Morgunblaðið - 01.06.2001, Page 68
DAGBÓK
68 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI keyrir oft Álftanes-afleggjarann svokallaða.
Þessi vegarspotti er rúmir fjórir
kílómetrar og lítil sem engin byggð
er við hann. Hann er auðkeyrður
jafnt sumar sem vetur og eftir því
sem Víkverji kemst næst eru um-
ferðaróhöpp fátíð á veginum. Von-
andi er að svo verði áfram.
Nú síðustu misserin hafa ný
íbúðarhverfi risið á Álftanesinu og
m.a. vegna þeirra hefur verið tölu-
verð umferð um afleggjarann. Fólk
í fasteignahugleiðingum kemur til
að skoða þessi nýju og glæsilegu
hverfi og svo er það alkunna að
Álftanesið státar af einstöku fugla-
lífi og náttúrufegurð. Þar er t.d.
ein af fáum ósnortnum og tiltölu-
lega ómenguðum fjörum á höfuð-
borgarsvæðinu. Þá virðast Bessa-
staðir hafa ótrúlegt aðdráttarafl.
Nú fer einnig að líða að því að
fyrstu ungarnir skríði úr eggjun-
um og þá þurfa bílstjórar að halda
vöku sinni, því ungamömmur labba
beint yfir veginn með hópinn sinn í
átt til sjávar, en sem betur fer hafa
skilti verið sett upp sem eiga að
minna á þessa fiðruðu vini okkar.
EN Álftanesafleggjarinn gamlier s.s. orðinn töluvert þung
umferðargata og er langt frá því
að vera fáfarinn sveitavegur eins
og einu sinni var. Þeir sem leggja
leið sína um þennan spotta virðast
ekki hafa áttað sig á þessari stað-
reynd og halda að þessi tiltekni
vegarspotti lúti öðrum umferðar-
reglum en almennt gerist. Umferð-
arhraðinn á Álftanesveginum er
því ærið skrykkjóttur, eða allt frá
því að teljast eðlilegur og niður í
það að ökutækin séu stöðvuð á
miðjum veginum. Þetta er stór-
hættulegt háttalag og fellur alls
ekki undir þá skilgreiningu að telj-
ast eðlilegur akstursmáti. Of hæg-
ur akstur getur einnig verið mjög
streituvaldandi, því aðrir ökumenn
hafa tilhneigingu til að reyna að
komast fram úr lestarstjórunum.
Það má heita daglegur viðburður
að Víkverji þurfi að nauðhemla á
beinum veginum til að lenda ekki
aftan á einhverjum sem skyndilega
dettur í hug að skoða kríuvarpið,
nýfædd lömb, folöld eða heimilislíf-
ið á Bessastöðum. Það er eingöngu
að þakka árvekni Víkverja og
þekkingu hans á þessu vandamáli
að hann hefur ekki lent aftan á eða
utan í bíl á þessum slóðum.
x x x
NÚ er Víkverji ekki að mælahraðakstri bót, síður en svo.
En staðreyndin er hins vegar sú að
þessir „afslöppuðu“ bílstjórar
stofna ekki bara sjálfum sér í
hættu með þessu háttalagi, heldur
öllum öðrum sem um veginn fara.
Enginn má leyfa sér að hanga hálf-
sofandi í stýrinu.
Víkverji hefur fullan skilning á
þörf fólks til að afstressast og
komast í rólegra umhverfi. En það
að skoða náttúruna út um bíl-
glugga á Álftanesafleggjaranum
getur varla verið rétta aðferðin.
Víkverji veltir því fyrir sér hvort
ekki mætti koma til móts við þenn-
an hóp með því að bæta við út-
skotum beggja vegna vegarins og
merkja þau rækilega. Nú hefur
Víkverji ekki kynnt sér nýlega
hvenær og hvernig nýr Álftanes-
vegur verður byggður, en óskandi
væri að þessi þáttur yrði tekinn
með í dæmið.
EFTIR þá reynslu sem
komin er af afgreiðslutíma
vínveitingahúsa frá því að
hann var gefinn frjáls 20.
júli 1999 og í ljósi þeirrar
reynslu sem ég tel mig
hafa, vill undirritaður
koma eftirfarandi á fram-
færi við borgaryfirvöld og
lögreglu. Þegar öllum vín-
veitingahúsum var lokað
kl. 3 var stærsti ókostur-
inn sá að fólk streymdi út
á sama tíma. Það varð til
þess að geysimikill mann-
fjöldi safnaðist oft saman í
miðbænum og sköpuðust
þá mikil vandræði. Til að
koma í veg fyrir slíkt var
afgreiðslutími húsanna
lengdur og breyttist þetta
ástand mjög til batnaðar.
En það eru ýmist ókost-
ir við þennan lengda af-
greiðslutíma og langar mig
til að nefna nokkra þeirra
hér. Fyrst ber að nefna að
fólk fer tveimur til þremur
tímum seinna að heiman
en áður þannig að húsin
eru nánast tóm fram yfir
miðnætti og oft vel það.
Rekstrarkostnaður eykst
en innkoman verður ekk-
ert meiri og gestirnir ekki
fleiri. Ég tala nú ekki um
þau leiðindi sem skapast á
milli borgaryfirvalda og
einstaka veitingamanna
sem ekki hafa fengið langt
leyfi vegna staðsetningar.
Ef á að mismuna þeim um
afgreiðslutíma eiga fleiri
og betri rök að liggja því
til grundvallar en gatan
hér eða þar. Mín skoðun er
sú að vínveitingahús eigi
að hafa opið til kl. 3–4 um
helgar en til kl. 1 á virkum
dögum. Vínveitingaleyfið á
hins vegar að vera frjálst
þannig að það fólk sem
komið er inn í húsin við
lokun fái að skemmta sér
að vild þann tíma sem það
vill eða þar til vínveitinga-
sölu er hætt og ákveðið er
að rýma húsin. Kostirnir
við þetta eru þeir, að fólk
fer fyrr að heiman og ætti
þar af leiðandi að skila sér
fyrr heim aftur. Einnig
væri fólk að fara á mis-
jöfnum tímum út úr hús-
unum sem myndi þýða að
álag á lögreglu og leigubíla
yrði álíka og áður en það
er einmitt það sem verið
er að leita eftir. Undirrit-
aður hefur starfað sem
lögreglumaður og dyra-
vörður um margra ára
skeið.
Skúli Pálsson,
kt. 180644-6879.
Rammstein
ÉG vil mótmæla því að
engin skynsamleg takmörk
voru sett fyrir fjöldakaup-
um á Rammstein-miðum
fyrr í vikunni. Dæmi voru
um að fólk keypti um 20
miða (sem það gat síðar
selt öðrum á okurverði);
það finnst mér of mikið.
Frekar átti að takmarka
miðafjöldann við u.þ.b. 5
stykki.
Svo var einnig sennilega
nokkuð um að klíkuskapur
væri notaður við að útvega
sér miða; ákveðnir aðilar
þurftu ekkert að hafa fyrir
því að fá sér miða.
Viðskiptavinir/notendur
hjá Rautt.is nutu forrétt-
inda með því að geta feng-
ið miða pantaða fyrirfram,
á síðunni stóð: ,,Ekki
standa í röð eins og asni,
tryggðu þér miða fyrir 15.
júní ... þú sleppur við að
bíða í leiðindabiðröð“.
Þetta finnst mér óréttlátt!
kt. 281180-5769.
Að kaupa dýnu
ÞAÐ er tæplega 11⁄2 ár síð-
an ég keypti mér dýnu í
Rekkjunni í Skipholti.
Eins og sjá má í auglýs-
ingu í Morgunblaðinu fyrir
stuttu, eru þetta sagðar af-
skaplega góðar dýnur,
enda kenndar við kónga og
drottningar. Í fyrstu var
dýnan þægileg en nú er
orðin breyting á. Miðjan
fellur niður sem ekki er
gott fyrir neinn – allra síst
bakveika. Ég fór og kvart-
aði. Maðurinn sem selur
dýnurnar kom heim til að
athuga málið. Stór og
þungur skellti hann sér á
dýnuna. Sá hélt nú að allt
væri í besta lagi, alveg
eins og það ætti að vera.
Við mæðgurnar erum báð-
ar talsvert léttari en hann,
en okkur ber saman um að
dýnan sé gölluð. Rekkjan
neitar að taka á málinu, en
ég neyðist þá til að henda
dýnunni. Að selja hana
geri ég ekki, því kaupand-
inn myndi skemma á sér
bakið. Einum þriðja hluta
ævinnar eyðum við í rúm-
inu. Við verðum því að
vanda val á dýnum. Komi
fyrir svona galli ætti kaup-
maðurinn að bera meiri
umhyggju fyrir viðskipta-
vini sínum en að snúa út úr
og fullyrða að ekkert sé að
þegar aðrir sjá að eitthvað
er að. Ekki gat hann held-
ur tekið dýnuna og losað
mig við hana. Helst hefði
ég viljað fá peningana til
baka upp í þá næstu, því
nú mun ég leita annað til
að fá góða dýnu. Ég hef
frétt af fleirum sem fengu
svona dýnu í Rekkjunni í
Skipholti og einnig hef ég
heyrt af fyrirtækjum sem
létu nýja dýnu í stað
þeirra gölluðu. Að sofa vel
skiptir miklu máli og um-
hyggjan fyrir viðskiptavini
er afar mikilvæg. Ef svona
kemur fyrir er það líka
hagur kaupmannsins að
sýna velvilja og gera sitt
besta svo við séum ánægð.
Vigdís Ágústsdóttir
kt. 060644-2389.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Um afgreiðslu-
tíma vínveit-
ingahúsa
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 blót, 8 skinn, 9 mynnið,
10 auð, 11gaffla, 13 ern-
ina, 15 glingur, 18 nurla,
21 glöð, 22 glotta, 23
blóðsugan, 24 tíðan gest.
LÓÐRÉTT:
2 snákur, 3 vatnafiskur, 4
birtu, 5 synja, 6 bílífi, 7
venda, 12 hrúga, 14 sefa,
15 frásögn, 16 svipað, 17
fín klæði, 18 verk, 19
hruns, 20 beitu.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 flokk, 4 gegna, 7 eykur, 8 ámóta, 9 nýr, 11
kænu, 13 fann, 14 neita, 15 sund, 17 ráns, 20 ónn, 22 páf-
ar, 23 ófætt, 24 ræður, 15 totta.
Lóðrétt: 1 flesk, 2 orkan, 3 korn, 4 gjár, 5 glóra, 6 apann,
10 ýkinn, 12 und, 13 far, 15 separ, 16 nefið, 18 ágætt, 19
sötra, 20 órar, 21 nótt.
K r o s s g á t a
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Arc-
adia kemur og fer í dag,
Laugarnes kemur í dag.
Bakkafoss, Ocean
Castle, Mánafoss og
Lagarfoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Olga kom og fór í gær,
Arney kom í gær Zam-
oskvorechye fór í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14. Þriðjudaginn
5. júní, Búnaðarbankinn
kl. 10.15, Sigvaldi með
dans kl. 11. Miðvikudag-
inn 6. júní verður Breið-
holtskirkja heimsótt kl.
14, kaffiveitingar í boði
Breiðholtssóknar, brott-
för frá Aflagranda kl.
13.30, skráning í af-
greiðslu s.562-2571.
Árskógar 4. Kl. 13 opin
smíðastofan, kl. 9 hár-
og fótsnyrtistofur opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9–16 almenn
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 9.30 kaffi/dag-
blöð, kl. 11.15 matur, kl.
13 spilað í sal, kl. 15
kaffi.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun, hárgreiðslustof-
an, kl. 9.45 leikfimi,
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 10.30 guðþjónusta, kl.
13 „opið hús“, spilað á
spil.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Í
dag verður bridge kl.
13:30 og púttað á vell-
inum við Hrafnistu kl. 14
til 16. Laugardag verður
laugardagsgangan kl. 10
frá Hraunseli. 3 daga
ferð til Hornafjarðar 9.
júlí. Orlofið að Hótel
Reykholti Borgarfirði
26. ágúst nk. Skráning
hafin, allar upplýsingar í
Hraunseli, sími 555-
0142.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeginu.
Ath. farið verður í dags-
ferð 10. júní austur í
Mýrdal, farið verður
m.a. niður að Görðum í
Reynishverfi, upp í
Heiðardal, að Skógum
og Vík. Leiðsögn Ólöf
Þórarinsdóttir. Skrán-
ing hafin. Dagsferð 13.
júní. Nesjavellir-Grafn-
ingur-Eyrarbakki. Hús-
ið- Sjóminjasafnið á
Eyrarbakka skoðað.
Leiðsögn: Tómas Ein-
arsson og Pálína Jóns-
dóttir, skráning hafin,
19. til 22. júní Trékyll-
isvík 4 dagar, gist að
Valgeirsstöðum í Norð-
firði, skráning hafin.
Leiðsögn Tómas Ein-
arsson.
Silfurlínan opin á mánu-
dögum og miðvikudög-
um kl. 10–12. Ath. Opn-
unartími skrifstofu
FEB er kl. 10–16. Upp-
lýsingar í síma 588 2111
Félagsstarfið Hæðar-
garði 31. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 13 opin
vinnustofa, kl. 9.30
gönguhópur, kl. 14
brids.
Gerðuberg, félagsstarf,
kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn. Myndlistar-
sýning Gunnþórs Guð-
mundssonar stendur
yfir. Almennur dans hjá
Sigvalda á mánudögum
kl. 15.30, allir velkomn-
ir. (ekkert skráningar-
gjald). Sumardagskráin
er komin. Veitingar í
kaffihúsi Gerðubergs.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í s. 575 7720.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta og útskurð-
ur, kl. 9–17 hárgreiðsla,
kl. 9–12.30 bútasaumur,
kl. 11 leikfimi og spurt
og spjallað. Bingó kl. 14
glæsilegir vinningar,
kaffiveitingar.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
baðþjónusta og hár-
greiðsla, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi.
Norðurbrún 1. Kl. 9
hárgreiðsla, kl. 9–12.30
útskurður, kl. 10 ganga.
Vesturgata 7. Kl. 9 dag-
blöð, kaffi, fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9.15
almenn handavinna, kl.
10–11 kántrý, kl. 11–12
stepp, kl. 11.45 matur,
kl. 13.30 sungið við flyg-
ilinn, kl. 14.30 kaffi og
dansað í aðalsal. Dags-
ferð verður farin
fimmtudaginn 7. júní.
Lagt af stað kl. 10. Við-
koma í Eden í Hvera-
gerði. Farið verður á
Njáluslóðir, Njálusafn
skoðað með leiðsögn
Arthurs Björgvins
Bollasonar. Ekið um
Stokkseyri og Eyrar-
bakka, Eyrabakkar-
kirkja skoðuð. Sr. Úlfar
Guðmundsson tekur á
móti hópnum. Kvöld-
verður og dans á Hótel
Örk. Sundlaug og heitir
pottar fyrir þá sem
vilja. Leiðsögumaður
Nanna Kaaber. Upplýs-
ingar og skráning í síma
562-7077. Ath takmark-
aður miðafjöldi.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband, og morgun-
stund, kl. 10 leikfimi og
fótaaðgerð, kl. 11.45
matur, kl. 13.30 bingó,
kl. 14.30 kaffi.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Spilað kl. 13.15.
Allir eldri borgarar vel-
komnir.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur verð-
ur á morgun kl. 21 í
Konnakoti, Hverfisgötu
105, Nýir félagar vel-
komnir. Munið gönguna
mánudag og fimmtudag.
Kiwanisklúbburinn
Geysir í Mosfellsbæ
heldur spilavist í kvöld
kl. 20.30 í félags-
heimilinu Leirvogs-
tungu. Kaffi og meðlæti.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (ca.
16–25 ára) að mæta með
börnin sín á laugardög-
um kl.15–17 á Geysi,
Kakóbar, Aðalstræti 2
(Gengið inn Vesturgötu-
megin). Opið hús og
kaffi á könnunni, djús,
leikföng og dýnur fyrir
börnin.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Bandalag kvenna
Reykjavík,
fer í sína árlegu gróður-
setningarferð í Heið-
mörk12. júní. Farið frá
Hallveigarstöðum kl. 17.
Vinsamlega tilkynnið
þátttöku fyrir 7. júní:
Halldóra 552-3955,
Ágústa s. 553-3454,
Björg s. 553-3439.
Haukar, öldungaráð.
Sumarferðin er 13. júní.
Skráning í símum 555-
0176 eða 555-0852.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastsdæma, Breið-
holtskirkju við Þang-
bakka. Skálholtsskóli,
Ellimálanefnd Þjóð-
kirkjunnar og Ellimála-
ráð Reykjavíkurpró-
fastsdæma efna til
sumardvalar fyrir eldri
borgara í Skálholti. Boð-
ið er til fimm daga dval-
ar í senn og raðast þeir
þannig: 25. til 29. júní, 2.
til 6. júlí og 9. til 13. júlí.
Allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
Ellimálaráðs Reykjavík-
urprófastsdæma f.h.
virka daga í síma 557-
1666.
Minningarkort
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings mál-
efnum barna fást af-
greidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma 561-
0545. Gíróþjónusta.
Barnaspítali Hringsins.
Upplýsingar um minn-
ingarkort Barnaspítala-
sjóðs Hringsins fást hjá
Kvenfélagi Hringsins í
síma 551-4080. Kortin
fást í flestum apótekum
á höfuðborgarsvæðinu.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í s. 525-1000 gegn
heimsendingu gíróseðils.
Líknarsjóður Dómkirkj-
unnar, minningarspjöld
seld hjá kirkjuverði.
Í dag er föstudagur 1. júní, 152.
dagur ársins 2001. Orð dagsins: En
halt þú stöðuglega við það, sem þú
hefur numið og hefur fest trú á, þar
eð þú veist af hverjum þú hefur
numið það.
(II.Tím. 1.-3.)