Morgunblaðið - 27.07.2001, Page 9

Morgunblaðið - 27.07.2001, Page 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 9 Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00. Frábærar dragtir, kjólar og dress Allt á útsölu 15% viðbótarafsláttur Lagersala á Bíldshöfða 14 Skór frá kr. 500 Opið alla föstudaga milli kl. 16 og 19, laugardaga milli kl. 12 og 16. oroblu@sokkar.iswww.sokkar.is ÚT- SALA Kringlunni sími 581 1717 40% Hverfisgötu 105 - Reykjavík - sími 551 6688 afsláttur Verðandi mæður - RÝMINGARSALA Opnum verslun okkar laugardaginn 28. júlí kl. 11.00 með nýjustu húsgögn frá Indónesíu. Falleg vara á frábæru verði - Spennandi opnunartilboð. Verið velkomin Súðarvogi 6 UNIKAhúsgögn FJÖLDI kennslustunda í stærðfræði og raunvísindum meðal 12–14 ára barna er lægstur á Íslandi af öllum löndum innan OECD. Á Íslandi fær þessi aldurshópur 467 tíma í kennslu í þessum greinum en meðaltalið hjá OECD-ríkjunum er 665 tímar að meðaltali. Þessar upplýsingar koma fram í riti sem OECD gaf út um menntun í aðildarríkjum stofnunarinnar. Í ritinu kemur fram að atvinnu- þátttaka á Íslandi er hin mesta í OECD-ríkjunum, bæði meðal karla og kvenna. Atvinnuþáttaka karla er 97% og 86% hjá konum á aldrinum 25–64 ára. Menntunarstaða íslensku þjóðarinnar er nokkuð undir meðal- tali OECD-ríkja. Árið 1999 höfðu 56% Íslendinga á aldrinum 25–64 ára lokið löngu námi á framhaldsskóla- stigi sem veitir aðgang að háskóla- stigi. Meðaltal OECD-ríkja var 62% Að auki höfðu 7% Íslendinga lokið stuttu starfsnámi á framhaldsskóla- stigi en 4% í öðrum OECD-ríkjum. Alls höfðu 64% Íslendinga á aldrinum 25–34 ára lokið löngu námi á fram- haldsskólastigi en 40% í aldurshópn- um 55–64 ára. Verulegur munur er á milli karla og kvenna í elsta aldurs- hópnum. Þar höfðu 55% karla en ein- ungis 26% kvenna lokið löngu námi á framhaldsskólastigi. Útskriftarhlutfall íslenskra nem- enda á framhaldsskólastigi er 82%, 79% fyrir karla en 84% fyrir konur, nokkru hærra en meðaltal OECD ríkja, en það er 79%. Nemendum á háskólastigi hefur fjölgað verulega á Íslandi undanfarin ár eins og í flestum OECD-ríkjum. Innritunarhlutfall í fræðilegt há- skólanám á Íslandi er 55% og 10% í starfsmiðað nám á háskólastigi. Um tveir þriðju útskrifaðra háskólanema eru konur, og á það einnig við um út- skrifaða nema úr meistaranámi. Karlar eru helmingur þeirra sem út- skrifast úr starfsnámi á háskólastigi. Athygli vekur að hlutfall íslenskra háskólanema sem útskrifast úr námi í raunvísindum er með því lægsta sem gerist í OECD-ríkjunum. Tæplega 16% þeirra sem ljúka fyrstu háskóla- gráðu ljúka námi í raunvísindum. Fjöldi kennslustunda hjá 12–14 ára nemendum er samtals 2.427 á Ís- landi en meðaltal OECD–ríkja er 2.781. Hlutfall íslenskra barna sem sækja leikskóla er með því hæsta sem gerist innan OECD og athygli vekur að konum fækkar hlutfallslega meðal kennara eftir því sem ofar dregur í skólakerfinu. OECD gefur út rit um menntun í aðildarríkjunum Minni raungreina- kennsla á Íslandi Morgunblaðið/Sverrir Frá einni af raungreinastofum Fjölbrautaskólans í Garðabæ. MEÐAL tillagna sem starfshópur á vegum samgönguráðuneytisins og Vegagerðarinnar setti fram til að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda frá samgöngum var að auka á næstu árum hlut dísilfólksbíla í um- ferðinni og jafna skatthlutfall milli slíkra bíla og bensínbíla. Losun gróð- urhúsalofttegunda frá dísilvélum er talin 25-30% minni en frá bensínvél- um miðað við jafnþunga bíla. Samkvæmt upplýsingum frá fjár- málaráðuneytinu eru þessar tillögur ásamt fleiru til umfjöllunar í nefnd sem ætlað er að endurskoða lög um fjáröflun til vegagerðar. Nefndin var skipuð fyrr á þessu ári að beiðni efna- hags- og viðskiptanefndar Alþingis og í henni eiga sæti fulltrúar fjármála- ráðuneytisins, ríkisskattstjóra og Vegagerðarinnar. Meðal þeirra hug- mynda sem nefndin er að skoða er að taka upp olíugjald á dísilbíla og fella niður þungaskatt. Talið er að með þeirri breytingu muni notkun dísilbíla aukast og verði í mörgum tilvikum hagkvæmara fyrir bifreiðaeigendur en að greiða þungaskatt. Búist er við að nefndin ljúki störfum í ágúst og skili þá tillögum til fjármálaráðherra. Í skýrslu starfshóps samgöngu- ráðuneytisins og Vegagerðarinnar kom m.a. fram að dísilbílar væru í dag um 9% af öllum bílum undir 4 tonnum að þyngd, samanborið við allt að 50% hlutfall í mörgum ríkjum Evrópu. Síðustu ár hefur hlutfall dísilbíla í ný- skráningum aukist í 20-25% af árleg- um innflutningi en það eru aðallega jeppar og stærri bílar. Starfshópur- inn lagði til að markmiðið fyrir árið 2010 yrði að hlutur minni dísilbíla yrði 45% af árlegum innflutningi. Tillaga um aukinn hlut dísilbíla í umferð Olíugjald í stað þungaskatts

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.