Morgunblaðið - 22.06.2001, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.06.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Meistarar United hefja titilvörnina gegn Fulham /C4 KR og Fylkir gerðu markalaust jafntefli/C3 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR Sérblöð í dag Á FÖSTUDÖGUM HÆSTIRÉTTUR sneri í gær við dómi Héraðsdóms Reykjaness frá 19. desember sl. og sýknaði Stálskip ehf. af 192 milljóna kr. skaðabóta- kröfu Ottós Wathne ehf. Héraðs- dómur hafði dæmt stefnanda máls- ins, Ottó Wathne ehf., rúmar 180 milljónir króna úr hendi Stálskipa en málið höfðaði stefnandi nokkrum ár- um eftir að hann seldi stefnda skut- togarann Ottó Wathne NS 90 árið 1994. Taldi stefnandi m.a. að stefndi hefði einungis keypt af sér skipið eitt og sér en ekki þau réttindi sem síðar hafi fallið skipinu í skaut. Þar sem í kaupsamningi sagði að engar afla- heimildir fylgdu með í kaupunum var það mat héraðsdóms að stefn- anda bæri þær aflaheimildir sem skipinu var úthlutað á grundvelli veiðireynslu þess meðan það var í eigu stefnanda. Í dómi héraðsdóms sagði að sam- kvæmt hæstaréttardómi frá 28. janúar 1999 skipti ekki máli þótt stefnandi hafi ekki átt fiskiskip á þessum tíma, þ.e. er stefndi fékk út- hlutað aflahlutdeild í úthafskarfa á Reykjaneshrygg 1997 og aflahlut- deild í þorski í Barentshafi. Taldi héraðsdómur að stefnandi hefði orð- ið fyrir tjóni sem svaraði til hinna umdeildu aflaheimilda í viðskiptum. Veiðar utan lögsögunnar öllum frjálsar við gerð kaupsamnings Í dómi Hæstaréttar kemur m.a. fram að úthafskarfaveiðar á Reykja- neshrygg og þorskveiðar í Barents- hafi hefðu ekki sætt takmörkum stjórnvalda þegar kaupsamningur var gerður. Veiðar utan fiskveiðilög- sögunnar hefðu verið öllum frjálsar og réttindi til úthlutunar aflahlut- deildar í þeim veiðum hefðu komið til tæpum þremur árum eftir gerð kaupsamningsins og leiddu af skerð- ingu á því frelsi sem áður ríkti. Hæstiréttur taldi að áfrýjandi, Stálskip ehf., hefði ekki auðgast á kostnað stefnda, Ottó Wathne ehf. Taldi dómurinn að stefndi gæti ekki á grundvelli kaupsamnings aðila byggt rétt til skaðabóta á því að áfrýjandi hefði með óréttmætum hætti haldið fyrir honum aflahlut- deild og aflamarki því sem hann fékk úthlutað vegna skerðinga á úthafs- veiðum 1997 og 1999. Þá yrði krafa ekki heldur reist á því að áfrýjandi hefði auðgast á kostnað stefnda vegna þess að veiðireynsla stefnda árið 1993 nýttist honum við úthlutun stjórnvalda lögum samkvæmt og tapaði því engum réttindum við nýt- ingu áfrýjanda. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Guðrún Erlendsdóttir, Harald- ur Henrysson, Hrafn Bragason, Garðar Gíslason og Markús Sigur- björnsson. Tveir síðastnefndu skil- uðu sératkvæði og töldu að staðfesta ætti dóm héraðsdóms og dæma áfrýjanda til greiðslu rúmlega 177 milljóna króna. Í sérálitinu kemur m.a. fram að þegar komið hafi til takmarkana á sókn íslenskra fiski- skipa í stofna utan lögsögunnar hefði áfrýjandi þannig að öðru óbreyttu ekki mátt vænta þess að njóta afla- heimilda á grundvelli annars en veiðireynslu sem fengist hefði af skipinu í hans eigin útgerð. Sú hefði á hinn bóginn ekki orðið raunin enda kallaði áfrýjandi sjálfur eftir aukn- um aflaheimildum í skjóli þeirra veiða sem stefndi hafði stundað á skipinu meðan það tilheyrði honum. Með því hefði áfrýjandi tekið til sín ávinning af því hvernig stefnda hefði tekist til um veiðar á sínum vegum. Útgerðarfélag sýknað af 192 milljóna króna skaðabótakröfu LITLU munaði að illa færi í gær þegar kviknaði í stofugardínu í íbúð í Hafnarfirði út frá kerti. Gunnhildur Gunnarsdóttir, sem þarna býr, þakkar reykskynjara sem hún fékk að gjöf frá Sjóvá- Almennum að ekki fór verr. Að sögn Gunnhildar fékk hún um mánaðamótin febrúar/mars tilboð frá Sjóvá-Almennum þar sem fyr- irtækið vildi benda henni á mik- ilvægi þess að vátrygging- arfjárhæð innbúsins væri í samræmi við raunverulegt verð- mæti þess. Þeir buðu henni m.a. að hækka vátrygginguna gegn því að hún fengi 50% afslátt á viðbót- ariðgjöldum fram að næstu end- urnýjun. „Með tilboðinu fékk ég rafhlöðu og eftir að ég hafði ákveðið að taka því sendu þeir mér reykskynj- arann,“ segir Gunnhildur og bætir við að um tvær til þrjár vikur séu síðan hún hafi fengið reykskynj- arann. Þegar hún er innt eftir tildrögum slyssins segist hún hafa verið ásamt vinkonu sinni inni í eldhúsi og allt í einu hefði reykskynjarinn farið að pípa. Þegar þær komu inn í stofuna logaði glatt í gardínunni. „Við rétt náðum að slökkva eldinn í gard- ínunni, það munaði ekki miklu að það hefði farið illa. Ég vil nota tækifærið og hvetja landsmenn til að nota reykskynjara,“ segir hún og bætir enn fremur við að í kring- um ár sé síðan hún flutti í íbúðina sína og það hafi verið trassaskapur að vera ekki búin að fjárfesta í reykskynjurum fyrr. Skemmdir urðu ekki miklar, gardínan eyðilagðist sem og gluggapóstur. Morgunblaðið/Golli Gunnhildur Gunnarsdóttir ásamt dóttur sinni, Auði Evu, við stofugluggann. Þakkar reykskynjar- anum að ekki fór verr SETTAR hafa verið í landbúnaðar- ráðuneytinu tvær reglugerðir sem kveða á um að enginn tollur skuli lagður á nokkrar grænmetistegund- ir tímabundið fram til næstu ára- móta og gildir það bæði um magn- og verðtolla. Meðal þeirra grænmetistegunda sem þarna er um að ræða má nefna lauk, jöklasalat, hvítlauk, rósakál, ertur, önnur salöt, spergil, spínat, sykurmaís, ólífur, steinselju og fleira. Guðmundur Helgason, ráðuneyt- isstjóri í landbúnaðarráðuneytinu, sagði að setning þessara reglugerða væri enginn endapunktur á þeirri vinnu sem stæði yfir í landbúnaðar- ráðuneytinu hvað varðaði fyrir- komulag á tollum á innflutning grænmetis. Starfshópurinn sem landbúnaðarráðherra hefði skipað til að yfirfara þau mál héldi áfram störfum en það myndi taka lengri tíma að fá niðurstöðu í þeim efnum. Jöklasalat og laukur án tolla til áramóta HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær Ás- geir Inga Ásgeirsson í 16 ára fangelsi fyrir að hafa banað Áslaugu Perlu Kristjónsdóttur við Engihjalla í Kópavogi hinn 27. maí 2000. Með dómi Hæstaréttar var refsing ákærða þyngd um 2 ár en fyrir héraðsdómi hlaut ákærði 14 ára fangelsi. Jafn- framt hækkaði Hæstiréttur miska- bætur til foreldra hinnar látnu um 400 þúsund krónur og dæmdi þeim 1,6 milljónir króna úr hendi ákærða auk rúmlega 538 þúsund króna vegna út- fararkostnaðar. Hæstiréttur taldi hafið yfir skyn- samlegan vafa að ákærði hefði banað Áslaugu Perlu með því að koma henni fram af svölum 10. hæðar fjölbýlis- hússins í Engihjalla 9. Atlaga hans að stúlkunni í kjölfar samfara sem rofn- ar voru eftir hennar kröfu, og svívirð- inga af hans hálfu, hefði verið snörp og aflmikil en hún hefði ekki haft svig- rúm eða getu til að verjast henni. „Það er ljóst af álitsgerðum dóm- kvaddra matsmanna að ákærði hefur þurft að fylgja hrindingu sinni eftir með verulegum krafti. Telja verður fullvíst að það hafi hann einmitt gert,“ segir í dómi Hæstaréttar. Í dóminum segir enn fremur að ákærða hljóti að hafa verið ljóst að svo ofsafengin at- laga við jafnhættulegar aðstæður og raun var á myndi óhjákvæmilega leiða til dauða Áslaugar Perlu. Hefði hann því orðið sekur um háttsemi sem réttilega væri færð undir 211. gr. almennra hegningarlaga. Samkvæmt dóminum kemur óslitið gæsluvarðhald ákærða frá 28. maí 2000 til frádráttar refsingunni. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómararnir Haraldur Henrysson, Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Bene- diktsdóttir og Pétur Kr. Hafstein og Stefán Már Stefánsson prófessor. Hæstiréttur þyngir refsingu vegna manndráps við Engihjalla Ákærði var dæmdur í 16 ára fangelsi ÁREKSTUR varð á hringveginum við Dvergastein í Eyjafirði í gær- kvöldi og var einn maður fluttur á slysadeild með minni háttar áverka að sögn lögreglunnar á Akureyri. Tildrög slyssins voru þau að bif- reið var ekið aftan á aðra bifreið sem var að beygja út af veginum til vinstri. Ökumaður fremri bílsins var fluttur á slysadeild en áverkar reyndust minni háttar og farþegi í bílnum slapp ómeiddur. Ökumaður og farþegar hins bílsins sluppu ómeiddir. Báðir bílarnir skemmdust tölu- vert og þurfti að draga þá í burtu með kranabíl. Árekstur við Dvergastein
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.