Morgunblaðið - 22.06.2001, Side 54
54 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
LÖNGUM hefur verið deilt á íslensk
stjórnvöld fyrir þá tilhneigingu að
leita fyrst og fremst skammtíma-
lausna í málum.
Á seinni árum hefur því miður
virst sem þjóðin sjálf hafi farið að til-
einka sér nokkuð þessa kærulausu
skammsýni stjórnvalda. „Eftir höfð-
inu dansa limirnir,“ segir máltækið
en mér finnst samt erfitt að trúa því
að þjóðin mín sé orðin svo samdauna
ábyrgðarsnauðu hugarfari stjórn-
málalífsins að hún telji allt í lagi að
skammtímalausnir einar séu á kort-
inu og framtíðarsýnin svo til engin.
Oft og iðulega er talað um að nú sé
tækifærið til að gera þetta eða hitt –
en sjaldan er spáð í það hvernig eft-
irleikurinn muni þróast.
Mörg dæmi sýna og sanna að
skammsýnin hefur orðið þjóðinni
dýr svo ekki sé fastar að orði kveðið.
Viðhorf augnabliksins er oftast til-
finningaþrungið og lítt grundað til
lengdar.
Í sambandi við Evrópumálin er til
dæmis rekinn áróður fyrir því af
hálfu aðildarsinna, að það sé svo hag-
stætt fyrir okkur Íslendinga að
verða Brussell-blækur einmitt nú!
Þar er hin eitraða skammsýni í
fullum gangi og hún ræður slíkum
viðhorfum sem eru auðvitað stór-
hættuleg frá þjóðhagslegu sjónar-
miði. En menn með hagsmuna-
glampa augnabliksins í augum segja
samt sem áður blákalt að nú sé þetta
svo einkar heppilegt ráð. En hvað
um stöðuna að ári eða eftir 5 ár, tíu
ár o.s.frv. Er eitthvað spáð í það
hvernig hlutirnir gætu litið út þá?
Nei, það er lítið talað um hvernig
Evrópusambandið komi hugsanlega
til með að þróast á næstu áratugum,
hvað við séum að kalla yfir okkur og
afkomendur okkar með aðild að því,
hvort við getum gengið úr því aftur
síðar ef okkur líkar ekki vistin,
o.s.frv. o.s.frv.
En er það ekki höfuðmálið að
reyna að gera sér sem besta grein
fyrir þessum atriðum? Er það ekki
hin skynsamlega leið að vega og
meta og fara sér að engu óðslega
þegar stórar ákvarðanir eru annars-
vegar?
Nei, það er víst ekki talið nauðsyn-
legt af þeim sem vilja ólmir leiðast af
skammsýni og það í örlagamálum og
virðast fá bullandi höfuðverk ef þeir
þurfa að hugsa ofurlítið af ábyrgð
fram í tímann.
Það er hinsvegar meira en nötur-
legt að hugsa til þess að þeir menn
séu til í landinu okkar sem eru til-
búnir að setja verðmiða á sjálfstæði
þjóðarinnar. Þar er verslunar-
hneigðin sannarlega farin að snúast
um ás landráðanna.
Við Íslendingar eigum ekki að láta
blekkja okkur til inngöngu í mið-
stjórnarveldi sem mun setja stein-
runnin tilskipanahöft á allt eðlilegt
mannlegt framtak. Evrópusamband-
ið er hugsað sem nýtt Rómaveldi og
innan leiðandi ríkja þess hefur verið
að aukast andúð og fjandskapur í
garð Bandaríkjanna. Það eitt sendir
nokkuð ákveðin skilaboð um hvernig
framvinda mála getur orðið. Það eru
nefnilega ýmsar ófriðarblikur að
vaxa þó sléttmælgin ráði enn á op-
inberum ráðstefnum.
Á slíkum tímum er lífsnauðsynlegt
fyrir okkur Íslendinga að eiga for-
ustumenn sem þekkja ábyrgð sína
og vilja virkilega þjóð sinni vel.
Getum við treyst því að andi Jóns
Sigurðssonar, þess manns sem var
kallaður sómi Íslands, sverð og
skjöldur, sé í raun og veru mikils
ráðandi innan íslensks stjórnmálalífs
í dag?
RÚNAR KRISTJÁNSSON,
Bogabraut 21, Skagaströnd.
Hin eitraða
skammsýni!
Frá Rúnari Kristjánssyni:
ÉG er ein af þeim sem get ekki
hugsað mér að taka hefðbundin
hormónalyf við óþægindum breyt-
ingaskeiðsins. Þess vegna hef ég á
undanförnum árum leitað annarra
leiða til þess að draga úr þeim og er
í því skyni búin að prófa og nota
með góðum árangri flest þau nátt-
úrulyf sem fáanleg eru hér á landi.
Meðal þeirra eru öll þau sem nú er
að finna í kvennablóma, nýrri vöru
sem Heilsuhúsið hefur látið fram-
leiða til þess að auka lífsgæði
kvenna. Í einni töflu eru nú sam-
ankomin sojaísóflavóníð, dong quai,
salvía, wild yam, drottningarhun-
ang, náttljósarolía, kalk og magn-
esíum, ásamt E- og B6-vítamínum
og er það til mikils þægindaauka.
Ég fagna þessum nýja valkosti heils
hugar og er viss um að hann á eftir
að hjálpa mörgum konum. Þegar
kvennablóminn kom á markað var
ég í þeirri stöðu að red clover sem
var búið að reynast mér vel um
nokkurra mánaða skeið dugði ekki
lengur eitt og sér til þess að losa
mig að fullu við hitaköstin og ég var
hætt að sofa nóttina í einum dúr. Ég
ákvað því að prófa nýju töfluna og
er nú búin að taka í rúman mánuð
með mjög góðum árangri. Eftir að-
eins 4 daga var ég laus við hitaköst
og svefnleysi. Góð vinkona mín er
líka búin að taka kvennablómann
aðeins skemur en ég en henni dugar
nú ½ tafla tvisvar á dag til þess að
ná sama árangri.
GUÐRÍÐUR
JÓHANNESDÓTTIR,
Þórsgötu 16, Reykjavík.
Gott bætiefni fyrir
konur á breytingaskeiði
Frá Guðríði Jóhannesdóttur: