Morgunblaðið - 22.06.2001, Síða 4

Morgunblaðið - 22.06.2001, Síða 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ OLÍUVERÐ á heimsmarkaði hefur lækkað jafnt og þétt síðustu dagana. Um hádegi í gær var verðið fyrir tunnuna tæpir 26 dollarar, sem er lækkun um 3 dollara frá því verði sem algengt hefur verið undanfarna mánuði. Olíufélögin eru ekki farin að skoða mögulegar lækkanir á bens- ínverði, enda er það einnig háð verðþróun á dollar, sem haldið hefur áfram að hækka í verði vegna verð- lækkunar íslensku krónunnar. Magnús Ásgeirsson, innkaupa- stjóri eldsneytis hjá Olíufélaginu hf., sagði að þeir væru ekki farnir að taka neinar ákvarðanir varðandi breytingar á olíu- og bensínverði og það yrði ekki gert fyrr en undir lok mánaðarins, en það væri bæði þróun heimsmarkaðsverðsins og gengisins sem hefði þar áhrif og þróun geng- isins eins og verið hefði ynni ekki með okkur. Magnús sagði að olíuverð hefði lækkað á heimsmarkaði og það væri minnkandi spenna á markaðnum. Verð á hráolíunni á Rotterdam- markaði hefði verið á bilinu 25,50 dollarar upp í 26 dollara. Það hefði til dæmis verið 25,97 dollarar um há- degi í gær. Markmið OPEC- ríkjanna væri að halda verðinu í 25 dollurum fyrir tunnuna. Næsti fund- ur ríkjanna yrði haldinn 3. júlí, en þau hefðu marglýst því yfir að þau hygðust auka framleiðsluna, auk þess sem merki væri um minni eft- irspurn í Bandaríkjunum. Magnús sagði að verðið á olíunni hefði farið upp í 35 dollara fyrir tunnuna á síðasta ári, en síðustu 2-3 mánuðina hefði verðið verið á bilinu 28-30 dollarar. Þetta væri því um þriggja dollara lækkun á tunnunni á tæpri viku sem væri töluvert mikið. Magnús sagðist aðspurður telja að heimsmarkaðsverðið ætti ekki eftir að hækka aftur á næstunni og hann ætti einnig síður von á að það ætti eftir að lækka mikið meira en þetta. Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, sagði að olíuverð hefði eitthvað verið að lækka, en þeir væru ekkert farnir að skoða verð- lagninguna hér innanlands. Þeir væru önnum kafnir við að skoða lækkun íslensku krónunnar og hækkun dollarsins sem hefði gert þeim það mikla skráveifu að það væri ekki tímabært að gera breyt- ingar. Í venjulegu stöðugu árferði hefði þessi lækkun hins vegar gert það að verkum að þeir hefðu verið farnir að skoða mjög alvarlega lækkanir á olíutegundunum. Kristinn bætti því við að ef doll- arinn væri bara á sama verði og hann hefði verið undanfarna þrjá mánuði þá hefði það verið alveg ljóst að þessi verðlækkun á heimsmark- aði þýddi lækkun hér á landi. Doll- arinn hefði hins vegar verið að fara yfir 108 krónur. „Auðvitað erum við að gera okkur vonir um að við getum lækkað verð- ið eins og löndin í kringum okkur. Þau eru að lækka núna, en þau eru jú bara það miklu betur sett en við að þau eru með stöðugan gjaldmiðil en ekki við,“ sagði Kristinn. Hann sagði að það væru að verða tólf mánuðir sem við hefðum mátt búa við þetta ójafnvægi í gengismál- um sem hefði alveg verið óþekkt áð- ur um langa hríð. Olíuverð hefur farið lækkandi á heimsmarkaði undanfarna daga Olíufélögin ekki farin að skoða mögulega lækkun                     !  #$#%  Á MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ var sjónvarpsumfjöllun um Ísland sýnd í Bandaríkjunum og jöfnum hönd- um sýnd náttúrufegurð og ölóðir unglingar. Jón Baldvin Hannibals- son, sendiherra þjóðarinnar í Bandaríkjunum, sá útsendinguna. „Þátturinn er fréttatengdur og heitir „Inside edition“ og hafður til sýninga á besta tíma. Hann var sýndur á staðbundinni stöð NBC á Baltimore-svæðinu. Dregin var upp mynd af undurfögru landi og fríðu fólki í heilnæmu umhverfi, tignarleg fjöll og grænar hlíðar, freyðandi fossar, hestar og heilbrigt fólk. Þessu fylgdu ummæli um að Ísland hafi á seinni árum fengið á sig orð sem eftirsóttur áfangastaður þeirra sem unna heilbrigðu líferni í hreinni náttúru. Síðan var vélinni beint að miklum skara barna og unglinga, en tekið var fram að um unglinga frá tólf ára aldri væri að ræða. Það var heldur ófrýnileg mynd. Sýndar voru hópmyndir af ölóðu fólki í ósjálf- bjarga ástandi og ófrýnilegum ung- lingum af karlkyni sem ýmist voru þambandi brennivín eða sýnandi fremur máttleysislega tilburði til slagsmála,“ sagði Jón Baldvin en tók fram að ekki gæti hann fullyrt að upptakan hafi verið frá því á þjóðhátíðardaginn, en hún gæti hafa verið það. Hann sagði að ungdóm- urinn hafi verið alls ófeiminn við að ræða við fréttamanninn á einhverri „fláabull-amerísku“ með tilheyrandi munnsöfnuði. Jón Baldvin segir sýninguna hafa tekið um tólf mínútur og hafa, væg- ast sagt, verið ömurlega landkynn- ingu. „Fyrir utan það að láta myndavélina tala spurði fréttamað- urinn einnig mikið, hvar eru foreldr- ar ykkar? vita þeir af ykkur? Svo spurði hann vitanlega nokkurra spurninga í lokin: Þetta stórkost- lega land og tiginborna umhverfi, síðan þessi hamslausa víma! Og spurði hvað er þetta ógæfusama fólk að flýja, er það að flýja sjálft sig?“ Jón Baldvin segir mikið búið að leggja í landkynningu á Ameríku- markaði og að vel hafi gengið, Ís- land sé meðal tíu eftirsóttustu landa í útivistarferðamennsku (eco-tour- ism) auk þess sem Reykjavík sé „capital of cool“ og hafi verið kynnt sem land með fjörugt og menning- arlegt næturlíf. Hann segir þáttinn hafa verið vel gerðan og greinilegt að skírskotað hafi verið til ungs fólks. „Þetta var ókræsileg land- kynning sem snart mig vegna þess að dregnar voru upp þessar and- stæður. Er þetta ekki spurning sem Íslendingar verða að ræða við sjálfa sig. Er þetta sönn mynd? Er hún ýkt?“ spyr Jón Baldvin, „þjóðinni er réttur spegill, nú er bara að horfa í hann.“ Ófögur mynd af íslenskum ungdómi í sjónvarpsumfjöllun í Bandaríkjunum Sendiherra segir þáttinn ókræsilega landkynningu Dæmdir í 5 og 7 ára fangelsi HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær, Víði Þorgeirsson í 5 ára fangelsi og Bret- ann Gareth John Ellis í 7 ára fangelsi fyrir e-töflusmygl síðastliðið sumar. Með dómi Hæstaréttar var refsing ákærða Víðis milduð um 2 ár en hann hlaut 7 ára fangelsi í héraðsdómi. Hæstiréttur staðfesti hins vegar 7 ára fangelsisdóm Bretans. Mönnunum tveim var gefið að sök að hafa staðið að innflutningi á 5.007 e-töflum auk 5,05 g af e-töflumulningi sem ætlaður var til sölu í ágóðaskyni hérlendis. Ákærði John Garreth tók á móti efninu af ónafngreindum manni í London og afhenti það meðákærða, sem flutti það til landsins, en við komu hans frá London 24. júlí 2000 fannst efnið í farangri hans. Í dómi Hæstaréttar var litið til þess að þáttur ákærða Víðis hefði verið mun minni en þáttur meðákærða og þá játaði hann brot sitt skýlaust og aðstoðaði við að upplýsa málið. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómararnir Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur Henrysson, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Haf- stein. Smygl á e-töflum Þrír Litháar dæmdir í 18 mánaða fangelsi Komu til landsins til að stela LITHÁARNIR þrír sem m.a. voru ákærðir voru fyrir innbrot í verslanir Hans Petersen og Bræðranna Orms- son fyrr á þessu ári voru í gær dæmd- ir í 18 mánaða fangelsi. Héraðsdómi Reykjavíkur þótti sannað að þeir hefðu komið til landsins í þeim til- gangi einum að stela verðmætum. Brotavilji þeirra væri því sérlega ein- beittur. Meðal sönnunargagna í málinu voru myndbandsupptökur úr verslun Hans Petersen og niðurstöður DNA- rannsóknar á sýnum sem tekin voru af þýfinu og úr fötum sem fundust í Laugardal. Á myndbandinu sáust þrír grímuklæddir menn brjótast inn í verslunina. Fötin sem þjófarnir klæddust þóttu líkjast mjög fötum sem síðar fundust falin í Laugardal. Lífssýni úr tveimur mannanna fund- ust í fötunum. Þeir voru einnig sakfelldir fyrir að stela bíl og þremur dúnsængum en þegar mennirnir voru handteknir var hluti þýfisins vafinn inn í sængurnar. Alls nam verðmæti ránsfengsins um 7,4 milljónum króna. Í dómnum segir að þrátt fyrir ein- dregna neitun hafi framburður mann- anna ekki verið fyllilega stöðugur og hafi á sér ótrúverðugleikablæ en mennirnir héldu m.a. fram að þrír Pólverjar hefðu afhent sér þýfið og beðið þá um að senda það úr landi. Opinber sakavottorð mannanna liggja ekki fyrir en lögreglan í Reykjavík aflaði upplýsinga um brotaferil þeirra. Einn þeirra hafði tvívegis verið dæmdur fyrir þjófnað í Svíþjóð en þau brot framdi hann ásamt öðrum manninum sem dæmd- ur var í gær. Samkvæmt gögnum lög- reglu á sá þriðji alvarlegasta brota- ferilinn. Hann hefur samtals verið dæmdur í fjögurra ára þegnskyldu- vinnu í Litháen fyrir þjófnað. Í Þýska- landi var hann dæmdur í fimm ára fangelsi, m.a. fyrir þrjú stórfelld rán. Dómnum þótti þó ekki nægjanlegar forsendur til að láta mismunandi brotaferil hafa áhrif á refsinguna. Mennirnir voru að auki dæmdir til að skipta á milli sín sakarkostnaði og greiða verjendum sínum málsvarnar- laun. Þeir hyggjast una dómi. Hjördís Hákonardóttir héraðs- dómari kvað upp dóminn. SANKTI bernharðshundurinn Dion er einn af fáum hreinræktuðum sankti bernharðshundum hér á landi en hann á uppruna sinn í Frakklandi. Ljós- myndari tók mynd af honum nýverið þar sem hann passaði upp á hesta- kerru við Geysi í Haukadal. Morgunblaðið/Ómar Árvökull hundur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.