Morgunblaðið - 06.06.2001, Side 29

Morgunblaðið - 06.06.2001, Side 29
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 29 OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14 Við Fellsmúla Sími 588 7332 - trygging fyrir l águ verði! H ön nu n & u m b ro t eh f. © 2 00 0 – D V R 06 9 TILBOÐSum ar Kr. 29.500,- stgr. Handlaug á vegg. Stærð 55 x 43 cm. Roca Group, stærsti hreinlætis- tækjaframleiðandi í Evrópu, tryggir sama litatón á öllum tækjum. Baðkar 170 x 70 cm. Innifalið í tilboði Salerni með stút í vegg eða gólf Vönduð, hörð ABS seta og festingar fylgja. Í FYRSTA skipti í sögunni hefur íhaldsblaðið The Times lýst yfir stuðningi sínum við Verkamanna- flokkinn. Í leiðara í gær ráðlagði blaðið lesendum sínum að leyfa Tony Blair, leiðtoga flokksins og forsætisráðherra, að halda áfram því sem hann hefði byrjað á. Þetta gerir blaðið á grundvelli þess að hann hafi haldið áfram umbótum Margaret Thatchers, fyrrverandi leiðtoga Íhaldsflokksins og forsætis- ráðherra 1979-1990, en líka vegna þess að blaðið álítur að stjórn Verkamannaflokksins muni ekki efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Efnahags- og myntbanda- lagi Evrópu, sem blaðið er andvígt. Flest blöðin styðja Verkamannaflokkinn Sem fyrr ber skoðanakönnunum ekki saman um forskot Verka- mannaflokksins, það leikur á bilinu 16-24 prósentustiga. Undanfarna daga hefur Blair ákaft minnt á að stjórnin hafi enn engan meirihluta, kosningarnar séu ekki yfirstaðnar og forskotið aðeins í skoðanakönn- unum. Honum hljóp áberandi kapp í kinn eftir að hvatning Íhaldsflokks- ins til kjósenda um að kjósa ann- aðhvort Íhaldsflokkinn eða láta vera að kjósa kom fram, en William Hague, leiðtogi Íhaldsflokksins, hafnar því að þetta sé boðskapur flokksins. Honum sé jafnmikið í mun og öllum öðrum að sem flestir kjósi. Bresku blöðin hafa keppst við undanfarna daga að lýsa stuðningi við Verkamannaflokkinn. Í gær hvatti Financial Times til stuðnings við stjórnina og sama hefur Observ- er gert. Síðdegisblaðið Sun styður Verkamannaflokkinn nú eins og 1997, þegar stuðningur þess var álit- inn mikilvæg forsenda fyrir met- sigri flokksins. News of the World, annað síðdeg- isblað, hvetur lesendur sína til að kjósa Verkamannaflokkinn. Þar með fái Blair og flokkur hans gullið og einstakt tækifæri. „Eftir það get- ur hann ekki farið aftur út í kosn- ingabaráttu með því að biðja um meiri tíma. Þegar kemur fram á árið 2006 duga engar afsakanir.“ Með þessu vísar blaðið til þess að Blair hefur ákaft beðið kjósendur um meiri tíma, því þótt margt hafi verið gert, sé enn margt ógert. Mörgum finnst það hljóma veiklu- lega, því afrekaskrá flokksins á kjarnasviðum eins og heilbrigðis- og menntamálum sé býsna stutt. Í Fin- ancial Times í gær er bent á að nú megi Blair engan tíma missa. „Kjósendur virðast fúsir til að veita Verkamannaflokknum annað tækifæri. Eftir fjögur ár er ekki víst að þeir verði jafn rausnarlegir.“ Í leiðara blaðsins fær Blair einnig áminningu. „Það er margt óaðlað- andi við stjórn Blairs... Hún hefur að mörgu leyti glatað trausti kjósenda. En kosningar snúast um val. Verka- mannaflokkurinn hefur stjórnað af hæfni. Blair á skilið annað tæki- færi.“ Í Sunday Times um helgina sagði að Íhaldsflokkurinn væri ekki í kosningahæfu ástandi, en blaðið studdi Verkamannaflokkinn síðast. Daily Telegraph og Sunday Telegr- aph hafa löngum verið íhaldsblöð. Síðarnefnda blaðið hvatti um helgina lesendur til að kjósa Íhalds- flokkinn, en lýsti yfir vonbrigðum með William Hague. Hann hefði brugðist með því að segja kosning- arnar vera síðasta tækifærið til að kjósa um evruaðild og fyrir að leggja ekki næga áherslu á aðrar hliðar íhaldsstefnunnar í heilbrigð- is-, mennta- og skattamálum. Independent on Sunday hvatti lesendur sína til að styðja Græn- ingja, sem ekki eru áberandi flokkur í Bretlandi, frjálslynda demókrata og „jafnvel þann hluta Íhaldsflokks- ins, sem er heill á geði (sem er nauð- synlegt til að byggja upp flokkinn aftur eftir Hague) til að styrkja stjórnarandstöðuna eftir fimmtu- daginn.“ Thatcherismi Blairs vekur reiði vinstriafla Kunnugir segja að það hafi komið leiðtogum Verkamannaflokksins á óvart hvað Margaret Thatcher sé áberandi í kosningabaráttunni. Hún hefur reyndar ekki komið mikið fram opinberlega, en þó beitt sér af krafti fyrir gamla flokkinn sinn. Alls staðar þar sem hún kemur er henni tekið sem hetju. Bæði tímaritið Economist, sem þegar hefur hvatt lesendur til að kjósa Verkamannaflokkinn og nú Times höfða til þess að Blair haldi áfram strikinu frá uppstokkun Margaret Thatchers á sínum tíma. Að mati Times barðist hún gegn verðbólgu, sýndi að sköttun yfir ákveðin mörk geri meira illt en gott og vantreysti verkalýðshreyfing- unni. Blair haldi áfram á sömu línu. Þó Blair og jafnvel harðsnúnir flokksmenn af gamla skólanum eins og Tony Benn hafi aldrei hikað við að viðurkenna að margt í stefnu Thatchers hafi verið nauðsynlegt og Blair viðurkenni að hafa haldið ýms- um af hennar stefnumálum áfram er það engu að síður óþægilegt fyrir Blair að íhaldsöflin hvetji til að hann sé kosinn sem arftaki hennar. Á forsíðu Guardian í gær er frétt um að vinstriöflin í Verkamanna- flokknum séu að missa þolinmæðina gagnvart Blair. „Við getum ekki eytt næstu fjórum árum í að horfa upp á Tony Blair bregðast við öllu sem Daily Mail fer fram á,“ sagði ónefndur flokksmaður, en Daily Mail er íhaldssinnað blað. „Við þurf- um að tryggja að Verkamannaflokk- urinn sé mið-vinstriflokkur.“ Dag- inn eftir kosningarnar mun Fabian félagið, gamalgróin vinstristofnun, birta hvatningu til flokksins um að taka fastar á vaxandi mun ríkra og fátækra og vera óhræddur við rót- tækni. Í umræðuþætti í fyrrakvöld hafnaði Blair því að hann dreymdi um að ná peningum af hinum ríku til að gefa þeim fátæku. Það eru um- mæli eins og þessi sem valda ergelsi á vinstrivæng flokksins, því á þeim væng þykir mönnum Blair miðsæk- inn um of og hræddur við að stugga við peningafólki á kostnað hinna fá- tæku, sem hann er þó alltaf að lofa að hjálpa. Lokasprettur Íhaldsflokksins „Við stefnum að því að sigra,“ sagði Michael Portillo, talsmaður Íhaldsflokksins í efnahagsmálum, á blaðamannafundi flokksins í gær. Jafnt Portillo og aðrir leiðtogar flokksins hafa stöðugt hamrað á sig- urvissu sinni, þó skoðanakannanir gefi lítið tilefni til bjartsýni. Loka- sprettur leiðtoga Íhaldsflokksins miðar að því að heimsækja þau 180 kjördæmi, sem flokkurinn þyrfti að vinna til að Verkamannaflokkurinn missti meirihluta sinn. Fjölmiðlar fylkja sér um Verkamanna- flokkinn Hver er besti arftaki Thatchers? er spurn- ing sem oft heyrist á endaspretti kosninga- baráttunnar í Bretlandi. Sigrún Davíðs- dóttir segir flesta borgaralega fjölmiðla svara að það sé Tony Blair og því styðja þeir Verkamannaflokkinn. AP Tony Blair forsætisráðherra og Gordon Brown fjármálaráðherra í rútu á kosningaferðalagi um England. sd@uti.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.