Morgunblaðið - 27.07.2001, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001 43
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Húsfélag alþýðu
Stjórn Húsfélags alþýðu boðar til almenns
fundar um viðhaldsmál með íbúðareigendum,
Brávallagötu 42—50, miðvikudaginn 1. ágúst
nk. kl. 19.00 á skrifstofu félagsins.
Dagskrá
1. Tillögur um sameiginlegt viðhald.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Framsóknarfélögin
í Reykjavík
Sumarferð framsóknar-
félaganna í Reykjavík
Hin árlega sumarferð okkar verður farin laugar-
daginn 11. ágúst nk. og verður að þessu sinni
ferðinni heitið um Suðurland.
Nánari dagskrá auglýst síðar og verður hana
einnig að finna á heimasíðu okkar hrifla.is .
Verð kr. 3.800.
Upplýsingar og farmiðapantanir í síma
552 4020.
Fulltrúaráð framsóknar-
félaganna í Reykjavík.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Forval
Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins,
f.h. varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli fram-
lengir hér með frest til að taka þátt í forvali
vegna útboðs á verki innan varnarsvæðisins
á Keflavíkurflugvelli:
Pökkun og flutningur húsmuna fyrir
varnarliðið.
Samningurinn er til eins árs með möguleika
á framlengingu fjórum sinnum, til eins árs í
senn. Tilkynning þessi tekur einungis til
íslenskra lögaðila.
Forvalsgögn fást á varnarmálaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins, Rauðarárstíg 25, Reykjavík
og á Brekkustíg 39,
Reykjanesbæ. Þau ber að fylla út af umsækj-
endum og áskilur forvalsnefnd utanríkisráðu-
neytisins sér rétt til að hafna forvalsgögnum
sem ekki eru fullnægjandi. Ekki verður tekið
við upplýsingum frá þátttakendum eftir að for-
valsfrestur rennur út.
Frestur til að skila umsóknum er hér með
framlengdur til fimmtudagsins 2. ágúst nk.,
kl. 16:00. Umsóknum skal skilað til varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneytisins,
Rauðarárstíg 25, Reykjavík eða Brekkustíg
39, Njarðvík fyrir þann tíma.
Varnarmálaskrifstofa
utanríkisráðuneytisins.
Forval
Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins
f.h. varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, auglýsir
hér með eftir aðilum til að taka þátt í forvali
vegna útboðs á eftirfarandi verkefnum innan
varnarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli:
1. Grillsvæði og hjólageymsla milli bygg-
inga 759 og 760.
2. Grillsvæði og hjólageymsla milli bygg-
inga 747 og 748.
3. Fimm útivistarsvæði við fjölskylduhús.
4. Fjögur útivistarsvæði við byggingar
927-931.
5. Viðgerð á þaki stórverslunar varnarliðs-
ins (Navy Exchange).
6. Viðgerð á rafmagnsdreifikerfi, þrep 2.
7. Viðgerð á skolplögnum við Slope Lane.
Tilkynning þessi tekur einungis til íslenskra
lögaðila.
Forvalsgögn fást hjá varnarmálaskrifstofu ut-
anríkisráðuneytisins, Rauðarárstíg 25, Reykja-
vík og á Brekkustíg 39, Reykjanesbæ. Þau ber
að fylla út af umsækjendum og áskilur forvals-
nefnd utanríkisráðuneytisins sér rétt til að
hafna forvalsgögnum sem ekki eru fullnægj-
andi. Ekki verður tekið við upplýsingum frá
þátttakendum eftir að forvalsfrestur rennur
út.
Umsóknum skal skilað til forvalsnefndar
varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins, Rauðarárstíg 25, Reykjavík eða Brekku-
stíg 39, Njarðvík fyrir kl. 16:00, þriðjudag-
inn 7. ágúst nk.
Varnarmálaskrifstofa
utanríkisráðuneytisins
TILKYNNINGAR
Djúpvegur Ísafjarðarbotn
– Látur í Mjóafirði
Drög að tillögu að matsáætlun
Vegagerðin auglýsir hér með drög að tillögu
að áætlun um mat á umhverfisáhrifum Djúp-
vegar úr Ísafjarðarbotni að Látrum í Mjóafirði.
Drög að tillögu að matsáætlun er kynnt á ver-
aldarvefnum, samkvæmt reglugerð 671/2000
um mat á umhverfisáhrifum. Tillöguna er hægt
að skoða á heimasíðu Vegagerðarinnar, slóðin
er http://www.vegag.is/. Almenningur getur
gert athugasemdir við drögin og er athuga-
semdafrestur til 20. ágúst nk. Athugasemdir
má senda til Vegagerðarinnar á Ísafirði, merkt-
um Djúpvegur: Matsáætlun eða í tölvupósti
til kk@vegag.is.
Stefnt er að kynningu draganna í Reykjanesi
laugardaginn 25. ágúst 2001 milli kl. 10.00 og
15.00.
Vegamálastjóri.
Auglýsing um
deiliskipulag í Reykjavík
Grafarvogur, Spöng, tillaga að breytingu
á deiliskipulagi Spangarinnar varðandi
lóðina nr. 3-5 (merkt eining G í gildandi
deiliskipulagi).
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, er hér með auglýst til kynn-
ingar tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Spangarinnar í Grafarvogi varðandi lóðina
nr. 3-5 (merkt eining G í gildandi deili-
skipulagi). Um er að ræða lóð á móts við
Dísarborgir.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að byggt verði
kvikmyndahús á lóðinni með 4 sölum er
rúmi um 950 manns. Jafnframt er gert ráð
fyrir að í húsinu verði veitingasala og
bankaútibú. Byggingin getur orðið allt að
4000 fermetrar á þremur hæðum skv.
tillögunni og nýtingarhlutfall allt að 0,45.
Mesta hæð útveggja má vera 11m yfir
gólfkóta aðalgólfs.
Tillagan liggur frammi í sal Borgar-
skipulags og byggingarfulltrúa í Borgartúni
3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá
27. júlí til 24. ágúst 2001. Þeir sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að
kynna sér tillöguna. Ábendingum og
athugasemdum skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en
7. september 2001.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 27. júlí 2001.
Borgarskipulag Reykjavíkur
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Dagskrá
þjóðgarðsins á
Þingvöllum helg-
ina 28.—29. júlí.
Laugardagur 28. júlí
Kl. 13.00 Arnarfell. Gengið um
eyðijörðina Arnarfell við norð-
austurhorn Þingvallavatns.
Rifjuð verður upp búsetusaga
og rýnt í náttúruna á einum fal-
legasta stað við Þingvallavatn.
Gangan tekur um 2 klst. Farið frá
bílastæði við enda afleggjara að
Arnarfelli.
Kl. 13.00 Leikið og litað í
Hvannagjá. Dagskrá fyrir
krakka á öllum aldri í Hvannagjá.
Tekur um 1 klst. og farið frá
þjónustumiðstöð.
Sunnudagur 29. júlí.
Kl. 14.00 Guðsþjónusta í Þing-
vallakirkju.
Kl. 15.00 Þinghelgarganga.
Gengið um þingstaðinn forna og
hugað að sögu og náttúru. Hefst
við kirkju að lokinni guðsþjón-
ustu og tekur um 1 klst.
Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins
á Þingvöllum er ókeypis og allir
eru velkomnir.
Nánari upplýsingar eru veittar í
þjónustumiðstöð s. 482 2660 og
á heimasíðu þjóðgarðsins
www.thingvellir.is .
28. júlí kl. 8.00 Kaldárdalur
— Hrútaborg — Haffjarðar-
dalur á Vesturlandi, 5—7
klst. ganga. Verð 2.400 kr.
fyrir félaga, annars 2.700 kr.
Fararstjóri Reynir Ingibjarts-
son. Brottför frá BSÍ með við-
komu í Mörkinni 6.
29. júlí kl. 10.30 Lamba-
fellsgjá — Grænadyngja —
Höskuldarvellir á Reykjanesi,
3—4 klst. ganga. Fararstjóri
Jónatan Garðarsson. Verð 1.400
kr. fyrir félaga, annars 1.700 kr.
Brottför frá BSÍ (austanmegin)
með viðkomu í Mörkinni 6 og
austan við kirkjugarðinn í Hafn-
arfirði. Samstarfsverkefni F.Í. og
Umhverfis- og útivistarfélags
Hafnarfjarðar.
Göngudagskrá í Þórsmörk
um verslunarmannahelgina.
Eitthvað fyrir alla, grillmáltíð inn-
ifalin. Fararstjóri Jón Guðni
Kristjánsson.
Kjalvegur hinn forni 7.—12.
ágúst. Víknaslóðir við Borg-
arfjörð 10.—15 ágúst. Sími hjá
F.Í. 568 2533. www.fi.is , texta-
varp RUV bls. 619.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R