Morgunblaðið - 27.07.2001, Side 1
STJÓRNVÖLD í Makedóníu eru
reiðubúin að hefja að nýju viðræður
við fulltrúa albanska minnihlutans í
landinu, en viðræður þeirra í milli
hafa legið niðri í rúma viku. Það var
Ljubco Georgíjevskí, forsætisráð-
herra Makedóníu, sem tilkynnti
þetta á blaðamannafundi í gær en
fyrirhugað er að friðarviðræðunum
verði haldið áfram í dag, föstudag, í
borginni Tetovo.
Þetta gerðist eftir fund makedón-
ískra ráðamanna og Robertsons lá-
varðar, framkvæmdastjóra Atlants-
hafsbandalagsins (NATO), og
Javiers Solana, talsmanns Evrópu-
sambandsins (ESB) í öryggis- og
varnarmálum, í gær.
Þeir Robertson og Solana funduðu
einnig með talsmönnum albanska
minnihlutans, sem eiga sæti í stjórn
landsins. Robertson sagði eftir fund
með Borís Trajkovskí, forseta Make-
dóníu, að forsetinn teldi að einungis
ætti eftir að semja um 5% deilumála.
„Ef hægt er að leysa þessi fimm pró-
sent getur þjóðin komist hjá borg-
arastyrjöld og snúið aftur á braut
friðar,“ sagði Robertson.
Vonast til að vopnahléið haldi
Í samræmi við samkomulag sem
albanskir skæruliðar gerðu við
samningamann NATO í Makedóníu,
Pieter Feith, drógu þeir í gær herlið
sitt til baka frá svæðum sem þeir
hafa hertekið undanfarnar vikur.
Talsmenn skæruliðanna segjast hins
vegar ekki ljúka herflutningum sín-
um fyrr en staðfesting NATO á fyrr-
Viðræður
hefjast á ný í
Makedóníu
Skopje. AP, AFP.
nefndu samkomulagi liggi fyrir. Áð-
ur höfðu makedónísk stjórnvöld sett
flutningana sem skilyrði fyrir því að
þau myndu virða vopnahléið frá 5.
júlí. Þau hótuðu jafnframt stórsókn
drægju skæruliðarnir sig ekki til
baka. Að sögn talsmanna NATO
hafa flutningarnir gengið snurðu-
laust fyrir sig og eiga íbúar Tetovo
og nærliggjandi þorpa, sem flúðu
átökin í síðustu viku, nú að geta snú-
ið heim. Vonast er til þess að samn-
ingurinn og yfirlýsing Makedóníu-
stjórnar þýði að vopnahléið sem
gekk í gildi 5. júlí sl. muni halda.
Dómsmálaráðuneyti Makedóníu
gaf í gær út alþjóðlega handtöku-
skipun á hendur ellefu yfirmönnum
albönsku skæruliðanna. Þar kemur
fram að þeir séu grunaðir um glæpi
gegn mannúð og stríðsglæpi. Meðal
þeirra sem handtökuskipunin nær til
er Ali Ahmeti, aðaltalsmaður skæru-
liðanna og sá sem undirritaði sam-
komulagið sem gekk í gildi í fyrri-
nótt. Þá er Fazli Veliju jafnframt
nefndur í handtökuskipuninni en
hann býr í Sviss og segja makedón-
ísk stjórnvöld að hann sjái að miklu
leyti um að fjármagna stríðsrekstur
skæruliðanna. Því er haldið fram að
flestir, ef ekki allir, þeir sem hand-
tökuskipunin nær til séu staddir í
Kosovo, að Veliju undanskildum.
Í yfirlýsingu frá dómsmálaráðu-
neytinu í Skopje segir að það hafi
safnað gögnum sem sanni að Alban-
irnir stefni að því að kljúfa Makedón-
íu og stofna nýtt ríki Albana með
Kosovo-héraði í Júgóslavíu.
Hátæknifyrirtæki boða einhvern mesta niðurskurð sem orðið hefur í tíu ár
Verri afkoma og tug-
ir þúsunda uppsagna
Frankfurt, Tókýó. AFP, AP.
FYRIRTÆKI beggja vegna Atl-
antshafsins tilkynntu í gær versn-
andi afkomu og sparnaðarráðstafan-
ir. Franska fyrirtækið Alcatel, sem
framleiðir fjarskiptabúnað, greindi
frá því að í árslok yrði búið að fækka
störfum hjá fyrirtækinu um 20 þús-
und og hefðu um 60% uppsagnanna
þegar tekið gildi.
Alls mun hafa verið tilkynnt um
tæplega 35 þúsund uppsagnir, sem
annaðhvort hafa þegar tekið gildi
eða eru fyrirhugaðar á þessu ári, að
því er greint var frá á fréttavef BBC
í gær. Tilkynnt var um álíka fjölda
uppsagna sl. þriðjudag og að mati
hagfræðinga er þetta að verða ein-
hver mesti niðurskurður síðan í
efnahagslægðinni í byrjun tíunda
áratugarins.
Þýska hátæknistórfyrirtækið Infi-
neon, næststærsti framleiðandi
tölvukubba í Evrópu, greindi frá því
í gær að fyrir dyrum stæðu upp-
sagnir um fimm þúsund starfs-
manna, eða um 14,7% af vinnuafli
fyrirtækisins í heiminum. Á með
þessu að draga úr kostnaði um einn
milljarð evra.
Stjórnarformaður fyrirtækisins
sagði að engar batahorfur væri að
sjá á markaðinum og því væri fyr-
irtækinu nauðugur einn kostur.
Talsmenn launþegasamtaka vöruðu
við því að fyrirætlunum þessum yrði
ekki tekið þegjandi.
Annað þýskt hátæknifyrirtæki,
Epcos, tilkynnti 750 uppsagnir á
næstu 12 mánuðum, til viðbótar
þeim 600 sem þegar hafði verið
greint frá. Til skamms tíma myndu
uppsagnirnar draga úr hagnaði, en
„bæta stöðuna umtalsvert til heils
árs litið“.
Skilaboðin voru skýr: Þótt upp-
sagnir væru slæmar fréttir fyrir
starfsmenn myndu þær auka hagnað
og því hafa góð áhrif á verð hluta-
bréfa í fyrirtækinu. Og hvað Infi-
neon varðar tóku fjárfestar fregn-
unum vel og keyptu upp hlutabréf í
fyrirtækinu á markaðnum í Frank-
furt.
Þýska stórfyrirtækið Siemens,
sem á meirihluta í Infineon og
minnihluta í Epcos, hafði tilkynnt
fyrr í mánuðinum að áætlað væri að
segja upp rúmlega tíu þúsund
manns í fjarskiptabúnaðar- og há-
tæknideildum fyrirtækisins.
Þýska efnahagsrannsóknarstofn-
unin Ifo greindi frá því í gær að bú-
ast mætti við að svona niðurskurður
héldi áfram. Uppsagnir starfsfólks í
öðrum greinum væru líklegar.
Hinum megin Atlantshafsins til-
kynnti hátæknifyrirtækið Hewlett-
Packard (HP) að búist væri við sam-
drætti í sölu og að sex þúsund starfs-
mönnum yrði sagt upp, eða rúmlega
6% af vinnuafli fyrirtækisins, að því
er BBC greinir frá. HP hafði til-
kynnt 4.700 uppsagnir fyrr á árinu
og hefur orðið að senda frá sér af-
komuviðvaranir hvað eftir annað.
Þrátt fyrir allar þessar viðvaranir
brugðust fjármálamarkaðirnir ekki
við með neinu óðagoti. FTSE-vísital-
an í London hafði síðdegis í gær
hækkað um 22 stig frá því daginn áð-
ur, en þá hafði hún ekki verið lægri í
33 mánuði. Í Bandaríkjunum lækk-
aði Dow Jones um 76 stig en Nasdaq
var svo að segja óbreytt.
FIDEL Castro, forseti Kúbu, sést
hér í fylgd með Iranian Hassan
Khomeini, í göngu sem Kúbverjar
gengu í gær til að fagna nær
hálfrar aldar afmæli bylting-
arinnar. Daginn nefna Kúbverjar
uppreisnardaginn og er hann
einn mesti hátíðisdagur eyj-
arskeggja. Kastró leiddi gönguna
um Havana, sem 1,2 milljónir
manna tóku þátt í. Gangan í gær
var jafnframt farin til að mót-
mæla „forræðishyggju“ rík-
isstjórnar George W. Bush.
Iranian er barnabarn Ayatollah
Ruhollah Khomeinis sáluga sem
leiddi íslömsku byltinguna í Íran
árið 1979.
AP
Kastró fagnar af-
mæli byltingarinnar
169. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 27. JÚLÍ 2001
JOHN Brown Jr., Bandaríkjamaður
af ættum Navajo-indíána, sést hér
taka við heillaóskum George W.
Bush Bandaríkjaforseta eftir að
hafa veitt heiðursorðu bandaríska
þingsins viðtöku í gær. Orðuna
fékk hann ásamt 28 öðrum indíán-
um fyrir störf sín í þágu land-
gönguliðs bandaríska flotans í síð-
ari heimsstyrjöldinni, en þeir
þróuðu dulmál úr eigin tungu til að
villa um fyrir óvinahersveitum.
Reuters
Dulmálssmið-
ir heiðraðir
Vill fríversl-
un yfir Atl-
antshafið
Lundúnum. AFP.
GORDON Brown, fjármálaráðherra
Bretlands, hvatti í gær til þess að
myndað yrði fríverslunarsvæði, sem
næði yfir Atlantshaf og tengdi sam-
an aðildarríki Evrópusambandsins
(ESB) og Bandaríkin.
Dagblaðið The Times skýrði frá
því að Brown myndi hvetja til þess
að samstarfið yfir Atlantshafið yrði
aukið enn frekar. Stefna bæri að
myndun „nýs bandalags yfir Atlants-
hafið sem tryggja myndi hagsæld og
efnahagsstyrk með svipuðum hætti
og NATO hefur tryggt friðinn“.
♦ ♦ ♦