Morgunblaðið - 01.06.2001, Page 18
LANDIÐ
18 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VINNA við endurbætur á Ferðavef
Austurlands er nú á lokastigi. Vef-
urinn hefur verið opinn í tæp tvö ár
og fengið mjög jákvæða umfjöllun,
m.a. fyrir hversu aðgengilegur
hann er. Ferðamálasamtök Austur-
lands hafa yfirumsjón með vefnum,
ásamt Samtökum sveitarfélaga í
Austurlandskjördæmi og Þróun-
arstofu Austurlands. Ásmundur
Gíslason í Árnanesi hefur fyrir hönd
Ferðamálasamtakanna unnið öt-
ullega að gerð vefjarins og end-
urbótum. Hann var spurður um
helstu breytingar.
„Á síðasta vetri héldum við Árni
Björgvinsson, sem sér um tækni-
vinnu, áfram með vefinn og betr-
umbættum hann með ljósmyndum
og fleiru. Í haust bjuggum við svo til
þriggja ára áætlun um eflingu vefj-
arins. Í fyrsta lagi lagi þýddum við
hann úr ensku yfir á íslensku. Í ann-
an stað skiptum við úr Flashforriti
yfir í gagnagrunnsumhverfi, þ.e.
Front Page, sem var heljarmikið
verkefni. Þetta gerðum við einfald-
lega til að geta uppfært vefinn sjálf.
Þá útbjó ég svæða- og leiðarlýsingar
á íslensku fyrir allan fjórðunginn og
við fjölguðum ljósmyndum veru-
lega, bæði með íslenska og enska
textanum og í sjálfri aðkomu vefj-
arins. Síðan er búið er að setja upp
viðburðaskrá. Hún nær yfir eitt ár í
senn og er ekki einasta forvitnileg
fyrir ferðamenn heldur einnig
heimafólk. Skipt var um forsíðu og
settir inn ýmsir valkostir, m.a.
fréttarammi þar sem vakin er at-
hygli á því markverðasta sem er að
gerast í fjórðungnum hverju sinni.
Einn svona vefur er svo auðvitað ei-
lífðarmál eins og menn þekkja.
Vinnan er aldrei búin.“
Umferð um vefinn stóraukist
Á vefnum er hægt að ná upp
svæðisbundnum kortum og stækka
þau að óskum. Ásmundur segir að
verið sé að vinna að nýrri kort-
análgun þannig að einnig sé hægt að
fara inn á hvaða stað sem vera skal í
fjórðungnum og fá fram allar helstu
upplýsingar um það svæði. Þá er
ætlunin að hvert svæði um sig hafi
umsjón með og endurnýi upplýs-
ingar um sitt svæði á vefnum, eins
og kostur er. Ritstjórn heldur utan
um heildina og fylgist með að allt sé
í lagi. Umferð um vefinn hefur að
sögn Ásmundar aukist verulega.
„Fyrirspurnir hafa aukist mjög,“
segir hann, „og þarf nú að fara að
skipuleggja markvisst svörun fyr-
irspurna. Nú eru orðin fjögur til
fimm stöðugildi ferðamálafulltrúa í
fjórðungnum og við þurfum að stilla
okkur vel saman í þessum verk-
efnum.“
Færri sem setja skilti út á
veg og láta þar við sitja
Klassísk spurning í þessum geira
er hvernig gangi að fá ferðaþjón-
ustuaðila til að vera með. Ásmundur
svarar því til að menn séu seinir eins
og alltaf hefur verið, en þeim fækki
stöðugt sem setja skilti út á veg og
láta þar við sitja. „Menn eru að
vakna til vitundar um breytt mark-
aðsumhverfi. Markaðsstofa Austur-
lands hefur sannað sitt hlutverk og
það eru allir að vinna með henni.
Markaðsstofan ruddi að miklu leyti
brautina fyrir t.d. nýundirritaðan
samstarfssamning um menningar-
mál á Austurlandi. Þetta er allt ann-
að umhverfi að vinna í en áður var,
en menn verða samt að halda vöku
sinni.“
Slóðir inn á Ferðavef Austurlands
eru east.is, youriceland.com og
southeast.is.
Endurbætur gerðar á
Ferðavef Austurlands
Egilsstaðir
Upplýsingamiðstöð ferðamála á Egilsstöðum er til þjónustu reiðubúin.
Þangað koma þúsundir ferðamanna í upplýsingaleit hvert sumar.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Í SÍÐUSTU viku útskrifaði Land-
búnaðarháskólinn á Hvanneyri tutt-
ugu og fimm búfræðinga, þar af
þrjá sem höfðu verið í fjarnámi all-
an námsferilinn. Tveir af þessum
þremur eru konur úr sunnanverð-
um Snæfellsbæ, önnur úr Staðar-
sveit og hin úr Breiðuvík. Margrét
Þórðardóttir á Furubrekku í Stað-
arsveit hóf reyndar búfræðinámið
fyrir réttum tuttugu árum, en hætti
fljótlega vegna barneigna. Hún tók
síðan upp þráðinn á ný haustið ’99 á
sama tíma og Guðný Jakobsdóttir í
Syðri-Knarrartungu í Breiðuvík fór
inn á annað námsárið. Báðar reka
þær kúabú, ásamt eiginmönnum
sínum, þeim Halldóri Jóhannessyni
og Guðjóni Jóhannessyni, en þeir
bræður eru ættaðir frá Furu-
brekku.
Svilkonurnar fögnuðu námslok-
um með veglegu samsæti í Lýsu-
hólsskóla með ættingjum, vinum og
nágrönnum og sögðu við það tæki-
færi að námið hefði nú þegar nýst
þeim vel við búreksturinn og ætti
örugglega eftir að gera það enn
betur í framtíðinni. Margt nýtt
hefði komið fram síðan eiginmenn
þeirra stunduðu búfræðinám og
þróun og framfarir væru örar í
landbúnaði, jafnt og í öðrum starfs-
greinum.
Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann
Hjónin Halldór Jóhannesson og Margrét Þórðardóttir á Furubrekku og
Guðný Jakobsdóttir og Guðjón Jóhannesson í Syðri-Knarrartungu.
Búfræðingar
úr fjarnámi
Hellnar/Snæfellsbær
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri
FRAMHALDSSKÓLA Húsavíkur
var slitið við fjölmenna og hátíðlega
athöfn í Húsavíkurkirkju laugardag-
inn 26. maí sl. Alls brautskráðust 20
nemendur, þar af 18 með stúdents-
próf og 2 með verslunarpróf. Alls
hafa 390 nemendur útskrifast frá
Framhaldsskólanum á Húsavík frá
stofnun hans 1987, þar af eru 202
stúdentar, 62 nemendur af iðnbraut-
um og 126 af öðrum starfsnáms-
brautum.
Guðmundur Birkir Þorkelsson
skólameistari kom víða við í ræðu
sinni, sagði m.a.: „Við lifum á spenn-
andi tímum um þessar mundir þar
sem við horfum alls staðar á breyt-
ingar, óvissu og jafnvel rótleysi. Við
erum ekki fyrr búin að laga okkur að
breytingum á einhverju sviði þegar
nýjar aðstæður koma upp og við
verðum að laga okkur að þeim á ný.
Við slíkar aðstæður reynir heldur en
ekki á manninn, hvern einstakling.
Hvernig honum tekst að greina og
leysa öll þau vandamál sem koma upp
á skömmum tíma.“
Gunnar Baldursson aðstoðarskóla-
meistari flutti annál skólaársins,
Björgvin Rúnar Leifsson áfanga-
stjóri stjórnaði útskriftarathöfn og
afhendingu viðurkenninga fyrir góð-
an námsárangur. Bestum árangri á
stúdentsprófi náði Birna Geirfinns-
dóttir sem stundaði nám á málabraut.
Birna fékk fjórar viðurkenningar, frá
Máli og menningu fyrir íslensku, frá
Bókaverslun Þórarins Stefánssonar
fyrir frönsku, frá þýska sendiráðinu
fyrir þýsku og frá Vátryggingafélgi
Íslands fyrir ensku. Aðrir nemendur
sem einnig fengu viðurkenningar
voru Sigurbjörg Hjartardóttir sem
fékk tvær viðurkenningar, fyrir hag-
fræði-greinar frá Pricewaterhouse-
Coopers á Húsavík og fyrir félags-
störf frá tómstundanefnd Húsavíkur.
Sigurbjörg Stefánsdóttir fékk tvær
viðurkenningar, fyrir hagfræðigrein-
ar frá Landsbanka Íslands á Húsavík
og frá tómstundanefnd Húsavíkur
fyrir félagsstörf. Guðný Stefánsdótt-
ir fékk einnig tvær viðurkenningar,
frá danska menntamálaráðuneytinu
fyrir dönsku og frá þýska sendi-
ráðinu fyrir þýsku. Kristey Þráins-
dóttir fékk viðurkenningu frá Fram-
haldsskólanum á Húsavík fyrir
dönsku, Pétur Veigar Pétursson frá
tómstundanefnd Húsavíkur fyrir
félagsstörf, Ásta Halldóra Ólafsdótt-
ir frá Íslandsbanka á Húsavík fyrir
samfélagsgreinar og Baldur Krist-
insson frá Tækniþingi ehf. fyrir jarð-
fræði og eðlisfræði. Aðalbjörg Krist-
björnsdóttir, stúdent á
náttúrufræðibraut, fékk viðurkenn-
ingu frá Menningarsjóði þingeyskra
kvenna fyrir dug, áræði og góðan
námsárangur, en Aðalbjörg dreif sig í
skóla eftir langt hlé frá námi. Pétur
Veigar Pétursson flutti ávarp ný-
stúdenta og Erna Björnsdóttir lyfja-
fæðingur flutti ávarp 10 ára stúdenta.
Baldur Baldvinsson söng nokkur lög
við athöfnina við undirleik Valmars
Valjouts. Í kveðjuorðum skólameist-
ara til þeirra sem útskrifuðust sagði
m.a.: „Látið ykkur annt um heima-
byggðina og verið fús að rétta hjálp-
arhönd ef þið fáið tækifæri til. Munið
að hér er verk að vinna þegar þið haf-
ið lokið undirbúningi fyrir lífsstarfið
og hugið að því hvar skal setjast að til
framtíðar.“
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Útskriftarhópurinn úr Framhaldsskóla Húsavíkur.
390 hafa útskrifast frá
stofnun framhaldsskólans
Húsavík
NÚ er að hefjast uppbygging á
nýju byggingarsvæði á svokölluðu
Hofatúni á Flúðum.
Fyrir skömmu tók fyrsti hús-
byggjandinn, Bjarni Sverrisson,
fyrstu skóflustunguna að einbýlis-
húsi sem verður það fyrsta í hverf-
inu. Í fyrra var svæðið gert tilbúið
til bygginga með öllum lögnum og
gerðar þrjár götur sem einungis er
eftir að setja á bundið slitlag. Þarna
er um að ræða afar fallegt bygging-
arsvæði, verða þar 11 einbýlishús,
10 íbúðir í parhúsum og 6 í rað-
húsum. Húsnæði hefur skort á
Flúðum á undanförnum árum og
lóðaskortur verið tilfinnanlegur.
Þegar er búið að úthluta tveimur
einbýlishúsalóðum og einni par-
húsalóð en að sögn oddvitans, Lofts
Þorsteinssonar, eru miklar fyrir-
spurnir um lóðir á nýja svæðinu. Á
síðasta byggingarnefndarfundi voru
samþykktar 7 teikningar í sveitinni,
m.a. er mikil uppbygging á sum-
arhúsum og ný hverfi koma til út-
hlutunar í sumar.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Loftur oddviti færði Bjarna
Sverrissyni og Sigurbjörgu
dóttur hans blómvönd.
Nýtt bygg-
ingarsvæði
á Flúðum
Hrunamannahreppur
AÐ undanförnu hafa tíu einstaklingar
af eldri kynslóðinni í Bolungarvík set-
ið tölvunámskeið. Meðalaldur þátt-
takenda var rúmlega 68 ár en elsti
þátttakandinn 76 ára. Námskeiðið var
30 kennslustundir, á vegum Rolands,
tölvuþjónustu og ráðgjafarfyrirtækis
í Bolungarvík. Kennt var tvisvar í
viku þrjá tíma í senn.
Að sögn Roland Smelt leiðbeinanda
var námskeiðið hugsað sem byrjunar-
námskeið í tölvulæsi þar sem helm-
ingur þátttakenda hafði aldrei kveikt
á tölvu, kennd voru undirstöðuatriði í
Windows og grunnritvinnslu. Einnig
var kennt að nota Netið með aðstoð
Internet Explorer.
Mikilvægast var þó, sagði Roland,
hvað þátttakendurnir á þessu nám-
skeiði höfðu gaman af því að koma
saman og læra að tileinka sér þessa
tækni, en einnig var skemmtilegt
kapp þeirra í milli um að gera kræs-
ingarnar í kaffipásunni glæsilegri en í
kaffitímanum á undan. Þátttakend-
urnir, átta konur og tveir karlar,
fengu að lokum skírteini til staðfestu
þess að hafa numið í tölvufræðum.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Ásdís Hrólfsdóttir og Hulda
Eggertsdóttir njóta leiðsagnar
Rolands Smelt á námskeiðinu.
Eldri borg-
arar á tölvu-
námskeiði
Bolungarvík