Morgunblaðið - 27.07.2001, Page 17
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 17
Kr.318.600
AEROX
ÞESSI hestur er kominn vel til ára
sinna. Hann er orðinn 33 vetra og
lítil ellimerki sjást á honum. Hest-
urinn heitir Léttir og er eigandi
hans Guðmundur Teitsson, bakari í
Stykkishólmi. Guðmundur keypti
Létti þegar hann var fjögurra
vetra af Leifi Kr. Jóhannessyni
ráðunaut. Hann er undan Blossa
frá Skáney og Brúnku sem Leifur
átti. Léttir hefur alla tíð verið í
uppáhaldi hjá eiganda sínum og
hann hefur farið vel með hann.
Hann vann til verðlauna á hesta-
móti á Kaldármelum árið 1980 og
varð þá í efsta sæti í gæðingaflokki.
Guðmundur segir að hesturinn sé
öðlingur. Hann geta allir setið og
hann er hvers manns hugljúfi. Létt-
ir er enn notaður til útreiða, en
honum er hlíft við að fara lengri
leiðir. Hann hefur notið starfa eig-
anda síns og verið fóðraður á
brauði í gegnum árin og er Guð-
mundur viss um að það eigi þátt í
því að hesturinn er við hestaheilsu.
Léttir er með elstu hestum á Ís-
landi. Það er ekki algengt að hest-
ar verði svona gamlir hér á landi
og því síður að þeir séu enn í notk-
un. Hestar teljast orðnir gamlir
þegar þeir ná að verða 20 vetra.
Vitað er til að hestur hafi nálgast
að verða 50 ára gamall. Til að við-
halda góðri hestaheilsu er nauðsyn-
legt að hestarnir séu notaðir reglu-
lega.
Léttir fær að lifa svo lengi sem
heilsa hans leyfir. Guðmundur
sagðist vera tilbúinn að fara með
Létti á hestasýningu því gestir hafi
örugglega gaman af að sjá hvað
hesturinn er vel á sig kominn mið-
að við háan aldur.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Guðmundur Teitsson bakari og vinur hans, Léttir, á Narfeyri á Skógar-
strönd, en þar hefur Léttir haft sitt aðsetur síðustu ár.
Léttir við hestaheilsu
þótt árin séu orðin 33
Stykkishólmur
Á MOLDNÚPI undir Eyjafjöllum
hefur verið opnað skemmtilegt kaffi-
hús sem eigendurnir kalla Önnuhús.
Þau hjónin, Eyja Þóra Einarsdóttir
og Jóhann Frímannsson, bændur á
Moldnúpi hafa undanfarin 5 ár
þjónustað ferðamenn og eru í óðaönn
að byggja upp ýmsa þjónustu. Þau
hafa nú innréttað gamla fjósið á
bænum sem kaffihús og kalla það
Önnuhús eftir frænku Eyju, Önnu
frá Moldnúpi, sem þekkt var fyrir
bækur sínar, sérstaklega ferðabæk-
ur.
Eyja Þóra sagði að með þessu
vildu þau heiðra og halda uppi minn-
ingu frænku sinnar sem var á marg-
an hátt sérstök kona. Hún var fædd
árið 1901 og tók upp á því á fimm-
tugsaldri að ferðast um heiminn og
skrifa bækur um ferðalög sín. Anna
fékk lömunarveiki og taldi hún að
það myndi gera sér gott að komast í
hlýrra loftslag og varð það kveikjan
að ferðalöngun og ferðalögum henn-
ar. Hún orti einnig ljóð og var mikil
hannyrðakona, seldi meðal annars
vefnað eftir að hún hætti að vinna
úti. Í Önnuhúsi má m.a. sjá sýnis-
horn af handavinnu hennar og ýmsa
muni sem tengdust henni. Anna bjó
lengst af í Reykjavík en ferðaðist
gjarnan fótgangandi um sveitirnar
til að selja bækur sínar.
Hátt á annað hundrað manns
mættu til að samfagna með þeim
hjónum Eyju Þóru og Jóhanni þegar
Önnuhús var opnað. Var boðið upp á
vandaða dagskrá ásamt veitingum
að íslenskum sveitasið. Þórður Tóm-
asson frá Skógum flutti fyrirlestur
um ævi og störf Önnu, Sigþrúður
Gunnarsdóttir bókmenntafræðingur
fjallaði um ritverk hennar, Guðrún
Ásmundsdóttir og Jón Viðar Jóns-
son lásu úr verkum hennar og þeir
Jón Smári Lárusson og Halldór Ósk-
arsson fluttu ljóð hennar við gömul
sálmalög.
Að sögn Eyju Þóru verður aðal-
lega tekið á móti hópum í Önnuhúsi
til að byrja með. Þau hjónin eru að
innrétta gamla bæinn á Moldnúpi
þar sem þau ætla að vera með gist-
ingu í framtíðinni og sagðist Eyja
Þóra vonast til að þau gætu opnað
hana á næsta ári.
Morgunblaðið/Halldór
Til að byrja með verður aðallega tekið á móti hópum í Önnuhúsi.
Önnuhús opnað á Moldnúpi
Hvolsvöllur