Morgunblaðið - 06.06.2001, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 9
AÐ MATI tveggja sérfræðinga í
orkumálum frá Bandaríkjunum,
Theo McGregor og Jerrold Oppen-
heim, sem komu hingað til lands á
vegum BSRB, kemur markaðsvæð-
ing raforku neytendum alls ekki til
góða. Þau mæla ekki með sam-
keppni í raforkusölu og ráðleggja
íslenskum stjórnvöldum eindregið
að viðhalda því rekstrarfyrirkomu-
lagi sem er í raforkumálum hér á
landi. Ekki megi opna aðgang að
raforkukerfinu og draga úr eftirliti
með raforkufyrirtækjum. Fyrirlest-
ur þeirra, sem BSRB stóð fyrir í
vikunni, fjallaði um rannsóknir á
skipulagi raforkugeirans í Banda-
ríkjunum og nefndist „Er markaðs-
væðing raforku í hag neytenda?“
Theo McGregor var forstjóri raf-
orkudeildar Fjarskipta- og orku-
stofnunar Massachusetts til ársins
1998. Hún stýrði þróunarstarfi
deildarinnar við skipulagsbreyting-
ar í orkugeiranum og sá um mat á
orkunýtingu raforkuveranna. Hún
stofnaði síðan eigið ráðgjafafyrir-
tæki á orkusviðinu sem hefur sér-
hæft sig í raforkugeiranum. Fyr-
irtæki hennar hefur séð um ráðgjöf
fyrir fjölmörg raforkufyrirtæki og
opinbera aðila í Bandaríkjunum.
Jerrold Oppenheim er doktor í
lögfræði frá Harvard og lagaskól-
anum í Boston. Hann hefur séð um
málaferli sem varða orkugeirann
fyrir ríkissaksóknarana í New York
og Massachusetts. Á þrjátíu ára
starfsferli sínum hefur hann verið í
lykilstöðu hvað varðar þróun á
þessu sviði sem lögfræðilegur ráð-
gjafi ríkisstjórna, neytendasamtaka,
verkalýðssamtaka, umhverfissam-
taka og fyrirtækja, samkvæmt upp-
lýsingum frá BSRB.
Þveröfug áhrif í Kaliforníu
McGregor og Oppenheim sögðu í
samtali við Morgunblaðið að auðvelt
væri að benda á reynslu Kaliforn-
íubúa í Bandaríkjunum af markaðs-
væðingu raforkunnar en þar hefði
raforkufyrirtækjum verið gefinn
laus taumurinn og eftirlitið aflagt
með þeim einkaaðilum sem fram-
leiddu og seldu rafmagn. Þar hefðu
áhrifin og markmiðið orðið þver-
öfug, í stað þess að rafmagnsreikn-
ingarnir lækkuðu þá hækkuðu þeir
verulega og hafa í sumum tilfellum
allt að fimmtánfaldast á skömmum
tíma. Verðið hefði þó sveiflast mikið
til en þróunin verið upp á við. Erfitt
væri því að gera áætlanir fram í
tímann um raforkuverð.
Þau sögðu að yfirvöld í Kaliforníu
væru farin að velta fyrir sér að
draga úr áhrifum markaðsvæðing-
arinnar og í raun væri verið að stíga
skref aftur til fyrra horfs. Hug-
myndir væru uppi um að stjórnvöld
tækju ómakið af einkageiranum og
reistu orkuver og raforkukerfi.
Tilraun sem mistókst
McGregor og Oppenheim sögðu
markaðsvæðingu í raforkugeiranum
einfaldlega hafa verið tilraun sem
hefði mistekist. Í ljósi reynslunnar í
þeim 5 eða 6 fylkjum sem hefðu
tekið upp þetta fyrirkomulag í
Bandaríkjunum gæti vart verið
áhugavert að taka það upp annars
staðar og skipti þá litlu hvort lönd
eða fylki væru stór eða smá, og enn
síður ef þau væru álíka smá og Ís-
land. Best væri að raforkufyrirtæk-
in væru í opinberri eigu líkt og hér
á landi. Þau sögðu Íslendinga eiga
eftir að sjá eftir því ef fyrirkomu-
laginu verður breytt, en þess má
geta að iðnaðarráðherra hefur
kynnt frumvarp sem gerir ráð fyrir
samkeppni í sölu raforku. Þeirra
skilaboð til stjórnvalda voru að ef til
stæði að hlutafélagavæða Lands-
virkjun eða Rarik yrði að tryggja
strangt eftirlit og reglugerð með
starfseminni.
„Eitt nágrannafylki Kaliforníu,
Nevada, hafði ráðgert að taka upp
markaðsvæðingu en þegar yfirvöld
sáu að verðið snarhækkaði í Kali-
forníu og grípa þurfti margsinnis til
lokunar á rafmagni þá hættu þau
við. Margir halda því reyndar fram
að Kaliforníufylki hafi mistekist
ætlunarverkið og ekki farið rétt að
hlutunum. Það má að sumu leyti til
sanns vegar færa en markaðurinn
þar er viðkvæmur og þrífst á lög-
málunum um framboð og eftir-
spurn,“ sagði Oppenheim.
McGregor tók undir þetta og
sagði að markmið Kaliforníufylkis
hefðu í sjálfu sér verið góð, þ.e. að
lækka raforkuverð til neytenda og
að gefa þeim val á að kaupa rafork-
una.
„En til að uppfylla þau markmið
þarf virk samkeppni að vera til
staðar. Raforka er að okkar mati
einokunarvara og samkeppni getur
vart þrifist þar sem neytendur hafa
ekki annan valkost en rafmagn til
að kynda upp sín heimili. Þó að
verðið hækki þá þarf fólk engu að
síður að hafa ljósin kveikt. Hindr-
anir inn á markaðinn eru einnig
margir og afar kostnaðarsamt og
tímafrekt er að reisa eitt stykki
orkuver,“ sagði McGregor.
Álver hættu framleiðslu og
seldu rafmagnið áfram
Til marks um öfug áhrif mark-
aðsvæðingarinnar í Bandaríkjunum
tóku þau dæmi af álverum í ná-
grannafylkjum Kaliforníu sem
hefðu sagt upp þúsundum starfs-
manna sinna og hætt álframleiðslu.
Í staðinn hefðu eigendurnir ákveðið
að selja raforkuna sem þeir keyptu
til álversins á lágu verði áfram til
Kaliforníu og grætt mun meiri pen-
inga en af álinu.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Jerrold Oppenheim (t.v.) og Theo McGregor í húsakynnum BSRB.
Mæla eindregið gegn
samkeppni og markaðs-
væðingu í orkumálum
Bandarískir sérfræðingar í raforkumálum
fluttu fyrirlestur á vegum BSRB
Í SANDVÍK, sem er á milli
Norðfjarðar og Reyðarfjarðar,
má enn sjá leifar af norska síld-
arflutningaskipinu Gasina sem
fórst í þoku og vondu veðri í
september 1966. Flakið er smátt
og smátt að grafast í sandinn í
fjörunni. Níu voru um borð í
skipinu þegar það fórst og björg-
uðust þeir allir.
Morgunblaðið/Friðþjófur
Flak í Sandvík
Eru
Florena
bestu snyrtivörurnar?
Ótrúlegt úrval
af glæsilegum fatnaði
í sumarfríið
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Mikið úrval af sumarfatnaði
Buxur í stærð 36—56
Vinnufatabúðin
Laugavegi 76, sími 551 5425
20%
afsláttur
af herra
sumarblússum
LAUGAVEGI 56, SÍMI 552 2201
WWW.TEENO.COM
TEENO
Mikið úrval af gluggatjaldaefnum
Skipholti 17a, sími 551 2323
Við ráðleggjum
og saumum fyrir þig
– sérverslun – Fataprýði
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, sími 553 2347.
Indónesía - Ný sumarlína
Falleg - frábrugðin og frábært verð
Sérhönnun. St. 42-56
Eiðistorgi 13,
2. hæð yfir torginu,
sími 552 3970.
Útsala
Stretchbuxur
30-40% afsláttur
St. 38-50
Opið alla daga 12–18, lokað á laugarögum.