Morgunblaðið - 01.07.2001, Síða 44
DAGBÓK
44 SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Brú-
arfoss kemur í dag og
fer á morgun, Vigri og
Astor koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Venus, Novospascky,
Olthan og Nikolay Af-
anasyev koma á morg-
un, Jóhanna Sigurð-
ardóttir fer í dag.
Viðeyjarferjan. Tíma-
áætlun Viðeyjarferju:
Mánudaga til föstu-
daga: til Viðeyjar kl.
13, kl. 14 og kl. 15, frá
Viðey kl. 15.30 og kl.
16.30. Laugardaga og
sunnudaga: Fyrsta ferð
til Viðeyjar kl. 13 síðan
á klukkustundar fresti
til kl. 17, frá Viðey kl.
13.30 og síðan á
klukkustundar fresti til
kl. 17.30. Kvöldferðir
eru föstu- og laug-
ardaga.: til Viðeyjar kl.
19, kl. 19.30 og kl. 20,
frá Viðey kl. 22, kl. 23
og kl. 24. Sérferðir fyr-
ir hópa eftir sam-
komulagi. Viðeyj-
arferjan sími 892 0099.
Lundeyjarferðir dag-
lega, brottför frá Við-
eyjarferju kl.10.30 og
kl. 16.45, með viðkomu
í Viðey u.þ.b. 2 klst.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 8.45 leikfimi, kl.
10 boccia, kl. 14 félags-
vist, kl. 12.30 baðþjón-
usta. Verslunarferð í
Hagkaup miðvikudag-
inn 4. júlí kl. 10 frá
Grandavegi 47 með við-
komu í Aflagaranda 40.
Kaffi og meðlæti í boði
Hagkaups. Skráning í
afgreiðslu. s. 562-2571.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9–12 opin handa-
vinnustofan, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia,
kl. 13.30–16.30 opin
smíðastofan/útskurður,
kl. 13.30 félagsvist, kl.
10–16 púttvöllurinn op-
inn.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 al-
menn handavinna, kl.
9.30–11 morgunkaffi/
dagblöð, kl. 10 sam-
verustund.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Á morgun
kl. 8 böðun, kl. 9 fóta-
aðgerð, kl. 9.30 hjúkr-
unarfræðingur á staðn-
um, kl. 10 verslunin
opin, kl. 11.20 leikfimi,
kl. 11.30 matur, kl. 13
handavinna og föndur.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfingar á Hrafn-
istuvelli þriðjudögum
kl. 14 til 16. Orlofið á
Hótel Reykholt í Borg-
arfirði 26.–31.ágúst nk.
Skráning og allar upp-
lýsingar í símum ferða-
nefndar 555-0416, 565-
0941, 565-0005 og 555-
1703 panta þarf fyrir 1.
ágúst. Félagsheimilið
Hraunsel verður lokað
vegna sumarleyfa
starfsfólks frá 2. júlí til
12. ágúst.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10 til 13. Matur í há-
deginu. Sunnudagur:
Dansleikur kl. 20
Caprí-tríó leikur fyrir
dansi. Mánudagur:
Brids kl. 13. Miðviku-
dagur: Göngu-Hrólfar
fara í létta göngu frá
Hlemmi kl. 9.45. Dags-
ferð 10. júlí Þórsmörk
–Langidalur. Stuttar
léttar göngur. Nesti
borðað í Langadal.
Leiðsögn Þórunn Lár-
usdóttir og Pálína
Jónsdóttir. Brottför frá
Glæsibæ. Skráning haf-
in. Ferð í Álfamörk,
Hvammsvík 10. júlí kl.
13.00, þar sem eldri
borgarar og unglingar
gróðursetja plöntur í
reitinn sinn. Ókeypis
far en takið með ykkur
nesti . Skráning hafin.
Brottför frá Ásgarði
Glæsibæ kl. 13. Dags-
ferð 14. júlí Gullfoss-
Geysir-Haukadalur.
Fræðasetrið skoðað.
Leiðsögn Sigurður
Kristinsson og Pálína
Jónsdóttir. Skráning
hafin. Eyjafjörður –
Skagafjörður – Þing-
eyjarsýslur 6 dagar.
26.–31.júlí. Ekið norður
Sprengisand til Ak-
ureyrar. Farið um
Eyjafjarðardali, Svarf-
aðardal, Hrísey, Sval-
barðsströnd, og fl. Ekið
suður Kjalveg um
Hveravelli til Reykja-
víkur. Leiðsögn Þórunn
Lárusdóttir. Eigum
nokkur sæti laus. Silf-
urlínan er opin á mánu-
og miðvikudögum frá
kl. 10 til 12 f.h. í síma
588-2111. Upplýsingar
á skrifstofu FEB kl. 10
til 16 í síma 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Á morgun
kl. 9–16.30 opin vinnu-
stofa, handavinna og
föndur, kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 14 félags-
vist.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun er handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum frá
kl. 9.30–12.
Hraunbær 105. Á
morgun kl. 9, perlu-
saumur og kortagerð,
kl. 10 bænastund, kl. 13
hárgreiðsla, kl. 13.30 til
14.30 gönguferð.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun,
fótaaðgerðir, kl. 13 spil-
að.
Norðurbrún 1. Á morg-
un verður fótaaðgerða-
stofan opin kl. 9–14,
bókasafnið opið kl. 12–
15, ganga kl. 10.
Vesturgata 7. Á morg-
un kl. 9 dagblöð og
kaffi, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 9.15 al-
menn handavinna , kl.
11.45 matur, kl. 14.30
kaffi.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smiðjan og hár-
greiðsla, morgunstund
og almenn handmennt,
kl. 10 fótaaðgerðir, kl.
11.45 matur, kl. 13 leik-
fimi og frjáls spil, kl.
14.30 kaffi.
GA-fundir spilafíkla,
eru kl. 18.15 á mánu-
dögum í Seltjarnar-
neskirkju (kjallara), kl.
20.30 á fimmtudögum í
fræðsludeild SÁA Síðu-
múla 3–5 og í Kirkju
Óháða safnaðarins við
Háteigsveg á laug-
ardögum kl. 10.30.
Hana-nú Kópavogi
Munið óvissuferðina
fimmtudaginn 5 júlí
með öruggri lendingu
um síðir á Snarhóli í
Vatnsendalandi. Kaffi,
pönnsur og frónkex.
Allir velkomir! Lagt af
stað frá Gullsmára
kl.14 en Gjábakka kl.
14.10.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastdæma, Breið-
holtskirkju við Þang-
bakka. Skálholtsskóli,
ellimálanefnd þjóðkirkj-
unnar og ellimálaráð
Reykjavíkurprófasts-
dæma efna til sum-
ardvalar fyrir eldri
borgara í Skálholti.
Boðið er til fimm daga
dvalar í senn og raðast
þeir þannig: 2 til 6 júlí
og 9 til 13. júlí. Allar
nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu elli-
málaráðs Reykjavík-
urprófastsdæma f.h.
virka daga í síma 557-
1666.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Suðurlandi: Í
Vestmannaeyjum: hjá
Axel Ó. Láruss. skó-
verslun, Vest-
mannabraut 23, s. 481-
1826. Á Hellu: Mosfelli,
Þrúðvangi 6, s. 487-
5828. Á Flúðum: hjá
Sólveigu Ólafsdóttur,
Versl. Grund s. 486-
6633.
Á Selfossi: í versluninni
Íris, Austurvegi 4, s.
482-1468 og á sjúkra-
húsi Suðurlands og
heilsugæslustöð, Ár-
vegi, s. 482-1300. Í Þor-
lákshöfn: hjá Huldu I.
Guðmundsdóttur,
Oddabraut 20, s. 483-
3633.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga, fást á eftirtöldum
stöðum á Reykjanesi. Í
Grindavík: í Bókabúð
Grindavíkur, Vík-
urbraut 62, s. 426-8787.
Í Garði: Íslandspósti,
Garðabraut 69, s. 422-
7000. Í Keflavík: í
Bókabúð Keflavíkur
Pennanum, Sól-
vallagötu 2, s. 421-1102
og hjá Íslandspósti,
Hafnargötu 89, s. 421-
5000.
Í Vogum: hjá Íslands-
pósti b/t Ásu Árnadótt-
ur, Tjarnargötu 26, s.
424-6500, í Hafnarfirði:
í Bókabúð Böðvars,
Reykjavíkurvegi 64, s.
565-1630 og hjá Penn-
anum - Eymundsson,
Strandgötu 31, s. 555-
0045.
Í dag er sunnudagur 1. júlí, 182.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Hver sem tekur ekki sinn kross og
fylgir mér, er mín ekki verður.
(Matt. 10, 38.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 klunni, 8 hlunnindum, 9
ljóskera, 10 rölt, 11
harmi, 13 nytjalönd, 15
fjöturs, 18 grenjar, 21
álít, 22 týna, 23 falla, 24
örlagagyðja.
LÓÐRÉTT:
2 gerast oft, 3 víðri, 4
sjóða, 5 urmull, 6 ótta, 7
óþokki, 12 op, 14 ílát, 15
blýkúlur, 16 reik, 17
deila, 18 gömul, 19 pass-
ar, 20 kyrrir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 belgs, 4 kinda, 7 tossi, 8 ósköp, 9 gær, 11 rösk,
13 ónar, 14 aflát, 15 stál, 17 tala, 20 úði, 22 tekin, 23 læð-
an, 24 narra, 25 nárar.
Lóðrétt: 1 bitur, 2 losts, 3 seig, 4 klór, 5 nakin, 6 Alpar,
10 æxlið, 12 kal, 13 ótt, 15 sætin, 16 álkur, 18 arður, 19
Agnar, 20 únsa, 21 ilin.
OKKUR, sem vinnum við
gangavörslu í skólum, er
sagt upp störfum á sumrin
þegar skólar loka og end-
urráðin að hausti og förum
við þá tímabundið á at-
vinnuleysisbætur. Okkur
langar að fá svör hvers
vegna okkur er mismunað
hjá atvinnumiðlun? Hvers
vegna þurfum við að
stimpla okkur vikulega
meðan aðrir atvinnulausir
þurfa aðeins að stimpla sig
á 2ja vikna fresti? Og hvers
vegna þurfum við að fara í
gegnum alla fundi og viðtöl
eins og aðrir þegar vitað er
að þetta er aðeins tíma-
bundið atvinnuleysi?
Atvinnulausir
gangaverðir.
Samþykki nágranna
fyrir dýrahaldi
JP Fannar Jónsson skrifar
í velvakanda 14. júní sl. og
kvartar undan skilnings-
leysi fólks á hundahaldi.
Ég tel það af hinu góða
að það þurfi samþykki ná-
granna fyrir hundahaldi,
betur færi að það gilti einn-
ig fyrir ketti. Það eru allt of
margir hunda- og katta-
eigendur sem sýna ná-
grönnum sínum ótrúlegt
tillitsleysi. Dæmi er um að
hundur var settur út á nótt-
unni og gelti þannig að und-
ir tók og köttum er hleypt
út til að gera þarfir sínar í
garð nágrannans. Það er
eins og sumt fólk sem held-
ur dýr átti sig ekki á því að
það eru aðrir sem kæra sig
ekki um þau.
Hunda- og kattaeigend-
ur! látið okkur hin í friði og
haldið dýrunum á ykkar
eigin lóð þannig að þau
trufli hvorki með hávaða né
ágengni.
Jóna.
Frábær
sjónvarpsstöð
MIG langar til að óska
starfsfólki Skjás 1 til ham-
ingju með frábæra sjón-
varpsstöð. Dagskráin er
uppfull af góðum þáttum.
Íslensku þættirnir eru afar
skemmtilegir. Leikgleðin
skín í gegn. Það vantar svo
oft á hinum stöðvunum.
Varðandi auglýsingar lang-
ar mig að nefna að ég horfi
mjög jákvætt á auglýsingar
á Skjá 1 þar sem það er
verðið fyrir ókeypis sjón-
varpsstöð. Aftur á móti er
ég afar ósáttur við að borga
á fjórða þúsund krónur á
mánuði fyrir Stöð 2 og
þurfa svo að horfa á enda-
lausar auglýsingar eins og
t.d. í desember.
Eins langar mig að nefna
það t.d. að ég sniðgeng allar
vörur sem eru auglýstar
inn í miðjum Simpson-þátt-
unum.
Loksins er komin alvöru
valkostur sem við verðum
að hlúa að og passa upp á að
„átvögl samkeppninnar“ éti
aldrei upp til agna eins og
við höfum horft upp á sl. ár.
Jóhannes.
Tapað/fundið
Prjónahúfa týndist á
Hlemmi
LJÓSDRAPPLEIT ullar-
prjónahúfa týndist 25. júní
við Hlemm. Vegna minn-
ingargildis er heitið fund-
arlaunum. Skilvís finnandi
hafi samband í síma 551-
6527 eða hafa samband við
gæslumann á Hlemmi.
Svört taska
týndist
SVÖRT taska með snyrti-
vörum og GSM-síma týnd-
ist nálægt Perlunni eða
Nauthólsvík 28. júní. Þess
er sárt saknað. Skilvís finn-
andi vinsamlega hafi sam-
band í síma 565-4623, 848-
7519 eða 693-2304.
Dýrahald
Hvít læða týndist í
Garðabæ
HVÍT og falleg norsk skóg-
arlæða týndist í gær 28.
júní frá heimili sínu að
Bakkaflöt 8 í Garðabænum.
Hún heitir Krista og er vel
merkt, hún er ein af fjöl-
skyldunni og hennar er sárt
saknað. Ef einhver hefur
orðið var við hana þá vin-
samlegast hafið samband
við okkur í síma: 565-8097
eða Huldu í síma: 866-3850.
Köttur í
Grafarvogi
BÓSÓ er bröndóttur högni
sem týndist fyrir 2 vikum
frá heimili sínu í Hamra-
hverfi, Grafarvogi. Hann er
bæði eyrnamerktur og með
hálsól. Ég vill biðja alla um
að athuga í bílskúrum sín-
um. Þeir sem vita hvar
hann er niðurkominn eða
séð til hans vinsamlegast
hafið samband við Kötlu í
síma:698-9100.
Svartur og hvítur
fress í óskilum
í Hafnarfirði
SVARTUR og hvítur fress
u.þ.b. 5 mánaða er í óskilum
í Hafnarfirði. Upplýsingar í
síma 897-8205.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Fyrirspurn
til atvinnu-
miðlunar
Víkverji skrifar...
EINS og allir vita er ekki gefiðþjórfé á Íslandi en landi Vík-
verja, sem rekur gistiþjónustu fyrir
ferðamenn (og hjá honum gista oft
hópar útlendinga), kveðst oft verða
var við það í tengslum við starfið að
leiðsögumenn virðast lauma því að
ferðamönnum að gauka einhverju að
rútubílstjórunum að leiðarlokum (og
þá virðast leiðsögumenn líka fá eitt-
hvað). Segir viðkomandi að fólki
sem vinni hjá honum finnist þetta
mjög ósanngjarnt því það stjani við
þessa ferðamenn en fái aldrei þjórfé.
Viðkomandi segist hafa heyrt bíl-
stjóra gorta sig af því að vera með á
bilinu 25–50 þúsund á viku í þjórfé.
Viðkomandi telur að þarna sé ver-
ið að mismuna fólki; annaðhvort
eiga að gefa öllum þjórfé eða eng-
um.
x x x
VÍKVERJI hefur oft pantað sérhluti frá útlöndum og greitt
með bros á vör þann toll sem honum
ber.
Nýlega kynntist hann þó tolla-
reglum sem honum þóttu undarleg-
ar en þá var um gjöf að ræða.
Tilkynning barst frá tollinum um
að þar væri kominn pakki frá
Bandaríkjunum; sængurgjöf frá ör-
látum fjölskylduvini sem tiltók á
fylgibréfi að í bögglinum væru föt og
brúður. Hringt var í tollinn og út-
skýrt hvert innihaldið væri, glaðn-
ingur til nýfædds fjölskyldumeð-
lims. Sá sem svaraði sagði að fyrst
um gjöf væri að ræða þyrfi ekki að
fylla út tollskýrslu, pakkann mætti
sækja í tollafgreiðsluna.
Víkverji brunaði í tollinn, spennt-
ur að sjá hvað vinurinn góði væri að
senda barninu. Eftir nokkra stund
kom þessi væni böggull inn í mót-
tökuna og honum fylgdi gíróseðill
upp á kr. 5.014. Víkverja bar sem-
sagt að greiða þá upphæð með gjöf-
inni til barnsins!
Þegar Víkverji, sem var illa sleg-
inn yfir þeirri kröfu, bað um útskýr-
ingar var hann kallaður inn í viðtals-
herbergi þar sem kurteis og
viðmótsþýður tollvörður útskýrði
veruleika málsins fyrir honum. Gjaf-
ir mega ekki kosta meira en sjö þús-
und krónur, allt umfram það er toll-
að. Nú hafði starfsmaður sá sem bar
út póstinn fyrir vininn í New York,
verið svo samviskusamur að hann
áætlaði verðmæti innihaldsins á 150
dali og síðan bættist sendikostnað-
urinn við, 28 dalir. Af þessari upp-
hæð voru dregnar frá 7.000, það
verð sem gjöf má kosta, samkvæmt
ákvörðun hins opinbera, og fyrr-
nefndur tollur reiknaður af rest.
Það hlálega í þessu máli er líklega
það, að þessar gjafir, barnaföt,
barnateppi og tvær brúður, voru
keyptar á götumarkaði indíána í
fjöllum Mexíkó og kostuðu í mesta
lagi 2.000 krónur. Tollvörðurinn
benti á þann möguleika að lækka
mætti tollinn, eða fella niður, ef Vík-
verji fengi kvittanir sendar frá vin-
inum sem sýndu raunverulegt and-
virði gjafanna. En Víkverja fannst
það niðurlægjandi fyrir alla viðkom-
andi; að rukka gjafarann um kvitt-
anir fyrir gjöfinni. Frekar kaus
hann að greiða 5.014 krónur, flýta
sér heim með pakkann að sýna fjöl-
skyldunni – og hringja síðan og
þakka þessum góða vini fyrir vestan
fyrir hugulsemina. Í símtalinu lét
Víkverji eiga sig að minnast á að það
hefði kostað umtalsvert fé að leysa
út gjöfina til nýfædds barnsins.