Morgunblaðið - 01.06.2001, Page 55

Morgunblaðið - 01.06.2001, Page 55
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 55 SEIN einkunnaskil kennara hafa löngum verið til vandræða við Háskóla Íslands. Stúd- entar hafa liðið fyrir þessi vinnubrögð þar sem námslán eru ekki greidd út fyrr en námsárangur er stað- festur. Fyrir ári kom Stúdentaráð undir for- ystu Röskvu á fót ein- kunnaskilasíðu á heimasíðu ráðsins, student.is, þar sem einkunnaskil kennara eru sýnd. Slík síða hef- ur nú verið sett upp í fjórða skiptið. Þau próf sem komin eru fram yfir 3 vikna frestinn eru rauðletruð. Síð- ast en ekki síst er birtur topp tíu listi yfir þau próf sem eru í mestum vanskilum. Aukinn þrýstingur á kennara Einkunnaskilasíðan hefur skilað verulegum árangri og lagt aukinn þrýsting á kennara að skila ein- kunnum innan tilskilins frests. Þeg- ar einkunnaskilasíðan var sett upp í fyrsta skiptið síðasta vor var þriðj- ungi prófa skilað of seint, þetta hlutfall lækkaði í jólaprófunum í 21%. Einkunnaskil bötnuðu því um 34% á hálfu ári. Aðgerðir Stúdenta- ráðs höfðu því ótvírætt skilað sér og bætt einkunnaskil til muna. Vönduð vinnubrögð Stúdentaráðs Hinn 24. maí síðastliðinn birtist grein í Morgunblaðinu eftir tvo Stúdentaráðsliða Vöku. Í greininni er sett fram furðuleg gagnrýni á einkunnaskilasíðu Stúdentaráðs. Því er haldið fram að starfsmenn skrifstofu Stúdentaráðs stundi óvönduð vinnubrögð við uppfærslu síðunnar. Þetta er af og frá. Einkunnaskilasíðan byggist á beinhörðum upplýsingum frá Há- skólanum sjálfum, þ.e. þeirri staðtölusíðu sem kennslusvið HÍ hefur komið upp. Listarnir eru margyfirfarnir og gott samráð er haft við Nemendaskrá. Áður en síð- an fór í loftið sendi undirritaður starfsmönnum Háskólans bréf þar sem óskað var eftir ábendingum og þeir hvattir til að láta vita af hugs- anlegum félagslegum ástæðum fyr- ir því að ekki sé unnt að skila einkunnum á réttum tíma. Í ljósi þessa er augljóst að gagnrýni minnihlutans er úr lausu lofti gripin. Furðuleg gagnrýni Fulltrúar minnihlut- ans hafa sömuleiðis gagnrýnt að þau nám- skeið þar sem ein- kunnum er skilað á réttum tíma skuli ekki vera birt. Þetta er enn furðulegri gagnrýni en sú fyrrnefnda þar sem á einkunnaskilasíðunni er að finna upplýsingar um ein- kunnaskil allra námskeiða vorann- arinnar og því einnig um þau sem skilað er innan tilskilins frests. Ógerlegt er að birta einhvers konar topp tíu lista yfir þá kennara sem standa sig best því þeir skipta tug- um sem skila á réttum tíma. Eina leiðin er að birta lista yfir öll nám- skeiðin sem er skilað á réttum tíma og það er einmitt það sem er gert. Virkt aðhald skilar árangri Staðreyndir málsins tala sínu máli. Stúdentaráði undir forystu Röskvu hefur tekist að bæta ein- kunnaskil kennara til muna með því að veita þeim virkt aðhald. Jafnvel hefur verið gripið til þess ráðs að auglýsa í þessum fjölmiðli eftir prófum sem voru í vanskilum. Stúd- entar hafa lýst yfir ánægju með síð- una enda eiga þeir mikið undir því að kennarar skili einkunnum á rétt- um tíma, m.a. fjárhagslega afkomu sína. Það vekur því furðu mína að Vaka skuli kjósa að gagnrýna síð- una með þessum hætti. Því miður virðist sem staðreyndir málsins þurfi að víkja fyrir vilja minnihlut- ans til að koma pólitísku höggi á meirihluta Röskvu. Stúdentaráð undir forystu Röskvu mun hins vegar halda kröf- um sínum um bætt einkunnaskil á lofti og ekki láta deigan síga fyrr en nemendur við Háskóla Íslands geta treyst því að einkunnum sé skilað á réttum tíma. Forysta Stúdentaráðs mun hér eftir sem hingað til vera tilbúin að nota fjölbreyttar aðferðir til að veita einkunnaskilum kennara virkt aðhald enda sýnir reynsla undanfarins árs að þannig næst ár- angur. Einkunnaskila- síða skilar árangri Þorvarður Tjörvi Ólafsson Próf Forysta Stúdentaráðs, segir Þorvarður Tjörvi Ólafsson, er tilbúin að nota fjölbreyttar aðferðir til að veita einkunnaskilum kenn- ara virkt aðhald. Höfundur er formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.