Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 27.07.2001, Blaðsíða 37
Hvíl í friði, elsku afi minn, Ingibjörg Jónsdóttir. Okkur langar til að kveðja okkar ástkæra afa sem lést á heimili sínu aðfaranótt 17. júlí síðastliðins. Elsku afi, það erfitt að hugsa til þess að þú sért farinn frá okkur. Þú fórst svo skyndilega að eftir standa aðeins yndislegar minningar um þig. Við minnumst þess sérstaklega þegar þú varst að segja okkur þess- ar skemmtilegu sögur af jólasvein- unum í kjallaranum hjá þér sem við trúðum svo mikið á og grobbuðum okkur mikið af, og þegar þú varst að koma úr þínu tíðu ferðalögum sem þú fórst nokkrum sinnum á ári og komst alltaf með fullan poka af gott- eríi sem þú skammtaðir okkur þegar við komun tíl þín og ekki vantaði að við fengum alltaf nýja klukku og penna þegar þú komst. Seinustu tvö árin hefurðu ekki getað ferðast vegna slitgigtarinnar sem hefur hrjáð þig svo þú hefur búið hérna í Reykjavík í stað þess að vera á Ísa- firði þar sem þú bjóst mestalla þína tíð og höfum við fengið að njóta þess að geta komið við hjá þér hvenær sem er og fengið heitt kaffi, því þú varst alltaf nýbúinn að hella upp á þegar við komum til þín. Það verður erfitt að venjast því að geta ekki hoppað inn til þín þegar við eigum leið í bæinn og spjallað aðeins við þig. En nú, elsku afi, ertu kominn í hvíld, það var það sem þú vildir þína síðustu daga ólifaða og kvaddir þetta líf sáttur, megir þú hvíla í friði. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Elsku afi, takk fyrir allt. Bertína og Emilía Rodriguez. Í síðastliðinni viku kvaddi okkur góður samferðamaður, Alf Magnús- son Överby, sem var einn af seinni tíma landnámsmönnum frá landi sæfara og víkinga. Alf fæddist í smá- bænum Målöy við mynni Nordfjörd skammt sunnan Ålasunds, þar sem forfeður hans hafa án efa lagt upp í langa ferð á langskipum til eyjunnar í norðri. Ungur að árum fetaði hann í fótspor feðranna og réðst í sigl- ingar, sem báru hann vítt og breitt um heimsins höf. Siglingar voru þá draumur ungra manna, en mesti hildarleikur liðinnar aldar, heims- styrjöldin síðari, breytti draumum í bitran veruleika. Alf fékk eins og fleiri sjómenn þessa tíma að horfast í augu við dauðann og horfa á eftir félögum sínum í þá gröf, sem mörg- um sjómönnum er búinn. Þessi lífs- reynsla átti eftir að taka sinn toll. Siglingatímanum lauk árið 1943, þegar Alf var á skipinu Jan Mayen í fiskflutningum milli Íslands og Bretlands. Þá kynntist hann þeirri konu, sem átti eftir að verða lífs- förunautur hans til dauðadags, Guð- björgu Líkafrónsdóttur frá Ísafirði. Þau eru sín fyrstu búskaparár í Reykjavík og eignast þá fjögur börn, Ásgeir, Bernharð, Óttar og Guðbjörgu. Árið 1951 flytjast þau til heimabæjar Alf, Målöy. Þar fæðist fimmta barnið Gunnar. Árið 1954 tekur fjölskyldan sig upp á ný, og flyzt nú til heimabæjar Guðbjargar, Ísafjarðar. Segja má, að koma þess- arar hálfnorsku fjölskyldu til Ísa- fjarðar hafi vakið nokkra athygli. Drengirnir klæddust pokabuxum að norskum sið og báru skólabækurnar í bakpoka í stað skólatösku. Ekki kom það í veg fyrir að fjölskyldan eignaðist vini og félli vel inn í ísfirzk- an jarðveg. Kynni mín af þeim hóf- ust á gamla knattspyrnuvellinum á Ísafirði þar, sem elzti drengurinn Ásgeir stóð andspænis mér í liði Vestra, en yngri drengirnir Bern- harð og Óttar voru samherjar mínir í Herði. Þrátt fyrir að við Ásgeir tækjumst á á knattspyrnuvellinum, tókst með okkur góð vinátta á þess- um árum sem varir enn og á ég ekki von á, að þar verði nein breyting á. Alf fékkst við ýmis störf eftir að fjölskyldan fluttist á Ísafjörð. Hann fór til sjós í nýsköpunartogaranum Sólborgu, vann við framkvæmdir í Aðalvík og við skipasmíðastöð Mar- zellíusar Bernharðssonar á Ísafirði. Árið 1978 mátti hann sjá á eftir konu sinni, Guðbjörgu langt um aldur fram þá aðeins 58 ára gamall. Ekki fór á milli mála, að hörm- ungar stríðsins höfðu valdið Alf var- anlegum skaða, sem hann eins og margir aðrir máttu bera ævilangt, því áfallahjálp þekktist ekki á þess- um árum. Þó má segja norska ríkinu til hróss, að bótaskylda við þá þegna sína, sem unnið höfðu hættuleg störf á stríðsárunum var viðurkennd. Undirritaður kynnist þessum hægláta manni nokkuð vel í fjölda samtala sem við áttum seinni ár hans á Ísafirði. Hann var greindur vel og íhugull og lét sig miklu varða það umhverfi, sem hann lifði og starfaði í. Hann færði sína stærstu fórn á stríðsárunum, þegar hann lagði líf sitt í hættu til færa stríðs- þjáðum Bretum íslenzkan fisk, en mestu uppskeru lífsins fékk hann með eiginkonunni í börnum sínum og barnabörnum, sem reyndust hans nýja landi góðir þegnar. Ég votta öllum ættingjum Alf Överby samúð og bið Guð að blessa minningu góðs drengs. Ólafur B. Halldórsson. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 37 Þegar dýr var sent í sláturhús hringdi Siggi til að athuga hvort flutningarnir hefðu ekki gengið vel og bað um að dýrinu yrði slátrað fyrst. Þannig var umhyggjan fyrir skepnunum. Ég minnist hans fara ríðandi út á holt eða mýri á hvíta hestinum sínum kominn hátt á áttræðisaldur, þótt jörð væri freðin og hvít og hörku- frost, til að telja stóðið og líta eftir búpeningnum. Ég hef aldrei kynnst manni sem hugsaði jafn vel og hafði jafn vakandi auga með dýrum sínum. Búskap sinn hófu Siggi og Rúna í Vetleifsholti 1952, við kost sem bændum nútímans þætti ekki boð- legur; kýrnar voru í öðrum enda fjóssins en íbúð í hinum. Þannig voru aðstæður fyrir unga bændur sem ætluðu að hefja búskap á eftirstríðs- árunum. Bjartsýni ríkti hjá ungu hjónunum og búið byggðist hratt upp með blönduðum búskap. Börn voru í uppáhaldi hjá Sigga og tók hann jafnan yngstu barnabörnin í það og það skiptið á hné sér og reri með þau og söng enda hændust þau að honum. Ef um áhugamál mætti tala hjá manni þar sem vinnan var líf- ið sjálft stóðu hestar hjarta hans næst, og var hann einn af stofnfélög- um hestamannafélagsins Geysis. Á yngri árum tók hann virkan þátt í félagsstarfi Geysis og tók að sér tamningar með búskapnum. Á efri árum þótti honum gaman að fara á kappreiðar og mót og spá í gæð- ingana og reiðlagið. Siggi ræktaði hross á þann hátt sem tíðkaðist hér áður fyrr, án númera og ættbókar eða upp á gamla mátann eins og hann sagði sjálfur. Vetleifsholtshrossin voru sterk og dugmikil og ekki á allra færi að ríða sumum þeirra. Oft sagði hann sögur frá gamla tímanum þegar búið var á hverjum hól í Vetleifs- holtshverfinu og þar um kring, sagði frá gömlum búskaparháttum og líf- inu í hverfinu þegar þar bjuggu um 100 manns. Siggi var í mínum huga mjög hreinskiptinn maður sem kom til dyranna eins og hann var klædd- ur, þótt hreinskiptni hans hafi stund- um ekki verið öllum að skapi. Hann naut sín best í fjósinu syngjandi með sinni mjúku tenórrödd við mjaltir og þegar hann var í hrossastússi eins og hann sagði sjálfur, eða við gegningar á fé sínu. Undirritaður átti því láni að fagna að ganga smáspöl lífsins veg með manni sem miðlaði af reynslu sinni þegar þess var óskað. Við Dóra, Steinn og Stefán þökkum samfylgd- ina um leið og hugskotin fyllast af góðum minningum. Hans verður minnst sem góðs drengs en fyrst og fremst sem góðs fjölskylduföður og bónda af lífi og sál. Gísli Stefánsson. Elsku afi minn. Mig langar til að þakka fyrir allar yndislegu stundirn- ar sem ég átti með þér og ömmu í Vetleifsholti. Ég var svo heppin að fá að vera mikið hjá ykkur í sveitinni og fá oft að gista hjá ykkur. Það varst þú sem kenndir mér að spila Olsen-olsen og fleiri spil og biðum við oft bæði spennt eftir því að geta spilað saman. Það er erfitt að hugsa sér líf okkar án þín og að litla ófædda systkinið mitt fái ekki að hitta þig og sitja í fanginu þínu. En minningin lifir í hjarta okkar og við munum öll geta sagt frá því hve góður maður þú varst. Ég vil kveðja þig með þessari bæn. Vertu yfir og allt um kring, með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Ég veit að þú ert núna engill hjá guði sem vakir yfir okkur og ömmu í sveitinni. Guð geymi þig, afi minn. Þín Karen Eva Sigurðardóttir. Sigurður og Guðrún flytja frá Hellu að Vetleifsholti vorið 1952. Vet- leifsholtið var þá í eyði og algjörlega húsalaust. Þar þurfti að byggja allt upp frá grunni. Þau byrjuðu á að byggja fjósið, hluta af því innréttuðu þau til bráðabirgða sem íbúð og fluttu í það fyrir sláttinn sama ár. Mér er minnisstætt hvað mikill kraft- ur var í Sigurði við að koma mann- virkjum sínum undir þak, vinnudag- urinn var oft langur og strangur. Á öðru ári fluttu þau í nýtt íbúðar- hús sem þau hafa búið í til þessa dags en það skemmdist mikið í jarðskjálft- unum á liðnu ári. Sigurður átti eitthvað af hestum þegar hann byrjaði búskapinn. Hann var góður hestamaður og átti ágæta hesta, enda naut hann þess að skreppa á hestbak er tækifæri gafst meðan heilsan leyfði. Annan bústofn þurftu þau hjónin að kaupa. Búfén- aðurinn skilaði mjög góðum afurðum. Sigurður var glöggur á búfé og hirti það svo vel að til fyrirmyndar var. Að hefja búskap í sveit á þessum árum byggðist mest á þrotlausri vinnu, tækni var þá lítil og frumstæð. Smátt og smátt þokaðist í átt að meiri tæknivæðingu sem leiddi af sér stærri bú sem gáfu þá heldur meira í aðra hönd. Við nafnarnir höfðum stundum samvinnu sem gat komið sér vel fyrir báða. Sigurður heitinn var harðduglegur að hverju sem hann gekk, og lét þá ekki sitt eftir liggja, hann var fastur fyrir í skoðunum og leyndi þeim ekki hvort sem var um menn eða málefni að ræða. Í þá daga kom fyrir að menn hitt- ust að kvöldi og tækju slag til að stytta sér stundir á vökunni. Þá var ekki sjónvarp til að horfa á. Börnin á Kastalabrekku og Vet- leifsholti ólust upp nánast á sama hlaðinu. Vinfengi þeirra var með ágætum. Það tengdi samskipti fjöl- skyldnanna mikið. Frá þessu fimmtíu ára nábýli er margs að minnast. Þeim Sigurði heitnum og Guðrúnu ber að þakka sérstaklega gott nágrenni öll þessi ár. Ég held að þar hafi aldrei borið skugga á. Greiðasemi og góðvild þeirra er mér minnisstæð og verður seint full- þökkuð. Á kveðjustund setur mann hljóðan með nokkrum trega, sem er þó af því góða þegar að er gáð. Ég og fjölskylda mín vottum Guð- rúnu og fjölskyldu hennar samúð, um leið og við biðjum Sigurði heitnum blessunar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Sigurður Jónsson.       %            /? 1 @ ,9 (+ ! # %+   +     %     7"#"!."))" !> 4(# %6'(%%# 1" 6 # %6# !(& % !('(%%#  !('(%%# " "A '#'(%%# !> #! #'(%%# 1" 6 # 3+ '& "A '# , %%* & !> !+ ''(%%# 4 # ! # 1 , %%* '(%%# '% ! & " , %%* '(%%# , " '#&       %     %   % B , 9 0 & 7C          % 8      % %    ()"#"!4"))" 9          %-  -        &  # " %"" !+ ''(%%# " B5"+ & -# # '(%%# %" B5"+ & #$ 1 #'(%%# 0"  )% B5"+ '(%%# BD% # !+ '& & ) # )-# :   %   /?,// 0. 12 &" ,>#' "     %+ %          7"#"!("))"  #)-# ! '(%%# & !% '' # *          /?9?/ < <1 6#5 < ' #6#!  ! % %" *+" 5%$ ;E)              4"#" @&")#$  %'(%%# !+ ' # 2# "  (& BD% #  ! #& @#%  ! #'(%%# (  $%& # ! # ! #'(%%# '' #  &)&  #: -# ! #'(%%# & ) # )-# 3    %   % 1 /?,// 1 #  ## %2  ; 8  3   # #   ,2     !"#"    %;   -  (!"#"!."))"  #"  !#$ (* '(%%# ( !+ '& 0F(# 3 # (* & 1"-6 "  -#'(%%# !( (* '(%%# #'    (* '(%%#  #! # '' # BD% #&   # " (* & " 6 # '(%%# !#$ , ##D% (* '(%%#  " %  "% ! # (* &    G + " # /% (* & " ! # (* & ("+6# ! # ("  "  (' -#% #  )# (* & !# ! # # '(%%# 4(#  #)-# (* '(%%# $ # # (* & " !+ ''(%%# & 6 )-#
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.