Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BÖRN sem í sumar eru þátt-
takendur í leikjanám-
skeiðum ÍTR gerðu sér glað-
an dag í gær, en þá
fjölmenntu þau í skrúð-
göngu frá Austurbæjarskóla
og var ferðinni haldið í
Hljómskálagarðinn. Þar fór
fram fjölbreytt skemmti-
dagskrá þar sem fram komu
„Wake me up“ sönghóp-
urinn og Jóhanna Guðrún.
Börnin sýndu einnig eigin
skemmtiatriði, farið var í
leiki og sungið og leiktæki
fyrir börnin voru í garð-
inum. Til að seðja hungrið
var öllum börnunum boðið
upp á grillaðar pylsur og ís.
Að sögn Halldórs Jón-
assonar starfsmanns ÍTR er
sumarhátíð sem þessi árviss
viðburður og áætlar hann að
í gær hafi milli 450 og 500
börn úr félagsmiðstöðvum
Reykjavíkurborgar tekið
þátt í karnivalinu. Börnin
hafi undirbúið hátíðina vel,
meðal annars með því að út-
búa eigin karnivalbúninga
og skemmtiatriði. „Stemmn-
ingin var mjög góð, veðrið
fínt, dagskráin fjölbreytt og
krakkarnir glaðir og ánægð-
ir á hátíðinni,“ sagði Hall-
dór.
Morgunblaðið/Ásdís
Þessi skrautlega klæddu börn biðu spennt eftir því að halda af stað í skrúðgönguna frá Austurbæjarskóla í gær. Þau voru
með heimatilbúin hljóðfæri við hendina sem eflaust hafa verið vel nýtt á karnivalinu í sólskininu í borginni.
Krakkarnir voru í frumlegum og skemmtilegum búning-
um eins og glöggt má sjá á þessum ungu piltum.
Fjör á sumarkarnivali
Reykjavík
SAMTÖK um betri byggð á
höfuðborgarsvæðinu hafa
sent frá sér ályktun þar sem
lagt er til að hafinn verði und-
irbúningur að alþjóðlegri
samkeppni um skipulag mið-
borgarbyggðar í Vatnsmýr-
inni og á flugvallarsvæðinu.
Í ályktuninni segir að slík
samkeppni sé eina leiðin til að
„bjarga þessum örlagareit ís-
lenskrar borgarmenningar“
sem Vatnsmýrin og flugvall-
arsvæðið er.
Festa ber Reykjavík
í sessi sem vistvæna
höfuðborg
Vitnað er í drög að Aðal-
skipulagi Reykjavíkur 2001 til
2024 og tekið undir þau sjón-
armið að festa beri Reykjavík
í sessi sem öfluga og vistvæna
höfuðborg og alþjóðaborg.
Bent er á að efling háskóla-
svæðisins sé forsenda al-
þjóðaborgar og að starfhæf
vistvæn borg kalli á þéttingu
byggðar. Hins vegar telja
samtökin að þær leiðir sem
farnar eru samkvæmt Aðal-
skipulaginu dugi ekki til.
Munar þar mestu um, að mati
samtakanna, að ekki er tekin
ákvörðun um að taka flugvall-
arsvæðið undir byggð í heild
sinni heldur sé gert ráð fyrir
áframhaldandi veru flugvallar
í Vatnsmýrinni allt skipulags-
tímabilið eða lengur. Segir í
ályktuninni að borgin verði
því klofin áfram á viðkvæm-
asta stað og stærri miðborg
útilokuð sem fyrr.
Vitnað er í grein um flug-
vallarsvæðið sem Þórður Ben
Sveinsson myndlistarmaður
ritaði í Lesbók Morgunblaðs-
ins í maí 1986 undir heitinu
Frumdrög að borg með nýja
borgarmenningu. Í grein
Þórðar segir meðal annars að
svæðið sé „örlagareitur ís-
lenskrar borgarmenningar“
og að „svæðið [megi] ekki
snerta fyrr en Ísland [ráði] yf-
ir efni og markmiðum sem
endurspegla dýpri skilning á
lífi mannsins í borgarmenn-
ingunni“.
Að skipta svæðinu niður
er versta leiðin
Bent er á að hugmyndir
Þórðar Ben hafi verið kynntar
í framlagi byggingardeildar
Kjarvalsstaða til sýningar í
Tjarnarsal Ráðhússins fyrir
kosninguna um framtíð
Vatnsmýrarinnar. Samtök
um betri byggð gera orð
Þórðar að sínum og segja að
svæðið megi ekki snerta fyrr
en heildarsýn hafi fengist yfir
það og útséð er um hvernig
það nýtist borginni best til
framfara og heilla.
Segir í ályktuninni að þær
tillögur sem þegar hafi verið
kynntar um að skipta svæðinu
niður áður en það hafi verið
skipulagt í heild sinni sé
versta leiðin sem hægt sé að
fara.
Samtökin vekja athygli á að
í borgum á borð við Ósló,
Gautaborg og Málmey sé ver-
ið að stækka miðborgirnar til
muna og endurbyggja sam-
kvæmt ströngusu kröfum um
vistvæna og fallega byggð og
enginn skortur sé því á góðum
fyrirmyndum í nágrannalönd-
unum.
Alþjóðleg
samkeppni
um miðborgar-
skipulag
Vatnsmýrin
TILLAGA um að framlög til
einkaskóla verði reiknuð á
sama grundvelli og með sömu
viðmið og framlög til annarra
grunnskóla í Reykjavík var
lögð fram af borgarráðsfulltrú-
um Sjálfstæðisflokks á borgar-
ráðsfundi á þriðjudag. Borgar-
ráðsfulltrúar R-listans lögðu
fram frávísunartillögu á móti
og var hún samþykkt með fjór-
um atkvæðum gegn þremur. Í
frávísunartillögunni segja
fulltrúar Reykjavíkurlistans
að tillaga sjálfstæðismanna
beri vott um sýndarmennsku
og ábyrgðarleysi og bent er á
að hinn 21. ágúst 2000 hafi
fræðsluráð samþykkt sam-
hljóða tillögu forstöðumanns
að styrkjum til einkaskóla.
Framlög til hvers nemanda í
einkaskólum hafi hækkað um
u.þ.b. 50% á síðustu þremur
árum og frá og með næsta
skólaári fái einkaskólar í
Reykjavík sömu upphæð á
hvern nemanda og Samband
íslenskra sveitarfélaga noti
með nemendum sem stunda
nám utan lögheimilissveitar-
félaga. Því telja fulltrúar
Reykjavíkurlistans að tillaga
sjálfstæðismanna sé eingöngu
yfirboð og í andstöðu við fyrri
afstöðu þeirra og fræðsluráðs.
Borgarráðsfulltrúar sjálf-
stæðismanna lögðu fram bók-
un á fundinum þar sem fram
kemur að tillaga þeirra miði að
því að nemendur njóti jafn-
ræðis óháð því hvort þeir
stunda nám í almennum skóla
eða einkaskóla. „Tillagan er
jafnframt forsenda fyrir raun-
verulegu sjálfstæði skóla sem
fulltrúar R-listans láta stund-
um í veðri vaka að þeir styðji.
Fullyrðingum um sýndar-
mennsku og ábyrgðarleysi vís-
um við til föðurhúsanna,“ segir
í bókun sjálfstæðismanna.
Tekist á um framlög
til einkaskóla
Reykjavík
DR. SUNITA Gandhi, fram-
kvæmdastjóri Íslensku
menntasamtakanna (ÍMS),
segir að ekkert hafi verið
óeðlilegt við þær málalyktir
sem urðu milli ÍMS og Hafn-
arfjarðarbæjar þess efnis að
fjárhagslegar tryggingar,
sem sveitarfélagið krafðist af
ÍMS vegna reksturs grunn-
skóla í Áslandi, voru lækkað-
ar úr sex mánuðum í tvo. Í út-
boðsskilmálum var gerð
krafa um sex mánaða trygg-
ingu, í samningsgerð við ÍMS
var tryggingatími færður
niður í fjóra mánuði en við
lokafrágang samningsins var
tryggingatíminn færður nið-
ur í tvo mánuði.
Lúðvík Geirsson bæjar-
ráðsmaður Samfylkingarinn-
ar hefur sagt að ÍMS geti
ekki uppfyllt skilyrði um
tveggja mánaða tryggingu
og virtist sem samtökin
hefðu ekkert fjárhagslegt
bakland.
Sunita Gandhi segir að í
upphafi hafi útboðsskilyrði
Hafnarfjarðarbæjar verið
ströng og bendir á að ÍMS sé
ekki fyrirtæki sem hafi það
að markmiði að skila hagnaði
né heldur séu þau búin ýms-
um þeim kostum sem venju-
legt fyrirtæki hafi. Hún segir
að hver sem er hafi mátt
bjóða í reksturinn og verk-
kaupandi hafi síst átt von á
því að aðrir en skólastjórar
byðu í reksturinn. Enginn
skólastjóri hefði getað reitt
fram svo mikið sem tveggja
mánaða ábyrgð upp á 22
milljónir króna sem ÍMS hafi
að lokum boðið fram sem
tryggingu.
„Skilyrðin voru ströng í
upphafi og nauðsynlegt var
að reiða fram tryggingar
vegna launagreiðslna,“ segir
Sunita.
Betra að ná fram
viðundandi niðurstöðu
með samningum
„Rekstrarlánið sem ÍMS
fékk var of langt og því þurfti
að breyta. Að mínu mati er
ekkert við það að athuga að
aðilar sem eru að semja, sér-
staklega í fyrsta skipti,
breyti forsendum til að ná
fram viðunandi niðurstöðu.
Ég er þeirrar skoðunar að
það sé miklu betra að samn-
ingsaðilar geti náð fram við-
unandi niðurstöðu með
samningum í stað þess að
verkkaupandi standi óhagg-
anlegur við upphafleg skil
yrði, jafnvel þótt þau séu
óhófleg í fyrstu.“
Vildi tryggja launa-
greiðslur
„Aðalástæða þess að Hafn-
arfjarðarbær setti fram skil-
yrði um fjárhagslegar trygg-
ingar var sú að bærinn vildi
tryggja launagreiðslur til
starfsmanna skólans. Við
hétum því að staðið yrði við
launagreiðslur, sem eru 85%
af rekstrarkostnaði skólans,
ellegar yrðu greiðslur bæjar-
ins til ÍMS stöðvaðar innan
eins mánaðar. Greiðslur til
skólans eru reiddar af hendi
mánaðarlega svo sveitar-
félaginu væri í lófa lagið að
stöðva greiðslur til skólans.
Við töldum þá ekki ástæðu til
þess að rekstur grunnskól-
ans væri látinn lúta sex mán-
aða tryggingu þegar ekki var
gerð krafa af hálfu Hafnar-
fjarðarbæjar um nema
tveggja mánaða trygginu
fyrir leikskólann í Áslands-
hverfi.“
Um samninga Hafnar-
fjarðabæjar við Íslensku
menntasamtökin sagði
Magnús Gunnarsson bæjar-
stjóri í Hafnarfirði að hann
teldi að samningana mjög
góða. „Samningarnir eru full-
nægjandi með þeim trygg-
ingarskilmálum sem ákveðn-
ir hafa verið,“ sagði Magnús.
Hafnarfjörður
Dr. Sunita Gandhi
Eðlilegt að samnings-
aðilar breyti forsendum
Dr. Sunita Gandhi um lækkaðar fjárhagslegar
tryggingar ÍMS vegna Áslandsskóla
Sigfús Jónsson, forstjóri
Innkaupastofnunar Reykja-
víkurborgar, hefur sagt
starfi sínu lausu af heilsu-
farsástæðum. Staðan verður
auglýst fljótlega og er gert
ráð fyrir að ráða nýjan for-
stjóra frá og með 1. septem-
ber nk. Á borgarráðsfundi sl.
þriðjudag var lagt fram bréf
Sigfúsar þar sem hann sagði
starfi sínu lausu en hann hef-
ur gegnt stöðunni í um tvo
áratugi.
Hættir sem forstjóri
Innkaupastofnunar
Reykjavík