Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 60
FÓLK Í FRÉTTUM 60 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRIAN Wilson, Peter Green, jafnvel Prince: Allir eiga þessir listamenn það sameiginlegt að hafa verið kall- aðir „brjálaðir snillingar“ á einum eða öðrum tíma; sumir jafnvel stimplaðir sem slíkir fyrir fullt og allt. Einn er þó sá maður sem toppar þá alla í þessum smáa en þó hópdýrkunarvæna geira. Allt síðan Syd Barrett gekk bókstaf- lega af göflunum og þar með úr Pink Floyd, sveitinni sem hann stofnaði og leiddi framan af, hefur persóna hans og list verið sveipuð áru hins undar- lega og óræða. Hann er sannarlega frummynd hins „brjálaða snillings“ hvað dægurtónlistina varðar. Fyrir stuttu kom út safnplatan Wouldn’t You Miss Me: Best Of Syd Barrett, sem tekur yfir einyrkjaferil Barretts. Fyrsta plata Pink Floyd, The Piper At The Gates Of Dawn (1967) þykir marka tímamót í rokktónlistarsög- unni og er eitt af meistaraverkum sýrurokksins. Á þeirri plötu var Barr- ett kafteinninn í brúnni, samdi lung- ann af lögunum og stýrði allri hug- myndafræði með styrkri hendi. Ári síðar fór hugur hins sérvitra Barrett að hökta og haltra; hegðan hans varð æ furðukenndari og fór svo að lokum að hann var rekinn úr sveitinni. Barr- ett dró sig þá fljótlega inn í skel þar sem hann hefur í raun og réttu verið síðan. Barrett sneri aftur árið 1970 með tvær plötur í farteskinu, The Madcap Laughs og Barrett, en það urðu einu breiðskífurnar sem hann lét eftir sig á örstuttum einyrkjaferli. Þar naut hann dyggrar aðstoðar æskuvinar síns og síðar hljómsveitarfélaga - sem svo leysti hann alfarið af - David Gilmour (Gilmour hefur lítið séð af Barrett í seinni tíð en segist þó fylgj- ast með því að stefgjaldamál og slíkt sé í öruggum farvegi). Téð safnplata byggist á þessum tveimur skífum en þar er og að finna lög sem prýddu Opel, safnplötu með áður óútgefnu efni sem kom út árið 1988, og hið mjög svo eftirsótta lag „Bob Dylan Blues“, en það hefur aldrei verið gefið út opinberlega áður. Barrett býr nú í Cambridge við einfaldan kost, á tímabili starfaði hann við póstburð en í dag einbeitir hann sér að garðyrkjustörfum. Hann hefur ekki snert við hljóðfæri í ára- tugi. Safnskífa með Syd Barrett Sá skrýtni skellihlær Barrett: Brjálaður snillingur. flottasti, ekki beint verið í tísku. Það má því líta á útgáfuna sem nýj- asta og eitt skýrasta dæmið um að tískan og trendin fara í stöðuga hringi. Auk þeirra sem þegar hafa verið nefndir eiga m.a. lög á plötunni Kelis Montell Jordan sem tekur „Against All Odds“ úr samnefndri bíómynd og Brian McKnight sem syngur „I Wish It Would Rain Down“. Listamennirnir eiga það sameiginlegt að tilheyra allir svo- kölluðum R&B-geira og allir hafa þeir lýst yfir aðdáun sinni á laga- smíðum Collins og telja hann til áhrifavalda sinna. Túlkanirnar eru misjafnlega djarfar, eins og gengur og gerist. Sumar eru allfyrirsjáan- legar en í öðrum, sbr. „Sussudio“ bastarðsins aldna og sóðalega, eru slóðirnar ekki eins troðnar. Sjálfur kom Collins ekkert að út- gáfunni en segist hrærður yfir því að slíkt hæfileikafólk skuli eyða tíma og orku í verk sín: „Einhver sagði að þessi plata myndi sýna fram á að það kunni vel að vera að ég sé aðeins svalari náungi en gagnrýnendur hafa gert því skóna í gegnum árin.“ „EFTIRFARANDI er stutt próf. Nefnið þrjú laga Phil Collins. Syng- ið nú viðlögin. Ekki mjög erfitt, er það? Það sem hinsvegar er mun erfiðara en flestir gera sér grein fyrir er að semja slík lög. Lög sem fá alla heimsbyggðina til þess að taka undir. Phil Collins er einn þeirra fágætu hæfileikamanna sem hefur á þriggja áratuga ferli sín- um, bæði með Genesis og sem sóló- listamaður, samið stöðugan straum sígildra laga sem daðrað hafa jafn- hæglega við popp, rokk og R&B tónlist.“ Þetta eru inngangsorðin í veglegri kápu sem fylgir nýútkom- inni safnplötu þar sem nafntogaðir R&B listamenn af yngri kynslóð- inni spreyta sig á nokkrum af frægustu lögum Bretans snagg- aralega Phil Collins. Gripurinn heitir UR: Urban Renewal og er fyrsta smáskífan af plötunni þegar farin að tröllríða útvarps- og sjónvarpsstöðvum en það er túlkun systkinanna Brandy og Ray J. á „Another Day In Para- dise“, sýnar Collins á eymdarlíf úti- gangsfólks á strætum stórborg- anna. Þeir eru vafalítið fáir sem ætl- uðu vart að kaupa fyrstu fregn- irnar sem bárust af því að þessu út- gáfa væri í vændum. Þá þegar hafði ólátabelgurinn Ol’ Dirty Bastard úr Wu-Tang-Clan ákveðið að glíma við slagarann hressilega „Sussudio“ og Lil’ Kim rappað í kringum gamla „In The Air To- nite“. Þótt Collins karlinn hafi ætíð selt mikið af plötum þá hefur hann nefnilega ekki alveg þótt sá allra R&B-listamenn föndra við Phil Collins Eitthvað sem allir kunna Reuters Phil Collins loks orðinn svalur?                         !  " #   $% &  ! ' !  (  ) * # + + ,  - ( ,   * - + ,    + ('.# / 0  (' # - 1   + . 2     )                         !"   # $% &   '$ ()* +  )   +   "  , -. /   /  0  1223 4  5 46 7 8 , -. 19 32222+ ) )    ,::* 0  * ;+ < = >) 4  ,  8 ?< @  )  &1223 )  77 <   3 33 4 5 6 373 8 3 6 9 5 38 34 : 8 44 33 8 34 ; 33 3 ;3 8 3< 33 39 8 ; 34 ! =    /> / ! !  =    !? ! =    /> "   /> ) @A .* ! "   =    ) @A /> =    !BB =    "   !  .* !? ! />    4 3 5 8 ; 6 37 3< 36 38 < 34 35 44 3; 43 57 9 45 ;4 33 4< 3: ;3 47 ;7 86 3A 1A 9A BA CA DA EA FA GA 32A 33A 31A 39A 3BA 3CA 3DA 3EA 3FA 3GA 12A 13A 11A 19A 1BA 1CA 1DA 1EA 1FA 1GA 92A B   'C    D   ? % E  %F        )- 2  '  ! $  'C   %     $ %%?    %      G. , H. HI  'H0 '?.   H0 '?J  H0 '?(  HK?   ,   HK?   H!    J  H!? J  H!? (  49 3A 1A 9A BA CA DA EA FA GA 32A 33A 31A 39A 3BA 3CA 3DA 3EA 3FA 3GA 12A 13A 11A 19A 1BA 1CA 1DA 1EA 1FA 1GA 92A .'// $ 01 $ $ 2  # $    BOSTON-sveitin Godsmack virðist hafa náð góðri fót- festu meðal ís- lenskra rokkara með sinni annarri eiginlegu breið- skífu Awake, sem leit dagsins ljós síðla síðasta árs. Sveitin náði vel til eyrna þeirra með lögum á borð við „Whatever“ og „Keep Away“ af fyrstu skífunni All Wound Up frá 1997 og nú hljóma lög af nýju plötunni ótt og títt á rokkvænni útvarps- stöðvum landsins og PoppTíví. Godsmack er kvartett skipaður kuklaranum Sully Erna sem syngur, gítaristanum Tony Ram- bola, bassaleikaranum Robbie Merrill og Tommy Stewart trommara, sem hefur verið að koma að fara. Megi þeim vegna vel í framtíðinni. Rokk og ról! GRÉTAR Örvarsson tónlistar- mann þarf vart að kynna fyrir nokkrum Íslendingi enda hef- ur hann verið viðriðinn dans- og dægurtónlist þjóðarinnar um ófá ár. Nú fyrri part sum- ars og í vor hefur hann varið tíma sínum og orku í heldur betur þarft framtak – að skipuleggja tónleika og standa að útgáfu geisladisks til styrktar SÁÁ, nánar tiltekið starfi samtakanna í þágu ungmenna sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að glíma. Rjóminn af helstu dægurlagahljómsveitum landsins, eins og t.d. Land og synir, Butter- cup, Sóldögg, Írafár og Sálin hans Jóns míns hafa lagt Grétari og SÁÁ lið og er geislaplatan Poppfrelsi smekkfull af spánýjum og áður út- gefnum íslenskum lögum. Gott framtak það. Sungið gegn söngvatni! HANN ER búinn að vera að segja okkur að þenja barkann und- anfarnar vikurnar, Fran Healy, söngv- ari Travis, og ekki ber á öðru en það hafi borið árangur því ný breiðskífa sveit- arinnar þýtur beint á topp Tónlistans á sinni fyrstu viku. Þar með hefur Travis komið tveim- ur plötum á toppinn en það tók The Man Who heldur lengri tíma að klífa þangað eða allt upp undir eitt og hálft ár! En sú þrautaganga virðist hafa skilað sér því nú er Travis orðin þekkt stærð og hefur eignast vænan hóp fylgjenda. Það þarf vart að taka fram að The Invisible Band rauk á toppinn í Bretlandi enda voru rifin út heil 200 þúsund eintök og ekki nóg með það heldur tóku margir sig til og gripu gömlu plöturnar með. Syngdu! ÞAÐ má með sanni segja að þeir sleiki hamstur grín- ararnir í Fóst- bræðrum. Nú hafa verið gerðar heilar fimm þáttaraðir af þessum kol- geggjuðu og sívinsælu þáttum og eru söng- lögin orðin æði mörg sem fengið hafa að fljóta með. Á nýja Fóstbræðradiskinum er að finna nær öll þessi kostulegu lög í flutningi Helga – Persónlulega trúbadorsins, níunda áratugar undursins Mogo Jacket, uppáhalds allra hans Júlla, Sigga „trallara“ og róttæka dúettsins Plató, svo einhverjir séu nefndir. Ekki nóg með það heldur er skotið inn á milli laga nokkrum af eftirminnilegustu setn- ingum þáttanna – fleygum orðum sem hinir fjölmörgu aðdáenda Fóstbræðra þreytast seint á að láta flakka. Þú ert drekinn! Á SÍÐUSTU árum hefur hljóðvers- listamönnum farið fjölgandi. Það eru tónlistarmenn sem koma sér upp eigin hljóðversaðstöðu og sitja svo ósveittir fyrir framan tölvuskjá um- kringdir hljóðfærum við lagasmíðar sínar. Þannig að sú gamla vinnuað- ferð að svitna með félögunum í dimmu æfingarhúsnæðinu er ekki lengur „sú eina rétta“. Fyrst átti þetta nýja vinnuferli nánast einungis við rafræna tónlist, en í dag er að myndast ný tegund hljóðverslista- manna sem blanda saman áhrifum úr hinum ýmsu stefnum. Hljómsveit- ir á borð við Air, Daft Punk, Base- ment Jaxx og nú Zero 7, gætu flokk- ast undir þessa nýju stefnu. Zero 7 vakti fyrst á sér athygli með afar velheppnaðri endurhljóð- blöndun á Radiohead-laginu „Climb- ing Up The Walls“ af plötunni OK Computer. Því næst gaf sveitin út EP plötu í afar takmörkuðu upplagi, þ.e. 1.000 eintök. Sú seldist skiljanlega upp á nokkrum dögum og kapphlaupið við að næla sér í eintak skapaði tölu- verðan áhuga fyrir sveitinni. Nú er svo fyrsta breiðskífan komin, Simple Things, þar sem er að finna nokkur þeirra laga sem voru á stuttskífunni eftirsóttu í bland við áður óútgefið efni. Zero 7 hefur oft verið kölluð „svar Breta við frönsku Air“ enda tónlistin alls ekki ósvipuð, en sjálfir gera með- limirnir nú lítið úr því. Segjast vera undir áhrifum frá tónlistarmönnum á borð við Quincy Jones, Ray Charl- es, Charles Stepney auk þess að vera djúpt sokknir í hip-hop heima. Fyrsta smáskífulag plötunnar, „I Have Seen“ er spáð miklum vinsæld- um í sumar. Þeir Íslendingar sem eru á leið á Hróaskelduhátíðina í næstu viku geta fengið lifandi tóna Zero 7 beint í æð því hún er ein þeirra sveita sem leikur í danstjaldinu. Zero 7 gefur út sína fyrstu breiðskífu Bretar lofta út Meðlimir Zero 7, úr fókus.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.