Morgunblaðið - 22.06.2001, Side 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 33
Frumsýningar
DR. DOOLITTLE 2 Laugarásbíó,
Kringlubíó, Regnboginn
WATCHER Háskólabíó
HEAD OVER HEELS Bíóhöllin
Memento
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit:
Christopher Nolan. Aðalleikendur: Guy
Pierce, Carrie-Anne Moss, Joe Pantoliano.
Sérlega áhugaverð, um mann með ekkert
skammtímaminni. Frábærlega útsmogin og
úthugsuð, spennandi og fyndin. Bíóborgin
Traffic
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Steven Soder-
bergh. Handrit: Stephen Gaghan. Aðalleik-
endur: Michael Douglas, Benicio Del Toro,
Don Cheadle, Luis Guzman.Yfirgripsmikil,
margþætt spennumynd um dópsmyglið frá
Mexíkó til Bandaríkjanna. Kong, þó glædd
mikilli frásagnargleði og flestir kaflarnir trú-
verðugir í heimildarmyndarstíl. Bíóborgin
Blow
Bandarísk. 2001. Leikstjóri Ted Demme.
Handrit: Nick Cassavetes. Aðalleikendur:
Johhny Depp, Rachel Griffiths, Penelopé
Cruz. Látlaus, vel gerð og mjög áhugaverð
mynd um ævi umsvifamesta kókaínsmyglara
í Bandaríkjunum á áttunda áratugnum.
Depp er góður að vanda, sömuleiðis aðrir
leikarar. Háskólabíó.
Spy Kids
Bandarísk. 2001. Leikstjóri og handrit: Ro-
berto Rodriguez. Aðalleikendur; Antonio
Banderas, Carla Gugino, Alan Cumming. Æv-
intýraleg, spennandi og skemmtileg mynd
fyrir alla fjölskylduna. Stjörnubíó, Laugarásbíó, Regnboginn
Crimson Rivers
Frönsk. 2000. Leikstjóri Matthieu Kassovitz.
Handrit: Kassovitz og Jean-Christopher
Grange. Aðalleikendur: Jean Reno, Vincent
Cassell. Óhugnanleg en spennandi, franskur
tryllir, sem er aðeins of ruglingslegur en fín-
asta skemmtun. Regnboginn.
The Mummy Returns
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit:
Stephen Sommers. Aðalleikendur: Brendan
Fraser, Rachel Weisz, John Hannah. Múmían
snýr aftur með miklum látum. Ósvikin fjöl-
skylduskemmtun með mögnuðum brellum.
Háskólabíó, Bíóhöllin.
Nýi stíllinn keisarans – The
Emperor’s New Groove
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Mark Dindal.
Handrit: Thomas Schumacher.
Það kveður við nýjan tón í nýjustu Disney-
myndinni, sem fjallar um spilltan keisara
sem breytist í lamadýr og lærir sína lexíu.
Bráðfyndin mynd fyrir börn og fullorðna.
Bíóhöllin.
One Night at McCalĺs
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Haraald Zwart.
Handrit: Moon Shark. Aðalleikendur: Liv Tyl-
er, Matt Dillon, Michael Douglas. Skrautleg-
asta gamanmynd um flónin sem flækjast
inní ráðabrugg hinnar kynþokkafullu Liv Tyler.
Michael Douglas er eftirtektarverður. Laugarásbíó, Stjörnubíó
Some Voices
Bresk. 2000. Leikstjóri Simon Cellan Jones.
Handrit: Joe Penhall. Aðalleikendur: Daniel
Craig, Kelly McDonald. Að ýmsu leyti athygl-
isverð og vel leikin mynd um vanda geð-
sjúkra og þeirra nánustu en gengur einfald-
lega ekki upp.
Háskólabíó.
Along Came a Spider
Bandarísk. 2001
Leikstjóri Lee Tamahori. Handrit: Marc Moss.
Aðalleikendur: Morgan Freeman, Monica
Potter, Michael Wincott. Snyrtilega gerð
glæpamynd um mannrán og mistök. Vel leik-
in af Freeman en ótrúverðug, með ógnarlega
möskvastærð.
Háskólabíó.
See Spot Run
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: JohnWhitesell.
Handrit: William Kid. Aðalleikendur: David
Arquette, Michael Clarke Duncan. Meinlaus
barnamynd um hressan bolabít og heimska
tvífætlinga, ástir og uppeldismál. Dágóð til
sins brúks.
Bíóhöllin, Kringlubíó.
Someone Like You
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Tony Goldwyn.
Handrit: Elizabeth Chandler. Aðalleikendur:
Ashley Judd, Greg Kinnear, Hugh Jackman.
Þokkalega gerð og vel leikin en efnislega
villuráfandi kvennamynd. Regnboginn
Pearl Harbor
Bandarísk 2001. Leikstjóri Michael Bay.
Handrit William Wallace. Aðalleikarar Josh
Hartnett, Ben Affleck, Kate Beckinsdale. Af-
skaplega langdregin og leiðinleg mynd sem,
þegar öllu er á botninn hvolft, fjallar ekki um
neitt. Háskólabíó,Bíóhöllin, Bíóborgin, Kringlu-
bíó, Nýja Bíó Keflavík, Nýja Bíó Akureyri
Say It Isn’t So
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: J.B. Rodgers.
Handrit: Peter Gaulke. Aðalleikendur Chris
Klein, Heather Graham, Sally Field. Aula-
gamanmynd í anda Farrelly-bræðra en nær
ekki markmiði sínu. Stjörnubíó
Get Over It
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Tom O’Haver.
Handrit: R. Lee Fleming Jr. Aðalleikendur:
Kirsten Dunst, Bill Foster, Sisgo. Misheppnuð
unglingamynd með aulahúmor. Leikararnir
ágætir en bjarga engu.
Regnboginn
Pokémon 3
Bandarísk 2001. Leikstjóri Michael Haigney.
Handrit Haigney og Norman Grossfeld. Þriðja
Pokémon myndin er einsog þær fyrri; realísk
stuttmynd kemur á undan haáskaævintýrinu
þar sem Pokémonar berjast og Ash bjargar
málunum. Óaðlaðandi og óspennandi að
öllu leyti.
Bíóhöllin, Kringlubíó,
Valentine
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: James Blanks.
Handrit: Tom Savage. Aðalleikendur: Denise
Richards, David Boreans. Hryllilega óspenn-
andi hryllingsmynd með réttdræpum per-
sónum. ½
Kringlubíó
Bíóin í borginni
Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason/Hildur Loftsdóttir
GUÐRÚN Indriðadóttir og Bjarn-
heiður Jóhannsdóttir opna sýningu í
ASH-galleríi í Lundi í Varmahlíð á
morgun, laugardag, kl.
Þær hafa báðar tekið þátt í fjölda
samsýninga, auk einkasýninga á
liðnum árum. Þær stýrðu á síðasta
ári menningarborgarverkefni Leir-
listarfélagsins „Logandi list“, þar
sem fjöldi leirlistarmanna sýndi
brennslur við lifandi eld á Miðbakka
Reykjavíkurhafnar í ágúst 2000.
Sýningin ber með sér anda lífsins
og náttúrunnar í nytjamunum af
ýmsu tagi, sem þykir við hæfi í gróð-
ursæld og dýralífi Varmahlíðar að
sumarlagi.
Sýningin er opin alla daga, nema
þriðjudaga, frá 10–18 og stendur til
6. júlí.
Sýning á nytjamunum
í Ash-galleríi í Lundi
Gallerí Stöðlakot,
Bókhlöðustíg
Sýningu Kristínar Schmid-
hauser Jónsdóttur á útsaums-
verkum lýkur á sunnudag.
Gallerí Stöðlakot er opið dag-
lega frá kl. 14-18.
Sýningu
lýkur
NÚ stendur yfir ljósmyndasýning
Ástþórs Magnússonar í Kringlunni.
Sýningin hefur yfirskriftina Svip-
myndir frá landinu helga. Nær eitt
hundrað ljósmyndir, sem Ástþór tók
í maímánuði síðastliðnum, sýna
mannlífið á átakasvæðum í Ísrael og
Palestínu. Sýningunni er ætlað að
veita innsýn í líf fólks sem býr við
stöðugan ótta við hryðjuverk og
hernaðarógn. Héðan mun ljós-
myndasýningin fara til útlanda og
verða sýnd víða um heim, m.a. í
London og New York.
Ástþór lærði ljósmyndun við lista-
háskólann í Rochester í Bretlandi á
árunum 1971-1974 og tók myndir
m.a. fyrir Sunday Times og Dagblað-
ið Vísi. Þetta er önnur ljósmynda-
sýning Ástþórs, sú fyrri var haldin í
Reykjavík fyrir um þrjátíu árum
með myndum af Vestmannaeyjagos-
inu, en þær myndir Ástþórs hafa
birst víða um heim bæði í dagblöð-
um, tímaritum og bókum.
Svipmyndir
frá landinu
helga
Ein ljósmynda Ástþórs Magnús-
sonar á sýningunni í Kringlunni.