Morgunblaðið - 06.06.2001, Síða 62
62 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
UMRÆÐAN um hvort Íslendingar
eigi að ganga í ESB hefur farið sí-
vaxandi á þessu ári. Ég vil hér með
hvetja alla Íslendingar til að hug-
leiða það í fullri alvöru hvort ekki sé
nauðsynlegt að stofna þverpólitísk
baráttusamtök gegn inngöngu í
ESB. Að mínu viti er ekki seinna
vænna að hefja baráttu um land allt
gegn því að Íslendingar gangi í ESB
og útskýra fyrir fólki hvað það þýði
að ganga í þetta bandalag. Sam-
kvæmt Rómarsáttmálanum, sem er
lög ESB, eru þau ríki sem ganga í
ESB skyldug til að veita öðrum að-
gang að fiskimiðum sínum og orku-
lindum. Slíkt er ekki unnt að sam-
þykkja. Að mínu áliti kemur það því
ekki til greina. Ég er ekki viss um að
allir hafi áttað sig á þessu, síst unga
fólkið. Þess vegna vil ég hvetja alla
þá sem eru mér sammála að bregð-
ast fljótt við og gangast fyrir stofnun
þverpólitískra samtaka. Ef við látum
þetta yfir okkur ganga er Lýðveldið
Ísland ekki lengur til nema á papp-
írnum.
Annað mál langar mig að minnast
á en það er margumrædd Kára-
hnjúkavirkjun. Ég vil leyfa mér að
skora á Landvernd og Náttúru-
verndarráð að stofna landssamtök til
verndar þeim náttúruperlum sem
eru á svæðinu norðan Vatnajökuls
svo að ekki komi til þess að þeim
verði sökkt undir vatn. Og ef Kára-
hnjúkavirkjunin verður að veruleika
eru stór landflæmi meðfram Lagar-
fljóti sem fara líka undir vatn. Svo er
að líta á þann gífurlega kostnað sem
fylgir þessum stórframkvædum.
Sumir hafa nefnt 70 milljarða aðrir
100 milljarða. Skuldir íslenska rík-
isins eru nú þegar orðnar það gíf-
urlega miklar að síst er á það bæt-
andi. Síðastliðið ár jukust þær
samkvæmt skýrslu Seðlabankans
um 13%. Ef Kárahnjúkavirkjunin
verður staðreynd held ég að Ísland
verði gjaldþrota, og hvað gerist þá?
Svo eru þessi gífurlegu landspjöll.
Talið er að um 100 hektarar af grónu
landi fari undir uppistöðulón á há-
lendinu fyrir utan það landflæmi
meðfram Lagarfljóti og hugsanlega
flugvöllurinn líka. Ég spyr, hefur
það verið fullkannað? Það væri rot-
högg á byggðina á Austurlandi ef
svo færi. Ég tel að Austfirðingar
ættu að sameinast um að koma hér á
Egilsstöðum upp beinu millilanda-
flugi, áætlunarflugi, það gæti orðið
mikil lyftistöng fyrir ferðamanna-
þjónustuna og hafa frumkvæði að
því að friðlýsa allt víðernið norðan
Vatnajökuls. Ef af því gæti orðið
myndi það eitt skapa mörg störf en
sennilega yrði að byggja stórt hótel
til þess að geta tekið á móti stór-
auknum ferðamannastraumi. Ég
geri mér grein fyrir því að þetta
kostar allmikið fé en það er þó ekki
nema örfá prósent af því sem Kára-
hnjúkaævintýrið mun kosta. Mér
finnst enga nauðsyn bera til að allir
erlendir ferðamenn sem koma til
landsins fari um suðvesturhornið og
aki svo með rútubílum vestur, norð-
ur og austur um land. Ég hygg að
margir ferðamenn sem koma til
landsins gætu sparað sér talsverðan
pening með beinu flugi til Egilsstaða
og með því hugsanlega aukið líkur á
fjölgun ferðamanna til landsins. Með
því mætti slá tvær flugur í einu
höggi, ef búið væri að stofna þjóð-
garð norðan Vatnajökuls. Fyrir
stuttu var birt viðtal við Friðrik
Sophusson og fleiri frá Landsvirkj-
un í sjónvarpinu og þá vildi hann
ekki segja frá því hvað þessi virkjun
mundi kosta og ekki heldur frá
væntanlegu verði á raforkunni sem
Álverksmiðjan þyrfti að greiða.
Hann sagði þó að það myndi verða
svipað og álverksmiðjan í Straums-
vík greiddi. Þarna fannst mér hann
koma illa upp um sig.
Fyrir mörgum árum samdi ríkið
um raforkuverið, þá var samið um að
ef álverðið lækkaði þá skyldi orku-
verðið lækka að sama skapi. Þetta er
slíkt reginhneyksli að það trúir því
varla nokkur heilvita maður. Þar
með tók íslenska ríkið á sig hluta af
skellinum. Friðrik afsakaði sig með
því að þetta væri trúnaðarmál.
Fyrir tveimur eða þremur árum
var fullyrt af sömu aðilum að verð á
hverja kílóvattstund þyrfti að vera
1,40 krónur.
SIGURÐUR LÁRUSSON,
Árskógum 20, Egilsstöðum.
Íslendingar
mega aldrei glata
sjálfstæði sínu
Frá Sigurði Lárussyni:
ÞEGAR ég sá mynd í Fréttablaðinu
föstudaginn 18. maí sl. af manni í
fremur litlum nærbuxum, sem voru
með íslenska fánann á klofbótinni,
rifjaðist upp fyrir mér atvik, sem átti
sér stað fyrir mörgum árum. Þannig
var að móðir mín hafði prjónað ís-
lenska fánann sem teppi, sem var
mjög fallegt. Foreldrar mínir bjuggu
þá í Skerjafirði. Einn dag þegar hún
er að viðra teppið kemur maður til
hennar og spyr hana hvort hún eigi
þetta teppi, hún játar því. Það skipti
ekki togum, hann skipar henni, að
taki hún ekki umsvifalaust teppið nið-
ur muni hún hafa verra af, því hann
muni kalla lögregluna til, þetta sé svo
mikil vanvirða við fánann!! Móðir
minni varð svo mikið um að hún
brenndi teppið.
Nú spyr ég. Hvað með þennan
fræga ljósmyndara, Ara Magg, sem
sýnir íslenska fánann eiginlega á klof-
bót. Finnst fánanefnd eða forsætis-
ráðuneytinu, sem hefur með lög og
reglur fánans að gera, það viðeigandi?
SIGRÍÐUR Þ.
ÞORLÁKSDÓTTIR,
Lindargötu 57, Reykjavík.
Íslenski fáninn
Frá Sigríði Þ. Þorláksdóttur: