Morgunblaðið - 27.07.2001, Síða 4

Morgunblaðið - 27.07.2001, Síða 4
ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? „ÞETTA er svo sem ekkert stórkost- legt, en miðað við hvað hefur verið í gangi hérna þá hefur verið hrein há- tíð síðustu daga. Hópurinn sem á nú tvær vaktir eftir er kominn með 65 laxa eftir fimm veiðidaga. Hópur sem veiddi sömu daga í fyrra var með 25 fiska til samanburðar. Það eru þá komnir um 150 laxar á land og þessi fiskur sem er að ganga núna er mest mjög vænn smálax. Það eru boltar innan um, einn Am- eríkaninn, Roland Saint, veiddi t.d. einn sem var 101 cm og metinn 20 pund og sami maður veiddi tvo sem voru metnir 17 og 16 pund. Stærsta laxinn veiddi hann í Nónhyl á Munroe Killer númer 12,“ sagði Björn K. Rúnarsson, leiðsögumaður við Vatnsdalsá, í gærdag. Stórar bleikjur Að undanförnu hafa veiðst nokkr- ar mjög stórar sjóbleikjur í Eyja- fjarðará, sú stærsta 9,1 pund, sem veiddist í Torfufellsármótum, og á sama stað veiddist nýverið 7,2 punda bleikja. Frést hefur af þriðja fiskin- um sem var slétt 7 pund. Prýðisveiði hefur verið í ánni að undanförnu. Enn rólegt í Laxá á Ásum Eitthvað um 230-240 laxar hafa veiðst í Laxá á Ásum sem þykir lítið miðað við væntingar manna um ána og verðlag. Björn K. Rúnarsson, leiðsögumaður við Vatnsdalsá, var við veiðar í ánni fyrir skömmu og sagði hann frekar lítið af fiski í ánni og hvergi fleiri laxar í sama hylnum en svo sem 20 stykki. Rofar loks til í Vatnsdalsá Morgunblaðið/Myndrún/RÞB Frændurnir Axel Dagur Björns- son og Björn Heiðar Rúnarsson með tvær fallegar bleikjur úr Hörgá í síðustu viku. FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ PÁLÍNU Árnadóttur fiðluleikara var í gær veittur 600 þúsund króna styrkur til tónlistarnáms úr minningarsjóði Jeans Pierres Jac- quillat og var þetta í tíunda sinn sem veitt er úr sjóðnum af þessu tilefni. Fyrir afhendingu styrksins fluttu stuttar tölur Björn Bjarna- son menntamálaráðherra og Ce- cile Jacquillat, ekkja Jeans Pierr- es, sem komin var til landsins af þessu tilefni. Verðugur fulltrúi tónlistarfólks „Enn einu sinni fáum við tæki- færi til að samfagna með ungum tónlistarmanni sem fær stuðning úr sjóðnum til að afla sér auk- innar menntunar og reynslu á sviði tónlistar,“ sagði Björn. Hon- um þótti tækifærið einnig vel til þess fallið að rifja upp þátt Jeans Pierres Jacquillat í íslensku tón- listarlífi en hann var fastráðinn aðalstjórnandi Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands frá árinu 1978 til ársins 1986. Hann lést í bílslysi í Frakklandi 11. ágúst 1986 og hafði þá nýlega látið af störfum fyrir hljómsveitina. Björn sagði Pálínu Árnadóttur vera verðugan fulltrúa þess unga tónlistarfólks sem efla myndi íslenskt tónlistar- líf á komandi árum. Örn Jóhannsson, stjórn- arformaður minningarsjóðsins, og Cecile Jacquillat afhentu Pálínu svo styrkinn. Sagðist Cecile vona að styrkurinn yrði Pálínu til góðs og framdráttar á framabrautinni. Mikill kostnaður í New York Pálína flutti svo tvö verk sem þakklætisvott fyrir styrkveit- inguna, en það voru Sonatensatz, Scherzo eftir Brahms og Siciliana eftir Paradis. Pálína sagðist hafa verið ytra við tónlistarnám í ein sex ár. Hún sagði styrkinn koma sér afar vel fyrir sig enda væri hún á leið í Juilliard-listaháskól- ann í New York á hausti komandi. „Að búa í New York og vera við nám fylgir alveg svakalegur kostnaður,“ sagði hún. Framtíðina sagði Pálína vera óráðna til lengri tíma en hún bjóst við að verða við nám í Juilliard í einn til tvo vetur. „Svo sé ég bara til hvaða tækifæri gefast og skoða möguleikana í stöðunni,“ sagði Pálína Árnadóttir fiðluleikari. Fékk styrk úr minningarsjóði J. P. Jacquillat Morgunblaðið/Þorkell Pálína Árnadóttir tekur við styrknum úr hendi Cecile Jacquillat. Flugvall- arslökkvi- liðið í við- bragðsstöðu SLÖKKVILIÐIÐ á Reykjavíkur- flugvelli var sett í viðbragðsstöðu um hádegisbil í gær þar sem olíu- lok hafði losnað á eins hreyfils flugvél. Samkvæmt upplýsingum flug- stjórnar var ekki teljandi hætta á ferðum en lítils háttar olía lak út af hreyflinum. Þó var slökkviliðið sett í viðbragðsstöðu þar sem það er ávallt gert þegar eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Uppsagnir hjá Flugfélagi Íslands Bréfin verða send út fyrir mánaðamót FLUGFÉLAG Íslands sendir 35 til 40 starfsmönnum uppsagnarbréf núna um mánaðamótin og taka upp- sagnirnar gildi fyrsta nóvember að því er fram kom í samtali við Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóra félags- ins. Jón Karl segir að farið hafi fram viðræður við stéttarfélög starfs- manna um hvernig best væri að standa að uppsögnunum sem hann segir taka til allra sviða flugreksturs- ins. Samkomulag um breytingarnar „Við höfum átt í viðræðum við verslunarmannafélögin, sem eru með sitt fólk í stöðvunum og afgreiðslu- fólkið okkar, Eflingu, sem er með hlaðmennina, þá einnig félög flug- virkja og flugmanna, öll þessi helstu stéttarfélög þar sem uppsagnir verða á einhvern hátt stórfelldar og breyt- ingar verða á vaktakerfum og fleira,“ sagði Jón Karl. Þá kom fram í máli hans að allir hafi lagst á eitt og sam- komulag náðst við flesta hópa um þær breytingar sem þörf væri á að gera. Hann sagði að einhver uppsagnarbréf hafi þegar verið send en reynt yrði að ljúka þeirri vinnu að mestu leyti fyrir vikulokin. „Við þurfum að koma þess- ari óvissu frá,“ sagði hann. Er ekki að leggja upp laupana „Það verður þá fyrsta nóvember sem uppsagnirnar eru allar komnar til framkvæmda en frá fyrsta október drögum við líka reksturinn mikið saman. Það er því í októberlok og byrjun nóvember að breytingarnar og hagræðingin sem við erum að vinna í fara að skila sér í gegn hjá okkur,“ sagði Jón Karl. Hann ítrekar að félagið sé alls ekki að hætta og ætlunin sé að standa keikir eftir breytingarnar. „Það ger- um við með að fólkið vinni þetta sam- an og við finnum þær leiðir sem best- ar eru í stöðunni. Það er verið að vinna í því þessa dagana að finna þær leiðir. Við höfum ekki enn lent í vandamálum en erum ekki alveg komin fyrir báruna ennþá,“ sagði hann. VEGAGERÐIN lauk nýverið við að brúa Ásgarðsá, sem til þessa hefur verið stærsta vatnsfallið á afleggj- aranum í Kerlingarfjöll af Kjalvegi. Sem kunnugt er hafa orðið áherslu- breytingar á starfsemi Fannborgar ehf., sem rak skíðaskóla í Kerling- arfjöllum um árabil. Að sögn Páls Gíslasonar, tals- manns Fannborgar ehf., hefur um- ferð um Kjöl farið vaxandi og segir hann svæðið eitt best falda útivist- arsvæðið á hálendinu. „Óneitanlega hefur Ásgarðsáin átt sinn þátt í þeirri einangrun, en áin er oft mó- rauð, þótt hún sé ekki mjög vatns- mikil og oftast fær fólksbílum. Brú yfir ána er hins vegar vítamín- sprauta fyrir starfsemina hér,“ seg- ir Páll. Brú komin yfir Ásgarðsá Þjóðhagsstofnun Skuldir heimilanna jukust um 50 milljarða SKULDIR heimila sem taldar voru fram til skatts námu 415 milljörðum króna í árslok 2000, að því er fram kemur í Hagvísum, riti Þjóðhags- stofnunar. Skuldirnir jukust um 50 milljarða á síðasta ári. Samkvæmt tölum Seðlabanka Ís- lands námu skuldir heimila við lána- kerfið 599 milljörðum í árslok 2000 og höfðu aukist um 88 milljarða á árinu. Þjóðhagsstofnun telur að þessi munur gæti legið í mismunandi flokkun skulda á milli heimila og fyr- irtækja og að yfirdráttarlán kunni að vera vantalin til skatts. Skuldir heimilanna jukust hratt á árunum 1991–1997 sé miðað við hlut- fall af eignum. Eiginfjárhlutfall heimilanna hefur hins vegar staðið í stað á síðustu árum. Þjóðhagsstofn- un telur reyndar að mati eigna í skattframtali sé í ýmsu ábótavant, t.d. séu hlutabréf talin á nafnverði. Fjórir hand- teknir vegna innbrots í bíl FJÓRIR menn voru handteknir fyr- ir að brjótast inn í bíl á bílasölunni Evrópu við Vatnsmýrarveg í Reykjavík aðfaranótt fimmtudags. Vegfarandi tilkynnti um ferðir mannanna og var lögreglan skammt undan og handsamaði þá. Þeir voru búnir að taka hljómflutningstæki úr bílnum þegar lögreglu bar að garði. Þeim var sleppt að lokinni yfir- heyrslu lögreglu. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.