Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Bridget Jones-
smásögukeppni
Við erum að leita að Bridget Jones-smásögusnillingum.
Ef þú telur þig vera einn þeirra, sendu okkur þá smásögu
af þínu stefnumóti (ca 20 línur). Hver veita nema að þú
hljótir verðlaun fyrir bestu söguna.
Veglegir vinningar í boði
1. vinningur: Ferð fyrir tvo til London með lágfargjalds-
flugfélaginu GO, snyrtikarfa frá Max Factor, Diet
Coke-birgðir til eins árs frá Vífilfelli, fataúttekt frá
TopShop/TopMan, bók frá Íslenskri miðlun og útgáfa,
tónlist úr myndinni frá Skífunni ásamt boðsmiðum fyrir
tvo á forsýningu myndarinnar Dagbók Bridget Jones
12. júlí í Háskólabíói.
2. vinningur: Bók frá Íslenskri miðlun og útgáfa, Diet
Coke-birgðir til eins árs frá Vífilfelli, snyrtikarfa frá
Max Factor, tónlist úr myndinni frá Skífunni og
boðsmiðar fyrir tvo á forsýningu myndarinnar.
3. vinningur: Bók frá Íslenskri miðlun og útgáfa, Diet
Coke-birgðir til eins árs frá Vífilfelli, snyrtikarfa frá
Max Factor, tónlist úr myndinni frá Skífunni og
boðsmiðar fyrir tvo á forsýningu myndarinnar.
Á næstunni verður frumsýnd rómantíska gamanmyndin Dagbók Bridget
Jones, frá höfundum myndanna Notting Hill, Fjögur brúðkaup og jarðarför.
Myndin er byggð á metsöluskáldsögu Helen Fielding og hefur bókin fangað
lesendur um víða veröld.
Allir vinningshafar fá einnig spennandi og
óvæntan Bridget Jones-glaðning.
100 HEPPNIR! fá boðsmiða á forsýningu
myndarinnar.
DAGBÓKBRIDGETJONES
Tónlist úr myndinni
frá Skífunni.
Stranglega bönnuð börnum
(Rated X)
D r a m a
Leikstjórn Emilio Estevez. Aðal-
hlutverk Emilio Estevez, Charlie
Sheen. (112 mín.) Bandaríkin 2000.
Skífan. Bönnuð innan 16 ára.
ÞEIR VORU bjartasta vonin í
Hollywood á sínum tíma bræðurnir
Emilio Estevez og Charlie Sheen,
synir leikarans
virta Martins
Sheens. Emilio lék
í hinni hópdýrkuðu
Repo Man og fór
kornungur að leik-
stýra með ágæt-
lega lofandi ár-
angri og Sheen
varð heitasta heitt
eftir að hafa sýnt
frábæra takta í Platoon og Wall
Street Olivers Stones. En síðan fóru
þeir út í tómt rugl, fislétt léttmeti
gerði út af við orðspor þeirra og
brátt voru þeir horfnir af sjónarsvið-
inu ef undan eru skildar fregnir af
glímu Charlies við hið ljúfa líf, eitur-
lyfja- og kynlífsfíkn.
Það er því einkar kærkomið að sjá
að þeir bræður virðast hafa áttað sig
– búnir að taka sig til í andlitinu og
eru allavega að spreyta sig á ein-
hverju ögrandi og fersku.
Þótt Stranglega bönnuð börnum
beri þess fullgreinileg merki að kinn-
hesturinn hafi komið er þeir horfðu á
Boogie Nights þá verður að virða við
þá að þeir eru að reyna og þessi
sanna saga af klámbræðrunum Jim
og Artie Mitchell sem voru stórtækir
í framleiðslu blárra kvikmynda er
þeir sýndu í kvikmyndahúsi sínu sem
þeir breyttu í fatafellustað eftir til-
komu myndbandsins.
Þótt leikstjórinn Estevez sé með
fullmikla stæla fyrir minn smekk þá
er hér á ferð þokkalega ögrandi heið-
arleg kvikmyndagerð og greinilegt
að þeir bræður hafa lagt mikla alúð í
verkið. Sheen er þar að auki óþægi-
lega sannur í hlutverki forfallins
dópista og ofbeldisseggs sem vekur
upp spurningar um að hve miklu
marki hann var að lýsa sinni eigin
fortíð.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Klám-
bræður
HLJÓMSVEITIN Limp Bizkit hef-
ur aflýst fimm tónleikum sveitarinn-
ar vegna bakverkja sem hrjá söngv-
arann Fred Durst.
Durst á samkvæmt læknisráði að
hvílast í tvær vikur ásamt því að
gangast undir andlega endurhæf-
ingu. Bakverkirnir eru sagðir stafa
af uppsöfnuðu álagi.
Limp Bizkit munu þó halda tón-
leikaferð sinni ótrauðir áfram þegar
Durst hefur náð heilsu til.
Limp Bizkit
aflýsa
tónleikum
Reuters
Limp Bizkit. Hinn bakveiki Durst er lengst til hægri.
LIÐSMENN hljómsveitarinnar U2
komu umboðsmanni sínum sann-
arlega á óvart þegar hann hélt upp
á hálfrar aldar afmæli sitt á dög-
unum.
Umboðsmaðurinn, Paul McGuin-
ess, sat í mestu makindum á veit-
ingastað í New York þegar Bono,
söngvari U2, teymdi hest inn á stað-
inn.
McGuinnes er annálaður áhuga-
maður um hesta og því ákváðu þeir
í U2 að gefa honum gæðing í tilefni
dagsins. Gestir á veitingahúsinu urðu ekki minna
hissa en afmælisbarnið og ruku upp til handa og fóta
þegar Bono gekk inn með hestinn í eftirdragi.
Umboðs-
maðurinn
fékk hest
Reuters
Hinir uppátækjasömu U2.