Morgunblaðið - 06.06.2001, Síða 38
ÞORSKKVÓTINN á næstafiskveiðiári verður190.000 tonn, 30.000tonnum minni en á þessu
ári. Skýringin er sú að Hafrann-
sóknastofnun hefur ofmetið stofn-
inn undanfarin ár og því er minna
af þorski í sjónum nú en áætlað
hafði verið. Lagður er til samdrátt-
ur í ufsaveiðum, sandkolaveiðum
og rækju, en aukning á síldveiðum
innan lögsögu um 15.000 tonn og að
humarveiðar verði auknar. Þá
verður upphafskvóti á loðnu hærri
en í fyrra, en lagt til sama magn af
norsk-íslenzku síldinni og í fyrra.
Loks hefur Alþjóða hafrannsókna-
ráðið lagt til að engar veiðar verði
stundaðar á kolmunna meðan
helztu veiðiþjóðirnar hafa ekki
komið sér saman um nýtingu stofn-
ins, sem er talinn í hættu vegna of-
veiði. Kolmunnaafli okkar á síðasta
ári var um 260.000 tonn.
Þorskur
Þorskaflinn á árinu 2000 var 235
þús. tonn samanborið við 260 þús.
tonn árið 1999. Mest veiddist af 5
ára þorski (árgangi 1995), um 38%
aflans í fjölda, en næst algengastur
(í fjölda) var 6 og 7 ára fiskur með
um 14% hlutdeild hvor. Árið 2000
lækkaði hlutfallslegur kynþroski
eftir aldri nokkuð miðað við árið
1999 en var þó yfir langtímameð-
altali. Meðalþyngd eftir aldri hefur
farið lækkandi undanfarin ár og
var árið 2000 undir meðaltali s.l.
tuttugu ára. Afli á sóknareiningu
minnkaði í öll veiðarfæri árið 2000
miðað við árið 1999.
Samkvæmt nýrri úttekt er stærð
veiðistofns þorsks í ársbyrjun 2001
áætluð 577 þús. tonn, þar af er
hrygningarstofninn talinn um 219
þús. tonn. Í úttektinni árið 2000 var
veiðistofn áætlaður 866 þús. tonn
við upphaf árs 2001 en hrygning-
arstofn um 430 þús. tonn. Á árinu
2000 var stofninn í ársbyrjun 2001
því ofmetinn um 289 þús. tonn eða
um 50%. Um 40 þús. tonn (13%) af
ofmati má skýra með lægri með-
alþyngd eftir aldri en áætlað hafði
verið. Meginskýringa á ofmati er
hins vegar að leita í auknum veið-
anleika á árunum 1997 og 1998 sem
líklega má rekja til verulegrar
minnkunar í sókn á árunum þar á
undan. Einnig virðist sókn flotans í
eldri fisk á árunum 1996-1998 hafa
verið mun meiri en reiknað var
með. Þetta sést m.a. á því að neta-
flotinn skipti á þessum árum úr 7-8
tommu möskvastærð í 9-10 tomm-
ur. Við stofnmat var reynt að taka
tillit til þessara breytinga en áhrif
þeirra voru vanmetin. Ekki er úti-
lokað að brottkast hafi einnig vald-
ið skekkju í stofnmati en áhrif þess
geta ekki skýrt nema lítinn hluta
ofmats.
Vegna ofmats á stofnstærð und-
anfarin ár hefur afli sem h
veiðistofni verið á bilinu
sem er langt umfram þau
stefnt var að og meðal-ve
tala á árinu 2000 var um
er verulega umfram það
regla gerði ráð fyrir (0.4).
Bæði veiði- og hrygnin
eru nú nálægt sögulegu
og veiðar á næstu áru
byggjast að mestu á árgö
frá 1997-1999. Yngri fiskur
verður því uppistaða aflan
Allir árgangar árin 19
eða í rúman áratug, haf
undir langtímameðallagi.
Árgangarnir 1997, 1998
eru nú metnir tæpir meða
ar að stærð og þó enn ríki
óvissa um stærð 2000 ár
eru fyrstu vísbendingar í
hann sé af svipaðri stærð.
Aflamark fyrir fisk
2000/2001 er 220 þús. tonn
ráð fyrir að aflinn á fiskv
verði sá sami en ársafl
verði 205 þús. tonn.
Ný aflaregla var tekin í
síðasta ári með þeim bre
að bætt var við 30 þús.
tonna sveiflujöfnun og f
155 þús. tonna aflalágmark
Aflahámark samkvæmt
unni verður 190 þús. tonn
árið 2001/2002.
Veiðistofn mun vaxa úr
tonnum í ársbyrjun 2001 í
Veiði- og hrygningarstofn nálægt sögulegu lágmar
Þorskstofninn
ofmetinn um
289.000 tonn
Ofmat Hafrannsóknastofnunar á stærð þorskstofnsins að u
anförnu leiðir nú til þess að leyfilegur þorskafli verður aðe
190.000 tonn og hefur hann þá dregizt saman um 60.000 ton
tveimur árum. Stofnunin hefur nú sent frá sér árlega skýrsl
ástand nytjastofna sjávar. Verður hér á eftir greint frá niður
um hennar um nokkrar helztu nytjategundirnar.
38 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
JÓHANN Sigurjónsson, for-stjóri Hafrannsóknastofn-unar, sagði á blaðamanna-fundi í gær þegar skýrsla
stofnunarinnar um ástand nytja-
stofna í sjó var kynnt, að margir
þættir hafi áhrif á stofnstærðir ein-
stakra nytjastofna. Stofnstærð
þorsks hafi verið ofmetin undanfar-
in ár en veiðiálag hafi líka aukist.
„Allt frá 1960 getum við talað um að
veiðarnar hafi að öllu jöfnu ekki ver-
ið sjálfbærar,“ segir hann og bætir
við að á umræddum tíma hafi veiði-
hlutfallið verið meira en 25% meira
en skynsamlegt hafi verið.
Þorskafli umfram ráðgjöf hefur
verið misjafnlega mikill frá 1984.
Hann var t.d. 120 þúsund tonn um-
fram ráðgjöf 1985, og segir Jóhann
Sigurjónsson að þessi umframafli sé
undirrót vandans þegar til langs
tíma sé litið. „Sóknin síðastliðna
hálfa öld hefur verið alltof mikil,“
segir hann og bætir við að nú sé sjö-
falt til tífalt meiri afli tekinn úr líf-
kerfinu en í upphafi 20. aldar.
Jóhann Sigurjónsson segir að all-
ar athuganir sem gerðar eru á fiski-
stofnum séu háðar óvissu og menn
megi aldrei láta sér bregða í brún
þegar fram koma skekkjur eftir á
varðandi niðurstöður rannsókna.
Verið sé að fjalla um dýrastofna í
náttúrulegu umhverfi sínu sem séu
háðir sveiflum og duttlungum nátt-
úrunnar. Eins sé verið að reyna að
kortleggja athafnir fiskveiðiskipa
sem geti líka verið snúið verkefni.
Því sé mjög röng nálgun að gefa sér
að niðurstaðan sé 100% rétt því gera
verði ráð fyrir töluvert mikilli
óvissu. Hins vegar sé jafn mikilvægt
að allir geri sér grein fyrir því að
eina leiðin til að menn beri gæfu til
að stýra veiðinni hljóti að vera ráð-
gjöf og fiskveiðistjórnun sem bygg-
ist á vísindalegum rannsóknum.
Með öðrum hætti sé ekk
möguleiki að ná þeim ára
að hafi verið stefnt.
Að sögn Jóhanns Sigurj
var stofnstærð þorsks ofme
lega í fyrra og þegar það
hefðu utanaðkomandi aði
fengnir til að gera úttekt
matsaðferðum og gagnafor
Þeir hefðu beitt mörgum a
sem hefðu skilað mismun
urstöðum sbr. skýrslu hó
haust. Í framhaldi hefði
sóknastofnun unnið frekar
ingu vandans og samkvæ
vinnu hafi þær stofnmats
sem notaðar hafa verið un
ár og jafnvel áratugi, haf
andi tilhneigingu til ofmat
stofnsins. Í sérstaklega tv
fellum, í kringum 1980 og s
um seinna, hafi sést gróft o
báðum tilfellum hafi sést
minnkun loðnustofns. En
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnu
Veiðin ekki
sjálfbær í 40 ár
SKÝRSLA HAFRANNSÓKNA-
STOFNUNAR
Skýrsla Hafrannsóknastofn-unar um ástand nytjastofnaí sjó hér við land árið 2001
boðar ekki góð tíðindi. Samkvæmt
skýrslunni hefur þorskstofninn
verið verulega ofmetinn. Það er
alvarlegt áfall fyrir Hafrann-
sóknastofnun, vísindamenn henn-
ar og alla þá sem hafa talið að
treysta mætti rannsóknum og nið-
urstöðum Hafró að svo miklu leyti
sem einhverju er að treysta í þeim
efnum.
Fyrstu vísbendingar um að ekki
væri allt með felldu komu fram á
síðasta ári þegar Hafró lagði til
20% niðurskurð á þorskafla á yf-
irstandandi fiskveiðiári sem hefði
þýtt 50 þúsund tonna minni afla
en á síðasta fiskveiðiári. Um þess-
ar tillögur stofnunarinnar sagði
Morgunblaðið í forystugrein hinn
6. júní á síðasta ári:
„Það er visst áfall fyrir Haf-
rannsóknastofnun að verða að við-
urkenna að mat hennar hafi ekki
reynst traustara en þetta. Á hinn
bóginn hefur öllum verið ljóst að
hér er ekki um nákvæm vísindi að
ræða.“
Árni M. Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra vék frá ráðgjöf
Hafró fyrir yfirstandandi fisk-
veiðiár og ákvað 220 þúsund tonna
þorskafla í stað 203 þúsund tonna
samkvæmt tillögum vísindamanna.
Jafnframt breytti ráðherrann
hinni svonefndu aflareglu.
Morgunblaðið gagnrýndi þessa
ákvörðun í forystugrein hinn 16.
júní á síðasta ári og sagði: „Rökin
sem færð hafa verið fram fyrir því
að breyta aflareglunni eru ekki
nægilega sterk. Breytingin sjálf
er þess eðlis að það er alveg aug-
ljóst að hún mun ekki halda á
hvorn veg sem þróun þorskstofns-
ins verður. Sú meginlína í ákvörð-
un sjávarútvegsráðherra að auka
kvóta umfram ráðgjöf Hafrann-
sóknastofnunar vekur ugg.“
Nú hefur ráðherrann ákveðið
miðað við hina breyttu aflareglu
að þorskkvótinn skuli vera 190
þúsund tonn en samkvæmt fyrri
reglu hefði hann átt að vera 155
þúsund tonn og jafnvel enn lægri
ef það gólf hefði ekki verið. Er
eitthvað vit í þessu miðað við
stöðu mála?
Í skýrslu Hafrannsóknastofnun-
ar kemur fram að verði aflamarkið
ákveðið 190 þúsund tonn kunni
það að leiða til of mikillar sóknar í
uppvaxandi árganga, tíðra svæða-
lokana vegna smáfisks í afla og
óæskilegrar aukinnar sóknar í
eldri fisk.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, sagði í
gær að undanfarin 40 ár hefði
nánast á hverju fiskveiðiári verið
gengið á þorskstofninn. „Allt frá
1960 getum við talað um að veið-
arnar hafi að öllu jöfnu ekki verið
sjálfbærar,“ sagði hann. „Sóknin
síðastliðna hálfa öld hefur verið
allt of mikil.“
Segir í skýrslunni að bæði veiði-
og hrygningarstofn séu nú nálægt
sögulegu lágmarki og vegna of-
mats á stofnstærð undanfarin ár
hafi afli sem hlutfall af veiðistofni
verið á bilinu 27 til 42% sem sé
langt umfram þau 25% sem stefnt
hafi verið að.
Í formála skýrslunnar segir að
rekja megi ofmat Hafrannsókna-
stofnunar til ýmissa þátta. Upp-
lýsingar um veiðarnar og afla
fiskiskipa séu ónákvæmar, mæli-
skekkjur séu í vöktunarþáttum og
„reikniaðferðir þær sem notaðar
[séu muni] seint ná að fullu til
hins flókna samspils í lífríkinu og
[séu] óvissu háðar.“
Vísindamenn Hafrannsókna-
stofnunar hafa verið að átta sig á
því á undanförnum tveimur árum
að stærð þorskstofnsins hafi verið
ofmetin. Fyrir þær sakir ákvað
stofnunin að leita til hóps erlendra
og innlendra sérfræðinga eins og
áður hefur verið gert og fela hon-
um að fara yfir gögn, forsendur og
aðferðir við þorskveiðiráðgjöf.
Hópurinn kemst að ýmsum nið-
urstöðum og telur breytingar á
veiðanleika þorsks helstu ástæð-
una fyrir ofmati á stofnstærðinni.
Þorskurinn hafi árin 1997 og 1998
verið veiðanlegri en áður, en það
megi rekja til þess að sóknin hafi
minnkað verulega árin þar á und-
an.
Jóhann Sigurjónsson sagði á
blaðamannafundi um skýrsluna í
gær að það væri röng nálgun að
gefa sér að niðurstaðan væri 100%
rétt því gera yrði ráð fyrir tölu-
vert mikilli óvissu. Þetta hefur öll-
um verið ljóst og eru ekki ný tíð-
indi. Eftir þessa niðurstöðu er
óvissan hins vegar svo mikil að
erfitt er að segja til um á hverju
skuli byggja í framtíðinni. Að
fenginni reynslu fylgir því engin
vissa um að við séum á réttri leið
þótt farið sé eftir niðurstöðum og
ábendingum Hafrannsóknastofn-
unar. Trúverðugleiki Hafrann-
sóknastofnunar er í húfi og á
næstunni má búast við að fram
fari mat á því hvernig komið er og
hvað sé til bragðs.
Eftir útkomu þessarar skýrslu
er ljóst að sá áttaviti, sem farið
hefur verið eftir við ákvörðun
aflamarks á þorski, hefur ekki
gefið rétta stefnu og miðað við nú-
verandi forsendur er ekki vitað
hvernig á að rétta hana af.
Óneitanlega vekur það athygli
að nokkrir gagnrýnendur Hafró
undanfarin ár hafa haldið því fram
að koma myndi að þessum örlaga-
ríku þáttaskilum. Þeir hafa hins
vegar ekki fært sannfærandi rök
fyrir því á hverju skuli byggja
veiðiráðgjöf.
Framtíðarhagsmunir þjóðarinn-
ar eru í húfi og því miður hefur
sjaldan verið óljósara en nú
hvernig best verður staðið að
verndun fiskistofna á Íslandsmið-
um.