Morgunblaðið - 01.06.2001, Síða 39

Morgunblaðið - 01.06.2001, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 39 „Fyrir íslensku ólympíunefndina mundi það vera best ef annar hvor Evrópubúanna tæki við. Það er ljóst að þeir Íslendingar sem þekkja á annað borð til innan alþjóðahreyf- ingarinnar þekkja best til Rogge og Schmitt, en að vísu kannast ég við alla frambjóðendurna. En ég er í persónulegu og beinu sambandi við Rogge og Schmidt ef á þarf að halda. Vonandi fer það þannig að annar hvor þeirra vinni því hvað sem mönnum finnst þá er alltaf gott að þekkja þá sem halda um stjórn- völin,“ segir Júlíus. Umhverfismál hafa vaxandi vægi Íþrótta- og umhverfisnefndin sem Júlíus á sæti í er skipuð 25 mönnum frá 18 þjóðum víðs vegar í heiminum. Hún var sett á laggirnar árið 1995 í kjölfar ráðstefnu sem IOC hélt árið áður í tilefni af 100 ára afmæli sínu. Þar settu umhverfis- mál sterkan svip á umræður. Pál Schmitt hefur verið formaður nefndarinnar frá upphafi. Auk full- trúa frá IOC sitja í nefndinni menn frá ýmsum umhverfissamtökum og einnig frá Sameinuðu þjóðunum. „Ég kom inn í þetta meðan ég var formaður Ólympíunefndar Íslands en einnig af því að ég hafði verið for- maður umhverfismálanefndar Reykjavíkur um átta ára skeið. Það eru ekki svo margir forystumenn úr íþróttahreyfingunni sem hafa unnið að umhverfismálum,“ segir Júlíus sem segist hafa mikla ánægju af því að starfa í þessari nefnd. „Þegar IOC var stofnað voru íþróttir fyrst og fremst á stefnu- skránni. Síðar bættust menningar- málin við en þriðji þátturinn í starf- inu, og sá nýjasti, eru umhverfismálin. Þau eru jafngild öðrum málefnum. Einnig er nefndin sú fjölmennasta á vegum IOC,“ seg- ir Júlíus og leggur þunga áherslu á að engin borg geti sótt um að halda Ólympíuleika nema hún leggi fram fullkomna áætlun í umhverfismál- um. „Þessi þáttur hefur mjög breyst í starfi IOC. Sumum þykir það vera óþarfi, en að mínu mati er það ekki. Eftir Ríó-samkomulagið í umhverf- ismálum þá hafa allir tekið sig á í umhverfismálum og Alþjóða ólymp- íunefndin er þar enginn eftirbátur, enda á ferðinni ein allra stærstu samtök í heiminum sem hefur innan sinna vébanda fleiri þjóðir en til dæmis Sameinuðu þjóðirnar.“ Júlíus segir að mjög vel hafi verið staðið að þáttum er tengjast um- hverfismálum á Ólympíuleikunum í Sydney. Loftmengun er vandamál „Umhverfismál eru nokkurt vandmál í Aþenu, einkum það sem snýr að loftmengun, eins og ég hef áður komið inn á. Ég er hins vegar bjartsýnn á að nokkrir þættir séu á réttri leið. Hins vegar er það svo að Alþjóðaólympíunefndin getur ekki gert kröfu til algjörra umskipta í borgum. En nefndin getur haft áhrif á allt sem að Ólympíuleikun- um snýr fari eftir ákveðnum reglum. Það hefur verið eitt aðal- verkefni nefndarinnar sem ég sit í að vinna Staðadagskrá 21 fyrir Ól- ympíuhreyfinguna. Hún liggur nú fyrir og hefur verið send út til allra ólympíunefnda í heiminum. Næsta skrefið er að búa til dagskrá í um- hverfismálum fyrir öll alþjóða sér- samböndin og ólympíunefndirnar með það fyrir augum að létta þeim skrefin við uppbyggingu íþrótta- mannvirkja sem og skipulagningu allrar keppni. Þetta starf mun taka nokkurn tíma en þetta eru næstu skrefin. Að öðru leyti erum við í sambandi við þær borgir sem halda leika hverju sinni og nefndarmenn frá okkur sitja í undirbúningsnefnd næstu Ólympíuleika og einnig þeirra nefnda sem vinna að um- sóknum fyrir væntanlega kandíd- ata,“ segir Júlíus og leggur ríka áherslu á að IOC sé í góðu sambandi við öll stærstu umhverfisverndar- samtök í heiminum. „Þessi samtök hafa fagnað starfi okkar og óskað eftir að vinna með okkur og sagt að það sé óskaplega þýðingarmikið að Alþjóða ólympíunefndin taki á um- hverfismálunum og vinni með okkur því þekktasta vörumerki í heimin- um séu ólympíuhringirnir fimm og þegar þeir eru komnir að umhverf- ismálunum með stærstu aðilum á vegum umhverfisverndar þá hafi það ómetanlega þýðingu.“ Hafa tekjur af umhverfismálum Júlíus nefnir sem dæmi að vegna hinnar þungu áherslu sem Alþjóða ólympíunefndin hefur lagt á um- hverfismálin sé undirbúningsnefnd ólympíuleika að fá tekjur af þessum þætti. Það gerist hjá undirbúnings- nefnd Vetrarólympíuleikanna í Salt Lake City á næsta ári. „Íþróttahreyfingin getur og á að hafa mikil áhrif á umræðu í um- hverfismálum á næstu áratugum. Íþróttamenn eru þekktustu persón- ur í heiminum fyrir utan kvik- myndastjörnur. Í hverju landi eru íþróttamenn, ég tala ekki um verð- launahafa á Ólympíuleikum, mjög áhrifamiklar persónur og þær ber að virkja í þágu umhverfisins. Þar af leiðandi á íþróttahreyfingin að leggja sitt lóð á vogarskálina meðal annars í gegnum sitt fólk sem allir þekkja. Íþróttamennirnir eru og verða bestu sendiherrar okkar í um- hverfismálum eins og í öðrum efn- um,“ segir Júlíus Hafstein, fulltrúi í íþrótta- og umhverfisnefnd Al- þjóðaólympíunefndarinnar. Reuters Miklar framkvæmdir eru nú við Maraþon, rétt utan Aþenu, þar sem verið er að koma upp aðstöðu fyrir róðra- keppni Ólympíuleikanna. Framkvæmdirnar hafa vakið sterk viðbrögð umhverfissinna í landinu þar sem þeir telja að mikil umhverfisröskun eigi sér stað á þessum sögufræga stað. iben@mbl.is FRÉTTIR HEIMILI og skóli, landssamtök foreldra, veittu Foreldraverðlaun- in í sjötta sinn fimmtudaginn 10. maí sl. Markmiðið með veitingu Foreldraverðlaunanna er að vekja jákvæða athygli á grunnskólunum í landinu og því mikilvæga starfi sem fram fer innan skólasam- félagsins. Verðlaunahafinn er valinn úr hópi þeirra sem tilnefndir eru en það voru tólf aðilar að þessu sinni. Viðkomandi þarf að hafa unnið góð störf í þágu foreldra og barna og sérstaklega er litið til nýjunga og verkefna sem efla tengsl heimila og skóla og auka virkni foreldra, kennara og nemenda í slíku starfi. Skólastjórnendur Engjaskóla, Hildur Hafstað skólastjóri og Guð- rún Erla Björgvinsdóttir aðstoðar- skólastjóri hlutu verðlaunin að þessu sinni. Í greinargerð þeirra sem tilnefndu þær stöllur, en það voru foreldrafélag og foreldraráð Engjaskóla, segir m.a: „Að frum- kvæði og með virkri þátttöku skólastjóra og aðstoðarskólastjóra var Foreldra- og kennarafélag Engjaskóla stofnað strax haustið 1995, þegar skólinn tók til starfa. Þeirra fyrsta verk, þegar fyrsta stjórn félagsins hafði verið kosin, var að afhenda henni lykla að skól- anum með þessum orðum: „þetta væri ykkar skóli.“ Æ síðan hafa þær stutt, ekki aðeins í orði heldur í verki, hverja þá hugmynd for- eldra sem stuðlað getur að öflugri og betri samskiptum foreldra, nemenda og skóla. Iðulega hafa þær einnig átt frumkvæði að góð- um hugmyndum og verkefnum og leitað stuðnings hjá foreldrafélag- inu með útfærslu og samstarf. Í ljós hefur komið að foreldrar í Engjahverfi eru hvað jákvæðastir í garð síns skóla af foreldrum í Reykjavík. Björn Bjarnason menntamálaráðherra ávarpaði samkomuna og lagði áherslu á hversu mikilvægt hlutverk for- eldra er innan skólasamfélagsins. Sagðist hann jafnvel geta séð það fyrir sér í framtíðinni að valdið yfir grunnskólanum yrði á höndum for- eldra. Hildur og Guðrún þökkuðu þann heiður sem þeim var sýndur og greindu frá því hversu vænt þeim þætti um að tilnefningin skyldi einmitt hafa komið frá for- eldrahópnum við skólann. Engjaskóli hlýtur Foreldra- verðlaunin 2001 Gjafavara – matar- og kaffistell . All ir verðflokkar. - Gæðavara Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. FLUGDAGUR Í MOSFELLSBÆ Í tilefni 20 ára afmælis Flugklúbbs Mosfellsbæjar höldum við stærsta flugviðburð ársins á Tungubökkum, Mosfellsbæ, laugardaginn 2. júní. Vélflug, þyrluflug, listflug, fallhlífarstökk, svifflug, svifdrekaflug og módelflug. Dagskráin byrjar kl. 13:00 og endar með lendingarkeppni kl. 17:00. Allir velkomnir á staðinn. Nánari upplýsingar á www.simnet.is/moso

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.