Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 57
DAGBÓK
Hönnun
List
Gullsmiðir
Nýbýlavegi 12 - sími 554 4433
Nýkomnar
fallegar úlpur
Kr. 7.900
TILBOÐ - Amerískir lúxus nuddpottar
Glæsilegir nuddpottar í
sedrus viðargrind. Innifalið í
verði: Vatnsnudd og
loftnudd. Einangrunarlok,
ozone bakteríuvörn,
höfuðpúðar, ljós, o.fl. Verð
frá aðeins kr. 460 þús. stgr.
Tilbúnir til afhendingar.
VESTAN ehf., Auðbrekku 23, Kópavogi.
Símar 554 6171 og 898 4154.
Árnað heilla
90 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 22. júní,
er níræður Jóhann Valde-
marsson, fyrrum bóndi á
Möðruvöllum í Eyjafirði,
síðar bóksali á Akureyri og
í Reykjavík. Hann var áður
til heimilis að Álfheimum 48,
Reykjavík en er nú búsettur
að Hrísalundi 10g, Akureyri.
Jóhann dvelur með fjöl-
skyldu sinni og vinum á af-
mælisdaginn í Eikarlundi 8,
Akureyri.
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Minni þínu er viðbrugðið og
því er oft til þín leitað til að
skera úr um hlutina. Misnot-
aðu það ekki.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu það ekki pirra þig, þótt
einhverjir séu að agnúast út í
þig. Það er bara öfund þeirra,
sem síður vinna en þú, og allir
sjá í gegn um þá.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Láttu ekki samskiptin við
vinnufélaga þína súrna. Þeir
fella sig ekki við allt í þínu fari
frekar en þú í þeirra. Sýndu
sanngirni og umburðarlyndi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þótt þér sé annt um það sem
þú átt, er sumt af því bara
hlutir, sem þú getur vel leyft
öðrum að nota, þegar svo ber
undir. Ekki vera of stífur.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú verður að fá útrás fyrir
alla þá orku, sem þú býrð yfir.
Nýttu hana til hollra hluta,
sem bæði gefa þér ánægju og
auka á hreysti þína.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þótt gott sé að skoða mál frá
sem flestum hliðum, kemur
að því fyrr að það verður að
taka ákvörðun. Reyndu bara
að fella hana að sannfæringu
þinni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú verður að freista þess að
ná stjórn á hlutunum og til
þess verður þú að leggja þig
fram og eyða miklum tíma.
En þá fara hjólin líka að snú-
ast.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú átt að horfa fram á veg, en
ekki alltaf vera að líta um öxl
og láta fortíðina þvælast fyrir
þér. Taktu þér tíma í að gera
hana endanlega upp.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er enginn grunnur endi í
sundlaug lífsins. Þú verður
bara að synda eins og þér er
lagið og stefna ótrauður að
bakkanum hinum megin.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Einhverjir eru að reyna að
vefja hlutina inn í umbúðir,
sem þú átt ekki að geta rakið
utan af. Vertu þolinmóður,
þannig kemst þú að því
sanna.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Grasið er ekkert grænna
handan girðingarinnar.
Reyndu að njóta þess sem þú
býrð við. En auðvitað er heil-
brigður metnaður til fram-
fara eðlilegur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Láttu það ekki slá þig út af
laginu, þótt þú mætir ein-
hverjum hindrunum á för
þinni. Gefðu þér bara tíma til
að sjá þær út og sigrast á
þeim.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það getur stundum verið erf-
itt að drífa sig áfram. En þú
mátt bara ekki láta kyrrstöð-
una fanga þig, því hún ber í
sér hægfara dauða.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
VÖGGUKVÆÐI
Ljóshærð og litfríð
og létt undir brún,
handsmá og hýreyg
og heitir Sigrún.
Vizka með vexti
æ vaxi þér hjá!
Veraldar vélráð
ei vinni þig á!
Svíkur hún seggi
og svæfir við glaum,
óvörum ýtir
í örlagastraum.
Veikur er viljinn,
og veik eru börn.
Alvaldur, alvaldur
æ sé þeim vörn!
Sofðu, mín Sigrún,
og sofðu nú rótt.
Guð faðir gefi
góða þér nótt!
Jón Thoroddsen.
Á EM í Menton í Frakk-
landi 1993 varð Ísland í 6.
sæti af 30 þjóðum. Pólska
„þungavinnuvélin“ vann
þar léttan sigur en Ísland
var aðeins 10 stigum frá
fjórða sætinu sem gaf rétt
til þátttöku á HM. Hollend-
ingar náðu því sæti og unnu
svo keppnina um Berm-
uda-skálina síðar á árinu. Í
sveit Íslands spiluðu: Jón
Baldursson, Sævar Þor-
björnsson, Guðm. P. Arn-
arson, Þorlákur Jónsson,
Aðalsteinn Jörgensen og
Björn Eysteinsson en Karl
Sigurhjartarson var fyrir-
liði. Á þessu móti voru veitt
sérstök verðlaun fyrir
bestu spilamennsku, bestu
vörn og bestu sagnröðina.
Varnarverðlaunin fékk
Norðmaðurinn Tor Hel-
ness en þau gátu allt eins
komið í hlut Þorláks Jóns-
sonar og Hjördísar Ey-
þórsdóttur en hún spilaði
fyrir Íslands hönd í
kvennaflokki:
Suður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ 1092
♥ G65
♦ ÁG3
♣ ÁD106
Vestur Austur
♠ K43 ♠ Á87
♥ 1074 ♥ KD832
♦ 8742 ♦ 65
♣G42 ♣K85
Suður
♠ DG65
♥ Á9
♦ KD109
♣973
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 tígull
Pass 2 lauf Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Allir pass
Eftir þessar sagnir kom
Helness (og Þorlákur) út
með spaða frá kóng þriðja.
Austur drap í báðum tilfell-
um á ásinn og spilaði átt-
unni til baka. Og kom
snilldin – hjartatían – bæði
frá Helness og Þorláki!
Mótherjar okkar voru
Grikkir. Sagnhafi drap
strax með ás og tók slagi
sína á tígul og spaða.
Greinarhöfundur var í
austur og Geir Helgmo á
borði Norðmanna. Austur
þarf að finna þrjú afköst.
Ef austur heldur í Kx í laufi
er sú hætta fyrir hendi að
suður spili hjarta í loka-
stöðunni og fái tvo síðustu
slagina á ÁD í laufi. Því var
ekki um annað að ræða en
að fara niður á blankan
laufkóng. Báðir sagnhafar
svínuðu síðan laufdrottn-
ingu og enduðu tvo niður.
Spennandi spil, en ekki á
borði Hjördísar og Ljós-
brár Baldursdóttur. Hjör-
dís kom einfaldlega út með
hjartatíuna og sagnhafi gat
gefist upp þar og þá.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag-
inn 23. júní, verður prófast-
urinn í Laufási, sr. Pétur
Þórarinsson, fimmtugur. Í
tilefni dagsins ætlar fjöl-
skylda hans að hafa opið hús
í Laufási og væntir þess að
sóknarbörn, núverandi og
fyrrverandi, vinir, vanda-
menn, og aðrir sem vilja
taka þátt í gleðinni gefi sér
tíma að líta inn í Laufási.
Móttakan byrjar formlega
kl. 18 með helgistund í Lauf-
áskirkju en síðan verður far-
ið heim á prestssetrið (og
næsta nágrenni) og notið
þess sem fram verður reitt í
mat og skemmtiatriðum.
Þar sem veðurhorfur eru af-
bragðs góðar fer dagskráin
að mestu fram utandyra og
eru gestir beðnir að klæða
sig með tilliti til þess.
Helgarskákmótasyrpan er
afar gott framtak sem ýtt
var úr vör af fráfarandi
stjórn S.Í. Venjulega yfir
sumarið er skákmótahald á
Íslandi rólegt en með þessu
verður það líflegra en ella.
Næsta mót í syrpunni hefst
23. júní kl. 13.00 í húsakynn-
um Taflfélags Reykjavíkur.
Staðan kom upp á helgar-
mótinu á Akureyri er lauk í
upphafi mánaðarins. Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir
(1765) hafði hvítt gegn
Sveinbirni Sigurðssyni
(1650) 27.Hxg6! Áhrifarík-
asta leiðin til sigurs þar sem
eftir 27...fxg6 28.Re7 er
svartur mát. Svartur reyndi
27...Hfe8 28.Hg1 Öflugra
hefði verið að leika
28.Hxg7+ Kxg7 29.Df6+
Kg8 30.Hh8#. 28...Hxc2
29.Dxc2 Df3+ 30.Dg2 og
svartur gafst upp enda orð-
inn heldur fáliðaður. Ís-
landsmót 60 ára og eldri
hefst í dag, 22. júní, kl. 18.00
í Garðalundi í Garðabæ.
Nánari upplýsingar um mót-
ið er að finna á skak.is.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og
fleira lesendum sín-
um að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrir-
vara virka daga og
þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf
að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðar-
manns og símanúm-
er. Fólk getur hringt
í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
FRÉTTIR
Sara, sem er 18 ára ítölsk
stúlka, óskar eftir penna-
vini. Hún skrifar á ensku og
áhugamál hennar er söfnun
gamalla peninga.
Sara Brandimarti,
Via A. Toscanini n. 3,
63010 Monte San
ietrangeli,
(AP) Italia.
Barbara, sem er 38 ára
barnakennari frá Póllandi,
óskar eftir pennavini. Hún
skrifar á ensku og áhugamál
hennar eru ferðalög, söfnun
ferðakorta, leiðsögubóka og
minjagripa.
Barbara Kotkiewicz,
Zbikowska 24/18
05-820 Piastów,
Poland.
Pennavinir
BOÐIÐ verður upp á gönguferð
um Viðey nk. laugardag. Farið
verður með Viðeyjarferjunni úr
Sundahöfn kl. 11:15 og hefst gang-
an sjálf við kirkjuna kl. 11:30.
Gengið verður um austureyjuna.
Fólk er beðið um að búa sig eftir
veðri og vera vel skóað. Leiðsögnin
sjálf er án endurgjalds, en í Viðeyj-
arferjuna kostar kr. 400 fyrir full-
orðna og kr. 200 fyrir börn. Áætlað
er að gangan taki um einn og hálf-
an til tvo tíma. Klukkan 14:00 verð-
ur svo haldin messa á vegum Við-
eyingafélagsins, en það er séra
Karl Matthíasson, prestur á
Grundarfirði, sem prédikar. Eftir
messu mun Viðeyingafélagið vera
með kaffisölu í tankinum og er hún
höfð til styrktar félaginu.
Árlegt Landnemamót skáta
stendur einnig yfir um helgina.
Klaustursýningin verður svo opin
frá kl. 13:00–15:00 á laugardaginn
og frá kl.13:00–16:15 á sunnudag
og er aðgangur að henni ókeypis.
Veitingahúsið í Viðeyjarstofu verð-
ur opið og með kaffisölu frá kl.
13:30–17:00 á laugardag og sunnu-
dag.
Dagskrá í Viðey
um helgina