Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 68
ÓLÍKT börnunum í Reykjavík sem gefa öndunum á Tjörninni brauð gefa börnin á Suðureyri þorskunum loðnu. Annar munur er sá að erfitt er að klappa öndunum á Reykjavík- urtjörn en auðvelt er að klappa stórum þorskum sem nudda sér utan í hendur þeirra sem gefa þeim mat. Það var Jens Holm sem byrjaði á að sleppa undir- málsþorski í tjörnina 1995 og byrjaði að fylgjast með fiskunum. Athyglisvert er að þótt tjörnin sé opin með víðu ræsi út í Súg- andafjörðinn kærir þorskurinn sig ekkert um að fara. Hann dafnar vel og hefur Jens slátrað nokkrum tonnum af 5–7 kílóa fiski undanfarin ár. Líkt og endurnar á tjörninni kemur fiskurinn strax ef mað- urinn nálgast og bíður eftir æti. Hann kemur þá óhræddur alveg að fjöruborðinu og segja sumir að hægt sé að taka stærstu fiskana í fangið og klappa þeim. Algengt er að heilu fjölskyld- urnar fari inn eftir að gefa þorskunum en oftast er þar kar með afbeitningi sem hægt er að fæða fiskinn með. Hafa þorsk- arnir í tjörninni veitt mannfólk- inu ómælda gleði. Gefa þorskun- um í tjörninni Ísafirði. Morgunblaðið. Ljósmynd/Úlfar MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. LANDSVIRKJUN hefur ákveðið að setja fyrirhugað uppistöðulón í Norðlingaöldu í mat á umhverfis- áhrifum. Eftir fund Þjórsárvera- nefndar á miðvikudag, þar sem Páll Hreinsson lagaprófessor skýrði álit sitt á fyrirmælum laga um náttúru- vernd, var ákveðið að nefndin að- hefðist ekkert fyrr en formlegt er- indi kæmi um afgreiðslu frá þar til bærum aðilum. Landsvirkjun telur því ekkert því til fyrirstöðu að Norð- lingaöldulón fari í umhverfismat og stefnir að viðræðum við Norðurál um raforkusölu vegna þriðja áfanga álversins á Grundartanga fyrir mán- aðamót, með eðlilegum fyrirvörum um niðurstöður úr umhverfismatinu og að samkomulag náist um raforku- verð. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, sagðist í samtali við Morgunblaðið ánægður með þann farveg sem málið væri komið í. „Landsvirkjun vinnur nú að mats- áætlun vegna Norðlingaöldu í kjölfar lögskýringa Páls Hreinssonar og ég er mjög ánægður með að sjá málið komið í slíkan farveg,“ segir hann. Hann á ekki von á því að niður- staða úr umhverfismatinu geti legið fyrir fyrr en um áramótin. Að sögn Friðriks er nú einsýnt að meiri al- vara færist í viðræður fyrirtækisins við Norðurál um kaup á raforku vegna tvöföldunar álversins á Grundartanga. Nú liggi fyrir ákveðnar leiðir til að útvega þá raf- orku sem til þarf og fyrir vikið sé unnt að hefja samningaviðræður um orkuverð og afhendingu orkunnar. Það sé þó gert með eðlilegum fyr- irvörum um niðurstöður umhverfis- matsins og að sátt náist um raforku- verð en þannig sé það alltaf í samningaviðræðum Landsvirkjunar, t.d. í Kárahnjúkaverkefninu á Aust- urlandi. Þokast í viðræðum Norðuráls og stjórnvalda Viðræður íslenskra stjórnvalda og Norðuráls um aðra þætti varðandi þriðja áfanga álversins á Grundar- tanga eru einnig í fullum gangi. Stefnt er að því að ljúka samkomu- lagi um skatta- og aðstöðumál fyrir mánaðamót. Þriðji áfanginn gerir ráð fyrir stækkun upp í 180 þúsund tonna framleiðslugetu á ári. Viðræðunefnd iðnaðarráðuneytis- ins og forráðamenn Norðuráls hitt- ust á fundi á miðvikudag þar sem farið var yfir stöðu mála og annar fundur er boðaður á föstudaginn eft- ir viku. Að sögn Ragnars Guðmunds- sonar, framkvæmdastjóra fjármála- og stjórnunarsviðs hjá Norðuráli, er stefnt að því að ljúka fyrsta áfanga í viðræðum um frekari stækkun fyrir mánaðamót. Gerir hann sér vonir um að það þýði samkomulag um skatta- mál og einnig ýmislegt er varðar að- stöðu fyrirtækisins á Grundartanga. Dregur til tíðinda í viðræðum Norðuráls við stjórnvöld og Landsvirkjun Norðlingaöldulón fer í umhverfismat  Álitsgerð Páls /12 Línur skýrast/34 SEÐLABANKINN seldi 24 milljón- ir dollara á gjaldeyrismarkaði í gær. Þetta er í fyrsta skipti frá því að verðbólgumarkmið var tekið upp í lok mars sem bankinn grípur til þess ráðs til að stemma stigu við gengislækkun krónunnar. Gengis- vísitalan var 141 stig við lokun markaðar í gær og hafði krónan þá styrkst um 3,3% frá opnun mark- aðar. Seðlabankinn Seldi 24 milljónir dollara  Krónan styrkist um 3,3%/22 Í FLUGI Flugleiða til Boston á laugardag verða þau tíma- mót að konur stjórna flugvél- inni en einungis karlar munu þjóna farþegum. Er hér um að ræða hlutverkaskipti kynjanna frá því fyrirkomulagi sem tíðk- ast hefur í áratugi. Flugstjóri verður Guðrún Olsen en flugmaður Ragnheið- ur Guðjónsdóttir. Þær eru báðar dætur flugstjóra. Sturla Óskar Bragason verður 1. flugþjónn, aðrir flugþjónar verða Axel Guðmundsson, Kristján Steinsson, Gunnlaug- ur Gunnlaugsson og Björn Johnson. Að sögn Axels Guðmunds- sonar var í fyrra gerð tilraun til þess að raða saman svona áhöfn en það tókst ekki. Enda eru aðeins 16 fastráðnir flug- þjónar hjá Flugleiðum en um 500 flugfreyjur. Að sögn Axels hefur það gerst áður að áhöfn hefur eingöngu verið skipuð körlum og eins hefur áhöfn eingöngu verið skipuð konum. En þetta er í fyrsta sinn sem hlutverkin snúast svona við. Hlutverkaskipti í flugi til Boston Konur stjórna en karl- ar þjóna BORIST hefur fyrirspurn frá fjár- festum á sviði hátækniiðnaðar í Kali- forníu um aðstöðu hér á landi og orkukaup vegna geymslu gagnasafna hér en unnið yrði með gögnin að verulegu leyti í Bandaríkjunum. Mál- ið er á frumstigi en búist er við að það geti skýrst innan tíðar hvort hug- myndir þessa efnis eru raunhæfar eða ekki. Markaðs- og atvinnumálaskrif- stofa Reykjanesbæjar er að vinna að athugun málsins í samvinnu við Hita- veitu Suðurnesja. Að sögn Ólafs Kjartanssonar, framkvæmdastjóra skrifstofunnar, eru þessi mál á algeru frumstigi enn þá. Grunnurinn sé hins vegar sá orkuskortur og vöntun á af- hendingaröryggi orku sem fyrirtæki í Kaliforníu hafi mátt búa við í orku- málum að undanförnu og þeir líti þannig á að staðan í orkumálum Kali- forníufylkis geti verið tækifæri fyrir okkur. Það sé hins vegar háð því að fyr- irtækin reisi útibú hér á landi og að gagnaflutningsleiðir til og frá landinu séu nægilega öflugar til að anna þeirri umferð sem þjónusta af þessu tagi myndi kalla á. Hugmyndin bygg- ist á því að gögnin séu geymd hér á landi en unnið með þau í Bandaríkj- unum að verulegu leyti. Um talsvert mikla orkunotkun sé að ræða við starfsemi af þessu tagi. „Það gefur auga leið að fyrirtæki í tæknigeiranum getur mjög tæplega liðið orkuskort. Silicon-dalurinn er náttúrulega hjarta tækniþróunar í heiminum. Maður getur svo sem al- veg sett sig í þeirra spor þegar allt í einu rafmagnið er tekið af. Það hlýtur að vera mjög bagalegt,“ sagði Ólafur. Bandarískir fjárfestar sýna Íslandi áhuga Kanna möguleika á geymslu gagnasafna  Fyrirspurn um orkukaup/12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.