Morgunblaðið - 01.06.2001, Page 72
FÓLK Í FRÉTTUM
72 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
OUTLET 10
++++merki fyrir minna++++
Faxafeni 10, s. 533 1710
OUTLET 10
Faxafeni 10, s. 533 1710
S U M A R D A G A R
Opið
mán.-fös. 12-18
laugardag 11-17
Merkjavara og t ískufatnaður á
50-80% lægra verði
Verðdæmi:
Verð frá
Jakkaföt 12.500
Dragtir 5.800
3.500
3.500
1.900
1.900
990
1.900
5.900
990
2.900
990
500
1.900
3.900
2.900
2.900
gallabuxur
gallabuxur
gallabuxur
skyrtur
toppar
bolir
jakkar
bolir
skór
sandalar
skór
strigaskór
strigaskór
strigaskór
strigaskór
Levis
Diesel
Amazing
Morgan
Kookai
Kookai
InWear
Matinique
DKNY
Bull Boxer
Bassotto
Cat
Nike
Fila
Puma
NÝ SENDI
NG
H Ú S G A G N A -
Ú T I M A R K A Ð U R
laugardag kl. 12.00-17.00
fyrir utan Outlet 10, Faxafeni 10
NOTUÐ HÚSGÖGN
úr verslunum galleri sautján, eva, company o. fl.
FRÁBÆRT VERÐ
Gerið tilboð
borðstofuskápar
borðstofuborð
leðursófar
stórir speglar
stólar
ljós
teppi
græjur
búðarkassar
o. fl. o. fl.
T.d.
ÞAÐ er ekki oft sem erlendar takt-
rímssveitir heiðra landann með nær-
veru sinni og því fagnaðarefni að fá
hér inn ferskan andvara frá henni
Ameríku. Lone Catalysts er ung og
efnileg sveit, skipuð þeim J. Rawls,
sem sér um hljóm og takta og J.
Sands, sem sér um rímið. Fyrsta
breiðskífa sveitarinnar, sem ber ein-
faldlega nafnið Hip Hop, kom út fyr-
ir stuttu og þeir félagar hafa einnig
átt í samstarfi við nokkra þekkta
rapplistamenn eins og t.d. Mos Def,
Talib Kweli og Hi-Tek.
Vert er og að geta þess að J. Rawls
samdi taktinn í laginu „Brown Skin
Lady“ sem er að finna á meistara-
stykki Mos Def & Talib Kweli, Black
Star, en sú plata er af fjölfróðum tal-
in vera eitt það besta sem út hefur
komið í hipp-hoppi. Platan var gefin
út árið 1999 af hinu virta Rawkus
merki.
Þetta er fyrstu tónleikar Lone
Catalysts utan Bandaríkjanna en
það er íslenska Hipp-hopp sveitin
Forgotten Lores sem flytur þá
kappa inn ásamt hinum hipp-hopp-
vænu samtökum TFA (www.tfa.is)
„Alvöru“ tónlist
Að sögn Rawls búa þeir félagar í
tveimur borgum og halda nánu
sambandi í gegnum rafpóst. „Sands
býr í Columbus en ég í Pittsburgh.
Það var sameiginlegur vinur að nafni
Buka sem kynnti okkur er við vorum
í skóla saman í Cincinnati. Þannig að
við nefndum útgáfuna okkar eftir
honum [B.U.K.A.].“
Hann segir markmiðið með útgáf-
unni vera að hjálpa listamönnum í
Miðvestur-Bandaríkjunum að koma
sér á framfæri því það sé ekkert
grín.
„Þetta er miklu auðveldara ef þú
ert frá New York, L.A. eða Atlanta.
Svo þarftu helst að vera með mynd-
band undir höndunum, flotta sport-
bíla og glingur. Við erum ekkert
hrifnir af svoleiðis hlutum. Við erum
ekkert stórir í Bandaríkjunum og
njótum meiri virðingar t.d. í Evrópu
og Asíu.“
Hann segir það þó ekki vera neina
sérstaka stefnu að vera neðanjarð-
arsveit.
„Við erum neðanjarðar vegna þess
að við erum ekki komnir með samn-
ing. Við viljum að allir geti heyrt tón-
listina okkar en það er að sjálfsögðu
ekki mögulegt nema þú fáir stóran
samning.“
Rawls segir þá leika hipp-hopp af
gamla skólanum og er umhugað að
búa til „alvöru“ tónlist. „Hipp-hoppið
hefur þróast út í það að snúast um
peninga og hið ljúfa líf. Hipp-hopp-
menningin er runnin frá þeim sem
„áttu ekki“ en nú eru margir innan
þess geira sem „eiga“ svo að tónlistin
er farinn, kannski eðlilega, að snúast
um það.“
Spurður um áhrifavalda nefnir
hann A Tribe Called Quest og De La
Soul og frumherja eins og t.d. Funky
Four Plus One. Hann segir að sam-
starfið við Mos Def og Talib Kweli
hafi vakið á þeim athygli enda eru
þeir með virtari hipp-hopplista-
mönnum samtímans.
„Ég var mjög gæfusamur að fá
þetta tækifæri. Að hitta Kweli og af-
henda honum segulbandið mitt.
Þetta eru náungar sem eru að gera
þetta frá hjartanu.“
Rawls segist ekkert vera sérstak-
lega mikið inni í evrópsku/skandin-
avísku rappi en hipp-hoppgeirarnir í
Danmörku og Svíþjóð hafa t.a.m.
verið mjög virkir og frjóir undanfar-
in ár.
„Það fer lítið fyrir þessu í Banda-
ríkjunum,“ segir hann. „Því sem ég
hef kynnst er í gegnum útgáfuna
Groove Attack í Þýskalandi [sem gaf
út einyrkjaskífu Rawls, The Essence
Of]. Þeir halda mér upplýstum og
þar kynntist ég t.d. Looptroop og
Subterranean sem ég vissi nú ekki
að væru frá Íslandi fyrr en fyrir
stuttu!“
Gróska
Íslensk hipp-hoppmenning er full
af grósku um þessar mundir og
verða tónleikarnir ágætis þing að því
leytinu til því íslenskar sveitir og
skífuskankarar munu koma fram
með sveitinni.
Dagskráin verður á þessa leið:
Í kvöld spila Lone Catalysts á
Spotlight ásamt íslensku sveitunum
Souls of Orpheus og Forgotten Lor-
es. Black Fist kemur og fram með
Souls of Orpheus. Staðurinn verður
opnaður kl. 23, aðgangseyrir er 850
kr. og aldurstakmark 20 ár.
Á morgun, laugardag, munu Lone
Catalysts svo spila í félagsheimilinu
Drangey (í Stakkahlíð, á milli Tóna-
bæjar og Blindrafélagsins). Einnig
munu Forgotten Lores og O.N.E.
troða upp. Staðurinn verður opnaður
kl. 21, aðgangseyrir er 850 kr. og ald-
urstakmark 16 ár. Skífuskankarar
öll kvöld verða B Ruff, Intro, MAT,
Total Kayoz og Magic.
Hipp-hoppsveitin Lone Catalysts á Íslandi
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
J. Rawls,
taktsmiður og
skankari í
Lone Cata-
lysts.
Hipp-hopp af
gamla skólanum
Bandaríska Hipp-hopptvíeykið Lone
Catalysts mun halda tvenna tónleika
hér á landi um helgina. Arnar Eggert
Thoroddsen ræddi við taktsmiðinn og
skankarann J. Rawls.
arnart@mbl.is