Morgunblaðið - 27.07.2001, Qupperneq 19
VERÐ á eldislaxi á
mörkuðum Evrópusam-
bandsins er í lágmarki
um þessar mundir en
forsvarsmenn íslenskra
eldisfyrirtækja, sem
selja fyrst og fremst til
Bandaríkjanna, hafa
ekki áhyggjur af stöð-
unni. Annars vegar sé
um tímabundið ástand
að ræða og hins vegar sé
reynt að ganga frá samn-
ingum þegar verðið sé
sem hæst.
Um 200 kr. fást fyrir
kg af smáum laxi en á
sama tíma í fyrra feng-
ust um 400 kr. fyrir kg af
norskum eldislaxi. Jón-
atan Þórðarson, framkvæmdastjóri
Silungs ehf., segir að verðið, 21 norsk
króna, hafi oft sést, en verðið haldist
ekki lengi og það hækki fljótlega aft-
ur.
Jónatan segir að verðið á markaðn-
um í New York sé líka lágt um þessar
mundir en það sé einnig tímabundið
ástand og hafi engin áhrif hérna.
„Þetta er dæmigert sumarástand og
við erum í allt öðrum sölumálum,“
segir hann, en hjá Silungi er slátrað
um 500 til 600 tonnum af laxi og álíka
miklu af bleikju í ár.
Guðmundur Valur Stefánsson,
framkvæmdastjóri Sæsilfurs ehf.,
segir að laxaverð hafi alltaf sveiflast
upp og niður og komi til með að halda
því áfram. Vitað sé að markaðurinn
vaxi um 15% á ári og sé framboðið
meira lækki verðið. Þetta sé spurning
um framboð og eftirspurn hverju
sinni.
Sæsilfur áformar að hefja slátrun
næsta haust. Stefnt er að því að árs-
framleiðslan verði um 8.000 tonn en
að ári verði slátrað um 1.000 tonnum.
Gert er ráð fyrir að heildarslátrun á
Íslandi í ár verði um 5.500 tonn af laxi
og um 1.500 tonn af bleikju, en talið er
að slátrunin fjórfaldist á næstu fimm
árum og heildarslátrun í fiskeldi verði
40.000 til 50.000 tonn innan 10 ára, að
sögn Vigfúsar Jóhannessonar, fram-
kvæmdastjóra Stofnfisks, formanns
Landssambands fiskeldis- og hafbeit-
arstöðva á Íslandi og formanns Al-
þjóðasambands laxeldisframleiðenda.
Kvíar settar saman í Vestmannaeyjum vegna
eldis Íslandslax hf. í Klettsvík.
„Dæmigert
sumarástand“
Lágt verð á eldislaxi í Evrópu
Morgunblaðið/Sigurgeir
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 19
GK REYKJAVÍK
Enn meiri verðlækkun!!!!!
60% afsláttur af öllum vörum
konur
kringlunni
menn
laugavegi
BÁTAGERÐIN Seigla í Reykjavík
afhenti í vikunni sína þriðju ný-
smíði, plastbát af gerðinni Seigur
1000. Eigandi bátsins er Guð-
mundur Egilsson frá Stykkishólmi,
en báturinn heitir Steini Randvers
SH 147.
Báturinn er 5,8 rúmlestir eða 9,7
tonn að stærð og er búinn til neta-
veiða. Í bátnum er 450 hestafla
Volvo-vél og fiskileitar- og sigl-
ingatæki frá Simdrad. Að öðru
leyti er báturinn allur smíðaður
hjá Seiglu. Hann ber 16.380 lítra
fiskiker og gengur 30 mílur tómur
en 25 með fjögur tonn innan borðs.
Eyðsla á 30 mílna keyrslu er um
þrír lítrar á míluna.
Guðmundur Egilsson segist fara
með bátinn á net, en hann stundar
róðra á Breiðafirði. Steini Rand-
vers er í aflamarkskerfinu og er
kvóti hans ígildi 40 tonna af
þorski.
„Það er alltof lítið og þess vegna
leigjum við mikið til okkar. Við
seljum aflann svo á fiskmarkaði,
annars gengur dæmið ekki upp.
Þetta er líka ódýr og hagkvæmur
bátur, en hann kostar um 16 millj-
ónir tilbúinn til veiða. Við þurfum
að sækja langt á netin frá Stykk-
ishólmi vegna netalínunnar í firð-
inum og þá kemur ganghraðinn
sér vel,“ segir Guðmundur Eg-
ilsson.
Sigurjón Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Seiglu, segir að fyr-
irtækið hafi í 10 ár stundað við-
gerðir og breytingar á plastbátum.
Þá reynslu hafi þeir síðan nýtt sér
til að búa til góðan og hagkvæman
fiskibát. „Við höfum í þessum bát
sett saman það bezta sem við höf-
um séð í öðrum og síðan þróað
hann áfram á ýsman hátt. Nið-
urstaðan er sú að við teljum okkur
vera með fiskibát sem gengur 5
mílum meira en aðrir bátar í þess-
um stærðarflokki. Þetta er þriðja
nýsmíðin og viðtökur hafa verið
mjög góðar. Það er því ekkert um
annað að ræða en halda þessu
áfram,“ segir Sigurjón.
Seigla
afhendir
nýjan bát
Morgunblaðið/Arnaldur
Sigurjón Ragnarsson, framkvæmdastjóri Seiglu, og Guðmundur
Egilsson, eigandi bátsins, í Stykkishólmi við hið nýja fley.
FORMAÐUR Alþjóðahvalveiði-
ráðsins tilkynnti í gær ekkert væri
athugavert við kjörbréf Indlands á
ársfundinum í London og fulltrúar
Indlands væru bærir til að greiða
atkvæði.
Skýrslu nefndar, sem skipuð var
fulltrúum Japans og Ástralíu með
starfsmanni ráðsins til að kanna
málið, var dreift í gær. Ástralía
komst að þeirri niðurstöðu að kjör-
bréfið væri í lagi og umræddir Ind-
verjar hafi verið bærir til að greiða
atkvæði, en Japan var á öndverð-
um meiði. Málið var síðan tekið
fyrir í stærri nefnd þar sem voru
fulltrúar allra þjóða og féllst mikill
meirihluti á að umrædd atriði væru
í lagi og kom ekki til atkvæða-
greiðslu um málið. Í kjölfarið úr-
skurðaði formaðurinn að kjörbréf-
ið væri í lagi og að Indverjar hefðu
getað greitt atkvæði á fundinum
eins og þeir hefðu gert.
Ekkert athugavert