Morgunblaðið - 01.06.2001, Page 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 31
Þar sem garðáhöldin fást
GARÐSLÁTTUVÉLIN
„Sú Græna góða“
www.teflon.is
BIRGIR Snæbjörn Birgisson held-
ur áfram að fást við veröld sem var,
eða réttara sagt heim á öðru plani,
einhvers staðar djúpt í hugskotinu
eða minningunni. Hin sérkennilega
daufi blær – eins og allt sé sprottið
undan hörðum litblýanti – á sér ein-
hvern veginn samsvörun í þátíðinni.
Sem slíkur er Birgir Snæbjörn and-
lega skyldur Gyrði Elíassyni; minnin
eru mjög ákveðin og ljóðræn en jafn-
framt bleikt og upplituð. Þau eiga sér
enga líkamlega nálægð, og engin til-
raun er heldur gerð til að gera þau
áþreifanleg. Tilfinningin er sú að þau
haldi áfram að fjara út eins og lit-
skyggnur sem smám saman daga
uppi í fullkomnu gagnsæi.
Á sýningunni í galleri@hlemmur.is
eru litlar teikningar af mynstri leikja í
grasi. Teikningarnar eru allar gerðar
með sömu stöðluðu blýantsteiknun-
um – stafnum vaff á hvolfi – sem fylla
síðuna og standa fyrir gras. Það mót-
ar fyrir París og öðrum grafískum
reitaleikjum í grasinu. Munurinn er
dreginn fram með mismunandi styrk-
leik teiknanna. Þannig mótar fyrir
hverjum leiknum fyrir sig með mis-
daufum vaff-laga förum.
Eina málverkið er af dæmigerðum
Parísarleik. Grafískt mynstur leiksins
er málað með daufum grænum teikn-
um og umlukið eilítið skarpari teikn-
um í sama lit. Málverkið á sér syst-
urmynd meðal teikninganna, nokkurs
konar undirbúningsriss sem gefur
góða mynd af því hvernig Birgir Snæ-
björn vinnur. Eins og hann orðar það
sjálfur þá „heldur teikningin utan um
leikinn og reglur hans“. Ef engin væri
teikningin væri heldur enginn leikur,
og án leiksins væru teikningarnar
fullkomlega óræðar.
Þannig er ekki hægt að taka list
Birgis Snæbjörns fyllilega fyrir það
sem hún sýnir, né heldur fyrir það
hvernig hún er gerð. Líkt og Derrida
gagnvart ritlistinni ætlast hann til að
litið sé á myndir sínar sem mögulega
skráningu en ekki sem raunhæfa
túlkun fyrirbæranna sem þær birta.
Hvað þetta varðar á Birgir sér sálu-
félaga í sveitunga sínum Sigurði Árna
Sigurðssyni, en báðir sækja sér að-
föng í myndgátur René heitins Magr-
itte. Til að skýra þetta betur má taka
mið af landakorti. Slíkt bréf líkist ekki
í neinu því landslagi sem það fjallar
um, og þó er það á sinn hátt miklu ná-
kvæmari lýsing þess en raunsæjustu
ljósmyndir. Enginn gæti ratað um
Reykjavík út frá póstkortum af höf-
uðborgarsvæðinu hversu raunsæ sem
þau væru, en stílfærður uppdráttur af
sama svæði nýtist prýðilega hverjum
sem komast vill þar leiðar sinnar. Og
hvort er þá réttara, táknmyndin eða
sú raunsæja? Á sinn hátt er nálgun
Birgis Snæbjörns verðug tilraun til að
losa fígúratífa list undan öllu raunsæ-
isþvaðrinu og færa hana nær nútíma-
legri vangaveltum um myndgerðina
sem sérstakan og sjálfstæðan skrán-
ingarhátt.
Leikur með
teikningar
MYNDLIST
g a l l e r i @ h l e m m u r . i s ,
Þ v e r h o l t i 5
Til 17. júní. Opið fimmtudaga
til sunnudaga frá kl. 14–18.
TEIKNINGAR OG
MÁLVERK
BIRGIR SNÆBJÖRN
BIRGISSON
Halldór Björn Runólfsson
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Málverk Birgis Snæbjörns af Parísarleik í galleri@hlemmur.is.