Morgunblaðið - 01.06.2001, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 01.06.2001, Qupperneq 36
LISTIR/KVIKMYNDIR 36 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ FRUMSÝNINGAR Along Came a Spider Háskólabíó, Laugarásbíó Spy Kids Stjörnubíó, Laugarásbíó, Regnboginn Say It Isn’t So Stjörnubíó Janice Beard Háskólabíó Spot Bíóhöllin, Kringlubíó Lalli Johns Íslensk. 2001. Leikstjóri og handrit: Þorfinnur Guðnason. Lífshlaup síbrota- mannsins Lalla í hálfan áratug séð með vökulli linsu eins okkar besta kvikmyndagerðarmanns. Viðfangsefnið sérkapítuli útaf fyrir sig; Mr. Johns er flottur á sinn hátt með skopskynið í lagi. Óborganleg og gráglettin. Háskólabíó. Memento Bandarísk. 2001. Leikstjórn og hand- rit: Christopher Nolan. Aðalleikendur: Guy Pierce, Carrie-Anne Moss, Joe Pantoliano. Sérlega áhugaverð, um mann með ekkert skammtímaminni. Frábærlega útsmogin og úthugsuð, spennandi og fyndin. Bíóborgin. Traffic Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Steven Soderbergh. Handrit: Stephen Gaghan. Aðalleikendur: Michael Douglas, Beni- cio Del Toro, Don Cheadle, Luis Guzm- an. Yfirgripsmikil, margþætt spennu- mynd um dópsmyglið frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Kong, þó glædd mikilli frásagnargleði og flestir kaflarnir trú- verðugir í heimildarmyndarstíl. ½ Bíóborgin. Blow Bandarísk. 2001. Leikstjóri Ted Demme. Handrit: Nick Cassavetes. Að- alleikendur: Johnny Depp, Rachel Grif- fiths, Penelopé Cruz. Látlaus, vel gerð og mjög áhugaverð mynd um ævi um- svifamesta kókaínsmyglara í Bandaríkj- unum á áttunda áratugnum. Depp er góður að vanda, sömuleiðis aðrir leik- arar.  Háskólabíó. State and Main Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit David Mamet. Aðalleikendur Alec Baldwin, William H. Macy. Skondin og skemmtileg mynd um þegar stjörnur ráðast inní smábæ og setja allt á ann- an endann. Frábær leikarahópur en Philip Seymour Hoffman er bestur.  Háskólabíó, Regnboginn. Crimson Rivers Frönsk. 2000. Leikstjóri Matthieu Kassovitz. Handrit: Kassovitz og Jean- Christopher Grange. Aðalleikendur: Jean Reno, Vincent Cassell. Óhugn- anleg en spennandi, franskur tryllir, sem er aðeins of ruglingslegur en fín- asta skemmtun.  Stjörnubíó. Kirikou og galdrakerl- ingin Frönsk. 1998. Leikstjórn og handrit: Michel Ocelot. Aðalraddir: Óskar Jör- undarson, Stefán Karl Stefánsson, Jó- hanna Vigdís Arnardóttir. Einfalt æv- intýri um gott og illt í frumskógum svörtustu Afríku. Góð fyrir yngstu börn- in.  Háskólabíó. Leiðin til Eldorado Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Eric Bergeron. Handrit: Don Paul. Teikni- mynd. Segir frá tveimur svindlurum sem finna gulllandið El Dorado, Útlitið fullkomið, einsog vænta má, hið sama er ekki hægt að segja um söguna eða tónlistina.  Bíóhöllin. Miss Congeniality Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Donald Petrie. Handrit: Mark Lawrence. Aðal- leikendur: Sandra Bullock, Benjamin Bratt, Michael Caine. Prýðileg gam- anmynd um FBI-löggu sem tekur þátt í fegurðarsamkeppni gegn vilja sínum.  Bíóhöllin. The Mummy Returns Bandarísk. 2001. Leikstjórn og hand- rit: Stephen Sommers. Aðalleikendur: Brendan Fraser, Rachel Weisz, John Hannah. Múmían snýr aftur með mikl- um látum. Ósvikin fjölskylduskemmtun með mögnuðum brellum.  Háskólabíó, Bíóhöllin. Nýi stíllinn keisarans – The Emperor’s New Groove Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Mark Din- dal. Handrit: Thomas Schumacher. Það kveður við nýjan tón í nýjustu Disney- myndinni, sem fjallar um spilltan keis- ara sem breytist í lamadýr og lærir sína lexíu. Bráðfyndin mynd fyrir börn og fullorðna.  Bíóhöllin, Regnboginn. Dungeons and Dragons Bandarísk. 2001. Leikstjóri og handrit: Courtney Solomon. Aðalleikendur: Just- in Whalin, Marlon Wayans, Thora Birch. Gamaldags ævintýramynd með prins- essum og drekum og ungum hetjum sem bjarga málunum. Regnboginn. Someone Like You Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Tony Gold- wyn. Handrit: Elizabeth Chandler. Aðal- leikendur: Ashley Judd, Greg Kinnear, Hugh Jackman. Þokkalega gerð og vel leikin en efnislega villuráfandi kvenna- mynd. Bíóhöllin, Regnboginn. Exit Wounds Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Andrzej Bartkowiak. Handrit: Ed Horowitz. Aðal- leikendur: Steven Seagal, DMX. . Has- armynd með Seagal og hefur öll hans helstu persónueinkenni: Beinbrot, bíla- eltingaleiki, o.s.frv. Bíóhöllin, Kringlubíó. Get Over It Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Tom O’Haver. Handrit: R. Lee Fleming Jr. Aðalleikendur: Kirsten Dunst, Bill Fost- er, Sisgo. Misheppnuð unglingamynd með aulahúmor. Leikararnir ágætir en bjarga engu.  Regnboginn. Pokémon 3 Bandarísk 2001. Leikstjóri Michael Haigney. Handrit Haigney og Norman Grossfeld. Þriðja Pokémon myndin er einsog þær fyrri; realísk stuttmynd kemur á undan háskaævintýrinu þar sem Pokémonar berjast og Ash bjargar málunum. Óaðlaðandi og óspennandi að öllu leyti.  Bíóhöllin, Kringlubíó, Regnboginn. Tomcats Bandarísk. 2001. Leikstjórn og hand- rit: Gregory Poirier. Aðalleikendur: Shannon Elizabeth, Jerry O’Connell, Jake Busey. Nokkrir vinir veðja um hver verður síðastur að kvænast. Er tveir standa eftir, hefst mikill hamagangur á Hóli. Heldur klént, alltsaman.  Laugarásbíó. Sweet November Leikstjóri: Pat O’Connor. Handrit: Her- man Raucher. Aðalleikendur: Keanu Reeves, Charlize Theron. Afleit óraunsæisvella um hrokagikk og dauð- vona fegurðardís sem gerir úr honum mann. Er hægt að óska sér einhvers betra? ½ Bíóhöllin, Kringlubíó. Valentine Bandarísk. 2001. Leikstjóri: James Blanks. Handrit: Tom Savage. Aðalleik- endur: Denise Richards, David Bor- eans. Hryllilega óspennandi hryllings- mynd með réttdræpum persónum. ½ Bíóborgin, Kringlubíó. Bíóin í borginni Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason/Hildur Loftsdóttir GILLY Noble (Chris Klein) er frá Indiana og vinnur sem dýragæslu- maður. Hann ræður einkaspæjara til þess að hafa uppi á móður sinni og er í leiðinni á höttunum eftir einu réttu stúlkunni til þess að eyða ævi sinni með. Hann verður ástfanginn af hinni klaufalegu hárgreiðslukonu Jo Wingfield (Heather Graham) og ást- in milli þeirra blómstrar en þá kemst einkaspæjarinn að því að móðir Gilly er Valdine Wingfield, sem vill svo til að er einnig móðir Jo. Þar með halda ástarfuglarnir að þau séu systkini. Jo flytur til Oregon en Gilly kemst að því að um misskilning er að ræða og heldur til Oregon í leit að henni og á leiðinni verða margir furðufuglar á vegi hans. Þannig er söguþráðurinn í banda- rísku gamanmyndinni Say It Isn’t So sem grínbræðurnir Peter og Bobby Farelly framleiða en leikstjóri er J. B. Rogers og er þetta hans fyrsta mynd. Handritið gera Peter Gaulke og Gerry Swallow en með aðalhlut- verkin fara Chris Klein, Heather Graham, Sally Field, Richard Jenk- ins, Orlando Jones og Eddie Cibrian. Gaulke og Swallow unnu fyrir sér sem uppistandarar þegar þeir ákváðu að skrifa handrit að gaman- myndum árið 1998. Fyrsta verk þeirra var Mountain Fever og þeir fylgdu því eftir með Say It Isn’t So. „Peter fékk þessa hugmynd að gera bíómynd um mann sem verður óvart skotinn í systur sinni en kemst svo að því að það þarf ekki endilega að vera að hún sé systir hans,“ er haft eftir Swallow. Þeir félagar töldu að handritinu þeirra væri best borgið í höndunum á grínparinu Bobby og Peter Far- elly, sem kunnir eru fyrir grófar gamanmyndir á borð við There is Something About Mary og Me, My- self and Irene. Bræðurnir skemmtu sér hið besta yfir handritinu. „Þetta er einmitt efni sem á vel við okkur,“ er haft eftir Peter. „Það er ekki bara fyndið og yfirgengilegt heldur líka alvöru ástarsaga um fólk sem verður að skilja fyrir misskilning. Allt verð- ur það mjög flókið og brjálæðislegt en á endanum er það ástin sem hefur sigur.“ Chris Klein fannst handritið snið- ugt. „Ég las það um borð í flugvél og gat ekki hætt að hlæja,“ segir hann, „þangað til fólk var farið að stara á mig.“ Heather Graham, sem er ein af efnilegustu ungu leikkonunum í Hollywood í dag, hafði sérstaka ánægju af því hvernig sagan bland- aði saman gamansemi og tilfinninga- semi. „Það er mjög átakanlegt að Gilly og Jo geti ekki verið saman. Eins og í Rómeó og Júlíu.“ Leikarar: Chris Klein, Heather Graham, Sally Field, Richard Jenkins, Orlando Jones og Eddie Cibrian. Leikstjóri: J. B. Rodgers. Misskilningur og ást Atriði úr bandarísku gamanmyndinni Say It Isn’t So sem frumsýnd er í Stjörnubíói og Sambíóunum Álfabakka. Stjörnubíó og Sambíóin Álfabakka frumsýna bandarísku gamanmyndina Say It Isn’t So með Heather Graham í aðalhlutverki. ÞÆR hafa nú ekki verið nein meistaraverk unglingahrollvekjur seinustu missera, en margar hverjar bara býsna skemmtilegar á sinn hátt. En Valentine er vart áhorfan- leg. Sögufléttan er svo sem ekkert vitlausari en gengur og gerist en öll framkvæmd myndarinnar er hin öm- urlegasta. Endirinn kemur reyndar á óvart og maður er svo þakklátur fyrir það eftir þrautarsetuna að mað- ur sættir sig við að vera skilinn eftir í lausu lofti með spurningar á vörun- um. Unglingspilti nokkrum er neitað hvað eftir um dans hjá sætustu gel- luklíkunni í skólanum og er afskap- lega sár fyrir vikið. Nú þegar hann er orðinn stór tekur hann sig til við að hefna sín grimmilega á þeim öll- um á Valentínusardaginn. Þetta handrit er alveg gelt. Bæði fram- vinda og atvik eru hreinlega heimskuleg, og samtölin ömurleg. Ekki bætir úr skák að leikararnir eru hryllilega lélegir en verst er að þessar vinkonur eru svo leiðinlegar og ómerkilegar mannverur að maður hlakkar til að sjá þær hverfa af sjón- arsviðinu. Í þessari hryllingsmynd er engin spenna, afskaplega tak- mörkuð og klisjukennd hryllingsat- riði. Mesti hryllingurinn felst í smekk- leysunni og almennum leiðindum, þannig að vart verður annað sagt en að heilagur Valentínus skjóti langt frá markinu í þetta sinnið. Hryllilega illa gerð hryllingsmynd KVIKMYNDIR S a m b í ó i n Leikstjórn: Jamie Blanks. Handrit: Wayne og Donna Powers eftir skáldsögu Tom Savage. Aðal- hlutverk: Denise Richards, Adam Carr, Marley Shelton, Daniel Cos- grove og Jessica Capshaw. 96 mín. Warner Bros 20001. VALENTINE 1 ⁄2 „Mesti hryllingurinn felst í smekkleysunni og almennum leiðindum.“ Hildur Loftsdótt ir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.