Morgunblaðið - 06.06.2001, Side 28

Morgunblaðið - 06.06.2001, Side 28
ERLENT 28 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÁTÖK og hávær mótmæli gegn stjórnvöldum eru ekkert nýmæli í sögu Nepals. Árið 1990 gengu tug- þúsundir manna um götur höfuð- borgarinnar, Katmandu, hundruð manna féllu í róstunum. Svo fór að Birendra konungur, sem var einvaldur eins og fyrir- rennarar hans frá 1960, kom í kjölfar mótmæl- anna á þingræði og fjölflokka- kerfi. Fyrirmynd hans var breska konungdæmið, hann varð þjóð- artákn en stjórn- aði ekki landinu. Enn er óljóst hvað raunveru- lega gerðist á föstudag í Nepal en vitað að kon- ungshjónin, tvö börn þeirra og fleira fólk var myrt. Innanríkisráðherra landsins, Ram Chandra Poudel, fullyrti þegar eft- ir að atburðirnir komust í hámæli að Dipendra ríkisarfi, sonur Bir- endra og Aiswarya drottningar, hefði myrt fjölskylduna og síðan beint vopninu að sjálfum sér. Síðar tók ráðherrann þessi ummæli til baka. Ljóst er að hinn nýi konungur Nepals og yngri bróðir Birendra, Gyanendra, á erfitt starf fyrir höndum, hann nýtur ekki hylli al- mennings sem dáði mjög Birendra þótt hirðin væri annars efni í stanslausar kjaftasögur og stund- um aðhlátur. Haldið var fast við fornar hefðir hjá hirðinni þótt völd- in væru horfin. Eitt sinn bannaði Birendra að sýnd yrði í Nepal kvikmynd með leikaranum Peter Sellers vegna þess að einhver hafði orð á að leikarinn væri nauðalíkur þjóðhöfðingjanum. Almenningur fylgdist vandlega með innbyrðis skærum og valdabrölti. Gagnrýn- endur hirðarinnar sögðu konung vera undir hælnum á eiginkonu sinni, hann hefði mestan áhuga á hundarækt, vatnslitamálun og að leika við nashyrninginn sinn sem gekk undir gælunafninu Filippus prins. Drottningin væri valdasjúk og spillt, líktist helst Imeldu Marcos, fyrrverandi forsetafrú á Filipps- eyjum. Aiswarya vildi koma Bir- endra frá og gera Dipendra að konungi, honum myndi hún síðan stjórna. Drottningin var sögð eiga offjár á erlendum bankareikning- um í Sviss. Vildi eiga Deviani Sumir af mótmælendunum á mánudag hikuðu ekki við að segja að Gyanendra og óvinsæll sonur hans, Paras, hefðu verið á bak við morðin á konungsfjölskyldunni. Grunsemdir hafa meðal annars vaknað vegna þess að Gyanendra og Paras voru ekki á staðnum þeg- ar konungsfjölskyldan settist að snæðingi föstudagskvöldið örlaga- ríka. Hins vegar var eiginkona Gyanendra og annar sonur þar. Þau særðust lítillega en voru í gær sögð úr allri hættu. Gyanendra er 53 ára, hann var konungur um nokkurra mánaða skeið árið 1951 en þá hafði afi hans, Birendra og fleiri ættingjar flúið til Indlands eftir hallarbyltingu Rana-ættarinn- ar. Ljóst er að Gyanendra var and- vígur breytingunum 1990, hann vildi að konungurinn héldi völdum en hann sagðist á mánudag styðja lýðræðið og stjórnarskrána. Konungsættin nefnist Shah. Dip- endra prins, sem lést á sunnudag, hafði hug á að giftast konu af ætt- inni Rana, Deviani, en hún er hálf- indversk. Er hún sögð fögur, bráð- vel gefin og nútímaleg í hugsunar- hætti. En heimildarmenn segja að Aiswarya hafi sett sig upp á móti ráðahagnum og talið að stúlkan væri ekki nógu ættgöfug, hún er úr einni fjölskyldugrein Rana er nefn- ist Gwalior. Sjálf var Aiswarya reyndar af ætt Rana en æðri grein en Gwalior. Einnig er sagt að drottningin hafi verið á móti því að ungt fólk réði einhverju um ráða- hag, það væri hlutverk foreldra. Dipendra var 29 ára gamall. Líkin voru að sið hindúa brennd áður en sólarhringur var liðinn frá látinu og því verður erfitt að beita vestrænum aðferðum við rannsókn málsins. En sagt er að Dipendra hafi verið með skotsár á baki sem kemur ekki heim við þá skýringu að hann hafi myrt ættingja sína í æðiskasti. Er Gyanendra ávarpaði þjóðina eftir að hafa verið krýndur á mánudag sagði hann að vegna ákvæða í stjórnarskránni og laga- vandamála væri „erfitt að segja frá því sem raunverulega gerðist“. Hvorki þing né ríkisstjórn mega samkvæmt stjórnarskrá fjalla á nokkurn hátt um málefni konungs- fjölskyldunnar og þrátt fyrir að Dipendra væri sagður hafa verið morðinginn var hann lýstur kon- ungur á laugardag. En hann lést á mánudag án þess að komast til meðvitundar. Nýi konungurinn gaf í skyn í op- inberri yfirlýsingu að um slysaskot úr sjálfvirkri byssu hefði verið að ræða en jafnt sérfræðingar sem fólk á götum úti vísuðu þeirri skýr- ingu á bug. Enginn sem vestrænir fréttamenn ræddu við trúði því að Dipendra væri morðinginn. Margt á huldu Enn er margt á huldu um at- burðina í konungshöllinni, stjórn- völd hafa heitið að láta rannsaka málið en margir eru tortryggnir á að rannsóknin verði hlutlaus. Vitað er að um hefðbundinn fjölskyldu- kvöldverð var að ræða en við slík tækifæri voru ýmis málefni fjöl- skyldunnar rædd og ætlast til að allir mættu en vegna þess hve stór hún er orðin kemur oft fyrir að einhverja vantar. Mun hafa komið til harðra orðaskipta í samsætinu, Dipendra er sagður hafa drukkið viskí en farið af staðnum til svefn- herbergis síns. Þar hafi hann klæðst hermannabúningi, vopnast tveim sjálfvirkum rifflum og farið á ný í húsið þar sem veislan var enn í gangi. Hafi hann fyrst skotið móður sína til bana, þar næst föður og bróður auk fleiri sem voru á staðnum. Alls féllu eða særðust níu manns en aðrar heimildir segja að fórnarlömbin hafi verið fleiri. Heimildarmenn segja að Dip- endra hafi verið aðlaðandi og greindur maður með mörg áhuga- mál, hann var með svart belti í Kung fu-glímu. Hann var mennt- aður í Eton-menntaskólanum breska eins og Birendra, var vin- sæll þar og var kallaður „Dippy“ og var „alltaf með þeim efstu í bekknum“, segir einn skólabróðir hans. Einn af heimildarmönnum breska blaðsins The Daily Tele- graph sagði að geðveiki væri í ætt- inni en ekki er vitað til þess að Dipendra hafi sýnt nein merki um slíkan krankleika fyrr á ævinni. Birendra konungur og eiginkona hans komu til Íslands í sólarhrings heimsókn í september árið 1979. Morðið á konungsfjölskyldunni í Nepal Sannfærðir um sakleysi Dipendra prins Katmandu. AP, AFP, The Daily Telegraph. AP Gyanendra, nýr konungur Nepals, á leið til konungshallarinnar í hestvagni eftir krýninguna á mánudag. Reuters Birendra konungur og Aiswarya drottning. Dipendra Deviani

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.