Morgunblaðið - 01.06.2001, Síða 70
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Stjörnukisi fyllir á.
ROKKSVEITIN sjóaða Stjörnukisi ætlar að fagna hlýj-
um geislum sumarsólarinnar á Grand rokk í kvöld
ásamt sveitunum Fidel og Theyr Theyr Thorsteinsson.
Glaðbeittur Bogi Reynisson, bassaleikari Kisans, segir
þetta vera í fyrsta skiptið sem sveitin treður upp á þeim
mæta stað Grand rokk.
„Við erum svona að fara að liðka efni af plötu sem er
á leiðinni. Við erum byrjaðir að taka upp og hún kemur
væntanlega út í september/október. Við ætlum að nýta
sumarið í upptökur sem fram fara í okkar eigin hljóð-
veri, Veðurstofunni.“
Af hinum sveitunum er það helst að segja að Fidel
hefur verið lúsiðin við hljómleikahald að undanförnu.
Til þessa hafa Fidel-limir einbeitt sér að ósungnu rokki
en nú eru þeir farnir að þenja raddböndin, allir þrír
meira að segja!
Upplýsingar um Theyr Theyr Thorsteinsson eru af
skornum skammti, því miður. Það sem er þó vitað er að
einhverjir meðlimir slitu barnsskónum með hinni goð-
sagnakenndu sveit Bleiku böstunum á sínum tíma.
Gleðin hefst upp úr 22.00 en þá verður dyrum upp
lokið. Miðaverð er 600 kr. og innifalið í því er eitt stk.
af gerjuðum gosdrykk.
Stjörnukisi á Grand rokk
Kisinn
hvæsir
FÓLK Í FRÉTTUM
70 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAU ERU söngvarar vinsælustu
popphljómsveitanna á Íslandi í dag,
Íris í Buttercup, Hreimur í Landi og
sonum, Birgitta í Írafári og Berg-
sveinn í Sóldögg. Þau, ásamt fjölda
annarra, ætla að gefa vinnu sína til að
styrkja ungt fólk sem á við áfengis-
og fíkniefnavanda að stríða. Með því
vilja þau sýna gott fordæmi og vekja
athygli á málstað sem snertir alla. En
líta þau á sjálf sig sem fyrirmyndir?
Hreimur: „Já, ég geri það. Ég held
að við gerum það því við erum það
mikið í fjölmiðlum. Ég hef lært að
það skiptir máli hvað maður gerir.
Maður verður stundum að líta í eigin
barm þegar maður er farinn að láta
illa.“
Íris og Birgitta: „Já við gerum
það.“
Bergsveinn: „Ég leyfi mér ekki að
gera hvað sem er.“
Krakkarnir vilja ekki sjá
okkur bora í nefið
Finnst ykkur þið bera einhverja
ábyrgð sem fyrirmyndir?
Hreimur: „Ég segi bara eins og
Páll Óskar sagði í Popp í Reykjavík:
„Krakkar vilja ekki sjá mig bora í
nefið á almannafæri og ganga í jogg-
ingbuxum.“ Krakkar sjá okkur eins
og við erum. Þeir þekkja okkur að-
allega af böllum og myndum á plötu-
umslögum og öðru og vilja ekki sjá
okkur veltast um niðri í bæ blindfull
klukkan tíu á morgnana. Ég myndi
segja að við hefðum kannski ekki
neinum eiginlegum skyldum að
gegna sem fyrirmyndir heldur verð-
um við að passa okkur á því að
gleyma ekki krökkunum og tala til
þeirra og leyfa þeim að vera með.“
Bergsveinn: „Já, reyna að láta
eitthvað gott af sér leiða og koma já-
kvæðum skilaboðum til krakkanna.“
Hvetjum alla til að mæta
Finnst ykkur atburðir á borð við
þennan nauðsynlegir?
Hreimur: „Já, það er mikilvægt að
halda svona atburði og mætti vera
meira um þá.“
Íris: „Þetta vekur líka athygli á
málefninu.“
Birgitta: „Þetta sýnir krökkum að
það er hægt að skemmta sér ógeðs-
lega vel án áfengis.“
Bergsveinn: „Mér finnst að allir
ættu að leggja þessu málefni lið til að
gefa ungu fólki möguleika á því að
losna úr viðjum eiturlyfja- og áfeng-
isneyslu.“
Birgitta: „Ég vil bara hvetja alla til
að láta sjá sig. Þú ert að borga þig inn
á skemmtilega tónleika og að styrkja
gott málefni í leiðinni. Hvað segir þér
að gera það ekki?“
Hreimur: „Það er mjög gott að það
sé grundvöllur fyrir svona tónleikum.
Við skulum bara vona að þetta geti
orðið árlegur viðburður. Það má svo
kannski koma því á framfæri að
Grétar Örvarsson á hrós skilið fyrir
tónleikana.“
Íris: „Já, þetta er heilmikil vinna.
Þú hristir ekkert heila tónleika og
geisladisk bara út úr erminni. Hann
er búinn að vera að vinna að þessu í
hálft ár.“
Geisladiskur væntanlegur
Auk Írafárs, Buttercup, Lands og
sona og Sóldaggar koma fram á tón-
leikunum Sálin hans Jóns míns, Ein-
ar Ágúst, Páll Óskar, Á móti sól, Two
Tricky, Jóhanna Guðrún, House-
builders, Jagúar, Ensími, Gos, Gildr-
an og Andlát. Tónleikarnir eru
styrktir af Símanum, Heklu og Bún-
aðarbankanum.
Í framhaldinu verður svo gefinn út
geisladiskur með tónlist hljómsveit-
anna sem spila á tónleikunum og
rennur ágóðinn af sölu hans einnig til
forvarnarstarfs SÁÁ.
Títtnefndir tónleikar hefjast
klukkan 18 og standa til miðnættis.
Aðgangseyrir er einungis 1.500 krón-
ur, aldurstakmark miðast við 14 ár
og eins og áður sagði hvetja popp-
ararnir alla til að mæta.
„Það er hægt að
skemmta sér ógeðslega
vel án áfengis“
Í kvöld fara fram tónleikar í Laugardalshöllinni sem kallast
Poppfrelsi. Þar stíga á svið flestar af frægustu popphljómsveitum
landsins sem allar gefa vinnu sína en ágóði rennur óskiptur
til SÁÁ. Af því tilefni hitti Birta Björnsdóttir þau Hreim
Örn Heimisson, Bergsvein Arilíusson, Birgittu Haukdal og
Írisi Kristinsdóttur yfir kaffibolla á Vegamótum.
Styrktartónleikar SÁÁ í Laugardalshöllinni í kvöld
Morgunblaðið/Arnaldur
„Við hvetjum alla til að mæta.“ Hreimur, Birgitta, Íris og Bergsveinn.
birta@mbl.is
ÞAÐ ER orðin venja í Bandaríkjun-
um að halda uppboð og bjóða til sölu
ýmsar eigur fólks sem getið hefur sér
frægðar á einhverjum sviðum. Eign-
irnar eru af öllum stærðum og gerð-
um og æði misjafnar. Nú stendur til
að bjóða upp nokkrar af eigum Elvis
heitins Presley og á meðal þess sem í
boði verður eru fingraför konungsins.
Uppboðið fer fram í Las Vegas og
þar verður m.a. hægt að tryggja sér
grænbláan aðskorinn samfesting sem
Presley tróð upp í í Phoenix, eitt af
Harley Davidson-mótorhjólum kapp-
ans, einn þeirra bíla sem notaðir voru
við jarðarför Presley og síðast en ekki
síst fingraför, sem talin eru vera með
þeim síðustu sem hann skildi eftir sig.
Það er stjúpbróðir Presley, David
E. Stanley, sem stendur fyrir uppboð-
inu.
Fingraför Elvis
Presley boðin upp
Kóngurinn með fingraförin
dýrmætu.
MIðasala í Hallgrímskirkju frá kl. 13-18
alla daga. Sími 510 1000.
1. júní - Kl. 21.00
Nordic Voices við miðnætursól
Norski sönghópurinn Nordic voices
flytur kórverk eftir Purcell, Schütz,
Reger, Messiaen o.fl.
4. júní - Kl. 20.00
Lokatónleikar Kirkjulistahátíðar
„frá Tallin til Vancouver“
Mótettukór Hallgrímskirkju flytur
mótettur eftir Pärt, Rautavaara,
Jennefeldt, Nysted, Barber o.fl.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
24. maí - 4. júní
Sýnt í Gamla bíói
(í húsi Íslensku óperunnar)
Miðasala í síma 511 4200
og á Netinu - www.midavefur.is
Hópar: Hafið samband í síma 511 7060.
Fös. 1. júní kl. 20:00 - örfá sæti laus
Fim. 7. júní kl. 20:00 - nokkur sæti laus
Síðustu sýningar fyrir frí
552 3000
opið 12-18 virka daga
SNIGLAVEISLAN KL. 20
lau 2/6 síðasta sýning
Sýningargestum er boðið upp á
snigla fyrir sýningu.
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20
fös 1/6 síðasta sýning í Reykjavík
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HEDWIG FRUMSÝNDUR Í JÚNÍ
530 3030
Opið 12-18 virka daga
Hádegisleikhús kl. 12
RÚM FYRIR EINN
fös 1/6 nokkur sæti laus
fös 15/6 nokkur sæti laus
fim 21/6 nokkur sæti laus
FEÐGAR Á FERÐ KL. 20
ATH. Takmarkaður sýningarfjöldi!
fim 7/6 nokkur sæti laus
fös 15/6 nokkur sæti laus
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Á sýningardögum er miðasalan opin fram að
sýningu og um helgar er hún opnuð í viðkom-
andi leikhúsi kl. 16 ef sýning er um kvöldið.
Hópasala er í síma 530 3042 frá kl. 10-16
virka daga.
midasala@leik.is — www.leik.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
7 ( 489
( 989
( :89
! '89
( 4;89
( 4589
( 4989
"#"$ %!
&'( ## ) " ( &489
( &-89
( &;89
( &:89 * + ) " ( &'89
!
,-. // 0 12
,"
!( &89
( 4.89
( 4-89
( &&89 * + ) "!
/
#
% 3 ,-. // 0 12
sýnt í Bíóhöllinni á Akranesi
! 4! 567 #! &'!
< # # ;-- 4.-3
( 589 ( 389 ( 4.45(-. # =# ( 43(
!
#8! """9
#8!
7 """ + #! :' %;#"" "" *""!
,%"""
+!<= ! #! :>3:? %!3! #! :><&'!
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Í KVÖLD: Fös 1. júní kl. 20 - UPPSELT
Lau 2. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fös 15. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 16. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fös 22. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 23. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fim 28. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fös 29. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 30. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
UPPSELT Á ALLAR SÝNINGAR Í MAÍ.
MIÐASALA Á SÝNINGAR Í JÚNÍ Í
FULLUM GANGI:
Í KVÖLD: Fös 1. júní kl. 20 - UPPSELT
Fös 1. júní kl. 23 - UPPSELT
Lau 2. júní kl. 19 - UPPSELT
Lau 2. júní kl. 22 - ÖRFÁ SÆTI
Mán 4. júní kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI
Fim 7. júní kl. 20 - UPPSELT
Fös 8. júní kl. 20 - UPPSELT
Lau 9. júní kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 9. júní kl. 22 - ÖRFÁ SÆTI
Sun 10. júní kl. 19 - NOKKUR SÆTI
Fim 14. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fös 15. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 16. júní kl. 19 - NOKKUR SÆTI
Lau 16. júní kl. 22 - NOKKUR SÆTI
Þri 19. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Sýnt á Stóra sviði í tilefni 19. júní, eftir
sýningu flytur Ragnheiður Eiríksdóttir,
hjúkrunarfræðingur og kynlífspistla-
höfundur, erindi tengt Píkusögum.
ATH. ekki er hleypt inn í salinn eftir að
sýningin hefst.
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í SUMAR.
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið
3. hæðin