Morgunblaðið - 06.06.2001, Side 65

Morgunblaðið - 06.06.2001, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 65 DAGBÓK LJÓÐABROT Frjálst er í fjallasal Frjálst er í fjallasal, fagurt í skógardal, heilnæmt er heiðloftið tæra. Hátt yfir hamrakór himinninn, blár og stór, lyftist með ljóshvolfið skæra. Hér uppi í hamraþröng hefjum vér morgunsöng, glatt fyrir góðvætta hörgum: Viður vor vökuljóð vakna þú, sofin þjóð! Björt ljómar sól yfir björgum. Er sem oss ómi mót Íslands frá hjartarót bergmálsins blíðróma strengir. Söngbylgjan hlíð úr hlíð hljómandi, sigurblíð, les sig og endalaust lengir. Steingrímur Thorsteinsson Árnað heilla 70 ÁRA afmæli. Krist-ján Sigtryggsson, fyrrverandi skólastjóri og organisti, verður sjötugur föstudaginn 8. júní. Kona hans er Sigrún Guðmunds- dóttir. Þann 8. júní tekur af- mælisbarnið og Kór Ás- kirkju á móti gestum með tónleikum í Áskirkju kl. 20. Sóknarnefnd Áskirkju býð- ur til kaffisamsætis á eftir í safnaðarheimili kirkjunnar. FJÓRIR spaðar vinnast í NS með bestu spilamennsku og vörn, en samningurinn er þó ekki eins einfaldur viður- eignar og virðist við fyrstu sýn. Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ Á53 ♥ D9 ♦ 764 ♣ DG1073 Vestur Austur ♠ K ♠ G4 ♥ ÁK107 ♥ G8642 ♦ K10952 ♦ G3 ♣ 852 ♣ K964 Suður ♠ D1098762 ♥ 53 ♦ ÁD8 ♣ Á Vestur Norður Austur Suður – – – 1 spaði 2 tíglar 2 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Spurningin er þessi: Hver er besta vörn vesturs og hvernig á suður spila til að mæta henni? Byrjum á byrjuninni: Vestur kemur út með hjartaás. Með gosann fimmta kallar austur í litn- um til að segja makker að óhætt sé að taka á kónginn líka. Vestur gerir það, og nú ætti austur að setja sitt lægsta hjarta í viðleitni til að vara makker við að spila tígli. Ef við setjum okkur í spor vesturs, sjáum við að hann gæti freistast til að spila tígli í þeirri von að makker eigi drottninguna, því laufið í borði er mjög ógnvekjandi. Hjartafylgju austurs í öðrum slag ber því að túlka sem hliðarkall. Lægsta spilið vísar á laufið, en varar þó umfram allt við tígli. Ef vestur treystir makker sínum spilar hann ekki tígli. En lauf er gagnslaust. Suð- ur fær á laufás, spilar spaða (ekki tvistinum) á ásinn, trompsvínar í laufi og kemst síðan inn á spaðafimmu til að taka laufslagina: yfirslag- ur. Vestur getur hins vegar gert sagnhafa erfitt fyrir með því að spila spaðakóng í þriðja slag! Ef sagnhafi drepur strax, vantar hann innkomu í borð síðar til að nýta laufið og gefur á end- anum tvo tígulslagi. En sagnhafi á skemmtilegt svar við þessari beittu vörn – hann dúkkar spaðakónginn! Vestur spilar laufi, en nú á sagnhafi tvær innkomur á tromp til að fría laufið og nota það. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 50 ÁRA afmæli. Fimm-tug verður á morgun Hrönn Heiðbjört Eggerts- dóttir, Skagabraut 41 á Akranesi. Hún hefur af því tilefni opið hús fyrir sam- starfsfólk, ættingja og vini að Miðgarði, Innri-Akranes- hreppi, á afmælisdaginn frá kl. 19 – 23. Hattar eða annar höfuðfatnaður æskilegur en ekki skilyrði! STAÐAN kom upp á ofur- mótinu í Astana í Kasakstan er lauk fyrir skömmu. Heimsmeistarinn Vladimir Kramnik (2.802) hafði hvítt gegn Darmen Sadvakasov (2.580). 19. Rxf7! Hxf7 20. Dxf5! g6 Hvorki gekk upp að leika 20. ... Hxf5 21. Hd8# né heldur 20. ... Bxb2 21. Hd7 og hvítur vinnur. 21. Bxe5 og svartur gafst upp enda staða hans að hruni kom- in. Skákin tefldist þannig í heild sinni: 1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. Rf3 Rf6 4. e3 e6 5. Bxc4 c5 6. 0-0 a6 7. a4 Rc6 8. De2 Dc7 9. Hd1 Bd6 10. dxc5 Bxc5 11. b3 0-0 12. Bb2 e5 13. Rc3 e4 14. Rg5 Bd6 15. Rd5 Rxd5 16. Hxd5 Bxh2+ 17. Kh1 Be5 18. Dh5 Bf5 o.s.frv. Lokastaða mótsins varð þessi: 1. Gary Kasparov 7 v., 2. Vladimir Kramnik 6½ v., 3. Boris Gelfand 5½ v., 4.-5. Alexei Shirov, Alexander Morozevich 4½ v.,6. Darmen Sadvakasov 2 v. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Sjáðu mamma, ég fann tvær bláfjólur. COSPER MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Vönduð vasaúr með loki. Verðmæt tímamótagjöf. Úrin eru fáanleg úr 18 karata gulli,18 karata gullhúð eða úr silfri. Sjáum um áletrun. Garðar Ólafsson úrsmiður, Lækjartorgi, s. 551 0081. VASAÚR MEÐ LOKI Falleg úr við íslenska hátíðarbúninginn Tilvalin útskriftargjöf Verð frá kr. 4.620. Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, s. 562 2862 ÍTALSKUR SUMARFATNAÐUR STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake TVÍBURAR Afmælisbarn dagsins: Þú lætur engan hnika þér af réttri leið og þess vegna leita menn oft til þín um úrlausn mála sinna. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það standa á þér öll spjót og þú átt erfitt með að bera af þér lögin. Farðu í gegn um málin lið fyrir lið og gríptu til viðeigandi ráðstafana. Naut (20. apríl - 20. maí)  Reyndu að ná þeim áhrifum að þú getir opnað þér nýjar leiðir í leik og starfi. Mundu bara að hafa aldrei rangt við í leitinni að réttu leiðinni. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það er ekki víst að þínir nán- ustu skilji hvað fyrir þér vak- ir svo þú skalt gefa þér góð- an tíma til að útskýra málin. Þá fer allt vel. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þér finnst erfitt að sætta þig við þær væntingar, sem þér finnst fólk gera til þín. Láttu þær engin áhrif hafa, heldur haltu þínu striki. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Svo virðist sem þú hafir ekki komið öllum þínum persónu- legu málum í höfn. Leggðu þig því enn betur fram og þú munt uppskera laun erfiðis þíns. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú hefur tekið ýmislegt að þér og verður auðvitað að standa við gefin loforð. Gefðu bara ekki fleiri fyrir- heit á meðan þú ert að hreinsa borðið. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þótt þú hafir sett markið hátt er engin ástæða til að ætla annað en þér takist að ná því. Sýndu þolinmæði, þótt þú þurfir fleiri atrennur en eina. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ert að velta fyrir þér við- urhlutamiklu efni og þarft ekki að örvænta, þótt lausnin liggi ekki í augum uppi. Hugsaði bara málið svolítið betur. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Lánið leikur við þig og þú átt svo sannarlega skilið að njóta árangurs erfiðis þíns. Mundu bara eftir þeim sem lögðu hönd á plóginn með þér. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Lukkan er fallvölt, við því skalt þú búast. En ef þú ger- ir þitt besta ættu hlutirnir að ganga upp hjá þér og veita þér varanlega uppreisn æru. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þröngsýni er stórhættuleg. Temdu þér viðsýni og reyndu að sjá hlutina frá fleiru en einu sjónarhorni áð- ur en þú gerir upp hug þinn. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Hafðu augun hjá þér og reyndu að sjá öll þau merki, sem lífið gefur. Þótt ekkert sé að hjá þér, vísa þau þér samt til enn betri vegar Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi ályktun frá kenn- urum Tónlistarskólans í Reykja- vík: „Vegna yfirstandandi viðræðna tónlistarkennara og launanefndar sveitafélaganna senda kennarar Tónlistarskólans í Reykjavík frá sér eftirfarandi ályktum: Laun tónlistarkennara eru langt undir launum annarra kennara, þótt flestir þeirra hafi háskólamenntun að baki. Í starfinu felst mikil sér- þjálfun og við krefjumst þess að þetta verið leiðrétt og laun tón- listarkennara hækkuð umtals- vert. Stór hluti þjóðarinnar nýtir sér tónlistarnám og tónlist. Til að tryggja gott tónlistarlíf í landinu verður uppeldi tónlistarmanna að vera í höndum færustu kennara. Til þess að svo megi verða, þurfa þessi störf að vera launuð með hliðsjón af menntun og reynslu þeirra. Á því er nú mikill mis- brestur og er það eindregin krafa okkar að úr því verði bætt í yf- irstandandi kjarasamningum.“ Launin langt undir launum annarra kennara GILWELL-NÁMSKEIÐ verður haldið á Úlfljótsvatni 11.–19. ágúst. Gilwell-þjálfunin tekur u.þ.b. 9 mánuði og skiptist í bóklegt og verk- legt námskeið, verklegt og bóklegt nám í fjarkennslu að námskeiði loknu. Meðal atriða sem fjallað er um á námskeiðinu eru siðir og venjur skátahreyfingarinnar, skyndihjálp, útilíf, náttúruskoðun, náttúruvernd, áætlanagerð, frumbyggjastörf, vímu- og fíknivarnir, útieldun, markferðir, stjórnun skátasveita, menntastefna skátahreyfingarinn- ar, verkefnagrunnur skátahreyfing- arinnar og foreldrasamstarf. Skóla- stjóri Gilwell-skólans er Sigurður Júlíus Grétarsson dósent. Skráning á námskeiðið er á skrifstofu BÍS fyr- ir 1. júlí eða á Skátavefnum www.- scout.is. Gilwell-námskeið á Úlfljótsvatni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.