Morgunblaðið - 06.06.2001, Page 55

Morgunblaðið - 06.06.2001, Page 55
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 55 nokkur ár og síðar við Landspítalann í Reykjavík. Listamannseðlið var henni í blóð borið og var hún mjög fjölhæf og atorkusöm á því sviði. Í frístundum málaði hún og sótti þá gjarnan fyr- irmyndir í íslenskar þjóðsögur og stórbrotið landslag. Jafnframt vinnunni sótti hún námskeið í teikn- ingu. Hönnun tískufatnaðar fannst henni alltaf vera áhugaverð og var alla tíð dugleg að sauma og hanna fatnað fyrir sjálfa sig og fjölskyld- una. Það varð til að hún fór að læra klæðskerasaum og módelhönnun og stofnaði í framhaldi af því fyrirtæki í Svíþjóð og framleiddi fatnað fyrir tískuverslanir bæði hér heima og í Danmörku, Þýskalandi og Svíþjóð. Fyrirtækið vatt upp á sig og starfs- mönnum fjölgaði og hún bætti við framleiðslulínu fyrir ýmiss konar einkennisbúninga. Árið 1979 fluttum við foreldrar hennar með tvö yngstu börn okkar einnig til Svíþjóðar, vegna veikinda yngsta barns okkar. Þar bjó fyrir tví- burasystirin Ragnheiður, með börn- in sín þrjú, ásamt Sigríði, með sín tvö börn. Við bjuggum aldrei það langt hvert frá öðru að við gætum ekki hist af og til og eru þær samverustundir okkur ógleymanlegar. Rætur okkar Íslendinga liggja alltaf heima og árið 1995 hætti Sigga með saumastofuna og flutti aftur heim til ættjarðarinnar, eftir 16 ára fjarveru. Fyrst eftir heimkomuna starfaði hún, eins og áður segir, við Landspítalann. En meðfædd þrá hennar eftir listsköpun fylgdi henni öllum stundum. Hún hélt því áfram að mála í frístundum og þróa nýjar hugmyndir og nú var viðfangsefnið eftirlíkingar fatatísku íslenskra hefðarkvenna, frá fyrstu tímum Ís- landsbyggðar. Hún sagði því fljót- lega upp starfinu við Landspítalann og stofnaði lítið fyrirtæki ásamt nokkrum stallsystrum. Þær hönnuðu og steyptu postulínsbrúður, klæddar íslenskum þjóðbúningum, allt mjög vandað, handbróderað og meira að segja silfrið var ekta. Fljótlega jókst eftirspurnin og þessar brúður eru nú komnar víða um heim, m.a. á söfn. Ásamt brúðunum framleiddi hún fjölbreyttari listvörur og rak gallerí við Skólavörðustíg. Áðurnefnd veik- indi komu í veg fyrir að hún gæti unnið í fyrirtækinu og varð hún af þeirri ástæðu að hætta með það, en það var langt frá að sjálfsbjargarvið- leitnin væri þar með lömuð. Hún hófst þá handa með frábærar hug- myndir á sviði tölvutækni og jafn- framt því skrifaði hún ritgerðir eftir því sem orkan leyfði og á því endaði ævistarfið. Burt var hún kölluð langt um aldur fram full af lífslöngun og starfsgleði. Við samhryggjumst innilega börn- um hennar, dóttursyni og eftirlifandi eiginmanni. Rétt fyrir andlát sitt birtist hún mér, föður sínum, í draumsýn, þar sem hún söng fagurt íslenskt þjóð- lag. Það var okkur fyrirboði þess sem í vændum var. Móður sinni hef- ur hún birst í draumum, íklædd hvítu líni, tákni kristinnar trúar, friðar og kærleika. Við sem eftir lifum söknum henn- ar sárt, en hún lifir áfram meðal okk- ar í minningunni. Vertu sæl, elsku Sigga. Við for- eldrar þínir biðjum þess að algóður guð sé með þér og vaki yfir þér allar stundir. Kæra ljúfa litla stúlkan mín lokka prúð, mitt ljós í tilverunni. Svo fagurt margt í minningunni skín, mörg er gleðistund frá tilvist þinni. Ég bað til guðs að halda þér í hönd, heim þig leiða, blessa, yfir vaka. Guðs er máttur, guði allt í hönd, guði í vald að gefa eða taka. Nú er allt hljótt, ég hlýja strauma finn, hlusta eftir fóta taki þínu. Svo undur ljúf með ljós þitt læðist inn, og lýsir upp í hugarskoti mínu. Mamma og pabbi. Elsku Sigga mín, Það var sárt þegar systir okkar, tvíburasystir þín, sagði okkur hjónum að þú værir far- in úr þessum heimi. Edda og Ragna voru að ræða saman í síma þegar Kristín þín hringdi í Rögnu og sagði henni hvað hefði orðið. Daginn áður var svo sterk von um að þú værir að koma heim því allt gengi orðið ágæt- lega. Á örskoti flaug í gegnum hug- ann allt sem við ætluðum að gera saman þegar þér batnaði og allt sem ég ætlaði að hjálpa þér með. Þú hefur verið svo hörð af þér, systir mín, að alla vega ég gerði mér ekki grein fyrir hversu mikla erfið- leika þú hafðir gengið í gegnum und- anfarið og svo þegar þú varst lögð inn á sjúkrahús með úrskurð um krabbamein í lunga var mér, eins og örugglega mörgum öðrum, mjög brugðið. Ég er ákaflega þakklátur í dag að ég skuli hafa náð að vera með ykkur tvíburunum þar sem þið voruð saman á stofu og nutuð báðar að- hlynningar góðs fólks. Sú stund sem við áttum þrjú saman og allt var rætt sem upp í hugann kom, hvort heldur voru gamlar minningar eða núlíðandi stund, draumar eða veruleiki, gleði eða sorg. Seinna þennan dag vorum við ein á stofunni langa stund og fékk ég þá að taka þátt í þeim áhyggjum sem þú hafðir og finna það að öll þín orka beindist að þeim sem næst þér stóðu og hvernig þú gætir orðið þeim sem best að liði. Þú varst þreytt, en samt áttu allir aðrir hugann þinn. Það var erfið stund þegar þú ræddir um það að ekki væri öruggt að þú ættir afturkvæmt úr þessari aðgerð, en ég vona að ég hafi hlustað á þann hátt sem þú vildir og þú þráð- ir. Og svo hafðirðu mestar áhyggjur af því að í hönd færi erfiður tími fyrir þitt fólk. Ég vona innilega að mér hafi auðnast að vera eiginmanni og börnum þínum, í sjúkralegu þinni og þennan erfiða tíma sem nú er, það sem þú baðst mig um. Elsku Sigga, ég skil svo vel núna hvað þú áttir við þegar þú baðst um nærgætni, vernd og tíma fyrir þau og alla aðra, einnig tvíburasystur þína, þetta gæti orðið erfitt líka fyrir hana og foreldra okkar ef ekki næð- ist lækning á þínum veikindum. Það var svo mikil umhyggja hjá þér þennan dag, reyndar hefur svo alltaf verið, bara enn meiri núna. Elsku besta systir, það er svo erf- itt að sætta sig við að þú sért farin. Ég hélt saman öllum bréfasending- um og myndum af þér sem fóru á milli mín og allra þinna á meðan þú lást veik, ég ætlaði að sýna þér allt þegar þér mundi batna. Nú ertu farin en samt finnst okkur að þú sért enn nálæg. Það er svo margt sem kallar fram þessa tilfinn- ingu og hún er hjá öllum. Ég er búin að ætla mér í marga daga að skrifa minningargrein til þín en kvöldið áður en þessi orð eru skrifuð sendi maðurinn þinn mér póst þar sem hann segir hlutina frá sínu brjósti og sendi mér þessa mynd sem hér er með af þér. Eftir að ég hafði lesið bréfið hans nokkrum sinn- um og horft á myndina langa stund var ég ákveðinn í að frásögnin skyldi verða á þennan hátt. Þú sagðir mér frá því síðustu stundina okkar sam- an, að eftir aðgerð sem þú varst í á þarsíðasta ári og ekki vöknuð, var fólk að tala um þig en ekki við þig, rétt eins og þú værir ekki þarna hjá þeim. Þess vegna Sigga mín, skrifa ég til þín en ekki um þig. Ég veit að þú ert farin en samt ertu hér enn. Það er svo margt sem mig langar til að tala um við þig, margt sem mig langar til að segja þér frá, svo margt sem mig langar til að þú vitir, en nú veistu það líklega allt. Guð gefi að þér líði vel, systir mín, og að friður og ró sé umhverfis þig eins og ljósið sem þú horfir á. Besta minning sem við getum átt um þig er að lifa í sátt og samlyndi með ást og velvild í garð hvers ann- ars, því þannig léttum við áhyggjum af þínu brjósti og gefum þér frið í þínu hjarta þar sem þú er núna. Mér þykir svo vænt um þig, systir mín. Þinn bróðir, Jörundur. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.  "        " -        : '   9(*!* ;"#(     -  (*     "   +"   (   6(*  1,1 #  *# !!  ' $)  ') '#  !!  "!#   ')    )1" A  % ') ( ! $# ?< "" % * $  $" ""  * " (  2   "   ! ' !  "   * 9    ?    H  ! #1 ED #/0,+0 ,4 ,4 " #I "% H! "# H-"!!# H! "# J) H! "# " H! "# :! H! "#  %"!-/ '  "  ##8 # # ##8 **4 " *** )1  % !!  &0 J"8  < "$ "   $"  " ' * ! '!    *       "   #  9     !1-+1 DE #/0,+0 9 $  9  /(    22"     %-,      $"  " !(* !"  + 2 " #      !!  C " ?" -+!  !!  ("*#  +%" /+  !!  #  "!# "   #  !!  )! K " "!#  # " + ?+ ( !"  ? L-    90   B " +# ) < " $      $"   " ' *  "     *   "         "       &  )$# E7 #/0,+0 9 $  =5         "  &/        "           " 7      + 2 " #  ( !+ ? !!  #! ?  $" $+  $ !!     $ !!  #   )1"  * !-) )  # "  ") !-) !#$< !#$<" **4 " ***4 : $     $" "'  * ! '!   *    "        9 ,40 +0)-#CC )1   !!   +1)   !!  $+   !!  ')0) !!#!#! )1%))  " 2!   !!  #) +#" -# 1)   !!   -  '#"  )1)  "  ( !+ ) !!  **4 " ***4 < " $  "    $"  (     " '   *  ! '!   $"        *   "  -      "      ' ? #!)*# 6E. #/0,+0 3 K " )1)   !!  4!) $  ), " %  !!  "      " -             "        :  $ ( >    " + ( -  &(*  011  *,4 '# L0%  # "  )) !!  '41) # " ; ) !!  )1,  # "  +1)  % !!  **4 " ***4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.