Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ HÉR fara á eftir helstu niðurstöður álitsgerðar sem Páll Hreinsson tók saman fyrir iðnaðarráðuneytið varð- andi fyrirhugaða virkjun við Norð- ingaöldu: a) Hver hefur að lögum vald til þess að veita Landsvirkjun leyfi til að gera uppistöðulón með stíflu við Norðlingaöldu, sbr. 6. mgr. auglýs- ingar nr. 507/1987 um friðland í Þjórsárverum? Eins og vikið var að í köflum 3.3. og 3.4. fer umhverfisráðherra að gild- andi lögum með vald til þess að mæla fyrir um friðlýsingar og gera breyt- ingar á þeim. Samkvæmt gildandi lögum verða undanþágur ekki veittar frá friðlýsingum heldur verður að gera efnislegar breytingar á þeim, ef ætlunin er að víkja frá fyrirmælum þeirra. Haga ber málsmeðferð við breytingu á fyrirmælum friðlýsingar á sama hátt og þegar mælt er fyrir um nýja friðlýsingu. Samkvæmt framansögðu er ljóst að Landsvirkj- un getur óskað eftir því við umhverf- isráðherra að auglýsingu nr. 507/1987 um friðland í Þjórsárverum verði breytt þannig að mögulegt verði að reisa stíflu við Norðlingaöldu. b) Þarf Landsvirkjun að fá leyfi Náttúruverndar ríkisins til að gera stíflu við Norðlingaöldu skv. 38 gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd? Þar sem ákvæði 1. mgr. 38. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd eru for- takslaus, verður ekki annað séð en afla verði leyfis Náttúruverndar rík- isins til gerðar stíflu við Norðlinga- öldu verði slík framkvæmd á annað borð talin falla efnislega undir ákvæðið, þ.e. framkvæmd sem hætta er á að spilli friðlýstum náttúruminj- um. c) Hvaða valdheimildir hefur sér- stök nefnd skv. 1. tölul. 3. mgr. frið- lýsingar sbr. auglýsingu nr. 507/1987 um friðland í Þjórsárverum? Samkvæmt almennum reglum stjórnsýsluréttar er ytra valdframsal til að taka stjórnvaldsákvörðun al- mennt ólögmætt nema að það styðjist við skýra lagaheimild. Engri slíkri lagaheimild er fyrir að fara í lögum nr, 44/1999. Af þessum sökum og að öðru leyti með vísan til orðalags fyr- irmæla friðlýsingar skv. auglýsingu nr. 507/1987 um friðland í Þjórsárver- um virðist ljóst, að hlutverk ráðgjafa- nefndar sé að veita ráð og koma með tillögur. Í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar eru ráðgjöf, álit og tillögur á hinn bóginn ekki bindandi nema slíkt sé skyndilega tekið fram í lögum. Þar sem ekkert slíkt laga- ákvæði er að finna í lögum er ljóst að tillögur og ráðgjöf ráðgjafanefndar er ekki bindandi að lögum fyrir aðra. Samkvæmt framansögðu virðist ráðgjafanefndin því hafa svipuðu ráð- gjafarhlutverki að gegna varðandi Þjórsárver og lögboðið er að náttúru- verndarráð hafi, sbr. 9. gr. laga nr. 44/1999. d) Hvaða reglur gilda um störf ráð- gjafanefndar? Þar sem ráðgjafanefndinni var komið á fót með opinberum stjórn- valdsfyrirmælum samkvæmt auglýs- ingu nr. 507/1987, er engum vafa und- irorpið að umrædd ráðgjafanefnd telst stjórnsýslunefnd, af því leiðir að hún er í störfum sínum einnig bundin af almennum reglum stjórnsýslurétt- arins eins og t.d. varðandi málsmeð- ferð, svo og almennar efnisreglur, eins og lögmætisreglan og réttlætis- reglan. Ráðgjafanefndin verður því t.d. ávallt að byggjast á málefnaleg- um sjónarmiðum. e) Getur ráðgjafanefndin byrjað að eigin frumkvæði umfjöllun um hvort rétt sé að heimila gerð uppistöðulóns með stíflu við Norðlingaöldu? Forsenda þess að hægt sé að fjalla um slíkt erindi á málefnalegan hátt lögum samkvæmt er að fyrir liggi endanleg afstaða Landsvirkjunar til þess hvernig þau mannvirki eiga að vera úr garði gerð, sem ætlunin er að reisa o.fl. Fyrr en frágengnar tillögur Landsvirkjunar liggja fyrir er ekki að fullu hægt að rannsaka og meta áhrif þeirra á umhverfið í Þjórsárver- um. Af þessum sökum er ljóst að ráð- gjafanefndin getur ekki tekið endan- lega og málefnalega afstöðu til þessa máls fyrr en formleg umsókn liggur fyrir og gerðar hafa verið allar nauð- synlegar rannsóknir til að leggja mat á umhverfisáhrif mannvirkjanna og hvernig þau horfa við ákvæðum 1., 53. og 58.-64. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd svo og öllum réttar- reglum. Ótímabærar yfirlýsingar ráðgjafanefndar um niðurstöðu máls og opinber barátta einstakra nefnd- armanna með eða gegn ákveðinni niðurstöðu getur valdið vanhæfi þeirra til meðferðar máls, þegar formlegt erindi varðandi slíka fram- kvæmd berst loks ráðgjafanefnd. Tekið skal fram að í álitsgerð þess- ari hefur einvörðungu verið fjallað um valdamörk stjórnvalda, þ.e. hvaða stjórnvald sé bært að lögum til þess að breyta fyrirmælum aðfriðlýsing- um skv. auglýsingu nr. 507/1987 um friðland í Þjórsárverum og hlutverk og valdheimildir annara stjórnvalda við undirbúning að þeirri ákvörðun. Í álitsgerðinni hefur á hinn bóginn engin afstaða verið tekin til þess hvort efnistök standi til þess að breyta fyrirmælum umræddrar frið- unar. Álitsgerð Páls Hreins- sonar prófessors FYRIRSPURN um aðstöðu og orkukaup hér á landi hefur borist frá fjárfestum sem starfa á sviði há- tækniiðnaðar í Kaliforníu og er markaðs- og atvinnumálaskrifstofa Reykjanesbæjar að athuga hvort hugmyndir þessa efnis séu raunhæf- ar. Búist er við að það skýrist á allra næstu dögum hvort svo sé og verði það raunin verður haldið áfram að þróa hugmyndina. Að sögn Ólafs Kjartanssonar, framkvæmdastjóra markaðs- og at- vinnumálaskrifstofu Reykjanesbæj- ar, eru þessi mál á algeru frumstigi ennþá. Grunnurinn sé hins vegar sá orkuskortur og vöntun á afhending- aröryggi orku sem fyrirtæki í Kali- forníu hafi mátt búa við í orkumálum að undanförnu og þeir líti þannig á að staðan í orkumálum Kaliforníu- fylkis geti verið tækifæri fyrir okk- ur. Það sé hins vegar háð því að fyr- irtækin reisi útibú hér á landi og að gagnaflutningsleiðir til og frá land- inu séu nægilega öflugar til að anna þeirri umferð sem þjónusta af þessu tagi myndi kalla á. Hugmyndin byggist á því að gögnin séu geymd hér á landi, en unnið með þau í Bandaríkjunum að verulegu leyti. Um talsvert mikla orkunotkun sé að ræða við starfsemi af þessu tagi. „Það gefur augaleið að fyrirtæki í tæknigeiranum getur mjög tæplega liðið orkuskort. Silicon-dalurinn er náttúrlega hjarta tækniþróunar í heiminum. Maður getur svo sem al- veg sett sig í þeirra spor þegar allt í einu rafmagnið er tekið af. Það hlýt- ur að vera mjög bagalegt,“ sagði Ólafur. Hann sagði að þeir væru að skoða hugmyndina, en það væri ekkert fast í hendi í þeim efnum enn sem komið væri. Málið væri á frumstigi, en hins vegar væri við því að búast að það skýrðist á næstu dögum hvort hug- myndin væri raunhæf eða ekki. Hagstæðara verð á orkunni Ólafur sagði að þeir væru að vinna að þessu í samvinnu við Hitaveitu Suðurnesja. Þeir vissu að þeir gætu boðið upp á hagstæðara verð fyrir orkuna en aðrir, auk afhendingarör- yggisins. Þá væri verð á landi hér að- eins brot af því sem það væri erlend- is og þessir aðilar sem hefðu áhuga virtust þurfa mikið land, en Reykja- nesbær hefði svæði sem væri fyrir- hugað undir starfsemi af þessu tagi. Ólafur sagði að ekki væri hægt að upplýsa um það að svo komnu um hvaða fyrirtæki væri að ræða, enda væru þeir að skoða málið með tilliti til þessa tæknisviðs í heild. Hann sagði aðspurður að nútíma- tölvutækni gerði það að verkum að fyrirtæki í sumum hátæknigreinum væru að verulegu leyti óháð þeim stað sem starfsemin eða hluti hennar færi fram á. Það væri þó að sjálf- sögðu háð því að gagnaflutningsleið- ir til og frá landinu væru nægilega öflugar til að anna þeirri umferð sem þjónustan kallaði á. Ef hún væri í lagi gæti starfsemin verið hvar sem er. Ólafur bætti því við aðspurður að Keflavíkurflugvöllur léki einnig stórt hlutverk í þessum efnum. Hann gerði það að verkum að ferðatími yrði styttri en ella auk þess sem tímamunurinn hér og í Bandaríkjun- um hentaði mjög vel og gæti lengt vinnuferlið á hverjum degi verulega. Fjárfestar í hátækniiðnaði í Kaliforníu sýna Íslandi áhuga Fyrirspurn um orkukaup og aðstöðu á Reykjanesi Í SÓLBREKKUNNI á Húsavík gerði heimaríkur þröstur sér hreið- ur í blómakörfu rétt við útidyrnar og mataði þar unga sína. Meðan þrastamamma var í matarleit heils- aði unginn upp á nábúa sinn, Gylfa Sigurðsson, og sat rólegur á fingri hans. Þessir litlu nágrannar týndu tölunni því kettir í nágrenninu vor- umjög aðgangsharðir og sátu um að hremma ungana svo tómlegt varð í litla hreiðrinu. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Mannelskur þröstur FÉLAG fréttamanna samþykkti í gærkvöldi nýjan kjarasamning og er verkfalli þar með aflýst. Alls eru 60 manns í félaginu og greiddu 34 atkvæði með samningn- um en fjórir gegn honum og skilaði einn auðu. Gildistími samningsins er til nóvemberloka árið 2004. „Við í samninganefndinni erum mjög sátt með að samningurinn sé samþykktur svona vel,“ sagði Jón Gunnar Grjetarsson, formaður Félags fréttamanna, við Morgun- blaðið í gærkvöldi. Jón segir að helstu atriði samn- ingsins séu þau að grunnlaun félagsmanna hækki í samræmi við það sem hefur verið að gerast á öðr- um fjölmiðlum með vísan til þess samnings sem Blaðamannafélag Ís- lands gerði. „Í krónum talið má gera ráð fyrir að meðalhækkun grunnlauna á samningstímanum verði um 30 þúsund krónur. Þá er- um við að gera lagfæringar fyrir góðan hóp félagsmanna sem setið hefur dálítið fastur í kerfinu en það er frekar mikið um breytingar á launakerfinu í nýja samningnum. Breytingarnar koma í áföngum, hluti kemur strax og síðan strax á næsta ári kemur hækkun. Svo er innbyggt í þetta kerfi hækkanir á samningstímanum.“ Að sögn Jóns mun fréttamaður með átta ára reynslu fara yfir 200 hundruð þúsund krónur á mánuði í grunnlaunum. „Við fórum fram með ákveðnar grunnkröfur og komum líka til móts við stofnunina.“ Fréttamenn hjá RÚV samþykktu kjarasamning Grunnlaun hækka um 30 þúsund INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, sagði á borgarstjórnarfundi í gærkvöldi að hún vildi að sett yrði upp sögu- sýning í Aðalstræti um þróun Reykjavíkur frá fyrstu tíð í tengslum við þær fornminjar sem fundist hafa í Aðalstræti. Upp- gröftur fornmynja hefur staðið yf- ir á þessu ári og hafa merkar minjar komið þar í ljós. Borgarráð hefur falið borgar- verkfræðingi í samvinnu við borg- arminjavörð að undirbúa varð- veislu fornminjanna. Ingibjörg sagði að hún vildi að sett yrði upp sýning þar sem fornminjar verði til sýnis og þar sem mönnum verði gert kleift að skyggnast aftur í tímann og sjá hvernig landnáms- mennirnir bjuggu. Borgarstjóri sagði það skemmtilega tilviljun að þessar minjar, sem eru þær elstu sem fundist hafa í landinu, skuli vera staðsettar í elstu götu Reykjavík- ur. Ingibjörg nefndi m.a. tvö göm- ul hús í næsta nágrenni fornminj- anna sem einnig væri ástæða til að varðveita; Aðalstræti 10 sem er frá upphafi Innréttinganna og Vaktarabæinn svokallaða í Grjótaþorpi. Mikilvægt hverfi hvað varðar byggingasöguna Ingibjörg sagði að Grjótaþorpið væri mikilvægt hverfi hvað varðar byggingarsögu borgarinnar og að í tengslum við sýninguna í Aðal- stræti væri hægt að merkja gönguleiðir milli merkilegra húsa hvað varðar byggingarsögu á Ís- landi. Sögusýning verði sett upp í Aðalstræti Áformað er að merkja gönguleiðir í Grjótaþorpi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.