Morgunblaðið - 06.06.2001, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2001 73
AKUREYSKA hljómsveitin Tvö
dónaleg haust heldur tónleika á
Gauki á Stöng í kvöld.
Sveitin sú hefur vakið athygli
undanfarið fyrir líflega sviðs-
framkomu þar sem þeir taka jafnan
vel þekktar lummur í nýjum, hressi-
legum og létt pönkuðum útsetn-
ingum. Í kvöld gefst hinvegar færi á
því að sannreyna hvort sveitinni
takist eins vel upp þegar þeir bera á
borð eigin lagasmíðar. Í samtali við
Morgunblaðið sagði Sigfús Ólafsson,
hinn geðþekki trommuleikari sveit-
arinnar, að þeir félagar væru nefni-
lega búnir að safna í sarpinn hellingi
af frumsömdum lögum og kominn
tími til að láta vaða. Hljómsveitin er
búin að hljóðrita allnokkur þessara
laga með Rafni Jónssyni og á nú til
efni á heila plötu, sem ætti að líta
dagsins ljós á árinu, en þar færi
sjálfur frumburðurinn.
Sigfús vill þó koma því á framfæri
að gömlu góðu tökulögin fái að sjálf-
sögðu að fljóta með inn á milli.
Aðspurður um tónlist Tveggja
dónalegra hausta kýs Sigfús að skil-
greina hana sem gleðipönk, sem eigi
sér rætur í tónlist níunda áratugar-
ins; Duran Duran, Alphaville og
jafnvel Falco heitinn séu t.d. í mikl-
um metum.
Gamlir og nýir liðsmenn Tveggja dónalegra hausta.
Dónaskapur á Gauknum
LEIKARINN Anthony
Quinn lést á sunnudaginn,
86 ára að aldri. Á hátt á sjö
áratuga löngum ferli lék
Quinn í yfir 150 kvikmynd-
um en hans kunnustu hlut-
verk eru þó trúlega Grikk-
inn Zorba í samnefndri
mynd frá 1964, sem bedúín-
inn Auda abu Tayi í Arabíu-
Lawrence frá 1962 og byltingarhetj-
an Zapata í vestranum Viva Zapata!
frá 1954. Hlaut hann önnur sinna
tvennu Óskarsverðlauna fyrir síðast-
nefndu myndina en hin hlaut hann ár-
ið 1957 fyrir aukahlutverk sitt í mynd-
inni Lust For Life.
Quinn fæddist í Mexíkó árið 1915,
barn hálf-írsks föður og
mexíkóskrar móður og gat
sér fljótt orð í Hollywood
fyrir að geta brugðið sér í
allra kvikinda líki. Eftir að
hafa unnið fyrir sér sem
hnefaleikakappi komst
hann að sem liðtækur óvin-
ur, indíáninn í fjöldafram-
leiddum vestrum, en er nafn
hans varð þekktara urðu hlutverkin
fjölbreyttari. Quinn var þrígiftur og
skildi eftir sig 13 börn. Minningarat-
höfn verður haldin á næstu dögum í
Bandaríkjunum en síðan verður upp-
fyllt ósk hans um að öskunni verði
dreift yfir fæðingarstaðinn, gil í norð-
urhluta Chihuahua-ríkis í Mexíkó.
Leikarinn Anthony Quinn er látinn
Grikkinn Zorba kveður
Kringlunni 4 - 6, sími 588 0800
EINA BÍÓIÐ MEÐ
THX DIGITAL Í
ÖLLUM SÖLUM
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16. Vit nr 238.
Ástin hefur aldrei verið svona
ógnvekjandi!
Frábær hrollvekja sem heldur þér á
sætisbrúninni fram á síðustu stundu með ofur-
skutlunni Denise Richards (James Bond: The
world is not enough) í aðalhlutverki.
www.sambioin.is
Undrahundur
inn SPOT
slær í gegn í
frábærri
grínmynd í
anda Big
Daddy
Sá snjalli er
buxnalaus!
Pokemom 3
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Vit nr. 231Sýnd kl. 4 og 6. Vit nr 236.
Exit wonds
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16 ára Vit nr. 223
102 DALMATÍUHUNDAR
Sýnd kl. 4. ÍSL TAL. VIT NR.213
FORSÝNING
VISA FORSÝNING
eingöngu fyrir VISA korthafa
kl.8.
Snorrabraut 37, sími 551 1384
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Ástin hefur aldrei verið svona ógnvekjandi!
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16. Vit nr 238.
www.sambioin.is
Strik.is
HL.MBL
Tvíhöfði
SG DV
Sýnd kl. 6 og 8.30. B. i. 16. Vit nr. 201. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i.14. Vit nr 220.
Jane vantaði
herbergisfélaga
en það sem hún
fékk var meiri
maður en hana
hafði órað fyrir!
Frábær rómantísk gamanmynd
um hegðun karlmanna og það sem
kemur þeim til.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl.6, 8 og 10.
Tveimur fremstu njósnurum heims hefur verið rænt
og aðeins börnin þeirra geta bjargað þeim!
3 vikur á
toppnum í USA
Sannir spæjarar...bara aðeins minni
Frábær fjölskyldu og
ævintýramynd
Sýnd kl. 6 . Ísl. tal.
Sýnd kl. , 8 og 10
B. i. 12. Sýnd kl. 10.
STEGGJAPARTÝIÐ ER HAFIÐ!