningum frá árinu 1999 og hækkuðu skuldir þeirra því um tæp- ar 50 milljónir króna á milli áranna 1999 og 2000. Bæjarstjórn Akureyrar skipaði þriggja manna starfshóp í lok nóvember á síðasta ári, sem taka átti upp viðræður við Íþróttabandalag Akureyrar um fjárhagsstöðu og framtíðarrekstur íþrótta- félaganna í bænum. Bæjarráð fjallaði um tillögur starfshópsins til úrbóta á fundi sínum í gær og samþykkti að fela bæjarstjóra að taka upp við- ræður við íþróttafélögin á grundvelli þeirra. Félögin ráða ekki við það sem þau eru að gera Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri sagði ljóst að samkvæmt tillögum starfshópsins væri kostnaður bæjarins um 175 milljónir króna en ekki væri þó sjálfgefið að farið yrði að öllu leyti að tillögu hans. „Þessi niðurstaða styrkir mig í því máli sem ég hélt fram fyrir einu og hálfu ári varðandi málefni íþróttahreyfingarinnar og þá sérstaklega þessara þriggja félaga. En ég gleðst alls ekkert yfir því að hafa haft á réttu að standa. Félögin ráða ekkert við það sem þau voru að gera miðað við þann fjár- hagsramma sem þau höfðu úr að spila. Það er end- anlega staðfest með þessum tillögum.“ Vilji til að greiða úr flækjunni Kristján Þór sagði að menn yrðu með einhverj- um hætti að komast í gegnum þetta allt saman og að það muni kosti átök. „Það er líka jafnljóst, mið- að við þá stöðu sem uppi er, að það er ekki hægt að ætlast til þess af nokkrum manni að standa í þess- um rekstri miðað við núverandi skilyrði.“ Kristján Þór sagði að vilji bæjarfulltrúa stæði til þess að greiða úr þessari flækju en að eftir stæði spurninginn um það hvað skattgreiðendur í bænum séu að fá fyrir þá peninga sem þeir ætli að leggja þarna inn. „Það er eitthvað sem bæði íþróttahreyfingin sjálf og bæjarstjórn verða að svara í framhaldinu.“ Lagt til að eignir verði keyptar Starfshópurinn leggur til að gerður samstarfs- samningur við ÍBA þar sem fram komi meginregl- ur í samskiptum bæjarins og ÍBA. Jafnframt legg- ur hópurinn áherslu á að ÍBA ráði sér fjármálastjóra sem kostaður verði af Akureyr- arbæ. Starfshópurinn leggur til að Akureyrarbær leggi fram fjárveitingar til kaupa á eignum til að létta skuldastöðu íþróttafélaganna, samtals að upphæð 148 milljónir króna. Er þar m.a. lagt til að bærinn kaupi hlut KA í íþróttahúsi félagsins fyrir 95 milljónir króna, kaupi búningaaðstöðu Þórs í kjallara Hamars fyrir fjölnota íþróttahús á 37 milljónir króna og hlut í aðstöðu GA vegna bún- ingaaðstöðu og vélageymslu fyrir 13 milljónir króna. Þetta fjármagn verði notað til að greiða niður skuldir félaganna. Eftir standi þá að KA skuldi, 29 milljónir, Þór 20 milljónir og GA 17 milljónir króna. Þá leggur starfshópurinn til að bærinn leggi fram fjárveitingar vegna framtíðaruppbyggingar íþróttamannavirkja og fjármagni allar nýfram- kvæmdir. Bærinn tryggi fjárframlag til reksturs þessara mannvirkja, þannig að tryggt verði að félögin fjárfesti ekki umfram getu. Starfshópurinn leggur til að skipaður verði starfshópur sem í eiga sæti bæjarstjórinn á Ak- ureyri og formenn Þórs og KA. Starfshópnum verði ætlað að fara yfir og leggja fram tillögur að samstarfi Þórs og KA á sviði afreksíþrótta, m.a. varðandi samstarf/sameiningu deilda, stjórna og í rekstri mannvirkja. Einnig leggur starfshópurinn til að Þór, KA og GA breyti lögum sínum á þann veg að ekki sé heimilt að skuldsetja félögin nema með samþykki aðalstjórnar. Heildarskuldir íþróttafélaga á Akureyri 220 milljónir um síðustu áramót KA, Þór og GA skulda samtals 210 milljónir STARFSMANNAFÉLAG Akur- eyrarbæjar, STAK, og launanefnd sveitarfélaga skrifuðu í vikunni undir nýjan kjarasamning. Samn- ingurinn nær til um 320 félags- manna sem starfa hjá Akureyrarbæ en áður höfðu þeir fellt kjarasamn- ing milli þessara samningsaðila frá því fyrr í vetur. Þá var stefnt að því að ganga frá nýjum samningi við ríkið í gærkvöld, fyrir tæplega 300 félagsmenn STAK. Arna Jakobína Björnsdóttir for- maður STAK vildi ekki tjá sig efn- islega um samninginn við launa- nefnd sveitarfélaga að svo stöddu, þar sem unnið væri að því að kynna hann félagsmönnum þessa dagana. Hún sagði þó að um breytingar væri að ræða frá fyrri samningnum sem var felldur á dögunum. Hann gilti frá 1. apríl sl. til 31. mars 2005 eða þremur mánuðum skemur en fyrri samningurinn, sem gilti frá 1. janúar sl. Atvæðagreiðsla um nýja samninginn fer fram þann 8. júní nk. Félagsmenn í STAK sem starfa hjá ríkinu fóru sömu leið og félagar þeirra hjá Akureyrarbæ og felldu nýgerðan kjarasamning við fjár- málaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs í síðustu viku. Arna Jakobína sagði að viðræður við ríkið um nýjan samning hefðu staðið yfir að und- anförnu og var stefnt að því að skrifa undir nýjan kjarasamning í gærkvöld. Tónlistarskólakennarar afar óánægðir með kjör sín Þá hefur STAK skrifað undir viðræðuáætlun við launanefnd sveitarfélaga vegna kennara við Tónlistarskólann á Akureyri en kjarasamningur þeirra rennur út 31. júlí nk. Arna Jakobína sagði að tónlistarskólakennarar væru afar óánægðir með kjör sín og að fram- undan væru erfiðar samningavið- ræður við launanefnd sveitarfélaga. Aðalfundur STAK fór fram í vik- unni og sóttu hann um 100 manns. Þar fór fram fyrsta kynning á nýj- um samningi við launanefnd sveit- arfélaga og einnig var farið yfir stöðuna í kjaraviðræðunum við rík- isvaldið. Þá var Arna Jakobína end- urkjörin formaður til næstu þriggja ára. Arna Jakobína endurkjörin formaður STAK Samið við ríki og bæ „ÞETTA hefur gengið alveg ágæt- lega, það hefur verið gott að vinna hér og strákarnir hafa verið góðir við mig,“ sagði Hannes Stein- grímsson, sem lét af störfum hjá Stáltaki hf. á Akureyri nú um mán- aðamótin eftir rúmlega 30 ára starf. Hannes hefur síðustu áratugi haft umsjón með spilbúnaði drátt- arbrautarinnar við upptöku skipa og á að baki farsælan starfsferil. Hannes sagðist ekki vita hvað hann hafi verið við upptöku margra skipa en að þau væri orðin ansi mörg. Hannes sagði að stærsta skipið sem tekið hefði verið upp í brautina væri trúlega gamli Hofsjökull. Hann hóf störf árið 1967 hjá Slippstöðinni, eins og fyrirtækið hét lengst af, eftir að hafa stundað sjó- mennsku til fjölda ára. Hann byrj- aði strax að vinna við minni drátt- arbraut Slippstöðvarinnar en frá 1980 hefur hann haft umsjón með spilbúnaði stóru dráttarbraut- arinnar. Búnaður dráttarbraut- arinnar er sá sami og í upphafi en Hannes sagði að gerðar hefðu verið ýmsar lagfæringar og endurbætur á honum, síðast sl. vetur. Aðspurður hvað nú tæki við sagði Hannes, „nú leggst maður bara á góðan bekk með tærnar upp í loft. Það er ekkert annað að gera og ég fer héðan sáttur.“ Morgunblaðið/Kristján Hannes Steingrímsson sýnir arftaka sínum, Hermanni Harðarsyni, réttu handtökin við spilbúnað dráttarbrautarinnar. „Leggst nú á góðan bekk með tærnar upp í loft“ Hannes Steingrímsson hefur tekið upp skip í yfir 30 ár SUMARSTARFIÐ er nú að hefjast hjá Golfklúbbi Akureyrar og verður fyrsta mótið haldið um komandi helgi. Það er kennt við fyrirtækið Radionaust, sem leggur til verðlaun og eru þau í frumlegri kantinum, m.a. skref-, hita- og vindmælar sem komið geta golfurum að góðu gagni. Ýmsar breytingar hafa verið gerð- ar á rekstri klúbbsins, m.a. hefur veitingasalan fengið andlitslyftingu. Þar verður kaffikynning á morgun, laugardag frá kl. 15 til 17, en í sumar verður mikið úrval kaffidrykkja á boðstólum. Fimm daga námskeið verða flest- ar vikur í sumar fyrir yngri kynslóð- ina, eða frá 7 ára aldri. Þá bjóða kennarar klúbbsins byrjendum að koma kl. 18 á miðvikudögum, þar sem hægt verður að ræða náms- ferilinn eða kaupa kennslutíma. Sér- stök námskeið fyrir stúlkur og konur verða einnig haldin í sumar. Fyrsta mót sumarsins um helgina Sumarstarfið að hefjast á Jaðarsvelli KRISTINN Sigmundsson óperu- söngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari halda tvenna tónleika í Eyjafirði í næstu viku á ferð sinni um landið. Fyrri tónleikarnir verða haldnir í Laugaborg í Eyjafjarðarsveit mánu- daginn 4. júní kl. 20.30 og daginn eft- ir, þriðjudaginn 5. maí, í Dalvíkur- kirkju á sama tíma. Þeir Kristinn og Jónas bjóða upp á fjölbreytta efnisskrá, íslensk söng- lög, þýskan ljóðasöng, bandaríska negrasálma og aríu eftir Verdi. Miðasala á tónleikana fer fram við innganginn. Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundar- son á ferð um landið Tvennir tónleikar í Eyjafirði ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.