Morgunblaðið - 01.07.2001, Page 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝ íþróttamannvirki verða tekin í
notkun á Egilsstöðum við hátíðlega
athöfn kl. 16 í dag. Flutt verða
ávörp, íþróttavöllurinn blessaður
og honum gefið nafn. Þá mun Vil-
hjálmur Einarsson Ólympíufari
segja frá því þegar hann æfði
íþróttir við frumstæðar aðstæður á
Egilsstöðum á æskuárum.
Landsmót hefst 12. júlí
Undirbúningur 23. Landsmóts
UMFÍ stendur nú sem hæst, en það
hefst á Egilsstöðum þann 12. júlí
nk. Að sögn Ágústu Björnsdóttur,
formanns framkvæmdanefndar
Landsmótsins, er búið að end-
urgera knattspyrnuvöll, sex
hlaupabrautir, gera æfingasvæði
og byggja hús fyrir búningaað-
stöðu, tækjageymslu og félags-
aðstöðu Hattar. Þá var lokið við
byggingu íþróttahúss í fyrrahaust.
Ágústa sagði að heildarkostn-
aður við þessa mannvirkjagerð
væri nálægt kostnaðaráætlun.
Hlutur sveitarfélagsins væri 73
milljónir og ríkisins 35 milljónir.
Þarna verður frjálsíþróttaaðstaða
fyrir Austurland. „Við vonumst
líka eftir að fá hingað mót og aðra
íþróttaviðburði. Eins æfingabúðir
fyrir frjálsíþróttafólk, sagði
Ágústa.“
Fallegasti völlurinn
Ingimundur Ingimundarson,
framkvæmdastjóri 23. Landsmóts-
ins, lauk lofsorði á nýju íþrótta-
mannvirkin. „Þessi aðstaða er frá-
bær og að mínu mati fallegasti
íþróttavöllur á landinu,“ sagði Ingi-
mundur. Hann sagði að búist væri
við nær 2.000 keppendum og alls 10
til 15 þúsund gestum á Landsmótið.
Ný íþróttamann-
virki tekin í notkun
Morgunblaðið/RAX
Ingimundur Ingimundarsson býst við 10 til 15 þúsund gestum á landsmót sem hefst 12. júlí nk.
Endurreisn sagnalistar
Kjarni þess að
vera mannlegur
HINGAÐ til landskom fyrirskömmu dr. Don-
ald Smith í tengslum við
evrópska sagnaverkefnið
Storytelling Renaissance
– eða endurreisn sagna-
hefðar. Hann fjallaði um
þetta efni á lokuðum
fundi í Borgarnesi, en
sagnaverkefnið hefur ver-
ið unnið á Vesturlandi í
samvinnu við Samband
sveitarfélaga á Vestur-
landi. Dr. Donald Smith
var spurður hvað hann
hefði rætt um við þetta
tækifæri.
„Við bárum saman á
fundinum það sem er að
gerast á sviði sagnahefðar
á Íslandi og í Skotlandi
og menn veltu fyrir sér
leiðum til þess að styrkja tengsl
á milli þessara landa í þessum
efnum. Í Skotlandi vinnum við að
því að endurvekja sagnahefðina
okkar. Okkur finnst margt
áhugavert vera að gerast á Vest-
urlandi á Íslandi, þar er þetta
verkefni komið lengst í vinnslu.“
– Hefur sagnahefð í Skotlandi
legið í hálfgerðum dvala?
„Já, á sumum svæðum en ein-
stakir hópar, t.d. skoska „föru-
fólkið“ eins konar sígaunaþjóð-
flokkur Skota hafa haldið
sagnahefði á lífi. Þetta hefur
gerst vegna þess að þeim tókst
að sneiða hjá menntakerfinu og
þá varðveittust sögurnar fremur
í munnlegri geymd. Við höfum
lært mikið af þeim, hvernig
sagnalistin virkar.“
– Eru skoskar sögur svipaðar
þeim íslensku?
„Sumar sögur eigum við sam-
eiginlegar. Við eigum líka það
sem hér á Íslandi eru kallaðar
fornsögur og svo eigum við þjóð-
sögursögur um skrímsli og yf-
irnáttúrlega hluti. En fyrst og
fremst eigum við mest sameig-
inlegt í því að hver einasti stað-
ur, bóndabær og hlutir í lands-
lagi eiga sér sögur. Þetta er
svipað í Skotlandi og hér á Ís-
land.“
„Í Skotlandi eru þrjú tungu-
mál, skoska, gelíska og enska og
hver menningarheild á sér sína
sagnahefð.“
– Hvað er að segja um umrætt
verkefni?
„Verkefnið snýst um að hvetja
fólk til þess að fara að segja
gömlu sögurnar aftur. Og fólk
bæði hér á Íslandi og í Skotlandi,
auk Grikklands og Þýskalands,
sem jafnframt taka þátt í verk-
efninu, hafa mjög mikinn áhuga
vegna þess að þetta er leið til
þess að tengjast okkar eigin um-
hverfi og samfélagi. Og um leið
að deila því með gestum okkar.
Það hefur ekki komið fram enn
að verkefnið tengist ferðaþjón-
ustu, en það gerir það sem sagt.
Tilgangurinn er að hvetja fólk til
að nýta sagnahefð meira til að
taka á móti ferðamönnum. Fólk
hefur hæfileikana til að segja
sögur og nýtur þess
að uppgötva að það
getur nýtt þessa hæfi-
leika. Það eru þrír
hópar sem leggja
sagnalistina fyrir sig,
það eru fólk sem segir
aðallega sögur í sínu
samfélagi og af sínu
samfélagi, þetta fólk
veit oft mjög mikið um
söguna á sínu heimasvæði eða er
eins konar skemmtikraftar eða
hefur hæfileika til að segja börn-
um sögur. Síðan er til fólk sem
notar sagnalistina í starfi sínu,
svo sem leiðsögumenn, kennarar,
bókaverðir, safnverðir, landverð-
ir, heilbrigðisstarfsmenn og fólk
sem starfar með eldri borgurum.
Loks eru nokkrir einstaklingar
sem hafa sérstaka frásagnargáfu
og gera sagnalistina að sínu
meginstarfi. Sagnalist er list-
grein sem hægt er að læra og til-
einka sér eins og aðrar listgrein-
ar.“
– Eru yfirvöld í Skotlandi því
mjög fylgjandi að endurvekja
sagnalistina?
„Já, síðustu fimm árum hefur
ríkisstjórnin og sveitarstjórnir
farið að styðja og hvetja til auk-
innar sagnahefðar. Sagnakvöld
og sagnahátíðir eru að aukast og
æ fleiri gerast sagnamenn og
sagnakonur. Íslendingar eru ein
helsta sagnþjóð heims og ég ber
mikla virðingu fyrir ykkar
sagnaarfi, þannig að kannski
væri ástæða til að styðja þessa
listgrein frekar.“
– Ert þú mjög kunnugur ís-
lenskum sögnum?
„Já, og það snertir mig djúpt
að koma hingað og sjá Flateyj-
arbók sem hefur að geyma elstu
sögur frá Orkneyjum í Skotlandi
sem fyrirfinnast. Maðurinn sem
stofnaði Sagnamiðstöð Skotlands
kom frá Orneyjum, endurskapaði
þessar sögur fyrir okkur heima í
Skotlandi. Þetta hefur hann ver-
ið að gera sl. tuttugu ár.“
– Hver er staða sagnalistar í
heiminum í dag?
„Ég held að það sé að verða
endurreisn núna vegna þess að
ólíkar menningarheildir og vist-
fræði fara saman. Ef við kunnum
ekki að meta viðkvæma menn-
ingu og samfélög munum við
heldur ekki meta náttúruna.
Sagnalist snýst um
virðingu fyrir menn-
ingu hvers og eins og
virðingu fyrir nátt-
úrunni. Manneskjurn-
ar búa yfir dýrmætum
fjársjóði þar sem
tungumálið er annars
vegar og hafa ímynd-
unarafl til þess að
skapa heilu heimana
og deila þeim með öðrum. Þetta
er kjarni þess að vera mannlegur
og í sagnalistinni birtist þetta
ákaflega skýrt. Og ekki síst er
sagnalistin skemmtileg og allir
geta tekið þátt í henni.
Donald Smith
Donald Smith fæddist í Glas-
gow 1956. Hann tók próf sem
bókmenntafræðingur í Sterling-
háskóla í Skotlandi og síðar
doktorspróf frá háskólanum í
Edinborg. Hann er nú fram-
kvæmdastjóri listamiðstöðvar í
Edinborg sem jafnframt er
sagnamiðstöð Skotlands. Kona
hans er Allison Smith leikskóla-
kennari og eiga þau fimm börn.
Endurreisn
vegna þess
að ólíkar
menningar-
heildir og vist-
fræði fara
saman
SJÁLFSTÆÐISMENN í borgar-
stjórn Reykjavíkur gagnrýna nýja
gjaldskrá Strætó bs. sem tekur
gildi í dag og einnig ummæli Helga
Péturssonar, formanns samgöngu-
nefndar Reykjavíkurborgar, sem
birtust í Morgunblaðinu á föstudag.
Þar segir Helgi meðal annars að
samstaða hafi ríkt innan stjórnar
Strætó bs. um fargjaldahækkanir
hinn 1. júlí og spurning sé hvað
stjórn Strætó bs. finnist um af-
stöðu minnihluta borgarstjórnar
Reykjavíkur, en í stjórn félagsins
eiga sæti fulltrúar hinna sjö bæj-
arfélaga sem að Strætó bs. standa
og eru fimm þeirra sjálfstæðis-
menn.
Kjartan Magnússon, borgar-
stjórnarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, bendir á, að þótt einn fulltrúi
frá hverju aðildarsveitarfélagi sitji
í stjórn Strætó bs. ráðist atkvæða-
vægi innan stjórnarinnar eftir
íbúafjölda eins og samþykktir
félagsins segja til um og því fari
fulltrúi Reykjavíkurborgar í stjórn-
inni með meirihlutavald þar. Þá
segir Kjartan að þar sem fargjalda-
tekjur fyrirtækisins séu aðeins
helmingur af tekjum þess sé aug-
ljóst að ætlunin sé að auka heild-
arfargjaldatekjur fyrirtækisins um
20%, ekki sé um 10% tekjuauka
miðað við núgildandi gjaldskrá að
ræða, eins og Helgi hafi bent á.
Hvað varðar ummæli Helga um
að spurning sé hvað stjórn Strætó
bs. finnist um afstöðu minnihluta
borgarstjórnar Reykjavíkur telur
Kjartan að R-listinn sé með þeim
að skorast undan ábyrgð á um-
ræddum hækkunum og afhjúpi um
leið þá skoðun formanns sam-
göngunefndar að borgarstjórn
Reykjavíkur eigi ekki að hafa álit á
því hvað þjónusta strætisvagna í
Reykjavík eigi að kosta farþega.
„Slík afstaða er furðuleg í ljósi þess
að hið nýja fyrirtæki, Strætó bs., er
í meirihlutaeigu Reykvíkinga og
mun Reykjavíkurborg greiða meira
en helming af framlagi sveitar-
félaganna til þess,“ segir Kjartan.
Minnihlutinn gagnrýnir nýja verðskrá Strætó bs.
Meirihluti viðskipta-
vina Reykvíkingar