Morgunblaðið - 27.07.2001, Page 22
ERLENT
22 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KIM Jong-il, leiðtogi Norður-Kór-
eu, hóf í gær tíu daga ferð með
lest um þvera Síberíu og Evrópu-
hluta Rússlands til að eiga fund
með Vladímír Pútín Rússlandsfor-
seta í Moskvu.
Er þetta aðeins þriðja utan-
landsferð Kims frá því hann tók
við völdum í Norður-Kóreu árið
1994 og fyrsta opinbera heimsókn
hans til annars lands en Kína.
Áætlað er að Kim komi til
Moskvu 4. eða 5. ágúst eftir um
9.300 km ferð eftir Síberíujárn-
brautinni sem liggur frá Kyrrahafi
um þvera Síberíu og Evrópuhluta
Rússlands að rússnesku höfuð-
borginni. Hermt er að Kim ferðist
alltaf með lestum þar sem hann sé
flughræddur.
Ferðaáætluninni
haldið leyndri
Lest Kims fór yfir landamærin
við bæinn Khasan nálægt Kyrra-
hafsströndinni. Nokkrir rússneskir
embættismenn buðu gestinn vel-
kominn, þeirra á meðal Kostantín
Púlíkovskí, fulltrúi Vladímírs Pút-
íns forseta á austurströnd Rúss-
lands.
Kona, sem býr í Khasan, afhenti
Kim blómvönd við komuna. Hún
tók einnig á móti föður Kims, Kim
Il-sung, þegar hann heimsótti
Rússland fyrir þrettán árum. Kim
Il-sung ferðaðist þá sömu leið með
lest.
Mikil leynd hvíldi yfir undirbún-
ingi ferðar Kims Jong-ils. Emb-
ættismaður í rússnesku tollgæsl-
unni staðfesti í fyrradag að von
væri á Kim en embættismenn í
Kreml og utanríkisráðuneytinu
sögðust ekki hafa fengið neinar
upplýsingar um ferðina. Þeir
sögðu að lestin væri undir stjórn
Norður-Kóreumanna og ferðaáætl-
uninni hefði verið haldið leyndri
„af öryggisástæðum“.
Kim hefur tvisvar sinnum heim-
sótt Kína frá því hann tók við völd-
um og ekki var skýrt frá síðari
heimsókninni, í maí í fyrra, fyrr en
hann sneri aftur til Norður-Kóreu.
Talið er að Kim sé tregur til að
ferðast vegna þess að hann óttist
að reynt verði að steypa honum af
stóli.
Talinn hafa fæðst
í Síberíu
Rússneskur embættismaður
sagði að Kim hygðist heimsækja
nokkra staði sem faðir hans hefði
dvalið á þegar hann bjó í Rúss-
landi, meðal annars borgina Khab-
arovsk. Kim Il-sung stundaði há-
skólanám í borginni og gegndi þar
herþjónustu eftir að hann gekk í
sovéska herinn í síðari heimsstyrj-
öldinni. Áður hafði hann barist
gegn Japönum í Mansjúríu eftir að
þeir lögðu landsvæðið undir sig á
fjórða áratug aldarinnar sem leið.
Margir norður-kóreskir og vest-
rænir sérfræðingar telja jafnvel að
Kim Jong-il hafi fæðst í Khab-
arovsk árið 1942 en ekki í leyni-
legum herbúðum í Norður-Kóreu
eins og þarlend yfirvöld halda
fram.
Gert er ráð fyrir að lestin komi
til Khabarovsk í dag. Rússneskir
embættismenn sögðu að ekki væri
búist við því að Kim kæmi þar
fram opinberlega.
Rússneskir fjölmiðlar leiddu
getum að því að Kim myndi heim-
sækja Vjatskoje, um 80 km frá
Khabarovsk, þar sem norður-kór-
eskt herfylki í sovéska hernum var
með bækistöð í síðari heimsstyrj-
öldinni.
Vildi fá vígvélar
frá Rússlandi
Fulltrúi Pútíns kvaðst hafa
fengið fyrirmæli frá forsetanum
um að fylgja gestinum til Moskvu
ásamt nokkrum öðrum rússnesk-
um embættismönnum. Hann sagði
þó að viðræðurnar við Kim myndu
ekki hefjast formlega fyrr en hann
kæmi til Moskvu.
Pútín fór í sögulega heimsókn til
Norður-Kóreu fyrir ári og var þá
rætt um að Kim færi til Rússlands
í apríl síðastliðnum. Að sögn rúss-
neskra fjölmiðla var ferðinni frest-
að vegna deilu um beiðni Kims um
að Rússar létu Norður-Kóreu-
mönnum í té nýja skriðdreka, orr-
ustuþotur og fleiri vígvélar, auk
olíu og matvæla.
Ígor Ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði að rússneska
stjórnin hefði mikinn hug á að
stuðla að sáttum milli kóresku
ríkjanna sem hafa ekki enn und-
irritað formlegan friðarsamning
eftir Kóreustríðið á árunum 1950–
53. Rússum væri einnig mjög um-
hugað að taka þátt í ýmsum upp-
byggingarverkefnum í Norður-
Kóreu, einkum áformum um að
tengja saman Síberíujárnbrautina
og lestakerfi sem ráðgert er að
koma upp í Norður-Kóreu.
Rússneskir embættismenn hafa
beitt sér fyrir þessum áformum
þar sem þau gætu orðið til þess að
stór hluti útflutningsvarnings Suð-
ur-Kóreu færi um Rússland með
lestum til Evrópuríkja en ekki
með skipum eins og nú er.
Pútín hefur reynt að gegna hlut-
verki milligöngumanns í samn-
ingaumleitunum Norður-Kóreu og
Bandaríkjastjórnar sem óttast að
Norður-Kóreumenn hyggist koma
sér upp langdrægum eldflaugum
sem hugsanlega yrði hægt að beita
í kjarnorkuárás á Bandaríkin.
Rússneskir embættismenn hafa
gert lítið úr þeirri hættu.
Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, leggur í tíu daga ferðalag með lest
Ferðast um þvert Rúss-
land til fundar við Pútín
AP
Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu (fyrir miðju), tekur við blómum við
komu hans til rússneska bæjarins Khasan í gær.
Vladívostok. AP, AFP.
LÖGREGLAN á Spáni af-
tengdi í gær öfluga sprengju
sem komið hafði verið fyrir í bíl
við flugvöllinn í Malaga í suður-
hluta landsins. Hringt var í lög-
reglu í borginni San Sebastian
snemma um morguninn í nafni
samtakanna ETA, er krefjast
sjálfstæðis Baskalands, sagt frá
sprengjunni og jafnframt að
hún myndi springa eftir klukku-
stund.
Lögreglumenn fundu bílinn,
sem var stolinn, á stæði 15 mín-
útum fyrir tilsettan tíma og í
farangursgeymslu hans var
taska með 50–60 kílógramma
þungri dínamítsprengju. Voru
sérfræðingar fimm stundir að
aftengja sprengjuna en ekki er
vitað hvort kveikibúnaður brást
eða hvað olli því að hún sprakk
ekki.
Mikil ringulreið var á flug-
vallarsvæðinu meðan lögreglan
fékkst við sprengjuna, fólk var
flutt á brott í skyndi úr aðal-
salnum og vegum lokað. Um tíu
km löng bílaröð myndaðist við
aðalveginn að flugvellinum.
Varað við
ákveðnum
ríkjum
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
í Ísrael hefur sett saman lista
yfir ríki þar sem ísraelskir
stjórnmála-
leiðtogar og
hershöfð-
ingjar –
þeirra á
meðal Ariel
Sharon for-
sætisráð-
herra –
kynnu að
verða sóttir
til saka fyrir
stríðsglæpi. Voru þeir varaðir
við því að ferðast til þessara
landa.
Talsmaður ráðuneytisins sagði
að þetta hefði verið gert að
beiðni nokkurra embættis-
manna sem vildu vita hvort þeir
kynnu að verða handteknir og
saksóttir þegar þeir væru á ferð
erlendis. Ekki kom fram hvaða
ríki eru á listanum.
Rannsóknardómara í Belgíu
hefur verið falið að undirbúa
hugsanlega saksókn á hendur
Sharon sem hefur verið sakaður
um að bera ábyrgð á drápum á
hundruðum palestínskra flótta-
manna í Líbanon árið 1982.
Vill aðild
Eystrasalts-
ríkja að
NATO
JACQUES Chirac, forseti
Frakklands, lýsti í gær yfir ein-
dregnum stuðningi við aðild
Eistlands,
Lettlands og
Litháens að
Atlantshafs-
bandalaginu
í ræðu sem
hann flutti í
Vilnius í
gær. Hann
sagði að ef
hætt yrði við
frekari stækkun NATO myndi
það leiða til skiptingar Evrópu
líkt og í kalda stríðinu.
STUTT
Sprengja
aftengd í
Malaga
Jacques Chirac
Ariel Sharon
ELDSUMBROTIN sem nú eru í
Etnu á Sikiley hafa haft verulega
slæm áhrif á ferðaþjónustu í
grennd við fjallið, einmitt á þeim
árstíma þegar hvað flestir ferða-
menn leggja leið sína að fjallinu að
jafnaði. Í gær var hraunelfurin far-
in að nálgast Sapienza, þjónustu-
miðstöð, sem er í um 2.000 metra
hæð, og var í einungis 150 metra
fjarlægð frá mannvirkjum þar.
Í þorpinu Nicolosi, sem þrífst
fyrst og fremst á þjónustu við
ferðamenn, bæði ítalska og er-
lenda, var þungt hljóð í fólki.
„Venjulega eru hér á þessum árs-
tíma um tvö til þrjú þúsund ferða-
menn á dag sem taka kláfinn upp
fjallið,“ sagði bæjarstjórinn í Nico-
losi, Salvatore Moschetto. „Nú er
allt stopp.“
Eldgosið í Etnu hófst 12. júlí.
Um 300 fjölskyldufyrirtæki hafa
orðið fyrir barðinu á samdrætt-
inum í ferðaþjónustu sem fylgdi í
kjölfarið.
Ekki er nóg með að ógn stafi af
gosinu og hraunstraumnum, held-
ur rignir ösku yfir þorpið þegar
vindur stendur af fjallinu. Fyrr í
mánuðinum varð ítalskur ferða-
maður fyrir hraunkúlum og slas-
aðist alvarlega.
Þá hafa orðið miklar skemmdir
á kláfferjum og vegum á svæðinu.
Óttast Moschetto að ekki verði
unnt að gera við skemmdirnar áð-
ur en vetrar, og því muni mun
færra skíðafólk koma til þorpsins
en venjulega.
Ítölsk stjórnvöld hafa heitið
rúmlega níu milljónum evra, eða
ríflega 800 milljónum króna, til
tafarlausrar fjárhagsaðstoðar við
þorpsbúa, veitingamenn, hót-
elhaldara og verslunareigendur.
Einnig hefur héraðinu verið lofað
skattaívilnunum til að minnka
áhrifin af tekjutapinu.
."42( .5)
%'%
!"#
$
%&
' () &@ (&
A)"%
B!')!3 !."$* (&%(
* + , -
'
-&"(#
<-15/ ")
. %
,
&
' / + %
-&"5
36 $
?6 !
C
!01
2.
(-2.&
&)
,
,'2
', , ,/ &
, (
3
22, 4
&
4
%
( & 4
%() 5 6
75 6
( 0111( &@ (&
??")%"
A)"%5
()"")
%!##8
.(1%&%'
(%&.D%/)
3E).$%
!
"
#
$
% &' (&'')$ FBB G
Etna ógn-
ar ferða-
þjónustu
Nicolosi á Sikiley. AFP.